Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi Niðurstöðurnar þóttu mjög sláandi því þegar heilarnir voru krufnir reyndust þeir vera stærri í rott- unum, sem höfðu félagsskap hver af annarri og lifðu fjölbreyttu og skemmtilegu lífi,“ segir María og lýsir því hvaða líffræðilegu skýr- ingar liggja að baki. Félagsleg virkni mikilvæg Og vel að merkja – núna er hún að tala um manneskjur: „Ef við hreyfum okkur af ákefð eykst blóðflæðið, viss efni losna í lík- amanum, sem örva frumuvöxtinn og stuðla að því að hluti heilans, sem tengist minni, vex og dafnar. Þess vegna er staðreynd að lík- Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Unga dama, heilinn breyt-ist ekki,“ var sagt yfir-lætislega við MarionDiamond, einn af helstu frumkvöðlum í taugavísindum, þeg- ar hún á sjöunda áratugnum kynnti rannsókn sem sýndi fram á hið gagnstæða. Heilinn getur nefnilega breyst, raunverulega stækkað ef fólk notar hann rétt – ræktar hann með sama hætti og það ræktar líkamann. Heilahreysti og líkamshreysti eru nátengd fyrirbæri, sem fólk ætti að leggja áherslu á frá vöggu til grafar var leiðarstefið í fyrir- lestri, sem Háskólinn í Reykjavík bauð eldri borgurum á í tilefni af Alþjóðlegu heilavikunni 11. - 17. mars síðastliðinn. María K. Jónsdóttir, taugasál- fræðingur og dósent í HR, og Brynhildur Jónsdóttir, sálfræð- ingur, sem báðar starfa á Minnis- móttöku Landakots, fluttu í sam- einingu fyrirlesturinn Að taka því sem að höndum ber eða spyrna við fótum? María segir að alltof lengi hafi verið ríkjandi viðhorf að minnistap væri eðlilegur og óhjákvæmilegur fylgikvilli hækkandi aldurs og ekk- ert væri við því að gera. „Eldra fólk á ekki að láta slík viðhorf yfir sig ganga, enda ekki alveg rétt. Fólk getur spyrnt við fótum og notað ýmsar leiðir til að halda sér andlega hraustu. Trikkið er afskaplega einfalt; það sem virkar vel á líkamann, virkar líka vel á hugann. Hreyfing er ekki bara góð fyrir skrokkinn, heldur líka fyrir minnið og alla hugræna getu. Þeir sem yngri eru ættu ekki að hætta að gera kröfur til eldra fólks frekar en til annarra, á þeim forsendum að hann eða hún sé jú orðin 75 ára og því auðvitað ekki alveg með á nótunum,“ segir María. Flestir vilja lifa lengi en ekki verða gamlir Að spyrna við fótum er tví- mælalaust rétta svarið. Engin spurning. Þær Brynhildur komu víða við í fyrirlestrinum. Meðal annarra bar Sigmund Freud, upp- hafsmann sálgreiningar, á góma. Einnig Benjamin Franklin, sem var forseti Bandaríkjanna á ár- unum 1785 – 1788, en hann mun hafa látið svo ummælt að öll vild- um við lifa lengi en ekki verða gömul. Sannleikskorn í því. María kom inn á niðurstöður rannsóknar fyrrnefndrar Diam- ond, sem afsönnuðu þá kenningu að okkur sé bara úthlutað ákveðnum fjölda taugafrumna, sem deyi og um leið rýrni heilinn. „Hún sýndi fram á að heilabörk- urinn þykknaði með aldrinum vegna þess að tengingum milli taugafrumna fjölgaði. Leiðin ligg- ur því ekki bara niður á við,“ segir María brosandi. Sjálf fékk hún tækifæri til að hlýða á Diamond þegar hún var í doktorsnámi í klínískri taugasálfræði í Houston í Texas og þótti mikið til um. „Diamond, sem lést í fyrra, háöldruð, var stórkostlegur fræði- maður og mikils virt. Í rannsókn- inni sem um ræðir notaði hún sem tilraunadýr fullþroska rottur, systkini úr sama goti. Hún skipti þeim í tvo hópa, í öðrum voru þær hver um sig í búri og höfðu hvorki félagsskap af öðrum rottum né dót til að leika sér með. Afskaplega ömurlegt allt saman. Öfugt við fjörið hjá rottunum í hinum hópn- um sem voru margar saman í búri og höfðu nóg af dóti. Báðir hóp- arnir fengu nóg að borða og jafn- mikla snertingu tilraunamanna. Heilahreysti og líkamleg hreysti fylgjast að María K. Jónsdóttir, taugasálfræðingur og dósent í Háskólanum í Reykjavík leggur áherslu á mikilvægi þess að huga að heilbrigði heilans alla ævi með sama hætti og fólk hugar að líkamshreysti. Hún segir ekki eðlilegt að missa minnið með hækkandi aldri, enda sé heilinn sveigjanlegur og geti breyst sé rétt að hon- um hlúð. Hverjum og einum sé með lífsstíl sínum í sjálfsvald sett að sporna við heilahrörnun. Fyrirlesarar Brynhildur, t.v., og María að loknum fyrirlestri sínum í HR. Getty Images/iStockphoto Dr. Skúli S. Ólafsson, prestur í Nes- kirkju, flytur erindi um sögur Bibl- íunnar af fórnum kl. 20 - 22, annað kvöld, þriðjudagskvöldið 27. mars. Af nógu er að taka í Biblíunni af slíkum sögum og má jafnvel segja að sumar þessar frásagnir séu réttnefndar hrollvekjur. Að minnsta kost kalla þær margar hverjar fram sterkar til- finningar og vekja margar spurn- ingar. Neskirkja við Hagatorg Hrollvekjandi fórnarsögur Fórn Ísaks Málverk frá 1603 eftir ítalska listmálarann Caravaggio. Líkamsrækt Hugræn heilsa eflist samfara líkamsrækt þar sem púlsinn fer almenni- lega upp, t.d. í vask- legu sundi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.