Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 13
Getty Images/iStockphoto
amleg hreysti og heilahreysti fylgj-
ast að. “ áréttar hún og jafnframt
að ekki dugi að tvínóna við hlutina
heldur þurfi að fá púlsinn almenni-
lega upp.
María getur í framhjáhlaupi
um býsna undarlegar niðurstöður
rannsóknar á leigubílstjórum í
London. „Þær voru neikvæðar því
svo virtist sem viss hluti af heil-
anum minnkaði um leið og sá sem
hefur með minni að gera stækkaði.
Skýringin kann að vera sú að
leigubílstjórarnir þurftu að inn-
byrða ofboðslega mikið af upplýs-
ingum og einbeita sér að því að
rata og muna leiðir, en reyndu
kannski ekki eins mikið á heilann á
öðrum sviðum.“
Maríu finnst þó engin ástæða
til að örvænta, rannsóknin hafi
bara sýnt nauðsyn þess að fólk
brjóti heilann um fjölbreytt mál.
Að hennar sögn nær eldra fólk,
sem stundar hreyfingu, betri ár-
angri í ákveðnum hugrænum próf-
um en þeir sem sitja bara heima
og gera ekki neitt. Einnig hafi
stórar faraldsfræðilegar rann-
sóknir sýnt að félagsleg virkni er
ekki síður mikilvæg en líkamleg.
„Fólk þarf að eiga sér mark-
mið, ögra kollinum, gera og læra
stöðugt eitthvað nýtt, en ekki fest-
ast í sömu rútínunni. Sudoku er til
dæmis fínt með öðru, en voða ein-
hæft eitt og sér þótt margir telji
sér trú um að það dugi til að halda
heilanum við. Betra er að fást líka
við eitthvað flóknara, sem krefst
þess að fólk þurfi að hugsa um
margt í einu, og þá hugsanlega
með öðrum.“
Þótt Maríu sé síður en svo í
nöp við sudoku, nefnir hún að tafl,
borðspil, krossgátur og lestur geti
til dæmis verið gott í bland. Aðal-
atriðið sé fjölbreytni, að ógleymdri
jákvæðninni og góða skapinu sem
vissulega stuðli að bættri hug-
rænni heilsu. Og þá sé ekki síður
mikilvægt að fá nægan og góðan
svefn.
„Fólk finnur náttúrlega fyrir
líkamlegum breytingum með aldr-
inum, en ef því tekst að minnka til
dæmis áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma stuðlar það um leið
að andlegu heilbrigði sínu. Ekkert
kemur þó ennþá í veg fyrir að fólk
fái Alzheimer-sjúkdóminn, en lífs-
stíllinn getur seinkað því að ein-
kennin komi fram. Enda hefur
komið í ljós að einkennin hafa sést
í heila látinna án þess að þeir hafi
borið nokkur merki hans í lifanda
lífi.“
Að safna heilaforða
Og María víkur að heilaforða í
þessu samhengi og mikilvægi þess
að hefja söfnun í heilabankann á
unga aldri til þess að fólk verði
betur á sig komið en ella þegar
aldurinn færist yfir. Líka til að
eiga eitthvað upp á að hlaupa ef
slys eða sjúkdóma ber að höndum
á lífsins leið.
„Sumir virðast hafa meira við-
nám gegn Alzheimer-sjúkdómnum
og heilabilun af öðru tagi og fá ein-
kennin ekki eins snemma og aðrir.
Í þeim hópi eru oft mikið menntað-
ir og þeir sem sinnt hafa flóknum
störfum um ævina. Gáfumenni eins
og breska skáldkonan og heim-
spekingurinn Iris Murdoch fékk
heilabilun, en hefur ef til vill haldið
lengur í við sjúkdóminn en aðrir
hefðu gert,“ segir María og bætir
við að fólk sé alla ævi til skiptis að
taka út og leggja inn í heilabank-
ann.
„Á endanum speglar staðan
allt okkar líf. Allt ber að sama
brunni; með því að ástunda lík-
amsrækt eflum við okkar hug-
rænu heilsu og getum átt okk-
ur áhyggjulaust, en erilsamt
ævikvöld,“ segir María.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp film
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægu
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari u
uh
m v
pplýsingum um áh
us
s.
kra.is.
töku, Panodil Br
fyrir notkun lyfsin
Panodil H
ga upplýsi
ættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjas
ot mixtúruduft,
ngar á umbúðum
lausn til inn
og fylgiseðli
úðaðar töflur, P
erkjum. Hitalækka
anodil Junior mixtúra, dreifa,
ndi. Til inntöku. Lesið vandle
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi
Ágústa Kristófersdóttir, sagn- og
safnfræðingur, flytur erindi í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 12 á
morgun, þriðjudaginn 27. mars, þar
sem hún rifjar upp söguna á bak við
byggingu og skipulag Breiðholts-
hverfanna. Sérstök áhersla er á löngu
blokkina og Breiðholt III, en í ljós-
myndasal safnsins er sýning David
Barreiru, Langa blokkin í Efra Breið-
holti. Að fyrirlestri loknum gefst
kostur á að skoða sýninguna.
Skoðað verður m.a. hvað leiddi
arkitektana áfram í starfi þeirra við
skipulagningu hverfanna og hönnun
húsa og lóðanna umhverfis þau.
Fjallað verður um hugmyndirnar á
bak við skipulagið, útfærsluna og
rætt almennt um hverfið – kosti þess
og galla.
Hádegisfyrirlestur
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Blokkir Breiðholtið árið 1974.
Kostir og gall-
ar Breiðholts
Ungmennaráð UN Women heldur
kahootkvöld kl. 20 í kvöld, mánudag-
inn 26. mars, á Loft Hostel.
Kahoot er spurningaleikur þar sem
spurningum og svarmöguleikum er
varpað upp á skjá. Þátttakendur nota
snjallsíma til þess að taka þátt í
leiknum og svara spurningum. Þeir
sem ekki eiga snjallsíma geta verið í
liði með öðrum með síma. Spurning-
arnar verða tengdar afrekum kvenna
og kynjatengdum málefnum. Veglegir
vinningar í boði fyrir efstu sætin.
Húsið verður opnað kl. 19:30.
Ungmennaráð UN Women
AFP
Halló! Ekki þurfa allir þátttakendur
að mæta með snjallsímana sína.
Spurt um kon-
ur í Kahoot
María segir að á Íslandi sé engin heildstæð stefna í
málefnum tengdum heilabilun, hvorki hvað varðar
sjúklinga, fræðslu, forvarnir né umræðu. Að hennar
mati ætti heilabilun að vera forgangsverkefni og lýð-
heilsuverkefni allra landa.
Hún bendir á að í niðurstöðum rannsóknar (Barn-
ett o.fl., BMC Medicine) frá árinu 2013, þar sem
reynt var að meta hversu stóran hluta heilabil-
unaráhættu mætti rekja til áhættuþátta hjarta- og
æðasjúkdóma, hafi komið í ljós að:
13% mátti rekja til hreyfingarleysis,
5% til háþrýstings og
3% til sykursýki.
Lýðheilsuverkefni allra landa
HEILABILUN OG ÁHÆTTUÞÆTTIR
Spyrnt á móti Algengi heilabil-
unar tvöfaldast á hverju 5 ára
bili frá 65 ára aldri til 85 ára
aldurs, en hægt er að spyrna
við fótum.
„Fólk þarf að eiga sér
markmið, ögra koll-
inum, gera og læra
stöðugt eitthvað
nýtt, en ekki festast í
sömu rútínunni.“
Getty Images/iStockphoto
Fjölbreytni Til að bæta heilahreyst-
ina er mikilvægt að fást við fjöl-
breytt og flókin verkefni.