Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR ● Bandaríska skutlmiðlunin Uber hefur fallist á að selja starfsemi sína í Suð- austur-Asíu til singapúrska keppinaut- arins Grab. Fyrirtækin tvö hafa háð harða og dýra baráttu um yfirráð yfir helstu markaðssvæðum í þessum heimshluta Snjallforrit Grab hefur verið sótt um 86 milljón sinnum og er fyrirtækið með ökumenn á sínum snærum í 190 borg- um í Singapúr, Indónesíu, Filipps- eyjum, Taílandi, Víetnam, Míanmar og Kambódíu. Er Grab í dag metið á um það bil sex milljarða dala. Bloomberg og Reuters greindu frá fyrirhugaðri sölu á sunnudag og hafa eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Hvorki Uber né Grab vildu tjá sig um tíðindin en búist er við að tilkynnt verði formlega um söluna á mánudag. Uber mun halda eftir um 25-30% eignarhlut og eignast Grab því 70-75% hlut í bæði skutlþjónustu Uber og mat- arheimsendingarþjónustunni Uber- Eats, að sögn Bloomberg. Það þótti benda til þess að yfirtaka gæti verið í spilunum þegar japanska samsteypan SoftBank fjárfesti í Uber fyrir marga milljarða dala fyrr á þessu ári. SoftBank hefur einnig fjárfest í Grab og í kínversku skutlþjónustunni Didi Chuxing sem árið 2016 keypti rekstur Uber í Kína. ai@mbl.is Grab kaupir rekstur Uber í Suðaustur-Asíu Slagur Uber hefur mætt harðri sam- keppni á skutlmarkaðinum í Asíu. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á föstudag var efnt til samkomu í Salnum í Kópavogi til að marka lok viðskiptahraðalsins Startup Tour- ism. Casey Fenton, stofnandi gisti- miðlunarinnar CouchSurfing.com, hélt erindi á samkomunni en fyrir- tæki hans hefur verið þakkað að hafa rutt brautina fyrir deilihagkerfis- sprota á borð við Airbnb með því að hjálpa ferðalöngum að finna ódýra gistingu hjá ókunnugum. Casey var staddur hér á landi bæði til að veita íslenskum ferða- þjónustusprotum leiðsögn og einnig til að kynna nýjasta verkefni sitt Mastly (http://mast.ly) sem auðveld- ar starfsfólki að hafa yfirsýn yfir hlutafjáreign sína í fyrirtækjunum þar sem það starfar. Um Mastly seg- ir Casey að það hafi sýnt sig að þegar starfsmenn geta séð í einföldu mæla- borði hvernig hlutur þeirra vex og dafnar þá tvöfaldist og jafnvel þre- faldist afköst þeirra. Lítill árangur með litlu trausti Í erindi sínu fjallaði Casey um mikilvægi trausts fyrir nýsköpun. Hann segir bæði sprotum og rót- grónum fyrirtækjum vegna betur ef meira traust ríkir á milli starfs- manna, rétt eins og þjóðfélög njóta aukinnar hagsældar ef traust í garð meðborgaranna er meira frekar en minna. Hann segir lítið traust hefta boðskipti innan fyrirtækja og standa í vegi fyrir dreifstýrðri ákvarðana- töku sem síðan verður til þess að þau dragast aftur úr keppinautum sínm. „Í grófum dráttum má skipta fyr- irtækjum í þrjá flokka. Í fyrsta flokknum, þar sem lítið sem ekkert traust ríkir, snúast dagleg störf fólks iðulega um eigin lífsbaráttu. Viðhorf starfsmanna og stjórnenda einkenn- ist af bölsýni og óánægju með eigið hlutskipti, og sama sem engir hvatar eru til að leita nýrra leiða til að gera betur,“ segir Casey og nefnir banda- rísku póstþjónustuna sem þekkt dæmi um svona vinnustað. „Í öðrum flokknum ríkir meira traust, en þó ekki meira en svo að fólk hamstrar upplýsingar og deilir ekki með öðr- um nema það þjóni þess eigin hags- munum. Eru það aðallega æðstu stjórnendur sem hafa heildarsýn yfir reksturinn og þurfa því allar skip- anir og ákvarðanir að koma að ofan.“ Í þriðja flokknum, þar sem mikið traust ríkir, flæðir þekking og upp- lýsingar greiðlega á milli starfs- manna. Allir eru á sama báti, og geta unnið samhentir að sama markmiði. „Það sem gerist um leið er að ákvarðantakan getur verið dreif- stýrð að því marki að hver starfs- maður getur í dagsins amstri tekið alls kyns minniháttar ákvarðanir sem hámarka getu heildarinnar til að ná settu marki. Áhrif margra smárra en góðra ákvarðana safnast upp og gera fyrirtæki samkeppnis- hæfari.“ Að skapa vinnustað þar sem ríkir gott traust er hægara sagt en gert. Casey segir að vissulega hjálpi til ef almennt ríkir mikið traust í sam- félaginu þar sem fyrirtæki starfa, líkt og á við um mörg lönd N-Evr- ópu, en það hvíli á stjórnendum að bæði sýna gott fordæmi og ýta undir traust á milli starsfsfólks. Þá verði líka að vera á varðbergi og forðast að ráða inn fólk sem fellur illa að hópn- um og dregur úr traustinu frekar en að auka það. Gestrisnir Íslendingar Casey bendir á að traust skipti líka miklu máli fyrir árangur deili- hagkerfissprota eins og CouchSurf- ing.com. Varð það honum til happs, þegar hann lét fyrst reyna á hug- myndina á bak við vefsíðuna, að hann valdi land þar sem ríkir mikið traust: Ísland. „Mig hafði lengi lang- að að heimsækja Ísland, og vildi prófa á sem einfaldastan hátt hvort fólk væri yfir höfuð fáanlegt til að hýsa ókunnugan gest á sófanum hjá sér,“ segir hann. „Ég fann um það bil 1.500 netföng í netfangaskrá Há- skóla Íslands, og sendi af stað fjölda- póst sem ég stílaði persónulega á hvern viðtakanda og lýsti erindinu, og lét fylgja með lítinn „prófíl“ um sjálfan mig, með mynd og ýmsum upplýsingum. Einum degi síðar höfðu í kringum 50-100 manns boðið mér pláss á sófanum sínum. Ekki nóg með það heldur endaði ég hjá gestgjafa sem var þekktur í íslenska næturlífinu og sýndi mér hliðar á borginni sem ég hefði annars aldrei kynnst. Viðbrögðin voru betri en ég hafði þorað að vona og upplifunin af Íslandi sýndi mér að ég væri á réttri leið með viðskiptahugmyndina.“ Lítið gerist ef traustið vantar Morgunblaðið/Hari Áskorun Casey Fenton á fundi Startup Tourism. Lítið traust heftir boð- skipti á vinnustað en mikið traust hvetur til dreifðrar ákvarðanatöku.  Ef traust skortir á milli starfsfólks einkennist daglegur rekstur af lífsbaráttu frek- ar en nýsköpun  Stofnandi CouchSurfing prufukeyrði hugmynd sína á Íslandi Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæf- iseinkunn Lands- virkjunar fyrir óverðtryggðar lánaskuldbind- ingar án ríkis- ábyrgðar úr flokki Baa3 upp í Baa2. Þetta kem- ur fram í tilkynn- ingu sem send var fjölmiðlum á föstudagskvöld. Lánshæfiseinkunn Landsvirkj- unar með ríkisábyrgð helst óbreytt í flokki Baa1 og metur Moody‘s að horfur fyrirtækisins séu stöðugar. Í umsögn sinni segir Moody‘s að Landsvirkjun hafi sýnt fram á stöð- ugan rekstur og að fyrirtækið hafi getu til að standast breytingar á hrávörumörkuðum án þess að áhætta aukist. Þá muni sjóðs- myndun draga verulega úr skuld- setningu fyrirtækisins eftir að fjár- festingum lýkur á árinu 2018. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir hafa verið markvisst unnið að því að draga úr markaðsáhættu fyrirtækisins. Þá bendir hann á að Landsvirkjun gaf nýlega út græn skuldabréf án rík- isábyrgðar, fyrst íslenskra fyrir- tækja. „Þar sýndi sjöföld eftirspurn fram á að fyrirtækið hefur gott að- gengi að lánsfjármörkuðum,“ segir hann. ai@mbl.is Lánshæfi Landsvirkjunar batnar í mati Moody‘s Hörður Arnarson Markaðsvirði Facebook hefur lækkað um meira en 50 milljarða dala eftir að í ljós kom fyrir röskri viku að breska ráðgjafarfyrirtækið Cambridge Analytica hefði brotið gegn notendaskilmálum bandaríska samfélagsrisans árið 2014 með því að miðla persónuupplýsingum um notendur til þriðja aðila og geyma upplýsingar í leyfisleysi. Lækkaði hlutabréfaverð Facebook um rösk- lega 14% í síðustu viku og nam lækkunin 3,3% á föstudag. Kann það að skýra að einhverju leyti hve sterk viðbrögðin voru við fréttunum af broti Cambridge Analytica að fyrirtækið aðstoðaði bæði við kosningabaráttu Donalds Trumps og við kosningaherferð Brexit-sinna. Washington Post hef- ur eftir heimild- armönnum að bandaríska sam- keppniseftirlitið hafi sett af stað rannsókn á starfsháttum Facebook og hafa bæði banda- rískir og evr- ópskir stjórn- málamenn lýst mikilli óánægju með málið. Sumir undrast þó hve miklu upp- námi brot Cambridge Analytica hefur valdið og bendir t.d. miðillinn Reason á að heiftin hafi ekki verið sú sama þegar vitað var að sömu aðferðir voru notaðar í kosninga- herferðum Baracks Obama á sínum tíma, og í það skiptið með vitund og vilja Facebook. Þá var skilmálum Facebook breytt árið 2015 og sett- ar strangari reglur um öflun og notkun persónuupplýsinga not- enda. Fjaðrafokið varð m.a. til þess að stjörnufrumkvöðullinn Elon Musk ákvað á föstudag að loka eigin face- booksíðu og facebookreikningi raf- bílaframleiðandans Tesla. Reuters greinir frá því að Face- book hafi birt heilsíðuauglýsingar um helgina í breskum og banda- rískum dagblöðum þar sem Mark Zuckerberg, stofnandi fyrirtækis- ins og einn af ríkustu mönnum heims, baðst afsökunar á að hafa „brugðist trausti“ notenda. ai@mbl.is Zuckerberg fullur iðrunar Mark Zuckerberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.