Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 17

Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 Reykjavík Um 100 manns gengu frá Arnarhóli á Austurvöll á laugardaginn var til stuðnings bandarískum ungmennum sem mótmæla skotvopnalöggjöfinni í heimalandi sínu. Kristinn Magnússon Stokkhólmur| Það var fyrirframgefið að Vla- dimír Pútín myndi ná kjöri í fjórða sinn sem forseti Rússlands. Stjórnvöld í Kreml skipulögðu án efa taln- ingarsvik og fleira í þeim dúr til þess að tryggja að Pútín fengi að minnsta kosti 70% atkvæða í öllum kjör- dæmum. Pútín hefði þó líklega siglt öruggum sigri í höfn, jafnvel án þess að gripið hefði verið til slíkra bellibragða, á þeirri þjóð- ernissinnuðu bylgju sem hann skap- aði 2014 með því að innlima Krím- skagann. Það sem er óvissara en niður- staða kosninganna er hvaða stefnu- mál Pútín muni setja á oddinn næstu sex árin. Rússneska hag- kerfið sýnir ýmis teikn þess að það sé að rétta úr kútnum, en hagvöxtur er enn mun lakari en hann var á uppgangsárunum á fyrstu fimm ár- um Pútíns í embætti. Á sama tíma eru skilin í alþjóðamálum á milli Rússlands og vesturveldanna að verða enn skarpari. Pútín hefur sett saman nokkra mismunandi hópa af hagfræðingum sem eiga að leggja fram tillögur að stefnu næstu ára, en fáir skýrendur gera ráð fyrir að alvöru umbætur fylgi í kjölfarið. Langtímahorfur efnahagsins munu vera áfram dökk- ar svo lengi sem öryggisríkið heldur rússneskum fyrirtækjum og sam- félagi í heljargreipum. Þá er jafnframt erfitt að sjá hvernig Rússland getur bætt efna- hagsástandið án þess að bæta fyrst sam- skipti sín við vestur- veldin. Það er erfiðara að nálgast þær fjár- festingar sem þarf til að auka hagvöxt þar sem aðgangur Rúss- lands að lykiltækni og alþjóðlegum fjár- málamörkuðum er tak- markaður, og vegna refsiaðgerða gegn rússneskum fyrir- tækjum og auðmönn- um nákomnum Pútín. Pútín virðist hafa trúað því að viðbrögð vesturveldanna við aðgerð- um hans í Úkraínu yrðu skamm- lífar, líkt og þær voru eftir hern- aðarinngrip Rússlands í Georgíu árið 2008. Þegar það reyndist ekki vera raunin og refsiaðgerðir vest- urveldanna fóru að bíta æ meir, fóru Kremlverjar að leita eftir fjár- festingu og viðskiptatækifærum í Kína. En vonir þeirra um dýpri sam- skipti við Kínverja brugðust þegar Xi Jinping, forseti Kína, bauð Donald Trump Bandaríkjaforseta til opinbers kvöldverðar í hinni For- boðnu borg í Peking – en leiðtoga Rússlands eða Sovétríkjanna hefur aldrei hlotnast sá heiður. Á sama tíma hefur möguleikinn á bættum samskiptum við Bandaríkin gufað upp vegna uppljóstrana um mögu- leg áhrif Rússlands á forsetakosn- ingarnar í Bandaríkjunum 2016. Þá hafa Kremlverjar heldur ekki getað séð fyrir atburðarásina í Úkraínu. Þrátt fyrir atlögu Rússa að austurhluta Úkraínu hrundi rík- isstjórn landsins ekki. Í staðinn reyndi hún að koma á umbótum og undirritaði samkomulag um aukin tengsl við Evrópusambandið. Að lokum í Sýrlandi hefur Pútín lýst því yfir aftur og aftur að mark- miðum Rússa þar hafi verið náð, en samt halda rússneskir málaliðar áfram að deyja þar. Vissulega hafa Rússar getað prófað ný hergögn og stutt við stjórn Bashars al-Assad Sýrlandsforseta. En friður og stöð- ugleiki eru enn víðsfjarri. Pútín reyndi að sýna fram á sjálfsöryggi sitt í árlegu ávarpi sínu til rússneska þingsins í þessum mánuði, en hann ljóstraði engu að síður upp um ugg sinn gagnvart framtíðinni. Til dæmis voru loforð hans um hagvöxt kunnugleg, en hann gekk mun lengra en venjulega í að vara við því að Rússland gæti dregist aftur úr öðrum ríkjum. „Hraði tækniframfara er að aukast mikið,“ sagði hann. „Þeir sem geta setið þessa tækniöldu munu skjót- ast langt fram úr. Þeir sem gera það ekki munu sökkva og drukkna.“ Það er lítill vafi á því að Rússland er í hættu á því að drukkna. Sömuleiðis eyddi Pútin megninu af ræðu sinni í margmiðlunarsýn- ingu af háþróuðum nýjum kjarn- orkuvopnum: risastórum eld- flaugum sem drífa milli heimsálfa, hljóðfráum árásarvopnum, ofur- vöxnum neðansjávartundurskeytum með framtíðarbrag og kjarnorku- knúnar eldflaugar sem geta drifið hvert sem er. En í viðleitni sinni til að sanna að Rússland geti sigrast á öllum nýjum eldflaugavörnum Bandaríkjanna, sýndi Pútín um leið ótta sinn um það að kjarnorku- vopnabúr Rússlands gæti orðið úr- elt. Fyrir utan kjarnorkuvopn Rúss- lands og neitunarvald landsins sem fastafulltrúa í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna er grunnurinn að áhrifum Rússa á alþjóðavísu veikur. Jafnvel þegar búið er að leiðrétta fyrir muninn á kaupmætti er hag- kerfi Rússlands nær hagkerfi Ítalíu. Ef Pútín ætlar sér í fullri alvöru að hefja vígbúnaðarkapphlaup við Bandaríkin verður hann að neyða aðra lykilgeira efnahagsins til þess að færa fórnir – og um leið draga úr lífskjörum venjulegra Rússa. Á hinn bóginn lýsti Pútín nýlega yfir að hann væri opinn fyrir að Sameinuðu þjóðirnar sendu friðar- gæslulið til Donbass-héraðsins í Austur-Úkraínu. Og það er mögu- legt að tæknisýningu hans hafi verið ætlað að sýna fram á þörfina á frek- ari afvopnunarsamningum og sam- tali á milli kjarnorkuveldanna. Ef svo er, valdi hann skrítna aðferð til þess að koma þeim boðum til skila. En jafnvel þótt Pútín vildi hefja samtal við vesturveldin á ný, er ekki hægt að líta framhjá eiturvopna- árásinni á rússneska liðhlaupann Sergei Skripal og dóttur hans í Salisbury á Englandi í þessum mán- uði. Eins og með árásina árið 2006 þar sem rússneski flóttamaðurinn og fyrrverandi njósnarinn Alexand- er Litvinenko var myrtur með pólóníumi, hefur breska rík- isstjórnin komist að þeirri nið- urstöðu að stjórnvöld í Kreml hafi fyrirskipað aðgerðina gegn Skripal-feðginunum. Öryggisstofnanir Rússlands hafa kannski „leyfi til að drepa“ þá sem flýja land með hvaða aðferðum sem þeir geta fundið upp á. En, líkt og með pólóníum-árásina fyrir áratug, var notkunin í fyrsta sinn á háþró- uðu taugaeitri, Novichok, nokkuð sem ekki var hægt að líta framhjá, og Kremlverjar beita nú grófum lygum og veita rangar upplýsingar til þess að hylja slóð sína. Það þarf ekki að taka það fram að ríkisstjórn sem myrðir og lýgur er ekki heillandi samstarfsaðili. En það dregur ekki úr þörfinni til þess að Bandaríkjamenn og Rússar tali saman. Bæði lönd eru að endur- nýja kjarnorkuvopn sín, og sú hætta er til staðar að hin nýja tækni gæti grafið undan gömlum afvopnunar- ráðstöfunum eða gert þær úreltar. Framtíð veldis Pútíns til lengri tíma er óvissu háð. Umbætur innan- lands eru líklega ekki á borðinu, og beiting Kremlverja á öryggis- sveitum sínum erlendis hefur grafið undan líkunum á því að sættir náist við vesturveldin. Og á sama tíma og nýtt vígbúnaðarkapphlaup felur í sér talsverða hættu fyrir Rússland – líkt og alla aðra – mun það einnig nánast örugglega leiða landið til glötunar, líkt og síðustu leiðtogar Sovétríkjanna geta eflaust vitnað um. Eftir Carl Bildt » Það er erfitt að sjá hvernig Rússland getur bætt efnahags- ástandið án þess að bæta fyrst samskipti sín við vesturveldin. Carl Bildt Höfundur er fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Svíþjóðar. ©Project Syndicate, 2018. www.project-syndicate.org Pyrrosarsigur Pútíns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.