Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 21
einstök ánægja að aðstoða hann
við að komast á völlinn eftir að
hann varð seinn til gangs síðustu
árin.
Nokkrum vikum fyrir andlátið
fékk hann í fangið fyrsta barna-
barnabarnið. Langafi Maggi og
Victor áttu samleið í rétta þrjá
mánuði, og sú vinátta mun vafa-
laust halda um ókomna tíð.
Ekki veit ég hvort kenningin
um „efra og neðra“ á við rök að
styðjast, en ef svo er hefur
Maggi átt bókað far að Gullna
hliðinu. Ég sé hann fyrir mér á
áfangastað, Lykla-Pétur opnar
hliðið stóra og Maggi gengur
inn, léttur í spori.
En ef hann heyrir ískur í löm-
unum gömlu fer hann ekki
lengra, heldur finnur smurkönnu
og reddar málinu.
Því að þannig er Maggi.
Þinn vinur,
Björgvin.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið,
og þin er liðin æviönn,
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo vinur kæri vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Minningin um góðan mann á
eftir að ylja okkur um ókomna
framtíð. Elsku Lindu okkar,
Björk Ingu, Ása og fjölskyldum
sendum við hjartans samúðar-
kveðjur.
Steinunn og Erlendur.
Látinn er í Reykjavík Magnús
Ernst Ársælsson steinsmiður,
eftir erfið veikindi.
Í steinsmíðinni kom Maggi að
framleiðslu margra fagurra
muna, svo sem skírnarfonta sem
skrýða kirkjur víða um land.
Einnig annaðist hann vegg- og
arinhleðslur, gosbrunna og ann-
að sem prýðir stofnanir og heim-
ili. Hann kom líka að uppsetn-
ingu minningarsteins um Ásdísi
móður Grettis Ásmundarsonar
að Bjargi í Miðfirði.
Maggi var mikill bílaáhuga-
maður og var í essinu sínu í bíla-
viðgerðum fyrir ættingja sína og
vini, á kvöldin og um helgar,
aldrei talið eftir sér. Allt gat
hann gert, var þessi þúsund-
þjalasmiður sem allt lék í hönd-
unum á, stórgrýti sem smáskrúf-
ur.
Bílaútgerð stundaði Maggi
eftir steinsmíðina og annaðist
um tíma akstur fatlaðra barna,
þar naut sín trúmennska hans og
hlýja sem hann alla tíð var svo
ríkur af. Þetta starf held ég að
hafi veitt honum mesta gleði og
ánægju af öllu því sem hann tók
sér fyrir hendur um ævina.
Maggi var eftirsóttur starfs-
kraftur, trúr og heill í öllu sem
hann kom að. Við Maggi kynnt-
umst fyrir 55 árum þegar Linda
kom með hann í vinahópinn, sá
hópur heldur saman enn þótt
kvarnast hafi úr liðinu.
Við Halla nutum vináttu og fé-
lagsskapar Magga og Lindu sem
ferðafélagar í fjöldamörgum
akstursferðum um Evrópu á
liðnum árum og aldrei bar
skugga á.
Kæri Maggi, nú ert þú kom-
inn þar sem alltaf er sögð sól og
blíða, en skyldi ekki þurfa að
taka til hendi og gera við eitt-
hvað? Ég veit að þú stendur klár
að því. Góða ferð.
Kæra Linda, við Halla send-
um þér og allri fjölskyldu þinni
okkar bestu kveðjur og samúð,
megi sá er öllu ræður halda yfir
ykkur sinni verndarhendi.
Hafsteinn Vilhjálmsson
Ísafirði.
var í miklu uppáhaldi. Þegar við
vorum búin að spila fengum við
okkur ristað brauð og hann sagði
mér sögur. Oft náði afi í mig í
skólann og fagnaði mér í hvert
sinn eins og við hefðum ekki sést
í langan tíma.
Afi var blíður og góður maður
sem brosti með augunum og hló
smitandi hlátri og hann var líka
stríðinn. Einu sinni þegar afi og
amma voru að tína rifsberin af
trjánum á Hraunsveginum þá
sagði ég við afa: „Ég skil ekki
hvernig hún amma nennir að
hengja öll þessi ber á trén á
hverju ári.“ Þá var ég þriggja ára
og í stað þess að leiðrétta mig
sagði hann: „Nei, ég skil það ekki
heldur.“ Þannig maður var hann.
Kæri afi, ég þakka fyrir vinátt-
una og allar góðu stundirnar,
Þín
Salvör Björk.
Í dag kveðjum við kæran bróð-
ur okkar, Pálma Viðar. Hann
fæddist í Stykkishólmi 15. júlí
1935 og var elstur okkar systk-
ina. Móðir okkar var ein þegar
hann kom í heiminn og það var
ekki auðvelt á þeim tíma að vera
einstæð móðir. Hún lagði sig
fram um að drenginn skorti ekk-
ert og þá sérstaklega að hann
væri fallega klæddur. Hann var
fallegt barn og uppátækjasamt
og eru ýmsar sögur til um æv-
intýri hans. Það er sagt að það
þurfi heilt þorp til að ala upp
barn en í tilfelli Pálma þurfti
heilt þorp til að koma í veg fyrir
að hann færi sér að voða.
Pálmi var alla tíð léttur,
spaugsamur og hugmyndaríkur
og eigum við margar góðar minn-
ingar um skemmtilegar sam-
verustundir með honum. Hann
hló smitandi hlátri, var sögumað-
ur góður og það ríkti yfirleitt
glaumur og gleði í kringum hann
og líktist hann móður okkar að
því leyti. Það væri hægt að skrifa
langar sögur t.d. um skemmti-
ferðir stórfjölskyldunnar í
Stykkishólm sem lengi verða í
minnum hafðar.
Á yngri árum var Pálmi sjó-
maður um skeið en starfaði síðan
við ýmislegt, þ. á m. kaup-
mennsku með tengdaföður sínum
áður en hann gerði leigubílaakst-
ur að ævistarfi og sinnti því fram
á efri ár. Honum var margt til
lista lagt, var góður teiknari og
málaði myndir, skrifaði sögur og
orti vísur. Þá naut hann þess að
lesa og las mikið, ekki síst sögur
þar sem saman fóru frásagnir um
kynlega kvisti og þjóðlegan fróð-
leik. Hann var því margfróður þó
hann væri almennt ekkert að
flíka því. Þá hafði hann yndi af
ferðalögum bæði innanlands og
utan og hafði gaman af fólki sem
oft kom í ljós í hnyttnum sögum
af starfinu og samskiptum hans
við farþegana sem voru af ýmsu
þjóðerni og sauðahúsi.
Þau Pálmi og Dædý byggðu
sér hús við Hraunsveg í Njarðvík
á sjöunda áratugnum og hafa átt
þar fallegt og hlýlegt heimili alla
tíð síðan. Þau áttu 60 ára brúð-
kaupsafmæli í febrúar sl. og seg-
ir það sína sögu um samheldni
þeirra. Á mynd frá þeim degi
mátti glöggt sjá ástina og um-
hyggjuna sem þau báru hvort til
annars.
Pálmi var alla tíð heilsuhraust-
ur en átti þó við heilsubrest að
stríða síðustu ár. Þrátt fyrir það
bar hann sig alltaf vel og hélt
reisn sinni og gamansemi.
Við kveðjum góðan bróður
með söknuði og vottum Dædý,
börnum hans og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð.
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðar lönd!
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín:
Nóttlaus voraldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
(Stephan G. Stephansson)
Elísabet, Martha
og Jóhannes.
Lífsgangan hans Pálma Viðars
er á enda og spannaði sú ganga
ansi fjölbreytta tíma. Við eigum
öll ljúfar minningar frá samveru-
stundum í hartnær 60 ár.
Pálma sáum við fyrst þegar
Dædý stóra systir kom með hann
heim og kynnti hann sem kær-
astann sinn. Hinn 22. febrúar
1958 giftu þau sig í stofunni á
Völlum, og þann dag 2018 fögn-
uðu þau 60 ára brúðkaupsafmæli
sínu.
Pálmi var vel gefinn, bók-
hneigður, hagmæltur og er mörg
vísan bráðskemmtileg eftir hann
í gömlu gestabókinni á Völlum.
Hann hafði húmorinn í lagi, var
frábær sögumaður, hló manna
mest sjálfur, og já, þvílíkur hlát-
ur, það var nóg að heyra hann og
allir tóku undir.
Hann hafði einnig mikinn
áhuga á fólki og lífinu sjálfu.
Hann elskaði sína fjölskyldu sem
hann var mjög stoltur af.
Við erum þakklát að hafa átt
Pálma að samferðamanni í lífinu,
hans verður sárt saknað.
Nú er ljós við bjarta beðinn þinn,
birta himins lýsir til þín inn.
Allar þrautir eru liðnar hjá,
engill lyftir skuggataldi frá.
(Þórunn S. frá Fossi.)
Elsku Dædý okkar og fjöl-
skylda, okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Sigríður og Þórhallur
(Sigga og Halli), Smári og
Jenný og fjölskyldur.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl. 9,
leikfimi í KR kl. 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leik-
fimina, útskurður og myndlist kl. 13 í hreyfisalnum og félagsvist kl. 13
í matsalnum.
Árskógar Smíðastofan er lokuð, ganga um nágrennið kl. 11, handa-
vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16, félagsvist með vinningum kl. 13,
myndlist með Elsu kl. 16-20, opið fyrir innipútt, hádegismatur kl.
11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45, heitt á könnunni. Sími 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20, opin handverks-
stofa kl. 13, botsía kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, bókabíllinn á
svæðinu kl. 10-10.30, handaband, opin vinnustofa með leiðbeinend-
um, ókeypis og öllum opið kl. 10-12, frjáls spilamennska kl. 13, bók-
band kl. 13-17, söngstund við píanóið kl. 13.30- 14.15, kaffiveiting-ar
kl. 14.30, handavinnuhópur kl. 15-19. Verið velkomin, sími 411-9450.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501, opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16, vatnsleikfimi
Sjálandi kl. 7.40/8.20/11.30, kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05, stólaleik-
fimi Sjálandi kl. 9.50, kvennaleikfimi Ásgarði kl. 10.40, Tiffany nám-
skeið Kirkjuhvoli kl. 13 páskafrí, Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15 páskafrí.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16, línudans kl. 13-14, kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulíshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handavinna
/ brids kl. 13, jóga kl. 18, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
opin handavinna kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10, jóga kl. 10.10–11.10,
hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá
Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur
kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30,
jóga kl. 16 hjá Ragnheiði.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi, frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12, byrjendanám-
skeið í línudansi með Ingu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf
fyrir kl. 9 samdægurs), myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd.
kl. 12.30-15.30, handavinnuhornið kl. 13-15, félagsvist kl. 13.15, eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir. Nánari uppl. s. 4112790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum. Postulínsnámskeið
kl. 9 með Ástu, útskrift,´gönguhópar kl. 10 frá Borgum, Grafarvogs-
kirkju og inni í Egilshöll, félagsvist kl. 13 í Borgum, tréútskurður kl. 13
á Korpúlfsstöðum, prjónað til góðs kl. 13 í Borgum, Korpusystkin
kóræfing kl. 16.30 og minnum á gleðiríkan félagsfund Korpúlfa mið-
vikudaginn 28. mars kl. 13 í Borgum, vonumst til að sjá ykkur öll.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja 9-12, listasmiðja kl. 9-
16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, samverustund með djákna kl. 14, botsía, spil
og leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum, hádegisverður er kl. 11.30-12.15
og spiluð er félagsvist kl. 13, kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl.
14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs-
ingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilis Seltjarnarness kl. 9 og
13, leir Skólabraut kl. 9, billjad Selinu kl. 10, krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30, jóga Skólabraut kl. 11, handavinna Skólabraut kl.
13, vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. PÁSKAEGGJABINGÓ í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 19.30. Fólk er hvatt til að fjölmenna og taka
með sér gesti.
Stangarhylur 4, Dansleikur mánudagskvöld kl. 20, Hljómsveit húss-
ins leikur fyrir dansi, allir velkomnir, Zumba kl. 10.30 undir stjórn
Tanyu.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
PL Crystal Line,
heitustu úrin í París
Með SWAROVSKI kristals-skífu, 2ja
ára ábyrgð. Sama verð og í heima-
landinu:16 til 23.000.
GÞ Bankastræti, s. 5514007
ERNA Skipholti 3, s. 5520775
www.erna.is
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2749 -
loggildurmalari@gmail.com
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar