Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 32
MÁNUDAGUR 26. MARS 85. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Svaf aftur í þegar mamma … 2. Leyndur galli í lóð … 3. Hvað yrði um flokkinn þá? 4. Klámmyndaleikkona í … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Blúshátíð Reykjavíkur hófst á laug- ardaginn og fyrstu stórtónleikar há- tíðarinnar fara fram annað kvöld kl. 20 á Hilton Reykjavík Nordica- hótelinu við Suðurlandsbraut. Á þeim koma fram Laura Chavez og Ina Fors- man, Beggi Smári og Nick Jameson og blúsaðasta band nýafstaðinna Músíktilrauna. Fyrstu stórtónleikar Blúshátíðar  Djasskvartett söngkonunnar Marínu Óskar Þór- ólfsdóttur kemur fram á Kex hosteli annað kvöld kl. 20.30. Efnisskrá tónleikanna er samsett úr húm- orískum standörd- um, léttleikandi bossanóvum og hnyttnum vókalísum. Með Marínu koma fram Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, Þorgrímur Jónsson á bassa og Matthías Hemstock á trommur. Djasskvartett Marínu Óskar á Kex hosteli  Listviðburðahópurinn Huldufugl stendur fyrir ljóðakvöldi undir yfir- skriftinni Rauða skáldahúsið í Iðnó á skírdag milli kl. 20 og 23. Ljóðskáld bjóða upp á einkalestra, tvær hljóm- sveitir leika tónlist og boðið er upp á tarotspá og ýmis skemmtiatriði. Þema kvöldsins er dauðasyndirnar sjö. Rauða skáldahúsið er sett upp á um þriggja mánaða fresti og ávallt er eitt aðalskáld, sem að þessu sinni er Sjón. Sjón aðalskáld næsta Rauða skáldahúss Á þriðjudag Hægt minnkandi suðaustan- og austanátt. Talsverð slydda og jafnvel snjókoma um landið sunnanvert en rigning við ströndina. Þurrt að mestu norðantil. Hiti 0-4 stig við ströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 15-25, hvassast í grennd við fjöll sunnan- og suðvestantil. Slydda eða rigning með köflum um landið sunnanvert, annars úrkomulítið. Aukin úrkoma vestast í kvöld. VEÐUR „Sigurinn kom okkur sjálf- um mest á óvart þótt við hefðum trú á verkefninu all- an tímann. Við vorum níu mörkum yfir þegar fjórar mínútur voru eftir og við enduðum á því að vinna með sjö,“ sagði Tandri Már Konráðsson, handknatt- leiksmaður hjá Skjern í Danmörku, sem vann ung- verska stórliðið Veszprém óvænt í Meistaradeildinni í handbolta í gær. »1 Skelltu Veszprém með sjö mörkum Kári Kristján Kristjánsson og félagar í deildar- og bikarmeistaraliði ÍBV í handknattleik unnu sannfærandi sigur á SKIF Krasnodar í fyrri viður- eign liðanna í Áskorendakeppni Evr- ópu í handknattleik í gær, 25:23. Eyjamenn eiga þar með góðan mögu- leika á að feta í fótspor Valsmanna, sem komust í undanúrslit í keppn- inni fyrir ári. Síðari leikur ÍBV og Krasnodar verður í Vest- manna- eyjum á laugar- daginn. »4 ÍBV stendur vel að vígi eftir sigur í Krasnodar ÍR tryggði sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik karla í gærkvöldi. ÍR lagði Stjörnuna með tveggja stiga mun, 71:69, í fjórðu rimmu liðanna í 8-liða úrslitum sem fram fór í Ásgarði. ÍR vann þar með þrjár af fjórum viðureignum liðanna. Óvíst er enn hverjum ÍR mætir í und- anúrslitum en aðeins eitt einvígi er eftir í 8-liða úrslitum. » 2 ÍR-ingar eru komnir áfram í undanúrslit ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Aníta Daðadóttir vann Söngkeppni Samfés á laugardagskvöld fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Fönix í Kópavogi. Hún hefur sungið allt frá því að hún man eftir sér og hefur alla tíð verið umkringd tónlistarfólki. Móðir Anítu er söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir og því á hún ekki langt að sækja sönghæfileikana. „Ég hef alist upp við tónlist á báð- um heimilum. Mamma og pabbi eru ekki saman en báðar fjölskyldurnar mínar eru á kafi í tónlist. Pabbi er hljóðmaður og stjúpmamma mín er menntaður tónlistar- og söngkenn- ari og svo er stjúppabbi minn líka söngvari og trúbador, svo hvert sem ég fer er tónlist í kringum mig. Ég fæ þetta svolítið úr umhverfinu og mér finnst þetta alveg geggjað,“ segir Aníta í samtali við Morgun- blaðið. Er alltaf stressuð á sviði Hún segist vön því að syngja op- inberlega, en meðal annars hefur hún farið í jólatónleikaferðalag um landið með móður sinni. Samt var hún þónokkuð stressuð er hún kom fram á Samfés á laugardag. „Ég er alltaf stressuð þegar ég kem svona fram, en það er bara partur af þessu,“ segir Aníta sem flutti lagið „Gangsta“ eftir amerísku söngkon- una Kehlani, sem er í uppáhaldi hjá henni. Lagið er að finna í kvikmyndinni Suicide Squad og þar heyrði Aníta það fyrst, en síðar heyrði hún órafmagnaða útgáfu af lag- inu á YouTube, féll fyrir henni og ákvað að þetta lag myndi hún taka. „Ég ákvað að æfa það betur og söng svo bakraddir sjálf inn á „playbackið“ svo ég gerði það eiginlega bara að mínu, sem mér finnst rosa- lega gaman,“ segir Aníta. Skólafélagar Anítu í Salaskóla eru að hennar sögn himinlifandi með að félagsmiðstöð þeirra skuli hafa borið sigur úr býtum, en þetta er í fyrsta sinn sem félagsmiðstöðin Fönix vinnur keppnina. „Það eru allir súper ánægðir, allir bara í skýjunum,“ segir Aníta, en til þess að komast í lokakeppni Samfés þurfti hún fyrst að tryggja sig áfram með því að lenda í einu af þremur efstu sætunum í sameiginlegri und- ankeppni níu félagsmiðstöðva í Kópavogsbæ. „Það fyndna er að ég lenti í þriðja sæti í Kópavogs- keppninni, en vann svo aðalkeppn- ina. Það er dálítið merkilegt,“ segir söngkonan unga í léttum tón. Skólafélagarnir í skýjunum  Aníta vann Söngkeppni Sam- fés á laugardag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Efnileg Aníta Daðadóttir segist hafa mikinn áhuga á að semja og gefa út eigin tónlist í framtíðinni og vonar að hún fái tækifæri til þess. Sjálf segist hún hlusta mest á popptónlist og rapp, þá sérstaklega íslenskt rapp. Um 3.000 manns fylgdust með Söngkeppni Samfés í Laugardals- höll á laugardag, þar sem Aníta Daðadóttir varð hlutskörpust, en þrjátíu atriði tóku þátt í loka- keppninni. Í öðru sæti varð Benedikt Gylfason úr félags- miðstöðinni Bústöð- um í Reykjavík og í þriðja sæti Elva Björk Jónsdóttir frá félags- miðstöðinni Eden í Grundarfirði. Unnur Elín Sigursteinsdóttir frá félagsmiðstöðinni Öldunni í Hafn- arfirði var valin bjartasta vonin og Emma Eyþórsdóttir flutti lagið Ég vil þig sem var valið besta frum- samda lagið. Dómnefndin var skipuð þeim Aroni Hannesi Emilssyni, Degi Sig- urðssyni, Hildi Kristínu Stefáns- dóttur, Rögnu Björgu Ársæls- dóttur og Rakel Pálsdóttur. Margt í Laugardalshöll SÖNGKEPPNI SAMFÉS 2018 Benedikt Gylfason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.