Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er óneitanlega mjög sérstakt
en dálítið skemmtilegt,“ segir Pétur
Hrafn Sigurðsson, oddviti Samfylk-
ingarinnar í Kópavogi.
Svo skemmtilega vill til að þrír
fyrrverandi framkvæmdastjórar
stærstu sérsambanda ÍSÍ eru of-
arlega á framboðslistum fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar í Kópavogi í
næsta mánuði og gætu tekið sæti
saman í bæjarstjórn að þeim lokn-
um. Auk Péturs, sem gegndi starfi
framkvæmdastjóra Körfuknattleiks-
sambandsins, eru þetta Geir Þor-
steinsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Knattspyrnusambands
Íslands og síðar formaður þess, og
Einar Þorvarðarson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Íslands. Geir skipar efsta
sæti á lista Miðflokksins en Einar er
í öðru sæti hjá
sameiginlegu
framboði Við-
reisnar og Bjartr-
ar framtíðar.
„Ég hef nú ekki
enn hitt þá eftir
að tilkynnt var
um framboð
Geirs. Við þekkj-
umst allir ágæt-
lega enda áttum
við sameiginleg baráttumál þegar
við gegndum þessum störfum,“ segir
Pétur og nefnir sem dæmi að þre-
menningarnir hafi getað sameinast
um að berjast fyrir auknum fram-
lögum ríkisins til afreksíþrótta. Því
verði þó ekki neitað að samkeppni
hafi verið milli sambandanna og þar
með þeirra þriggja.
„Já, við slógumst auðvitað um að
fá bestu íþróttamennina í okkar
sport. Þetta var sérstaklega á milli
körfuboltans og handboltans, vetr-
aríþróttanna. Svo börðumst við um
að fá stóru fyrirtækin til að styrkja
okkur en ekki hina. Þetta var bæði
samvinna og slagsmál.“
Kannski ekki ósvipað og það verð-
ur í pólitíkinni í Kópavogi?
„Við byrjum á því að slást og svo
sjáum við til hvort það verður ein-
hver samvinna á eftir,“ segir Pétur í
léttum tón. Sveitarstjórnarkosn-
ingar fara fram 26. maí.
„Bæði samvinna og slagsmál“
Fyrrverandi framkvæmdastjórar stærstu sérsambanda ÍSÍ í framboði í Kópavogi
Pétur Hrafn
Sigurðsson
Geir
Þorsteinsson
Einar
Þorvarðarson
Það var þröng á þingi í Smáralind um helgina er
yfir 500 nemendur úr 13 framhaldsskólum
kynntu afrakstur verkefnisins Ungir frum-
kvöðlar, þar sem þeir læra að stofna fyrirtæki og
vinna að frumkvöðla- eða nýsköpunarhugmynd
sinni. Meðal verkefnanna kennir ýmissa grasa.
Einhverjir þróuðu snjallforrit, aðrir kynntu
lausnir til að minnka plastnotkun og enn aðrir
settu fram hugmyndir tengdar ferðamennsku.
Morgunblaðið/Hari
Ungir frumkvöðlar í Smáralind
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Veitur fengu ábendingu um rusl úr
fráveitukerfinu í grennd við dælustöð
fyrirtækisins við Faxaskjól og starfs-
fólk hreinsaði það í gær. Frá þessu
segir í fréttatilkynningu frá Veitum.
Jafnframt segir í tilkynningunni að
Veitum hafi ekki verið ljóst hve lengi
ruslið hafði legið í fjörunni en engin
truflun hafi orðið á rekstri dælustöðv-
arinnar nýverið, hún hafi síðast farið
á yfirfall 21. mars og þá var neyðar-
lúga hennar opin í fjórar mínútur.
Borgarbúi að nafni Alda Sigmunds-
dóttir hafði tekið myndir, og sett
ásamt færslu inn á facebooksíðuna
„Vesturbærinn“, sem sýna mikið
magn af klósettpappírstægjum og
öðru skólprusli á víð og dreif um hið
vinsæla útivistarsvæði Vesturbæjar
við Ægisíðu.
Upplýsingafulltrúi hjá Orkuveit-
unni, Eiríkur Hjálmarsson, setti þá
inn aðra færslu þar sem hann segir:
„Hún Alda benti okkur á rusl úr
skólpinu niðri við Ægisíðu. Við ætlum
að plokka kl. 17 á morgun, sunnudag.
Öll velkomin!“ og lét þær upplýsingar
fylgja að auki að klósettið væri ekki
ruslafata.
Boðið fékk þó misjafnar undir-
tektir í hópnum, ýmsir minnugir þess
að Veitur dældu hundruðum milljóna
lítra af óhreinsuðu skólpi dögum sam-
an í sjóinn við Faxaskjól sl. sumar.
„Það er næstum jafn mikill klósett-
pappír og þari, það er alls ekkert
hægt að plokka þetta upp, það þyrfti
að moka þessu upp með skóflum,“
segir Alda Sigmundsdóttir í samtali
við Morgunblaðið. Hún segist ganga
oft þarna um með hundinn sinn, enda
sé um eitt besta útivistarsvæði Vest-
urbæjarins að ræða.
Börn að leik í ruslinu
„Heilu þangbreiðurnar hafa kast-
ast upp á land. Ég sá þrjú lítil börn
vera að leika sér í þessu,“ segir Alda,
sem finnst dómgreindarleysi að bjóða
almenningi að hreinsa upp eftir um-
hverfisslys sem Veitur bera ábyrgð á
og upplýstu ekki um fyrr en málið
varð að hneyksli í fjölmiðlum.
„Þetta er náttúrlega engin stjórn-
sýsla, að koma svona fram og bíta svo
höfuðið af skömminni með því að
bjóða borgarbúum, sem þurfa að bera
tjónið, að koma og hreinsa til eins og
þetta væri einhver fjölskyldu-
skemmtun á sunnudegi.“
Vesturbæingum
boðið í skólphreinsun
Ljósmynd/Alda Sigmundsdóttir
Þangbreiða Erfitt er að sjá hvort meira er af þangi eða rusli í þessum bing.
Mikið magn af skólprusli hefur numið land við Ægisíðu
„Það liggur við að við horfum öf-
undaraugum á veðurkortið heima
þegar spáð er austanátt. Hitinn er
gífurlegur og við ekki vanir að vera
í svona miklum hita,“ segir Bergur
Guðnason, 1. stýrimaður á Breka
VE sem er nú á siglingu í Arab-
íuflóa ásamt Páli Pálssyni ÍS. En
skipin eru á heimleið frá Kína þar
sem þau voru smíðuð.
„Það eru allir heitir hér en hafa
það alveg ljómandi gott. Nú er
stefnan sett á Adenflóann og upp í
Rauðahafið sem er hættulegasti
hluti leiðarinnar. Það sem er
hættulegt við þessa leið eru sóm-
alskir sjóræningjar,“ segir Bergur.
Hann segir að til þess að tryggja
öryggið fari bæði íslensku skipin í
skipalest um hættulegasta svæðið.
Meiri hiti framundan
„Það er hægt að velja um 10 eða
12 mílna hraða. Við völdum 12
mílna lest og siglum á þeim hraða
hvað sem á gengur. Það er ekki í
boði að sigla hraðar, hægar eða
stoppa,“ segir Bergur og bætir við
að búast megi við meiri hita þegar
þeir koma í Rauðahafið og Súez-
skurðinn. En beggja vegna hans
eru eyðimerkur.
„Við keyptum meira af viftum og
kælitækjum á Sri Lanka og svo
minnkar hitinn þegar við komum í
Miðjarðarhafið. Þetta er algjört
ævintýri sem gefst ekki tækifæri til
nema einu sinni á ævinni,“ segir
Bergur og bætir við að erfitt sé að
hreyfa sig í hitanum en skipverjar
dundi sér við að þrífa skipið svo allt
verði hreint og fínt þegar Breki
siglir til hafnar í Vestmannaeyjum í
kringum 8. maí ef allt fer að óskum.
Heitir skip-
verjar á
Breka VE
Sigling Margt hefur komið skip-
verjum á Breka á óvart á langri leið.
Ævintýri sem
gefst bara einu sinni