Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 20
Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og
langamma,
STEINUNN MARINÓSDÓTTIR,
Ásbúð 11,
Garðabæ,
lést 5. apríl 2018. Útförin fer fram
föstudaginn 13. apríl klukkan 15 frá
Kópavogskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar og
heimahlynningar Landspítalans.
Sigurður Viðar Benjamínsson
Þórir Marinó Sigurðsson
Einar Björn Sigurðsson
Brynja Lísa Þórisdóttir
Sigurður Ingvar Þórisson
Ísabella Sól
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018
✝ Gunnar Berg-ur Árnason
fæddist á Ólafs-
firði 26. sept-
ember 1924. Hann
andaðist á hjúkr-
unarheimilinu
Lögmannshlíð á
Akureyri 21. mars
2018.
Foreldrar hans
voru Árni Bergs-
son, kaupmaður
og útgerðarmaður á Ólafsfirði,
f. 9.10. 1893, d. 17.9. 1959, og
Jóhanna Magnúsdóttir hús-
freyja, f. 16.6. 1894, d. 18.6.
1965. Bræður Gunnars voru
Magnús Friðrik, f. 5.6. 1921, d.
9.6. 1992, og Kristinn Jóhann,
f. 31.1. 1933, d. 7.10. 1987.
Fósturbróðir hans var Brynj-
ólfur Sveinsson, f. 26.10. 1914,
d. 12.7. 1981.
Gunnar ólst upp á Ólafsfirði
og lauk grunnskólaprófi frá
Heiðardal í Vestmannaeyjum,
f. 4.7. 1923, d. 26.5. 2007, giftu
sig 25.11. 1950 í kapellu Hall-
grímskirkju. Hún starfaði þá
sem ritari hjá Agli Vilhjálms-
syni hf. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Sigurðsson, f.
11.10. 1881, d. 22.3. 1975, og
Arnleif Helgadóttir, f. 29.1.
1882, d. 8.3. 1956. Börn Lilju
og Gunnars eru: 1) Guð-
mundur Örn, kvensjúkdóma-
læknir, f. 2.4. 1952, eiginkona
hans var Helena G. Gunn-
laugsdóttir, lífeindatæknir, f.
21.10. 1950, d. 28.6. 2015.
Börn þeirra eru: Lilja, f. 15.2.
1979, Hulda Edda, f. 30.12.
1982, og Anna Hildur, f. 6.6.
1987. 2) Jóhanna Arnleif, mat-
vælafræðingur, f. 5.3. 1956,
maður hennar er Vilbergur
Kristinsson, jarðeðlisfræð-
ingur, f. 11.5. 1952. Börn
þeirra eru: Gunnar Kristinn, f.
10.2. 1981, og Þórunn Lilja, f.
13.9. 1988. 3) Erna Hildur,
framhaldsskólakennari, f. 24.5.
1959. Maður hennar er Gunnar
M. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, f. 24.4. 1959.
Börn þeirra eru: Guðmundur
Egill, f. 1.1. 1989, og Magnús
Árni, f. 14.10. 1991. Fyrir átti
Gunnar Bergur dótturina Hall-
dóru Kristínu, húsmóður, f.
1.7. 1946. Fyrri eiginmaður
hennar var Árni G. Tómasson,
vélstjóri, f. 12.8. 1942, d. 15.2.
1969. Börn þeirra eru: Þor-
björg, f. 17.1. 1963, Guðbjörg
Anna, f. 7.4. 1964, og Auður
Ögn, f. 9.10. 1968. Seinni mað-
ur Halldóru er Árni G. Leós-
son, byggingameistari, f. 7.4.
1945. Barn þeirra er Leó, f.
25.9. 1971.
Eftir að Gunnar hætti
verslunarstörfum 1985 hóf
hann störf á geðdeild FSA þar
til hann lét af störfum sökum
aldurs. Eftir það starfaði hann
við liðveislu fatlaðra. Um ára-
tugaskeið starfaði Gunnar við
leiðsögustörf með erlenda
ferðamenn. Jafnframt sinnti
Gunnar ábyrgðarstörfum fyrir
ýmis fyrirtæki og fé-
lagasamtök á Akureyri. Hann
söng með Karlakórnum Geysi
og var virkur í Frímúrararegl-
unni.
Útför Gunnars verður gerð í
dag, 9. apríl 2018, frá Akur-
eyrarkirkju og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
barnaskólanum.
Barnungur vann
hann langar vaktir
á síldarplaninu og
við stíflugerð fyrir
rafstöð á Ólafs-
firði. Í nóvember
1940 tók hann inn-
tökupróf í Mennta-
skólann á Akur-
eyri og lauk þaðan
gagnfræðaprófi.
Eftir nám hóf
hann störf í Landsbanka Ís-
lands á Akureyri. Árið 1944
stofnaði hann ásamt fóst-
urbróður sínum, Brynjólfi,
Sportvöruverslun Brynjólfs
Sveinssonar hf. á Akureyri
sem hann rak í Skipagötu 1 til
ársins 1985. Um áratugaskeið
rak hann einnig Skóverslun
M.H. Lyngdal í Hafnarstræti á
Akureyri.
Gunnar og eiginkona hans,
Lilja Guðmundsdóttir frá
Það er sólríkur laugardagur
að sumarlagi. Mamma er búin
að hlaða útilegudótinu okkar á
bílskúrsgólfið, búið að taka til
nestið, búið að pakka. Klukkan
12:30 kemur pabbi eftir að
hafa lokað búðinni; nú skal
haldið í útilegu. Pabbi er leið-
sögumaður allra okkar ferða.
Hann þekkir hvern blett með
nafni, fræðir okkur um byggð-
ir og bú, landnámsmenn, segir
okkur draugasögur og ævin-
týri úr héraði og bendir á
bestu veiðistaðina í ám og
vötnum. Svona er dæmigerð
minning um pabba.
Pabbi var fæddur og uppal-
inn á Ólafsfirði í Árnahúsi (nú
nefnt Pálshús). Gamli heima-
bærinn var honum hjartfólginn
og þaðan sagði hann okkur
ógrynni af sögum, t.d. þegar
hann trillaði mölinni í Garðs-
árstíflu í hjólbörum sumarið
1941 eða þegar hann vann sem
ræsari á síldarplaninu á Ólafs-
firði. Pabbi hafði oft á orði að
hugtakið barnaþrælkun hefði
ekki verið til þá.
Á Akureyri settist pabbi í
MA og lauk þaðan gagnfræða-
prófi. Þá hóf hann störf hjá
Landsbankanum á Akureyri á
stríðsárunum, 17 ára gamall.
Hann hafði því töluverð sam-
skipti við hermennina og lærði
ensku undravel á því og lestri
bóka. Hann var nánast tví-
tyngdur á íslensku og ensku,
sem var ekki algengt á þessum
árum. Hann var sérlega
áhugasamur um gang stríðs-
ins, var með landakort í her-
bergi sínu og merkti við unnar
og tapaðar orrustur.
Pabbi var áhugasamur um
sjóinn og hvers kyns útgerð.
Hann keypti sér nokkrar trill-
ur um ævina sem hann naut
þess að dytta að. Ef farið var í
bíltúra þurfti alltaf að koma
við á bryggjunni. Pabbi var
einn af stofnendum Siglinga-
klúbbsins Nökkva á Akureyri
og fyrsti formaður. Á vegum
hans fór hann til Plymouth á
Englandi til að skoða og kaupa
báta. Pabbi kom að alls kyns
íþróttastarfi á Akureyri. Hann
var skíðakappi á yngri árum
og tók þátt í uppbyggingu
skíðaaðstöðu á Akureyri og
studdi keppnishald síðar meir.
Einnig kom hann að starfi
íþróttafélagsins Þórs.
Pabbi var mikill grúskari og
sjálfmenntaður fræðimaður.
Eftir hann liggja margar
greinar og frásagnir um liðna
tíð í sögutímaritum og út-
varpsviðtölum. Hann var ótrú-
lega minnugur á smáatriði for-
tíðarinnar. Afar vænt þótti
honum um húsið sem þau
mamma byggðu á Ásvegi 28 og
teiknað var af Sigvalda Thor-
darson. Þar áttu þau fallegt
heimili, þar var gott að alast
upp.
Pabbi var séntilmenni fram í
fingurgóma. Hann gat talað
við alla og talaði eins við alla,
háa og lága. Þessi einlægi
áhugi á fólki nýttist honum
bæði bak við búðarborðið og í
starfi á geðdeild FSA. Pabbi
lagði mikið upp úr því að
kenna okkur krökkunum fal-
lega borðsiði, kurteisi og vand-
virkni. Hans eftirlætismáls-
háttur var á ensku: „If it is
worth doing, it is worth doing
well.“ Pabbi átti það líka til að
bjóða útlendingum sem hann
hitti niðri á bryggju heim í mat
og aldrei keyrði hann framhjá
puttalingum án þess að troða
þeim með í bílinn.
Með pabba er genginn heið-
ursmaður og margir minnast
hans úr búðinni þar sem hann
seldi þeim spúna og sökkur,
fyrstu saumavélina, garn eða
skotfæri í rjúpnaveiðina. Hann
setti sinn svip á miðbæinn.
Minningin um yndislegan föð-
ur lifir með okkur.
Erna, Jóhanna og
Guðmundur.
Nú þegar tengdafaðir minn,
Gunnar Bergur Árnason, hefur
haldið yfir móðuna miklu lang-
ar mig að minnast hans í
nokkrum orðum. Ég kynntist
Gunnari fyrst árið 1980 þegar
ég og Erna, konan mín, kynnt-
umst. Gunnar var alla tíð afar
ljúfur og vinsamlegur í minn
garð. Hann fylgdist af áhuga
með öllu sem við Erna tókum
okkur fyrir hendur, hvort sem
það varðaði íbúðarkaup eða
fyrirtækiskaup. Við fórum með
þeim Lilju í margar skemmti-
legar ferðir innanlands og þá
kom í ljós hvers lags visku-
brunnur Gunnar var um Ís-
land. Merkilegt fannst mér að
það var sama í hvaða lands-
fjórðung við fórum, hann virt-
ist alltaf þekkja heimafólk og
sögur af mannlífi. Eins áttum
við margar ógleymanlegar
samverustundir í sumarbústað
okkar Ernu í Fnjóskadal sem
hann unni mjög.
Gunnar hafði óbilandi áhuga
á að kynnast fólki og var
brunnur fróðleiks þannig að
mér datt í hug eftir að hægðist
um á vinnumarkaðinum hjá
Gunnari að fá hann í leiðsögn
með erlenda ferðamenn okkar
hjá SBA-Norðurleið enda var
hann mikill málamaður. Það er
skemmst frá því að segja að
Gunnar fann sig gríðarlega vel
í þessu starfi og vildi helst
ganga mun lengra í þjónustu
en dagsáætlunin sagði til um.
Stöku sinnum datt honum jafn-
vel í hug að bjóða smærri hóp-
um heim til sín. Svona var
Gunnar. Góð kynni tókust með
honum og sumum erlendu hóp-
stjórunum sem entust til hans
dauðadags. Gunnar fór í ferðir
með stöku hópa þar til hann
var kominn undir nírætt.
Gunnar hafði gríðarlegan
áhuga á fyrirtæki okkar, SBA-
Norðurleið. Á engan er hallað
þegar ég segi að enginn hafi
fylgst betur með bílakaupum
og framkvæmdum á verkstæði
en hann. Tengdapabbi mætti
nánast alla virka daga á verk-
stæðið hátt í tvo áratugi, tók
starfsmennina tali, rakti úr
þeim garnirnar um ættir
þeirra og fjölskylduhagi. Þar
eignaðist hann marga góða
kunningja. Alveg fram á síð-
ustu misseri, ef farið var með
tengdapabba í bíltúr þurfti að
koma við á verkstæðinu og alla
nýja hópferðabíla þurfti hann
að taka út persónulega.
Aðeins einu sinni á okkar 38
ára kynnum man ég til þess að
Gunnar hafi skipt skapi. Hann
var mikið fyrir að geyma hluti
og eftir 37 ára búsetu í Ásveg-
inum kom að því að húsið
skyldi selt. Lilja, tengda-
mamma, var búin að semja við
mig um að hjálpa sér að láta
eina og eina kerru af dóti
hverfa þegar Gunnar sæi ekki
til. Svo var veiðidagur í
Fnjóská og þá var tækifærið
notað og hlaðið á eina kerru.
Eitthvað urðum við sein fyrir
og ég mætti tengdapabba í Ás-
veginum. Hann snögghemlar,
snarast út úr bílnum og segir
hvasst: „Hvert ert þú að fara?“
Mér tókst með hægðinni að
lempa tengdapabba og bauð
honum með á haugana til að
fylgjast með að engum verð-
mætum væri kastað á glæ.
Nú að leiðarlokum er ég
þakklátur fyrir að hafa fengið
að kynnast þessum öðlingi.
Hann auðgaði líf mitt og
kenndi mér sitt af hverju.
Minningin um vandaðan mann
lifir áfram.
Gunnar M. Guðmundsson.
Halló manni – hvað heitir
þú? Þannig hófust kynni okkar
Gunnars. Þessa sögu sagði
hann mér æði oft. Ég stóð uppi
í rimlarúmi rúmlega tveggja
ára. Hann var kominn í heim-
sókn með Lilju, verðandi eig-
Gunnar Bergur
Árnason
✝ Bergljót Garð-arsdóttir
Sleight fæddist 22.
janúar 1929 í
Reykjavík. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 30. mars
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Garðar
Þorsteinsson, fisk-
iðnfræðingur og
stórkaupmaður, og kona hans,
Þórunn Sigurðardóttir ljós-
móðir, frá Fiskilæk í Borg-
arfirði. Bergljót var elst fjög-
urra barna þeirra hjóna, en
systkini hennar eru þau Geir,
Gerður og Arnþór.
Uppvaxtarár
Bergljótar voru í
Borgarnesi,
Reykjavík og á Sel-
tjarnarnesi. Bebba,
eins og hún var oft-
ast kölluð, gekk í
Menntaskólann í
Reykjavík og lauk
þaðan stúdents-
prófi 1948. Bebba
hélt ung að árum
til náms við Syracuse-háskólann
í New York, lagði fyrir sig leik-
list og lauk námi 1951. Á há-
skólaárunum kynntist hún eig-
inmanni sínum til margra ára,
Morris Garfield Sleight (Gary),
en þau gengu í hjónaband 15.
janúar 1952, Gary lést 27. febr-
úar 2000.
Börn þeirra Bergljótar og
Garys eru Þórunn Patricia
Sleight, kennari í Reykjavík, f.
31. júlí 1954, og Peter Garfield
Sleight, tæknifræðingur og
framkvæmdastjóri í Wash-
ington, D.C., f. 3. apríl 1957.
Þórunn giftist Birni Magnússyni
kennara 27. júlí 1980, þau
skildu, sonur þeirra er Magnús
Már söngvari, f. 31. maí 1985.
Síðari eiginmaður Þórunnar er
Barry Woodrow, efnafræðingur
og viðskiptastjóri, frá Dorset á
Englandi, en þau Þórunn og
Barry giftu sig 3. ágúst 2011.
Peter kvæntist Eileen Wozny
16. júní 1984 og eiga þau einn
son, Erik Anthony hljóðfæra-
leikara, f. 15. júní 1985.
Útför Bergljótar fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 9. apríl
2018, klukkan 13.
Föðursystir mín, Bergljót
Garðarsdóttir Sleight, er látin.
Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1948
og hélt ung til Bandaríkjanna til
náms við háskólann í Syracuse.
Þar kynntist hún líka mannsefn-
inu sínu, Gary Sleight, en þau
giftust í Hallgrímskirkju í
Reykjavík í janúar 1952. Hún
bjó lengst af í Bandaríkjunum,
en kom hingað oft í heimsókn
með börnin sín tvö og áttum við
frændsystkinin saman góðar
stundir. Jafnframt átti ég því
láni að fagna að heimsækja þetta
frændfólk mitt til Bandaríkjanna
þegar ég var ellefu ára, en þau
bjuggu þá í útborg Washington
D.C., og ferðast með þeim til
Norður-Karólínu. Voru þetta
ógleymanlegar og menntandi
bernskustundir.
Á þeim árum annaðist Bebba
jöfnum höndum heimili sitt og
starf á bókasafni í Bandaríkjun-
um og var m.a. umhugað um að
kynna vel þýddar íslenskar bæk-
ur. Hún var fjölskyldurækin og
heimilið ávallt til fyrirmyndar.
Vegna starfs Garys flutti fjöl-
skyldan oft innan Bandaríkjanna
og bjó í nokkur ár í Þýskalandi.
Bebba og Gary fluttust til
landsins 1984 en þá var dóttir
þeirra Þórunn einnig flutt hing-
að til lands og var kennari og
húsmóðir á Norðurlandi. Svo fór
að Þórunn og Magnús sonur
hennar fluttu á sama heimili og
Bebba og Gary. Bebba og fjöl-
skyldan voru samkvæmisfólk og
sóttu marga menningarviðburði
eftir að hún hætti að vinna utan
heimilis. Hún vann á Landsbóka-
safni Íslands í alllangan tíma eft-
ir að hún flutti heim og tók mik-
inn þátt í uppbyggingu safnsins
enda hafði hún á starfsferlinum
öðlast framhaldsmenntun sem
bókasafnsfræðingur. Vinafólk og
frændfólk bæði erlent og innlent
var oft í heimsókn og fjölskyldan
einkar gestrisin.
Ég minnist góðrar heimsókn-
ar með Bebbu frænku og ömmu
Þórunni til frændfólks á Akra-
nesi en við sigldum í sólríku
veðri með Akraborginni. Á
seinni árum átti ég þess kost að
kynnast Bebbu talsvert og
spjalla við hana um heima og
geima. Gjarnan var góður matur
á borðum hjá henni og Gary og
síðar Þórunni dóttur þeirra.
Bebba las mikið fram á síðustu
ár og hefur eflaust verið búin að
lesa mikinn hluta þess sem ritað
er á íslenska tungu. Sonurinn
Pétur og hans fjölskylda komu
oft í heimsókn og var það henni
einnig mikið ánægjuefni. Hún
var hreinskiptin en þó þægileg í
samskiptum. Hún stundaði
reglulega sund í Laugardalslaug
nálægt heimili hennar á Klepps-
vegi. Bestu þakkir fyrir góðar
stundir.
Soffía Arnþórsdóttir.
Bergljót Garðars-
dóttir Sleight
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
FRIÐRIKS SVEINSSONAR
læknis
og heiðruðu minningu hans.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar Mosfellsbæar og
til starfsfólks Miklatorgs á Hrafnistu fyrir alúðlega og
kærleiksríka umönnun.
Guðrún Friðriksdóttir Heimir Örn Jensson
Rósa Friðriksdóttir Þorsteinn Óli Kratsch
Jóhanna Friðriksdóttir Sigurður Jónsson
Þóra Friðriksdóttir Guðmundur Ragnarsson
Hildur Kristín Friðriksdóttir Sigurður Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
VILHJÁLMUR GUÐMUNDSSON,
Heimatúni 2,
Álftanesi,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju
þriðjudaginn 10. apríl klukkan 11.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Alda Guðbjörnsdóttir
Dagbjört Vilhjálmsdóttir
Óli Björn Vilhjálmsson
Hjördís Vilhjálmsdóttir Guðjón Á. Sigurðsson
Guðbjörn Vilhjálmsson
Gíslína Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson Tanja Stepansdóttir
Sveinn Svanur Antonsson Kristín Ingvadóttir
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn