Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Gæðafiskur Kæliþurrkaður harðfiskur sem hámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. Einfaldlega hollt og gott snakk 84% prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að kunna að meta það góða við vináttuna, því engu eigum við að taka sem sjálfsögðum hlut. Sem betur fer þekkirðu marga sem gjarnan vilja hjálpa þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er kominn tími til að bregða á leik og þú ert til í slaginn. Þú ert með hjartað á réttum stað. Ekki er allt gull sem glóir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki tilfinningaköst annarra setja þig út af laginu. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Fáðu þér göngutúr nú þegar sólin er farin að hækka á lofti. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur einbeitt þér að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkama þinn. Þú hefur óbeit á leti og leyfir engum að komast upp með hana í þinni návist. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Dagurinn hentar vel til að ræða fjár- mál innan fjölskyldunnar. Gleymdu því ekki í hugrenningum þínum að hamingja verður ekki fengin fyrir fé. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ýmsir möguleikar eru í stöðunni svo þú skalt ekki skrifa undir neitt fyrr en þú hefur kynnt þér alla möguleika. Veislur, sem haldnar eru í dag, verða óvenju ánægjulegar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að komast hjá því að munn- höggvast við samstarfsmenn þína. Finndu þér eitthvert áhugamál því þá er möguleiki á að kynnast nýju fólki með nýja sýn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Álit annarra á gjörðum þínum skiptir engu máli því þú veist að þú ert að gera rétt. Sjaldan veldur einn þá tveir deila. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki fordóma hafa áhrif á hvernig þú metur tilboð sem þér berast. Fáðu þér göngutúr og láttu hreina loftið feykja öllum leiðindum á bak og burt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vertu varkár í næsta skrefi og viðbúin/n breytingum á seinustu mínútum. Ekki hlaupa á eftir tískustraumum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Lífið á það til að stokka hlutina upp, svo þú raðir þeim aftur í rétta for- gangsröð. Þér finnst hlutirnir ekki ganga eins og þú ætlaðir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er ekki eðlislægt að taka nokkra áhættu svo þú skalt láta það eiga sig, svona í flestum tilfellum. Vinir koma saman og gleðja þig. Áþriðjudag talaði Pétur Stef-ánsson um aprílhret: Veturinn engin virðir grið, víða er snjór og klaki. Á því verður einhver bið að hér vora taki. Sigmundur Benediktsson taldi þetta „aðeins venjulegt páskahret“: Þó að sjáist fannafjúk feilar ekki spori. Peysugreyi byrgi búk, bíð svo eftir vori. Fía á Sandi tók undir með sínum hætti: Nú er gola og næstum hríð nú er úfinn sjór. Bráðum kemur betri tíð og bjór. Og enn orti hún: Heldur kalt og hríðin vex hér er lífið ekkert grín. Ætti ég að yrkja um sex eða kannske brennivín? Sigurlín Hermannsdóttir bætti við: Blessuð sólin elskar allt, var einu sinni sprokið. Fallegt veður, fjári kalt því flýtir sér nú rokið. Karlinn á klöppinni var ein af þeim vættum sem börn voru hrædd á í fyrri daga. Helst mun hafa borið á honum við Eyjafjörð: Karlinn stóð á klöppinni, kemur neðan hólinn, ekki mjór á úlpunni; eltir Móri skottlausi. Karlinn uppi í klöppinni keipabörnin tekur, lemur þau með löppinni og litla Jónka hrekur. Sr. Jónas Guðmundsson á Staðar- hrauni orti þannig um köttinn: Öll er skepnan skemmtigjörn; skoðum litla stýrið. Malar sinni kjaftakvörn kringluleita dýrið. Stefanía Siggeirsdóttir kveður við son sinn Ólaf Sæmundsson, síð- ar prest í Hraungerði: Tunglið má ei taka hann Óla til sín upp í himnarann. Þá fer mamma að gráta og góla og gerir hann pabba sturlaðan. Steingrímur Baldvinsson í Nesi orti: Allt, sem þjóðin átti og naut, allt, sem hana dreymir, allt sem hún þráði og aldrei hlaut alþýðustakan geymir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Áfram ort um veðrið og karlinn á klöppinni Í klípu „ÞÚ ERT HÉRNA, ER ÞAÐ EKKI? ÉG MYNDI SEGJA AÐ DÓMARINN HAFI VERIÐ MEIR EN SANNGJARN VIÐ ÞIG.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KANNSKI HEFÐUM VIÐ ÁTT AÐ SKOÐA HVERFIÐ BETUR ÁÐUR EN VIÐ ÁKVÁÐUM AÐ FLYTJA HINGAÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að reyna að ganga í augun á henni með því að vera „kúl“. HVAÐ ERTU AÐ SEGJA ELLEN? ERTU MINNISLAUS OG MANST EKKERT EFTIR MÉR? KÚL! FÁTT ER SVO MEÐ ÖLLU ILLT AÐ EKKI BOÐI NOKKUÐ GOTT! VIÐ KREFJUMST ÞESS AÐ ÞÚ NOTIR SKATTPENINGANA OKKAR FYRIR FÁTÆKT FÓLK! ÉG ER AÐ ÞVÍ! ÉG ER AÐ SETJA HEILAN HELLING Í AÐ GERA NÝJA DÝFLISSU! Sautján ára strákur var förunaut-ur Víkverja suður í Rómarborg fyrir nokkrum dögum. Ferðalagið lukkaðist vel, sem meðal annars má þakka hve snjall ferðalangurinn ungi var við að afla allra upplýsinga og skipuleggja þannig áhugavert borg- arrölt. Allt var þetta honum leikur einn; með símanum voru sóttar upp- lýsingar um sögustaði, skyndibita- búllur, verslanir, leigubíla og svo mætti áfram telja. Allt var þetta mjög fumlaust og eðlilegt fyrir strákinn sem hefur enskuna full- komlega á valdi sínu og eru því flest- ir vegir færir. Og með símann og netið hefur fólk heiminn bókstaflega í hendi sér. Víkverja var kunnátta og upplýsingalæsi ferðafélagans í raun og veru talsverð opinberun. x x x Krakkar sem eru fæddir í kringumaldamótin eru af upplýsinga- kynslóðinni sem Víkverji kallar svo. Þau láta ekki mata sig á neinu, held- ur einfaldlega kanna málin á eigin forsendum og leggja sjálfstæðan dóm á þau. Þetta fólk fer einfaldlega þangað sem blær og stemning líð- andi stundar ber það. Margir félags- legir múrar hefða og siðvenja hafa fallið á undanförnum árum, sem skapar alveg nýja möguleika, svo sem þá að krakkar í dag geta í miklu ríkari mæli en áður verið höfundar eigin lífs, sem er góð uppskrift að hamingju og innihaldsríku lífi þeirra. En til að svo megi verða þarf undirstaðan sem er menntun og þekking að vera góð. x x x Fyrir nokkrum dögum birtist hér íMorgunblaðinu grein þar sem maður á Akureyri hneykslaðist á því að unglingar hefðu aðspurðir í sjón- varpi ekki vitað hvar Raufarhöfn væri eða við hvaða fjörð Dalvík er. Jú, vissulega er gott mál að fólk þekki landið sitt, uppruna sinn og sögu þjóðarinnar. En munum nú samt að miklu meira máli skiptir að fólk geti á staðnum og stundinni afl- að sér þekkingar þegar hennar er þörf. Hagað lífi sínu og ferðum eftir upplýsingum rétt eins og hinn ungi ferðalangur gerði í Róm, borginni ei- lífu sem allar leiðir liggja til. vikverji@mbl.is Víkverji En Guð auðsýnir kærleika sinn til okkar í því að Kristur dó fyrir okkur þegar við vorum enn syndarar. (Rómverjabréfið 5.8)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.