Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 23
safni Veðurstofu Íslands. Hann var
bæjarbókavörður í Kópavogi 1977-
2015. Hann fékk ársleyfi 1998 og
var þá sölustjóri tölvukerfisins
Fengs hjá SKÝRR.
Hrafn sat í stjórn Bókavarða-
félags Íslands og var formaður þess
í tvö ár, sat í stjórn Norræna félags-
ins í Kópavogi og í Sambandsstjórn
Norræna félagsins á Íslandi, sat í
nefnd sem samdi reglugerð með
lögum um almenningsbókasöfn
1977-78, átti sæti í nefndum um
bókasafns- og upplýsingamál, m.a. í
tölvunefnd bókasafna og í ritnefnd
Bókasafnsins og Íslenskri mál-
nefnd.
Hrafn var formaður Sögufélags
Kópavogs, sat í safnaðarstjórn
Kársnessóknar, í stjórn Leikfélags
Kópavogs, var formaður Starfs-
mannafélags Kópavogs í fjögur ár,
stóð að stofnun ýmissa félaga, s.s.
Golfklúbbs Kópavogs, Vináttufélags
Íslands og Norður-Kóreu og Ís-
lands og Lettlands. Hann var einn
af frumkvöðlum Ritlistarhóps Kópa-
vogs, sem gaf út ljóðasöfnin Glugga
1996, Ljósmál 1997, Sköpun 2001 og
Í augsýn 2009.
Hrafn var í Samkór Kópavogs,
Kirkjukór Kópavogskirkju, Óperu-
kór Hafnarfjarðar og nú í Söng-
sveitinni Víkingum í Garði. Hann er
félagi í Rótarýklúbbi Rangæinga,
stjórnarformaður Stofnunar Wil-
helms Beckmann, formaður U3A
Suðurnes, á sæti í stjórn Norræna
félagsins í Garði og er einn af frum-
kvöðlum Bryggjuskáldanna þar.
Hrafn hefur skrifað smásögur og
fjölda blaða- og tímaritsgreina um
bókasöfn, bækur og menningarmál.
Ljóð hans hafa birst í tímaritum,
blöðum og safnritum hér heima og
erlendis. Hann gaf út ljóðabæk-
urnar Fyrrvera, 1982, ásamt þeim
Magnúsi Gestssyni og Þórhalli Þór-
hallssyni; Þríleik að orðum 1990,
Tónmyndaljóð, ásamt Grími Marinó
Steindórssyni myndlistarmanni og
Gunnari Reyni Sveinssyni tón-
skáldi, 1992, ensk útgáfa 1993 (end-
urprentuð 1994); Hafið brennur,
með þýðingum á ljóðum lettnesku
skáldkonunnar Vizmu Belsevica
1994, og Hlér 1995. Úr viðjum,
Ljóðmyndir með Grími Marinó
1999. Vængstýfðir draumar, ljóð 11
lettneskra skálda 1999 og Leður-
blökuheilkennið eftir Ingunu Jan-
sone 2011, Glerleikur að orðum
2004, og Vermsl 2008. Þá kom út í
Frakklandi bókin Lífið sjálft/La Vie
Meme, 2011, og í Póllandi, Wyspa,
Chwila, þýðingar ljóða pólsku skáld-
konunnar Jolöntu Baziak. Hann var
ritstjóri 4. heftis Andblæs 1996.
Gunnar Reynir Sveinsson samdi
tvo ljóðaflokka við ljóð Hrafns, Hlér
og Tónmyndaljóð, og ástralska tón-
skáldið Rosalind Page samdi sjö-
ljóðaflokk, Ravensongs, sem voru
frumfluttir í Conservatorium of
Music í Sydney 2005 og komu út á
diski með heitinu Cool Black í flutn-
ingi Halcyon.
Hrafn var skáld Ferskra vinda,
alþjóðlegu listahátíðarinnar í Garði
sem haldin var í fimmta sinn 15.12.
2017-17.1. 2018. Í tengslum við hana
vann hann að þrítyngdri listrænni
ljóðabók með frönsku listakonunni
Danielle Loisel og heitir hún
Dreams from Garður, Danielle
gerði slíka bók með Sigurði Páls-
syni heitnum á fjórðu Ferskum
vindum.
Fjölskylda
Hrafn var kvæntur Önnu Sigríði,
f. 14.8. 1948, bókasafnsfræðingi,
kennara og bæjarbókaverði í Hafn-
arfirði, en þau skildu 2015. Hún er
dóttir Einars Sturlusonar óperu-
söngvara og Unnar D. Haralds-
dóttur bankafulltrúa.
Börn Hrafns og Önnu Sigríðar: 1)
Hörn, f. 15.9. 1972, messósópran
söngkona og vatnsauðlindaverk-
fræðingur hjá Verkís og aðjúnkt við
HÍ, gift Þórði Ólafi Þórðarsyni lög-
manni og eiga þau soninn Hrafn, f.
1995, læknakandidat, og 2) Leifur, f.
31.12. 1974, d. 11.8. 1975.
Dóttir Hrafns er Ásta Sigríður, f.
26.1. 2009.
Foreldrar Hrafns: Hörður Þór-
hallsson, f. 5.7. 1916, d. 17.12. 1959,
viðskiptafræðingur, kennari og ljóð-
skáld, og Guðrún Ólöf Jónasdóttir
Þór, f. 19.4. 1919, d. 2006, húsfreyja.
Hrafn Andrés
Harðarson
Árni Pálsson
útvegsb. og barnakennari í Njarðvík
Sigríður Magnúsdóttir
húsfr. í Njarðvík, frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð
Þórhallur Árnason
sellóleikari í Rvík
Hörður Þórhallsson
viðskiptafr. og ljóðskáld í Kópavogi
Abelína Andrea Gunnarsdóttir
kaupkona í Rvík
Gunnar Einarsson
kaupm. í Rvík
Jóhanna Friðriksdóttir
húsfr. í Rvík, frá Hjalteyri
Jóhannes Gunnarsson Hólabiskup, Rvík
Þórarinn Þór pr. á
Reykhólum og Patreksfirði
Arnaldur Þór garðyrkjub. á
Blómvangi í Mosfellssveit
Kristín Þór hjúkrunarkona
í Reykjavík
riðrik Gunnarsson forstj. smjörlíkisgerðarinnar ÁsgarðsF
Gunnar J. Friðriksson
forstj. og form.VSÍ
í Rvík
Höskuldur Þórhallsson
trompetleikari í Rvík
Margrét Þórarinsdóttir
frá Veigastöðum
Þórarinn Jónas Jónasson
sundkennari og b. frá Sigluvík
Jónas Þór (Þórarinsson)
verksmiðjustj. á Akureyri
Helga Sigríður Kristinsdóttir
húsfr. á Akureyri
Guðlaug Stefanía Benjamínsdóttir
frá Stekkjarflötum
Kristinn Jósefsson
frá Krónustöðum í Eyjafirði
Úr frændgarði Hrafns Andrésar Harðarsonar
Guðrún Ólöf Þór (Jónasdóttir)
skrifstofum. í Kópavogi
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
GÆÐA BAKKAMATUR
Sjá heimasíðu
www.veislulist.is
Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins,
bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Í yfir 40 ár hefur Veislulist
lagt áherslu á góða
þjónustu og framúrskaran
matreiðslu.
Hádegismatur
Verð
kr. 1.370
Lágmark 3 bakkar
+ sendingargjald
d
MisMUnAndi
RéTTiR AllA dAGA
viKUnnAR
EldUM EinniG fyRiR
MöTUnEyTi
Ragnheiður Jónsdóttir fæddistá Stokkseyri 9.4. 1895. For-eldrar hennar voru Jón Sig-
urðsson, kennari í Stokkseyrar-
hreppi, og k.h., Guðrún Magnús-
dóttir húsfreyja. Faðir Jóns var
Sigurður Ívarsson, bóndi á
Gegnisparti í Flóa.
Eiginmaður Ragnheiðar var Guð-
jón Guðjónsson, f. á Akranesi 1892,
d. 1971, skólastjóri Barnaskólans í
Hafnarfirði og forstöðumaður
Fræðslumyndasafns Reykjavíkur.
Þau eignuðust tvö börn, Jón Ragnar,
f. 1920, sem var stýrimaður og skip-
stjóri í Boston, Massachusetts, og
Sigrúnu myndlistarkonu, Rúnu, f.
1926.
Ragnheiður lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands 1923. Þá
dvaldi hún við framhaldsnám á Eng-
landi 1929 og kynnti sér þar smá-
barnakennslu en einnig enskar bók-
menntir. Auk þess dvaldi hún rúmt
ár, 1946-1947, á Norðurlöndunum,
við nám og ritstörf.
Ragnheiður hóf kennslu 1914 og
kenndi á ýmsum stöðum á Suður-
landi og í Reykjavík. Síðast var hún
kennari við Barnaskóla Hafnar-
fjarðar.
Fyrsta bók Ragnheiðar, Ævin-
týraleikir, er leikrit ætlað bömum en
hún mun vera fyrst íslenskra höf-
unda til að gefa út leikrit fyrir börn.
Hún skrifaði síðan jöfnum höndum
skáldverk handa unglingum og full-
orðnum. Af verkum hennar má
nefna Arf (1941), Í skugga Glæsi-
bæjar (1945), fjögurra binda þroska-
sögu sem hófst með Ég á gull að
gjalda (1954) Villieldur (1967) og
smásagnasafnið Deilt með einum
(1959). Hún er þó fyrst og fremst
þekkt sem barnabókahöfundur en
hún sendi frá sér tuttugu og eina
barnabók, þ.á m. bækurnar um
Dóru og bækurnar um Kötlu sem
margir muna sjálfsagt eftir.
Ragnheiður sat í barnaverndar-
nefnd Hafnarfjarðar, sat í stjórn
Rithöfundasambands Íslands 1958-
60 og var formaður þess frá 1964 og
til dauðadags 9.5. 1967.
Merkir Íslendingar
Ragnheiður
Jónsdóttir
85 ára
Einar Kristinn Haraldsson
Kjartan Bjarni Kristjánsson
80 ára
Ari Eggertsson
Sigurður Baldvinsson
75 ára
Björn Levi Pétursson
Helgi Jónas Helgason
Hildur Gústafsdóttir
Hilmar Sigurðsson
Örn Björnsson
70 ára
Guðlaug Þ.
Guðmundsdóttir
Haraldur Bragi Ólafsson
Helga Eygló Guðlaugsdóttir
Herdís Zophoníasdóttir
Hrafn Andrés Harðarson
Ingibjörg Andrésdóttir
Sigurður Kristjánsson
60 ára
Ari Arason
Bára Magnúsdóttir
Friðrik Þorbjörnsson
Marek Bozyk
Wieslawa Maria Kluk
Örn Sigurhansson
50 ára
Andri Ragnarsson
Guðjón Garðar Sigurðsson
Gunnar Árnason
Hanna Júlía Kristjánsdóttir
Harpa Ríkarðsdóttir
Hildur Loftsdóttir
Karvel Halldór Árnason
María Guðlaug Hrafnsdóttir
María Lea Guðjónsdóttir
Ólöf Ásta Karlsdóttir
Óskar Páll Óskarsson
Zoran Kesic
40 ára
Davíð Þorsteinsson
Heiðar Þór Eyþórsson
Hólmfríður Rós
Rúnarsdóttir
Irene Greenwood
Krzysztof Marek Pieta
Marcin Gawrylow
Már Grétar Arnarson
Nanna Margrét
Gunnlaugsdóttir
Patrycja Anna Hapter
30 ára
Aldís Þóra Harðardóttir
Atli Axfjörð Friðgeirsson
Ásmundur Pálsson
Daníel Örn Sigurðarson
Erla Dögg Grétarsdóttir
Eyrún Þorleifsdóttir
Hafþór Ægir Guðmundsson
Jörgen Sveinn
Þorvarðarson
Lukas Sirutis
Máni Snær Larsen
Ólafur Þór Sigurðsson
Ríkharður Þór Brandsson
Saga Steinsen
Til hamingju með daginn
30 ára Ríkharður ólst
upp í Kópavogi, býr þar,
lauk fjórða stigi í vélstjórn
frá Vélskólanum og starf-
ar hjá Marel.
Maki: Guðrún Lilja Sig-
urbjörnsdóttir Cooper, f.
1992, nemi í hjúkr-
unarfræði við HA.
Sonur: Mikael Aron Rík-
harðsson, f. 2016.
Foreldrar: Brandur Stein-
ar Guðmundsson, f. 1954,
og Edda Guðrún Rík-
harðsdóttir, f. 1958.
Ríkharður Þór
Brandsson
30 ára Máni ólst upp á
Akureyri og í Reykjavík,
býr þar, lauk stúdents-
prófi frá FÁ og er veit-
ingastjóri á Fresco við
Suðurlandsbraut.
Systkini: Ívar, f. 1983;
Smári Freyr, f. 1992;
Luese Larsen, f. 1992, og
Karoline Larsen, f. 1994.
Foreldrar: Thorden Lar-
sen, f. 1958, fyrrv. ráðgjafi
og stuðningsfulltrúi, og
Rebekka Jónsdóttir, f.
1956, leikskólastjóri.
Máni Snær
Larsen
30 ára Jörgen ólst upp á
Egilsstöðum, býr þar, lauk
sveinsprófi í húsasmíði,
meistararéttindum, er
byggingafræðíngur og
vinnur við húsbyggingar.
Maki: Inga Lind Bjarna-
dóttir, f. 1994, starfsm.
við hjúkrunarheimili.
Börn: Pétur Logi, f. 2012,
og Ísabella Rún, f. 2014.
Foreldrar: Sigríður Berg-
þórsdóttir, f. 1950, og
Þorvarður Stefánsson, f.
1939, d. 2016.
Jörgen Sveinn
Þorvarðarson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón