Morgunblaðið - 09.04.2018, Page 12

Morgunblaðið - 09.04.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is A ð læra dýralækningar hefur verið draumur minn frá því ég var barn. Ég hef alltaf ver- ið mikið fyrir dýr, ólst upp með köttum og hundum og er sérlega mikil kattakona. Fyrstu ár ævinnar átti ég heima bæði á Spáni og Puerto Rico, því pabbi er þaðan, og þá áttum við hunda og ketti. Fjöl- skyldan fluttist til Íslands þegar ég var átta ára og það bjuggu alltaf dýr á mínu æskuheimili,“ segir hin hálf- íslenska Veronica Monique sem hóf nám í dýralækningum í Valencia á Spáni síðast liðið haust. „Þetta er þónokkuð erfitt nám, en ég er ánægð með hversu mikil verkleg kennsla er strax á fyrsta ári, við höfum til dæm- is verið að kryfja og skoða líffæri ólíkustu dýra, svína, kúa, hesta og hunda.“ Mataði hana með sprautu Veronica hefur djúpa samkennd með dýrum og lætur velferð þeirra sig miklu varða. Fljótlega eftir að hún fluttist til Valencia tók hún eftir hversu mikið var af götuköttum í hverfinu hennar, Moncata. „Ég heyrði eitt kvöldið sárt mjálm frá kettlingi utan við blokkina þar sem við búum og komst að því að hann var fastur undir húddi á kyrr- stæðum bíl. Ég reyndi að ná honum og nágrannakona mín, gömul kona sem talar enga ensku kom að hjálpa mér. En það gekk ekki svo ég bank- aði á útidyrnar í flestum húsum hér nálægt til að finna eiganda bílsins, og þá náðum við loks kettlingnum. Hann reyndist mjög ungur, nokk- urra vikna, var sótsvartur og van- nærður. Ég tók hann heim og hlúði að honum, kom honum til góðrar heilsu og útvegaði honum gott var- anlegt heimili hjá vinafólki.“ Þetta var aðeins byrjunin á hlutverki Veronicu sem bjargvættur illa haldinna dýra í hverfinu. „Ég og fyrrnefnd nágranna- kona mín skiptumst á að gefa götuköttum hér að borða, við erum með dall úti sem margir heim- ilislausir kettir koma í. Eitt kvöldið sá ég læðu með kettling sem var með svo mikla augnsýkingu að bæði augun voru lokuð. Ég tók hann heim og hélt að hann myndi ekki lifa fyrstu nóttina af, þessi litla læða var svo veik. Ég gat ekkert sofið, ég var alltaf að athuga hvort hún væri að anda,“ segir Veronica sem gaf læðunni nafnið Ronja og kom henni í meðferð við augnsýkingunni. „Ronja þurfti mikla aðhlynningu, ég þurfti að mata hana með sprautu og ég endaði á að taka hana að mér. Þetta er þekkt fyrirbæri hjá dýra- læknanemum og dýralæknum, að taka sjúklingana með sér heim,“ segir hún og hlær. „Ég þekki dýra- læknanema hér sem eiga sumir fimm dýr, sem þeir hafa bjargað af götunni.“ Sigur að ná kattakónginum Veronica sætti sig ekki við að götukettir í hverfinu hennar væru látnir kveljast úr hungri og sjúk- dómum og gekk því sjálf í málið til að berjast fyrir þessi dýr sem hafa engan talsmann. „Hér eru margir með fordóma gagnvart dýrum á götunni, fólki finnst þau skítug og sjúk og lítur á þau sem meindýr, svipað og við Ís- lendingar lítum á rottur. En margir þeirra götukatta sem ég gef að Hún er bjargvættur hunda og katta Hún segir það þekkt fyrirbæri hjá dýralæknanemum og dýralæknum að taka sjúklingana með sér heim. Sjálf er hún nýbyrjuð í dýralæknanámi og þegar búin að taka að sér tvö dýr. Veronica Monique má ekkert aumt sjá og berst fyrir þeim dýrum sem fáa málsvara eiga, götudýrunum. Þar sem hún býr í Valencia er litið á heimilislaus dýr svipuðum augum og við lítum á rottur, sem meindýr. Nánar Ronja kann vel við sig á öxlinni á Veronicu, þar sem hún sér vel yfir. Ég er svo heppinn að eiga fjög-ur börn. Heppinn segi ég afþví að það gerði mig að betri manneskju að eignast börn. Ég var aldrei sérstaklega mikið fyrir börn fyrr en ég eignaðist mín eigin og fæ reglulega að heyra frá yngri systur minni að ég hafi verið frekar leiðin- legur stóri bróðir. Bið hér með opin- berlega forláts á því, litla systir mín kæra. En maður breytir ekki fortíð- inni og það þýðir ekkert að velta sér lengi upp úr því sem maður hefði viljað gera öðruvísi. Málið er að læra af mistökunum og gera betur næst. Þetta er klisja en samt ekki. Þetta er sannleikur og ef maður lítur á þau mistök sem maður gerir – við gerum öll mistök – með þeim augum að læra af þeim, þá bætir maður bæði sjálfan sig og aðra í kringum sig. Ég áttaði mig fyrst á börnum þeg- ar fyrsti sonur minn kom í heiminn fyrir tæpum 22 árum. Það var stór stund og nánast um leið fór mér að finnast önnur börn áhugaverð og skemmtileg. Það var eins og kveikt hefði verið á einhverjum takka í kerfinu hjá mér. Núna pæli ég mikið í börnum sem ég rekst á og hef gam- an af því sem þau eru að spá og spekúlera í. Við sem erum orðin full- orðin getum lært mikið af börnum. Þau eru flest opin, óhrædd við að prófa sig áfram og uppgötva nýja hluti. Þau eru í núinu. Vilja leika sér, hreyfa sig og hafa gaman af þeim að- stæðum sem þau eru í. Þau eru, mörg, ófeimin, forvitin og skemmti- leg. Yngsti sonur minn er sjö ára. Hann er alltaf að bralla eitthvað skemmtilegt. Syngur mikið, býr til stórar og miklar íþróttakeppnir, teiknar, skrifar sögur og spilar fót- bolta svo fátt eitt sé nefnt. Hann býður okkur foreldrunum nánast alltaf að vera með í því sem hann er að bralla. Stundum stökkvum við til en stundum erum við – eins og full- orðið fólk almennt – of upptekin. Ég er markvisst að vinna í því að fækka uppteknu stundunum og fjölga leikjastundunum af því að ég veit að það gefur okkur báðum mikið. Bæði núna og í framtíðinni. Styrkir okkur sem einstaklinga og sem fjölskyldu. Njótum ferðalagsins! Gaui. Getty Images/iStockPhoto Samvera Það er gaman þegar foreldrar og börn bregða á leik saman. Fjölgum leikja- stundunum Hugleiðingar um heilsu og hamingju Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson gudjon@njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi, sem heldur úti bloggsíð- unni: njottuferdalagsins.is Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.