Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 4
SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Íslensk stjórnvöld hafa takmarkað- an skilning á hættum sem fylgja peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, samkvæmt nýrri skýrslu Financial Action Task Force (FATF), alþjóðlegs vinnu- hóps á sviði varna gegn peninga- þvætti. FATF gerir reglulega út- tekt á lögum, reglum og starfsaðferðum í aðildarríkjum og gerir á grundvelli þeirra kröfur um úrbætur. Skýrslan er nýkomin út og fjallað var um efni hennar á vef stór- blaðsins Wall Street Journal sl. föstudag.. Í skýrslunni er rakið að næstum allan síðasta áratug hafi verið ein- blínt á glæpi tengda efnahags- hruninu hér. Fyrir vikið hafi ekki nóg verið gert til að verjast pen- ingaþvætti og hryðjuverkafjár- mögnun á Íslandi. Ennfremur segir að á Íslandi sé gott lagaumhverfi til að rannsaka og meðhöndla peninga- þvætti. Þessum málaflokki hafi ein- faldlega ekki verið sinnt sem skyldi. Íslensk stjórnvöld hafi tekið fyrstu skref til að öðlast skilning á við- fangsefninu en ekki hafi verið ráðist í allar þær aðgerðir sem þörf er á. „Ísland verður að samhæfa aðgerðir yfirvalda og styrkja varnir sínar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka,“ segir í skýrslunni og bent á að íslensk yfirvöld vinni vel með kollegum sínum í öðrum lönd- um, sér í lagi nágrönnum á Norður- löndunum, í upplýsingagjöf um ýmis mál. Í skýrslunni segir að ef þrír stærstu bankar landsins eru undan- skildir megi fullyrða að fyrirtæki í fjármálageiranum, og raunar fyrir- tæki almennt líka, séu illa upplýst um þær hættur sem að þeim steðja. Afar fáar tilkynningar berist um grunsamleg viðskipti og milli- færslur sökum þess hve lítill gaum- ur sé að þessum málum gefinn. Beina ætti sjónum í auknum mæli að því hvaða hættur steðji að ís- lenskum fyrirtækjum og gera upp- lýsingar um rétta eigendur fyrir- tækja aðgengilegar. Stýrihópur nýlega skipaður Í febrúar síðastliðnum skipaði Sigríður Á. Andersen dómsmálaráð- herra að nýju stýrihóp um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Formaður stýrihóps- ins er Hildur Dungal lögfræðingur. Ekki náðist í Hildi í gær. Stýrihópur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka var fyrst skipaður 2015 og voru verkefni hans þá afmörkuð við umbætur í tengslum við tilmæli áðurnefnds Financial Action Task Force (FATF). Það ár komu forsvarsmenn hópsins til Íslands til að vekja sér- staka athygli á að stjórnvöld hér hefðu ekki enn uppfyllt kröfur um endurbætur sem settar voru fram árið 2006. Ljóst virðist að íslensk stjórnvöld taki þessar athugasemdir alvarlega því að í skýrslu Financial Action Task Force segir að þau hafi þegar hafið vinnu við úrbætur, og er þeim skrefum sem þegar hafa verið stigin fagnað. Samkvæmt því sem fram kom í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins er stýrihópurinn var skipaður er hlutverk hans meðal annars að að sinna stefnumótun, tryggja yfirsýn, samvinnu og samstilla varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka; tryggja eftirfylgni og úrbætur vegna athugasemda Fin- ancial Action Task Force; stuðla að samræmdu eftirliti á grundvelli við- eigandi lagaákvæða; að vera stjórn- völdum til ráðgjafar í afstöðu til mála hjá Financial Action Task Force; og taka þátt í innleiðingu og breytingum á regluverki. Samstilla aðgerðir stjórnvalda „Aðgerðir er lúta að vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eru víðtækar og margir aðilar innan stjórnkerfisins bera ábyrgð á öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem að málaflokknum snúa. Mikilvægt er að samstilla að- gerðir stjórnvalda og tryggja nauð- synlega yfirsýn yfir málaflokkinn,“ sagði í fréttinni. Styrkja verður varnir landsins  Ekki hefur verið nóg gert til að verjast peningaþvætti og hryðjuverkafjármögnun hér á landi, sam- kvæmt skýrslu alþjóðlegs vinnuhóps  Fyrirtæki illa upplýst um hættur  Stýrihópur að störfum 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 PRAGBirtmeðfyrirvaraumprentvillur.H eim sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 19. apríl í 3 nætur 2 fyrir 1 til Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Prag 19. apríl í 3 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Frá kr. 39.950 flugsæti m/sköttum m.v. 2 fyrir 1 tilboð 19. apríl í 3 nætur. Frá kr. 54.900 flugsæti & gisting Verð á mann m.v. tvo í herb. hótel IBIS Mala Strana í 3 nætur. Hollvinir tjarnarinnar, óformlegur hópur sjálf- boðaliða á vegum Fuglaverndar, voru með ár- legan tiltektardag í friðlandi fugla í Vatnsmýr- inni á laugardag. Fjölmargir áhugasamir komu og tíndu rusl og lögðu greinar í bakka til að koma í veg fyrir landbrot auk fleiri verka. Nú standa yfir framkvæmdir á vegum Reykjavíkur- borgar á svæðinu en markmiðið er að gera það aðlaðandi varpsvæði fyrir endur og mófugla. Morgunblaðið/Hari Vorverkin unnin á varpsvæði í Vatnsmýrinni Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Við tókum út úr geymslunum í dag þar til þrekið þraut,“ sagði Ómar Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Geymslna ehf., í samtali við Morgunblaðið í gær. Starfsmenn fyrirtækisins fengu leyfi til að fara inn á fyrstu hæð Miðhrauns 4 sem brann á fimmtudaginn. Efri hæðir er ekki hægt að kanna á þessu stigi að sögn Ómars. Hann segir að í dag verði staðan tekin aftur með trygg- ingafélögum, lögreglu og slökkviliði. „Eitthvað bjargaðist, en það er vatn og sót yfir nánast öllu. Við reyndum að koma því sem heillegt var úr eins mörgum geymslum og hægt var,“ segir Ómar, sem segir að m.a. hafi verið náð í eldtraustu skáp- ana úr Latabæ en hann viti þó ekki hvort innihald þeirra hafi verið í lagi. „Miðað við umfang brunans og allt sem gekk á þarna var innihald sumra geymslnanna ótrúlega gott,“ segir Ómar. Hann segir að næstu dagar fari í að halda áfram að bjarga því sem bjargað verður úr rústun- um. Reyndu að koma heillegum munum út úr geymslunum  Starfsmenn fengu leyfi til að fara á fyrstu hæð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brunarústir Eitthvað heillegt hefur fundist í geymslum hússins. Uppsögnum ljós- mæðra fjölgar stöðugt og eru þær nú orðnar um þrjátíu tals- ins. Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, sem situr í stjórn Ljósmæðra- félagsins, segir uppsagnirnar ekki koma á óvart og hún eigi von á enn fleiri. Hún finnur fyrir vaxandi ólgu meðal ljósmæðra. „Kannski er það alvarlegast að þetta eru ekki bara einhver mótmæli held- ur eru konur búnar að fá nóg og þær eru að ráða sig annað,“ segir Katrín. Krafa Ljósmæðrafélagsins er að grunnlaunin hækki við þá viðbót- armenntun sem ljósmóðurfræði er. Próf í hjúkrunarfræði er meðal inn- tökuskilyrða í greinina, en ákveði hjúkrunarfræðingur að bæta við sig prófi í ljósmóðurfræði gæti viðkom- andi þurft að taka á sig launalækkun í nýju starfi. olofr@mbl.is Fleiri ljós- mæður segja upp  Samninganefndir funda næst 16. apríl Aðgerðir Ljós- mæður mótmæla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.