Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 17.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 34.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 19.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 36.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- GHOST BUSTER Náttborð – fleiri litir Verð 47.900,- stk. TAKE Borðlampi – fleiri litir Verð 10.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- Þvottadagar WW70vottavélKG. 1400 SN. co Bubble olalaus mótor. erð nú 59.900,- V70M urrkari A++ KG. barkarlaus urrkari. armadæla í stað ments. erð nú 76.900,- TM 59.90 0,- URRKARI 6DBM720G ekur 7 kg af þvotti. ður: 99.900,- Nú: ,- 16097949 15% ÞVottAVél L6FBE720I Tekur 7 kg af þvotti. 1200 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 89.900,- 914913404 15% Lágmúla 8 - Sími 530 2800Umboðsmenn um allt land - Ormsson.is Lagt er til að áskriftir og sala tíma- rita, dagblaða og landsmála- og hér- aðsfréttablaða hvort sem er í papp- írs- eða rafrænu formi verði í lægra skatthlutfalli virðisaukaskatts líkt og gildir um sölu slíkra tímarita og blaða í pappírsformi í frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á samráðsgátt stjórnvalda. Opið er fyrir innsendingu umsagna við frumvarpið. Þessi skattabreyting er byggð á tillögum nefndar um bætt rekstrar- umhverfi einkarekinna fjölmiðla sem skilaði af sér í janúar sl. Í greinargerð um áhrif þessarar breytingar ef hún verður lögfest kemur fram að við það að færa raf- ræna sölu og áskriftir tímarita, dag- blaða og landsmála- og héraðsfrétta- blaða í lægra skatthlutfall virðisaukaskatts geti það leitt til 15- 40 milljóna kr. lækkunar á tekjum ríkissjóðs. ,,Þar sem gera má ráð fyr- ir aukinni innheimtu áskriftargjalda hjá fjölmiðlum vegna sölu rafrænna fréttablaða í náinni framtíð má þó gera ráð fyrir að fjárhæðin geti orðið hærri á næstu árum.“ Í frumvarpinu er líka lagt til að er- lendum atvinnufyrirtækjum sem selja innlendum aðilum hér á landi blöð og tímarit í áskrift í pappírs- formi verði gert skylt að innheimta og skila virðisaukaskatti af þeirri sölu hér á landi. omfr@mbl.is Rafræn sala og áskriftir færist í lægra vsk-þrep  15-40 milljónum lægri tekjur ríkisins Magnús Heimir Jónasson Alexander Gunnar Kristjánsson Þrír ráðherrabílstjórar hafa verið ráðnir frá árinu 2009, tveir í innan- ríkisráðuneytið og einn í mennta- málaráðuneytið. Þetta kemur fram í svörum ráðuneyta við fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar, þing- manns Pírata. Auglýst innan lögreglunnar Auk þess að spyrja um fjölda ráðn- inga óskaði Björn Leví eftir upplýs- ingum um hversu margir umsækj- endur hefðu sóst eftir því að verða ráðherrabílstjórar á tímabilinu og af hvaða kyni þeir væru og hvort 26. greinar jafnréttislaga hefði verið gætt við ráðningar á ráðherrabíl- stjórum. Innanríkisráðuneytið auglýsti í tví- gang eftir ráðherrabílstjóra á tíma- bilinu. Annars vegar árið 2014 og hins vegar 2017. Í fyrra tilfellinu voru 9 umsækjendur um stöðuna og í hinu síðara voru 13 umsækjendur. Ein- ungis karlmenn sóttu um störfin. Staða ráðherrabílstjóra var auglýst innan lögreglunnar árið 2014 en þá var í undirbúningi að færa rekstur allra ráðherrabíla og mönnun þeirra yfir til embættis ríkislögreglustjóra. Horfið var frá því en árið 2017 var engu að síður einungis auglýst innan lögreglunnar þar sem í báðum til- vikum var krafist prófs frá Lögreglu- skóla ríkisins, eða reynslu sem mætti leggja að jöfnu við slíka menntun. Ein kona ráðherrabílstjóri Í svari umhverfis- og auðlinda- ráðherra kemur fram að staðan hef- ur ekki verið auglýst á tímabilinu en ráðherrabílstjóri ráðuneytisins hefur starfað þar frá árinu 1999. Bílstjóri félags- og jafnréttismálaráðherra hefur verið ráðherrabílstjóri frá árinu 2003 en fluttist til ráðuneyt- isins úr öðru ráðuneyti árið 2013, bíl- stjóri félags- og jafnréttismálaráð- herra er kvenmaður en er það eina ráðuneytið sem tilkynnti slíkt. Önnur ráðuneyti, sem ekki höfðu ráðið til sín bílstjóra á tímabilinu, svöruðu einfaldlega því. Þrír nýir ráðherrabíl- stjórar ráðnir frá 2009  67 sóttu um stöðurnar þrjár, þar af fjórar konur Morgunblaðið/Kristinn Árni Björn Pálsson sigraði í ein- staklingskeppni Meistaradeild- arinnar 2018 í TM-höllinni í fyrra- kvöld, þar sem keppt var í hestaíþróttum. Árni Björn var með flest stig, 52,5, eftir að keppt hafði verið í átta greinum. Annar varð Jakob Svavar Sigurðsson með 48 stig og Viðar Ingólfsson þriðji með 35 stig. „Þetta var lokamótið í mótaröð- inni, ég stóð uppi sem sigurvegari í heildarstigakeppninni, en það er í fjórða skiptið á fimm árum, sem er met,“ segir Árni Björn í samtali við Morgunblaðið, og kveðst afar stolt- ur af árangrinum. Hann hafi lagt hart að sér, mikill undirbúningur hafi skilað sér. „Þetta eru mismunandi gangteg- undir og keppnisgreinar. Ég keppti því á nokkrum mismunandi hest- um,“ segir Árni Björn sem segir sína uppáhaldsgrein vera tölt. Hann segir keppnina gríðarlega harða, hún sé sýnd í streymi og áhugasamir erlendis fylgist með. ernayr@mbl.is Ljósmynd/Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir Sigur F.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Árni Björn Pálsson og Viðar Ingólfsson. Fjórði sigur Árna Björns á fimm árum í Meistaradeild

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.