Morgunblaðið - 09.04.2018, Side 22

Morgunblaðið - 09.04.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Nýlöguð humarsúpa Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Síðustu mánuði hef ég verið að læra að lifa upp á nýtt. Síðastahaust hætti ég störfum eftir 42 ár sem sóknarprestur og á vett-vangi kirkjunnar. Mér féll vel að hafa nóg fyrir stafni og vinna eftir stundaskrá en núna er takturinn í tilverunni annar, en venst vel,“ segir sr. Þorvaldur Karl Helgason prestur sem er 68 ára í dag. Þorvaldur er fæddur og uppalinn í Vogahverfinu í Reykjavík. For- eldrar hans voru Helgi Þorláksson og Gunnþóra Kristmundsdóttir, bæði skólafólk sem einnig störfuðu mikið fyrir Langholtskirkju. „Auðvitað mótaði þetta starfsumhverfi okkur mikið systkinin og hvað mig sjálfan varðar lá eiginlega beint við að fara í prestskap sem um margt svipar til starfs kennarans, segir Þorvaldur sem hóf prestskap sinn austur á Egilsstöðum árið 1975 en tók við Njarðvíkursöfnuði síð- ar og þjónaði þar í 13 ár. Lengst starfaði Þorvaldur þó á Biskupsstofu, sem forstöðumaður fjölskylduþjónustu og biskupsritari. „Við eiginkona mín, Þóra Kristinsdóttir, bjóðum alltaf börnunum okkar og þeirra fólki í kaffi á afmælisdaginn minn. Við leggjum mikið upp úr því að ná fólkinu okkar saman og notum þá svona tilefni. Núna er maður kominn á þann stað að lífið snýst talsvert um að sinna barnabörnum og einnig er svigrúm til að sinna áhugamálunum. Núna er ég til dæmis með ýmsar góðar bækur í takinu, svo sem Sakrament- ið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og svo gefast vonandi tækifæri á næst- unni til að ferðast og skoða veröldina.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eiffeil Lifi upp á nýtt, segir Þorvaldur Karl, hér staddur í París. Skoðar veröldina að starfsárum loknum Sr. Þorvaldur Karl Helgason er 68 ára í dag H rafn Andrés Harð- arson fæddist í Kópa- vogi 9.4. 1948 og ólst þar upp. Hann gekk í Landakotsskóla, Gagnfræðaskóla Kópavogs og var hálfan vetur í miðskóla á Reykhól- um, lauk stúdentsprófi frá MA 1968 og prófi í bókasafnsfræðum, ALA Chartered Librarian, frá Polytechn- ic of North London, School of Libr- arianship, 1972, en sótti síðar ýmis námskeið og ráðstefnur í bókasafns- fræðum í Danmörku, Finnlandi, Lettlandi, Noregi, Svíþjóð og Eng- landi. Þá var hann í rannsóknaleyfi 1993-94 og varð Fellow of the Libr- ary Association 1995 (FCLIP). Hrafn var stundakennari í bóka- safnsfræðum við HÍ 1974-87, var forstöðumaður Bústaðasafns og bókabíla Borgarbókasafnsins 1973- 76 en vann einnig hlutastörf á bóka- Hrafn Andrés Harðarson, fv. bæjarbókavörður í Kópavogi – 70 ára Galvösk söngsveit Hér er Hrafn Andrés með söngsveit sinni,Víkingum í Garði, en myndin var tekin á þorrablóti. Skáld og málsvari bóka og bókmennta Afmælisbarnið Hrafn Andrés var bæjarbókavörður í Kópavogi í 38 ár. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.