Morgunblaðið - 18.04.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Flaug ekki úr landi án aðstoðar
Sindri Þór Stefánsson strauk úr fangelsinu á Sogni Flúði land með flugmiða bókaðan á nafni ann-
ars manns Ekki talin þörf á að spyrja um skilríki á vellinum Lögregla telur hann hafa fengið aðstoð
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn hjá lögregl-
unni á Suðurnesjum, telur fremur augljóst að
Sindri Þór Stefánsson, sem setið hefur í gæslu-
varðhaldi vegna umfangsmikils þjófnaðar á
tölvubúnaði úr gagnaverum, hafi fengið aðstoð
við að komast úr landi. „Það liggur í hlutarins
eðli að hann hefur ekki náð þessu einn á báti,
þetta byggist fyrst og fremst á því,“ segir Gunn-
ar í samtali við Morgunblaðið. „Það eru alls kon-
ar svona atriði sem eru skoðunarverð, allar bók-
unarupplýsingar og hver er á bak við greiðsluna
á flugmiðanum. En þetta skoðum við allt.“
Sindri flaug með vél Icelandair á Arlanda-
flugvöllinn í Svíþjóð en ekki er vitað af hverju sá
áfangastaður varð fyrir valinu. „Við vitum ekki
af hverju hann velur flug til Arlanda. Kannski
var það tímalega besta landið til að fljúga til inn-
an Schengen en það er allt á huldu.“
Bókunin sem Sindri flaug undir var í nafni
annars einstaklings og telur lögreglan líklegt að
Sindri hafi aldrei verið spurður um skilríki á
flugvellinum. „Þú bókar bara á netinu í dag og
færð svo brottfararspjald úr vélinni. Það er mis-
munandi milli flugfélaga hvort spurt er um skil-
ríki úti við vélarnar. Það er allur gangur á því
hvort fólk þarf að sýna vegabréf eða ekki og það
er eini staðurinn þar sem þú hugsanlega þarft að
sýna vegabréf enda á ferðalag innan Schengen
að vera eins og ferðalag innanlands,“ segir
Gunnar. Morgunblaðið hafði samband við Isavia
og Icelandair sem segja að ekki sé þörf á að
spyrja um vegabréf, hvorki við vél eða við ör-
yggisleit, þegar ferðast er innan Schengen-
svæðisins.
Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra sér nú um
samskipti við erlendar stofnanir eins og Interpol
en að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar lögreglu-
stjóra, er búið að lýsa eftir Sindra hjá Interpol.
„Við höfum náttúrlega verið í sambandi við lög-
regluyfirvöld í öðrum löndum,“ segir Ólafur sem
telur líklegt að Sindri hafi haft eigið vegabréf
með sér til að geta ferðast áfram eftir komuna til
Svíþjóðar. Hins vegar ætti að vera búið að
flagga vegabréfi hans núna þar sem búið er að
lýsa eftir honum að sögn Ólafs.
Morgunblaðið/Ómar
Keflavíkurflugvöllur Strokufanginn fór að
því er virðist óáreittur í gegnum flugvöllinn.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Þetta var alvöru vestfirskur fundur
þar sem ýmislegt var látið flakka.
Fundargestir, sem voru milli 250 og
300, voru beinskeyttir og harðir en
ekki dónalegir að mínu mati,“ segir
Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík, eftir tveggja og hálfs
tíma íbúafund sem Kristján Þór Júl-
íusson boðaði til í Bolungarvík í gær-
kvöldi.
„Það var lagt hart að forstjóra
Hafrannsóknastofnunar (Hafró)
sem sótti fundinn ásamt sviðstjóra
fiskeldis- og fiskiræktarsviðs Hafró,
að koma með tímasetningu á það
hvenær niðurstaða í nýju áhættu-
mati varðandi fiskeldi í Ísafjarðar-
djúpi lægi fyrir,“ segir Jón Páll.
Hann segir að Sigurður Guðjónsson,
forstjóri Hafró, hafi lýst því yfir að í
sumar liti nýtt áhættumat dagsins
ljós þar sem tillit yrði tekið til þeirra
mótvægisaðgerða sem fiskeldisfyrir-
tækin hafa þróað og breytt frá því að
núgildandi áhættumat var gert. En
það mat kemur í veg fyrir að fiskeldi
sé leyft í Ísafjarðardjúpi.
Jón Páll segir að Bolvíkingar séu
langþreyttir á að bíða eftir nýju
áhættumati og orð forstjóra Hafró
um nýtt áhættumat í sumar séu
gleðileg.
Láta verkin tala og ekkert væl
„Hafró hefur alltaf sagt að
áhættumatið sé lifandi plagg og
hægt að gera á því breytingar ef nýj-
ar upplýsingar komi fram. Ég er
mjög ánægður með að ráðherra og
stofnanir hans komi til Bolungarvík-
ur og haldi fund. Það er best að fá
réttar upplýsingar og geta spurt for-
svarsmenn stofnana beint hvað sé að
gerast,“ segir Jón Páll sem hrósar
fundarboðendum fyrir að þeir skuli
hafa keyrt vestur þegar ekki viðraði
til flugs.
„Þetta gerum við þegar við þurf-
um að funda í Reykjavík og menn fá
alltaf aukaprik ef þeir mæta og láta
verkin tala án þess að vera með eitt-
hvert væl,“ segir Jón Páll og bætir
við að hann hafi fulla trú á því að
hægt sé að ala fisk í sjó í Ísafjarð-
ardjúpi án þess að það sé óviðunandi
áhætta fyrir villta stofna á Íslandi.
Stefnt að nýju áhættumati
„Það vilja allir ná sátt um fiskeld-
ið. Við sem búum hérna í sátt og
samlyndi við náttúruna, embættis-
menn og stjórnvöld. Það var ýmis-
legt sem kom fram á fundinum í fyr-
irspurnum og umræðum. Við höfum
pressað á að fá svör og mín tilfinning
er sú að í fyrsta skipti í mörg ár sjái
fyrir endann á þessu máli,“ segir Jón
Páll sem bendir á að það séu liðin
nokkur ár síðan Arnarlax tilkynnti
um uppbyggingu fiskeldis í Bolung-
arvík. Einnig hafi Háafell og Arctic
Fish sýnt áhuga á fiskeldi á svæðinu.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, var
ánægður með fundinn og sagðist
hafa fengið gagnlegar upplýsingar
frá fundarmönnum og úr framsögum
Sigurðar Guðjónssonar og Ragnars
Jóhannssonar, sviðstjóra fiskeldis-
og fiskræktarsviðs. Það séu upplýs-
ingar sem hann eigi eftir að vinna úr.
Kristján Þór tekur undir þá túlk-
un Jóns Páls að forstjóri Hafró hafi
lýst því yfir að nýtt áhættumat liti
dagsins ljós í sumar.
„Alvöru vestfirskur fundur“
Sjávarútvegsráðherra hélt íbúafund í Bolungarvík Endurskoðað áhættumat
vegna fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í sumar Vilja fiskeldi í sátt og samlyndi við alla
Ljósmynd/Jón Páll Hreinsson
Íbúafundur Fjölmennt á fundi sjávarútvegsráðherra um áhættumat í fiskeldi.
„Það sem við erum að finna eru
eyrnapinnar og mikið af blautklút-
um,“ segir Sigurrós Friðriksdóttir,
teymisstjóri í haf- og vatnsteymi
Umhverfisstofnunar, en starfsmenn
stofnunarinnar gengu fjöruna í
Bakkavík á Seltjarnarnesi í gær og
tíndu rusl.
Í fjörunni mældist 200% aukning
á sorpi úr skólpi á milli áranna 2016
og 2017 sem má rekja til bilunar í
skólphreinsistöð í Faxaskjóli. 100
metra strandlína er tekin og hreins-
uð fjórum sinnum á ári með þessum
hætti þar sem ruslið er flokkað og
skrásett. Verkefnið er hluti af
OSPAR-samningnum um verndun
NA-Atlantshafs. Árið 2016 mældist
rusl úr skólpi 19% á þessum stað en
árið 2017 var það orðið 57%.
Ýmislegt fleira fannst í fjörunni
t.a.m. rafgeymir, golfkúlur og mik-
ið af plasti. „Það hefur verið talið
að um það bil 80% af því rusli sem
finnst í fjörunni komi frá landi. En
afgangurinn frá hafsækinni starf-
semi,“ segir Sigurrós.
Eyrna-
pinnar og
blautklútar
Morgunblaðið/Hallur Már
Ársreikningur samstæðu Reykja-
nesbæjar var lagður fram til fyrri
umræðu í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar í gær. Í honum kemur fram að
útsvarstekjur Reykjanesbæjar hafi
aukist verulega og skuldir lækkað
árið 2017 auk þess sem afgangur af
reglubundnum rekstri hafi aldrei
verið meiri.
Afgangur af rekstarreikningi A-
hluta bæjarsjóðs var 1,2 milljarðar
króna og rekstrarafgangur sam-
stæðu A- og B-hluta af rekstri voru
1,3 milljarðar.
Skuldir og skuldbindingar A-hluta
bæjarsjóðs voru í árslok kr. 28,9
milljarðar króna. Rekstrarreikning-
ur samstæðu A- og B-hluta sýna að
samanlagðar skuldir og skuldbind-
ingar voru við árslok 2017 tæpir 44
milljarðar króna.
Skuldaviðmið Reykjanesbæjar
hefur lækkað úr 208,5% niður í
189,55%. Gert ráð fyrir því í aðlög-
unaráætlun fyrir árin 2017 til 2022
að Reykjanesbær nái 150% skulda-
viðmiði árið 2022. ge@mbl.is
Skuldavið-
miðið nú
189,55%
Tekjur hækkað
og skuldir lækkað