Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Samstarfsaðilar
Alþjóðleg ráðstefna um verndarsvæði og þróun byggðar
Föstudaginn 27. apríl í Veröld, húsi Vigdísar.
Við getum lært heilmikið af reynslu annarra þjóða um samspil
verndarsvæða og byggðaþróunar. Annað þarf ekki að útiloka hitt.
Á ráðstefnunni fjalla sex erlendir fyrirlesarar um áhugaverð
fordæmi og fjölbreyttar leiðir sem farnar eru í þessum efnum.
Ráðstefnan stendur frá kl. 10.00-15.30. Hádegisverður innifalinn.
Nánari
upplýsingar
og skráning:
Fyrirlesarar
Peter Crane
Head of Visitor Services
for Cairngorms National
Park Authority (CNPA)
Skotlandi
Jukka Siltanen
M.Sc., Computer Science
University of Tampere,
M.Sc. Environment and
Natural Resources,
University of Iceland
Elliott Lorimer
Principal officer for
Forest of Bowland Area
of Outstanding Natural
beauty, Englandi
Salvör Jónsdóttir
Skipulagsfræðingur
Ráðstefnustjóri
Sigurður Gísli
Pálmason Stofnandi
Hrífanda, félags um
náttúrumenningu
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Umhverfis- og
auðlindaráðherra
Rita Johansen
World Heritage
Coordinator Vega
Archipelago World
Heritage, Noregi
Carol Ritchie
Executive director
EUROPARC Federation
Dr. Miguel
Clüsener-Godt
Director, Ecological and
Earth Sciences
Man and the Biosphere,
UNESCO
Hvernig getur vernd umhverfisins
stutt við blómlega búsetu?
hrifandi.is
Velferðarráðuneytið hefur ritað
Reykjavíkurborg bréf og óskað eft-
ir viðræðum um hentugar lóðir fyr-
ir ný hjúkrunarheimili. Segir ráðu-
neytið að mikil þörf sé fyrir fjölgun
hjúkrunarrýma á höfuðborgar-
svæðinu.
Borgarráð tók vel í erindið og
sagði það fagnaðarefni að brugðist
væri við ítrekuðum áskorunum
Reykjavíkurborgar og velferðar-
ráðs borgarinnar um fjölgun hjúkr-
unarrýma í Reykjavík. Borgarráð
samþykkti tillögu borgarstjóra um
að fela skrifstofu eigna og at-
vinnuþróunar og velferðarsviði
Reykjavíkurborgar að hefja við-
ræður við velferðarráðuneytið um
hentugar lóðir fyrir ný hjúkrunar-
heimili. „Sem fyrr er hvatt til þess
að hafðar verði hraðar hendur við
að mæta þeim mikla skorti sem er
staðreynd þegar hjúkrunarrými
eru annars vegar,“ segir í sam-
þykkt borgarráðs.
Í haust var tekin fyrsta skóflu-
stunga að nýju hjúkrunarheimili
fyrir 100 íbúa við Sléttuveg í Foss-
vogi. Ríki og Reykjavíkurborg
reisa og eiga heimilið en Hrafnista
mun reka það. sisi@mbl.is
Borgin og
ríkið munu
leita lóða
Mikil þörf fyrir
hjúkrunarheimili
Morgunblaðið/Golli
Sóltún Eitt þeirra hjúkrunarheim-
ila sem nú eru starfrækt í borginni.
Umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar hefur óskað
heimildar borgarráðs til að bjóða út
framkvæmdir við endurbætur á
gönguleiðum og þátttöku við smíði
göngubryggju við Hústjörn við
Norræna húsið.
Að loknum þessum fram-
kvæmdum getur almenningur bet-
ur fylgst með villtu fuglalífi og not-
ið náttúrunnar í friðlandinu í
Vatnsmýri.
Kostnaðaráætlun fyrir verkið er
um 50 milljónir króna. Stefnt er að
því að bjóða verkið út alveg á næst-
unni og vonir standa til þess að því
verði lokið í sumar. Verkið er unnið
í samstarfi við Norræna húsið sem
sér um og kostar framkvæmdir við
stíga og yfirborðsfrágang innan
lóðar.
Fram kemur í greinargerð með
erindinu að Norræna húsið, Háskóli
Íslands og Reykjavíkurborg hafi á
árinu 2012 efnt til samkeppni um
heildarskipulag fyrir svæðið milli
Sturlugötu, Sæmundargötu, Hring-
brautar og Njarðargötu. Áhersla
var lögð á að tengja svæðið betur
við aðra borgarhluta og opna gátt
milli Tjarnarinnar og Vatnsmýrar-
innar. Einnig að skapa stærra sam-
fellt grænt svæði innan borgar-
landsins.
„Ný göngubryggja við Hústjörn
með tenginum við göngustíga borg-
arinnar og Norræna hússins mun
augljóslega bæta umferð gangandi,
skapa rými fyrir dvöl á svæðinu og
gera tjörnina við Norræna húsið
aðgengilega,“ segir í greinargerð-
inni. sisi@mbl.is
Aukið aðgengi að fuglalífi
Mynd/Reykjavíkurborg
Vatnsmýrin Nýja göngubryggjan verður fyrir framan Norræna húsið.
Göngubryggja við Norræna húsið Gönguleiðir bættar
Borgarráð hefur
falið umhverfis-
og skipulagssviði
og menningar- og
ferðamálasviði að
hefja viðræður
við Regin hf. um
samstarf og sam-
vinnu við skipu-
lagningu og upp-
byggingu á nýju verslunar- og
veitingasvæði á Hafnartorgi og við
Austurbakka. Markmiðið er að efla
og styrkja svæðið við Gömlu höfn-
ina, en þar á sér stað mikil uppbygg-
ing eins og alkunna er. Samstarf
myndi m.a. tengjast umhverfis-
listaverki og auðkenni svæðisins.
Hugmynd Regins er sú að stuðla
að því að ráðist verði í samkeppni
um götumynd og arkitektúr svæðis-
ins. Einnig um umhverfislistaverk
sem tengi saman gamla miðbæinn
við nýja borgarmynd á svæðinu frá
Hafnartorgi að Hörpu. sisi@mbl.is
Samstarf um
götumynd við
Gömlu höfnina