Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er stórmerkilegt að forstjóri ríkisstofnunar sem hefur það lög- bundna hlutverk að gæta réttinda sjúklinga og að fara eins vel með fjármuni ríkisins og mögulegt er, er augljóslega með báðar hend- ur bundnar og þvingaður í úr- ræði sem hann telur óhæf,“ segir Hjálmar Þor- steinsson, bækl- unarlæknir og framkvæmda- stjóri Klíníkur- innar, um aðsenda grein Steingríms Ara Arasonar, forstjóra Sjúkra- trygginga Íslands (SÍ), í Frétta- blaðinu í gær. Þar segir Steingrímur það vera skammsýni og fjársóun að SÍ sé ein- ungis heimilt að taka þátt í kostnaði við liðskiptaaðgerðir erlendis, þegar biðlistaákvæðið á við, en ekki að- gerðum sem eru gerðar á Klíníkinni Ármúla. Hann gagnrýnir að lið- skiptaaðgerðir skuli einungis vera í boði hjá stofnunum ríkisins þó að fyrir liggi að sjálfstætt starfandi að- ilar séu einnig reiðubúnir að veita þjónustuna og að biðlistaaðgerðirnar komi orðið niður á annarri þjónustu Landspítalans. Þá skrifar Stein- grímur að kostnaður SÍ í liðskiptaað- gerðum erlendis sé í flestum tilvik- um hærri en ef aðgerðirnar væru gerðar hérlendis. Sitja ekki við sama borð „Auðvitað snýst þetta um peninga en líka um jöfn réttindi fyrir sjúk- lingana. Ef ríkið ætlar eingöngu að leyfa þá leið að sjúklingar sem eru búnir að bíða lengur en þrjá mánuði þurfi að flýja land til að sækja rétt sinn, þá er augljóst að það er veruleg mismunun á milli þegnanna því þeir sem þurfa mest á aðgerðunum að halda, sem eru kannski elstu sjúk- lingarnir og þeir sem eru með aðra sjúkdóma, hafa minnstu möguleika á að fara út. Hér situr fólk alls ekki við sama borð,“ segir Hjálmar. „Það er pólitíkin, ekki embættismennirnir, sem eru að stoppa þetta. Það er aug- ljóst núna þegar forstjóri sjúkra- trygginga segir það berum orðum að boltinn liggi hjá ríkisstjórninni.“ Verið að spila með líf fólks Hjálmar segir að það verði að leita fleiri leiða heldur en hefur verið gert hingað til því enginn hafi hag af því að sjúklingarnir fari úr landi. „Þetta er í raun ekkert öðruvísi en þegar byrjað var að fara út af sjúkrahús- unum með einfaldari dagaðgerðir sem eru núna að miklu leyti gerðar fyrir utan sjúkrahúsið. Sem betur fer er þróun innan læknisfræðinnar og liðskiptaaðgerðir sem voru mjög flóknar fyrir 20 til 30 árum eru ein- faldari núna. Þjóðin er að eldast hratt og með því að ætla að halda öllum verkefn- um innan Landspítalans er verið að spila með líf fólks, ef lífsnauðsynleg- um aðgerðum er frestað endurtekið verður að spyrna við fótum og skoða aðrar leiðir til lausnar, a.m.k. tíma- bundið.“ Snýst um fjármuni ríkisins og jöfn réttindi sjúklinga  Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir forstjóra SÍ vera með báðar hendur bundnar AFP Aðgerð 95 liðskiptaaðgerðir hafa verið gerðar hjá Klíníkinni á rúmu einu ári. Sjúklingar sem í þær þurfa að fara greiða fyrir þær úr eigin vasa. Hjálmar Þorsteinsson Á heimasíðu Isavia í gær kom fram að mörgum flugferðum flug- félagsins WOW Air hefði verið af- lýst. Meðal þeirra flugferða sem af- lýst var á heima- síðunni voru þær sem félagið stóð fyrir til Brussel, Edinborgar, Tenerife og San Frans- isco. Upplýsingarnar reyndust hins vegar ekki réttar. „Þetta eru mistök því að þau voru að setja upp nýja síðu Isavia. Kerfin okkar og kerfin þeirra voru ekki að lesa þetta upp rétt en engum ferðum var aflýst hjá okkur í dag [í gær],“ segir Svanhvít Friðriks- dóttir, upplýsingafulltrúi flugfélags- ins, og bætir jafnframt við að allt flug Wow hafi verið á tíma í gær. Hún seg- ir einnig að margir fjölmiðlar hafi haft samband vegna villunnar. Kerfisvilla aflýsti flug- ferðum Svanhvít Friðriksdóttir  Um mistök að ræða og engu flugi aflýst Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,1% í mars. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands og Íbúðalánasjóður gerir að um- talsefni á heimasíðu sinni. Þannig lækkaði vísitalan þrátt fyrir að fjöl- býli hafi hækkað um 0,2% þar sem sérbýli lækkaði um 1,1% í mánuð- inum. Þannig lækkaði raunverð íbúða um 0,6% milli mánaða. Þrátt fyrir skarpa lækkun sérbýlis er 12 mánaða hækkun þess enn meiri en 12 mánaða hækkun fjölbýlis. Bendir sjóðurinn á að enn hægi á 12 mánaða hækkunartakti íbúða- verðs á höfuðborgarsvæðinu. Þann- ig hafi það hækkað um 7,7% sem sé minni árshækkun en mælst hafi allt frá marsmánuði 2016. Vísitala íbúðaverðs lækkaði í mars Forstjóri Landspítalans (LSH) hefur sagt frá því að biðlista- átakið, sem hófst 2016 og stend- ur út þetta ár, sé að skila árangri og fækkað hafi á biðlistum árið 2017, m.a. um 13% í bæklunar- lækningum, úr 984 einstakl- ingum niður í 852. Hjálmar segir þá fækkun skýr- ast af fleiru en átaksverkefni ríkisstjórnarinnar. Þannig hafi aðgerðir á Klíníkinni augljós áhrif til fækkunar á biðlistunum en á því rúma ári síðan aðgerðir hófust hafi verið gerðar 95 lið- skiptaaðgerðir. Þar til viðbótar kemur vaxandi fjöldi ein- staklinga sem fari í aðgerðir er- lendis en samkvæmt upplýs- ingum frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) fóru 48 sjúklingar í liðskiptaaðgerðir erlendis 2017. Það sem af er árinu 2018 hefur SÍ borist 31 umsókn varðandi lið- skiptaaðgerðir erlendis, af þeim hafa 24 umsóknir verið sam- þykktar og 7 ekki verið af- greiddar ennþá. Hjálmar segir að einnig hafi bið eftir viðtali við bæklunar- skurðlækna á LSH til ákvörðunar um aðgerð lengst síðastliðið ár og sé nú um 6 til 8 mánuðir. Þann tíma telji stjórnvöld ekki með til biðtímans þótt sjúkling- urinn þjáist augljóslega jafn mik- ið í biðinni eftir viðtalinu og í biðinni eftir sjálfri aðgerðinni. Fleira sem kemur til BIÐLISTAR Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir aukið framboð íbúðarhúsnæðis munu hafa marktæk áhrif á verðþróun. Verðið muni ekki mótast jafn mikið af skorti á nýjum íbúðum og verið hefur. „Það hefur hægt á verðhækkunum á höfuðborgarsvæðinu síðustu sex mánuði. Verðið hefur hins vegar hækkað tiltölulega hratt á lands- byggðinni. Þá ekki síst í nágranna- sveitarfélögum höfuðborgarsvæðis- ins. Markaðurinn er því aðeins að hægja á sér. Verðið hefur undanfarið hækkað talsvert umfram launaþró- un. Skortur á íbúðarhúsnæði ýtti undir þetta. Það var ekki byggt nógu mikið. Það myndaðist gjá milli fram- boðs nýrra íbúða og þarfar fyrir slík- ar íbúðir og gerði það fjárhagslega erfiðara að eignast sínu fyrstu íbúð. Betra jafnvægi er í sjálfu sér kær- komin hvíld frá þessari þróun.“ Borgin og Mosfellsbær leiða Samtök iðnaðarins kynntu í gær nýja talningu á íbúðum í byggingu. Flestar íbúðir eru í byggingu í Reykjavík. Með tilliti til íbúafjölda eru hins vegar hlutfallslega flestar í byggingu í Mosfellsbæ. Áætla SI að 6.700 nýjar íbúðir komi á markað á höfuðborgarsvæðinu 2018-20. Ingólfur segir aukið jafnvægi vera til hagsbóta fyrir kaupendur. „Litið fram á við gæti skapast betri taktur milli launaþróunar og verðþróunar á íbúðarhúsnæði. Það er mjög jákvætt. Það merkir að það er meira jafnvægi á markaðnum.“ Ingólfur telur aðspurður að betra jafnvægi muni ekki draga úr hvat- anum til að byggja. Varðandi verð- bólguhorfur bendir hann á að án íbúðarhúsnæðis væri engin verð- bólga og raunar hafi verið verð- hjöðnun á Íslandi síðustu misseri. Elvar Orri Hreinsson, sérfræðing- ur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir aukið framboð íbúðarhúsnæðis munu hafa marktæk áhrif á þróun íbúðaverðs næstu misseri. Komin yfir hápunktinn „Aukið framboð ætti að öðru óbreyttu að hægja á hækkunartakti. Markaðurinn er að færast nær eðli- legra árferði eftir því sem gjáin milli framboðs og eftirspurnar minnkar. Verðþróunin tekur mikið mið af hag- sveiflu. Við erum komin yfir hápunkt hagsveiflunnar. Sögulega hefur raunverð íbúða hækkað á bilinu 3-4% á hverju ári til lengri tíma,“ segir Elvar Orri og rifjar upp að Íslands- banki spáir 12% hækkun nafnverðs í ár og 5% hækkun á næsta ári. Aukið framboð íbúða talið slá á verðhækkanir  Hagfræðingar telja talningu SI benda til breytingar Fullgerðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu 2000 til 2020* 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 ’20 *Spá fyrir 2018-2020. Heimild: Hagstofa Íslands og Samtök iðnaðarins. Spá Samtaka iðnaðarins gerir ráð fyrir ríflega 6.700 nýjum íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu 2018-2020 Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Á Íslandi búa ekki nema á milli 35 og 40 gyðingar, en hingað eru komnir þrír fulltrúar gyðinga frá Norðurlöndunum. Það sýnir hversu mikilvægt málið er gyðingum, sagði danski rabbíninn Jair Melchior, á ráðstefnu um umskurð drengja í Norræna húsinu í gær. Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga hélt í gær ráð- stefnu um umdeilt umskurðar- frumvarp Silju Daggar Gunnars- dóttur, þingmanns Framsóknar- 0flokksins. „Málið er ekki læknisfræðilegt. Það snýst um tengslin milli minni- hluta og meirihluta,“ sagði Melchi- or, og bætti við að frumvarpið væri heldur ekki úr lausu lofti gripið. Grunnhugmyndin ætti sér rætur í langvarandi umræðu danskra lækna sem hefðu þrýst á Íslend- inga að setja umskurðarbann í lög. „Þeir telja bannið geta gengið í gegn hér, af því að hérna búa svo fáir gyðingar.“ Melchior segir að umskurður sé ekki nauðsynlegur læknisfræðilega en hann sé gyðingum nauðsyn- legur. „Já, við erum öðruvísi. Ég er gyðingur, en ég virði aðra sem hafa aðrar skoðanir,“ sagði Melchior og spurði hvort sú virðing væri gagn- kvæm. Atik Ali, formaður múslima í Finnlandi, sagði lausnina felast í hertu regluverki, ekki lagabönnum. „Íslamstrú hefur verið í Finnlandi í 150 ár og við höfum náð að verja trú okkar þar. Hún er varin í bæði stjórnarskránni og í mannréttinda- sáttmála Evrópusambandsins, en samt er ég hér í dag,“ sagði Ali. „Við þurfum að finna lausn á þessum vanda. Það er eitt að sam- þykkja lög, en svo er eftirlitið ann- að,“ bætti hann við og sagði væn- legri lausn að auka eftirlit með umskurði í stað þess að banna hann. Aukið eftirlit í stað banns við umskurði  Frumvarpið sagt runnið undan rifjum danskra lækna sem þrýstu á breytingar Morgunblaðið/Valli Hitamál Ráðstefna um umskurð drengja í Norræna húsinu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.