Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Skattgreiðendur vita að „RÚV“umgengst Samfylkingu eins og einkabarnið sitt. Andrés á Við- skiptablaði skrifar í pistli að Logi Einarsson hafi brugðist svo við upplýsingum fjár- málaráðherra í sam- tali við „RÚV “:    Hér er misskipt-ing að aukast, allur arður og eign- ir, sem eru að verða til, sem eru auðvitað miklar, þær eru að langstærstum hluta að fara til fámenns hóps á kostnað hinna auðvitað.“ Vandinn er sá, að þarna var Loga mótmælalaust eft- irlátin helber rangtúlkun á þessum tölum.    Í frétt á mbl.is í gær kom hinsvegar hið augljósa fram: Eigið fé ríkasta 0,1% þjóðarinnar var rétt rúmlega 201 milljarður árið 2016 og hækkaði um tæplega 14 millj- arða frá fyrra ári. Þetta eru um 218 fjölskyldur. Eigur þessa ríkasta hluta þjóðarinnar lækkuðu hins vegar sem hlutfall af heildareign landsmanna úr 6,7% í 6,3% og hefur hlutfallið lækkað frá árinu 2010 þegar það var 10,2%.    Auðsælasti hluti þjóðarinnar ánú markvert lægri hlut eigin fjár í landinu en gerðist árið 2015 og miklu lægri hlut en í lok ársins 2010 (þegar Samfylkingin hafði set- ið í ríkisstjórn í fjögur ár!). Það er raunar rétt að staldra við árið 2010, því þá var einmitt Íslandsmetið í þessum efnum slegið.    Hvorki fyrr né síðar á tímabilinu1997–2016 hefur auðugasta 0,1% þjóðarinnar átt stærri hlut af kökunni en árið 2010, en gaman er að segja frá því að sama ár tók Logi fyrst sæti á þingi.“ Logi Einarsson O,1% flokkur? STAKSTEINAR Andrés Magnússon bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á fi skinn Veður víða um heim 17.4., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 4 rigning Akureyri 7 alskýjað Nuuk 3 léttskýjað Þórshöfn 9 rigning Ósló 7 alskýjað Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Stokkhólmur 15 heiðskírt Helsinki 9 skýjað Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 20 heiðskírt Dublin 15 skúrir Glasgow 14 léttskýjað London 16 rigning París 21 heiðskírt Amsterdam 17 heiðskírt Hamborg 18 heiðskírt Berlín 19 heiðskírt Vín 20 heiðskírt Moskva 17 skúrir Algarve 20 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Barcelona 21 heiðskírt Mallorca 19 léttskýjað Róm 19 þrumuveður Aþena 19 léttskýjað Winnipeg 5 skýjað Montreal 1 rigning New York 7 alskýjað Chicago 1 skýjað Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:45 21:10 ÍSAFJÖRÐUR 5:40 21:25 SIGLUFJÖRÐUR 5:22 21:09 DJÚPIVOGUR 5:12 20:42 Von er á reglugerð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem leyfi til grásleppuveiða eru lengd úr 32 dögum í 44, að því er segir á heimasíðu Fiskistofu. Upphaflega var gefið út leyfi til veiða í 20 daga meðan beðið var eftir ráðgjöf frá Hafrannsóknastofnun, en þegar hún lá fyrir var vertíðin lengd í 32 daga. Aflabrögð hafa hins vegar verið dræm og yfirleitt lakari en í fyrra og því hefur verið ákveðið að vertíð megi standa í 44 daga. Hafrannsóknastofnun leggur til að afli fari ekki yfir 5.487 tonn, en í fyrra veiddust 4.542 tonn og 5.425 tonn á vertíðinni 2016. Grásleppuveiðum er stýrt með sóknartakmörkunum. Árin 2011 og 2012 voru veiðar leyfðar í 50 daga, 32 daga árin 2013-2016 og 46 daga í fyrra, en þá var dögum fjölgað úr 36 er nokkuð var liðið á vertíð. aij@mbl.is Mega veiða grásleppu í 44 daga Þórshöfn Grásleppu landað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nemanda við Fjöl- brautaskólann við Ármúla í gær- morgun eftir að hann hótaði að skjóta upp skólann í færslu á fa- cebook. Í færslunni sem Mbl.is hef- ur birt skjáskot af, stendur: „Eitt like og ég skít upp skolan minn.“ Ólafur H. Sigurjónsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans við Ár- múla, segir skólayfirvöld ekki hafa kallað til lögreglu, en staðfestir að lögregla hafi rætt við nemanda við skólann. Lögregla hafi því vænt- anlega fengið ábendingu um skrif- in. „Þeir höfðu einhverjar upplýs- ingar um nemanda. Ég held að þetta hafi bara verið strákapör en lögregla brást alveg rétt við. Mér fannst viðbrögð lögreglu mjög markviss og eðlileg.“ Ólafur telur eðlilegt að taka svona hluti alvar- lega, líkt og lögregla gerði í þessu tilfelli. Hann segir lögreglu hafa sótt nemandann og rætt við hann, en hann hafi væntanlega farið heim í kjölfarið. Skólinn hafi ekki ráðist í neinar aðgerðir vegna málsins, en rætt verður við nemandann í dag. Aðspurður segir Ólafur að ekki hafi mikið farið fyrir aðgerðum lögreglu, en óeinkennisklæddur lögreglumaður ræddi við hann áð- ur en höfð voru afskipti af nemand- anum. Hótaði að „skjóta upp“ skólann sinn  Lögreglan ræddi við nemanda í FÁ vegna facebook-færslu  „Eðlileg viðbrögð“ FÁ Lögreglan ræddi við nemandann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.