Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 14

Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 14
Lotta Isacsson þróunarfélags, segir beðið eftir því að Hafnfirðingar afgreiði samstarfs- samning um skipulagsmál. Öll önnur hlutaðeigandi sveitarfélög hafi und- irritað hann. Málinu hafi verið frest- að milli funda í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar á síðasta fundi. Unnið að viðskiptaáætlun „Að öðru leyti erum við að ljúka uppfærslu á viðskiptaáætlun í fjórða eða fimmta skiptið. Þegar þeirri vinnu lýkur í sumarbyrjun, og samn- ingar eru í höfn við öll sveitarfélögin, tekur við að fjármagna næsta fasa í verkefninu. Hann lýtur að skipulags- vinnu sem við munum vinna með sveitarfélögunum ásamt mati á um- hverfisáhrifum og forhönnun verk- efnisins,“ segir Runólfur. „Næsti fasi í fjármögnun er að fjármagna þessa vinnu til næstu þriggja ára. Hún felst í þessum þremur þáttum – skipulagi, mati á umhverfisáhrifum og forhönnun verkefnisins – sem þarf að vinna meira og minna samhliða. Það er fjárfesting upp á ríflega einn og hálf- an milljarð. Þegar samningar við sveitarfélögin eru í höfn getum við farið að ræða við fjárfesta fyrir al- vöru um það verk. Við höfum undir- búið það í töluverðan tíma og gerum ráð fyrir að sú vinna muni ganga vel. Segja má að það sé verkefni sumars- ins,“ segir Runólfur. Leita fjármagns erlendis Spurður hvort leitað verði til líf- eyrissjóða segir Runólfur ekki hafa verið horft til þeirra sérstaklega. „Það liggur fyrir að verkefnið verður að langmestu leyti fjármagn- að erlendis frá. Um 75-80% af tekj- unum munu koma frá erlendum ferðamönnum. Því er eðlilegt að fjár- mögnun sé með sama lagi. Við erum bjartsýn á það eins og annað og höf- um undirbúið þann fasa.“ Fjallað um fluglestina í sænsku lestartímariti  Þykir forvitnileg í ljósi lítillar notkunar lesta á Íslandi Runólfur Ágústsson -25 m -50 m 75 m 50 m 25 m BSÍ Fluglest milli Keflavíkur og BSÍ Meðaldýpt ganganna verður um 40 m frá yfirborði Til samanburðar er Hallgrímskirkja 74,5 m á hæð Fluglestin á að liggja ofanjarðar frá Keflavíkurflug- velli og að Straumsvík Þaðan á að gera 15-16 km göng að BSÍ Kort: fluglestin.is H ei m ild :E fla ve rk fr æ ði st of a BSÍ KEF BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjallað er um fluglestina í nýjasta hefti sænska lestartímaritsins Tid- skriften Tág. Tímaritið hóf göngu sína 1958 og mun vera útbreiddasta lestartímarit á Norðurlöndum. Áformuð fluglest færi milli Kefla- víkurflugvallar og Reykjavíkur. „Við reynum að segja fréttir af lestum um alla Skandinavíu og er Ís- land meðtalið. Hingað til hefur ekki verið mikið að skrifa um á Íslandi. Landið hefur aldrei haft margar lestir. Síðan kom fluglestin til um- ræðu og vakti athygli okkar,“ segir Jan Ericson, ritstjóri tímaritsins. Að hans sögn var blaðamaður tímaritsins að vinna grein um lestir til og frá flugvöllum í Skandinavíu þegar hann rakst á upplýsingar um fluglestina á netinu. Fluglestin sker sig úr Ericson bendir á að Svíar hafi Arlanda Express, Norðmenn FlyToget og Finnar lest frá flugvell- inum í Helsinki. Þessar lestir tengi farþega við höfuðborgirnar. Þá eigi þær tvennt sameiginlegt: allar nýti þær að hluta fyrirliggjandi lestar- teina og gangi allar ofanjarðar. Fluglestin muni hins vegar ein- göngu ganga á nýjum teinum og vera að miklu leyti neðanjarðar. Blaðamaðurinn Lotta Isacsson hafði samband við Runólf Ágústs- son, framkvæmdastjóra Fluglestar- innar – þróunarfélags, sem upplýsti um undirbúning verkefnisins. Isacsson segir verkefnið áhuga- vert. Lestir hafi enda ekki verið mik- ið notaðar á Íslandi. „Við munum fylgjast grannt með því hvernig þessu forvitnilega verk- efni vindur fram,“ segir Isacsson. Undirbúningur Fluglestar hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Runólfur Ágústsson, fram- kvæmdastjóri Fluglestarinnar - Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 citroen.is KOMDU OGMÁTAÐU CITROËN C4 CACTUS 2.540.000KR. VERÐ ÁÐUR 2.940.000 KR. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, S. 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, S. 515 7050 Í tilefni þess að nýr C4 Cactus verður kynntur í maí þá seljum við síðustu bílana af núverandi gerð með 400.000 kr. afslætti! Keyrðu inn í vorið á nýjum, sparneytnum Citroën C4 Cactus! Citroën C4 Cactus er nettur en rúmgóður með opið og bjart innra rými. Mælaborðið er stílhreint og 7” snertiskjárinn gerir allar aðgerðir einfaldar og þægilegar. Citroën C4 Cactus er sparneytinn, með skilvirkri vél og nýrri undurþýðri sjálfskiptingu. CITROËN C4 CACTUS FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ Hinn árlegi Skeifudagur Hesta- mannafélagsins Grana á Hvanneyri og Landbúnaðarháskóla Íslands verður í reiðhöllinni á Mið-Fossum í Andakíl í Borgarfirði á morgun, sumardaginn fyrsta. Þar verður meðal annars Morgunblaðsskeifan afhent í 61. sinn. Dagskráin hefst klukkan 13 með setningarathöfn í reiðhöllinni. Nemendur í reiðmennsku II sýna tamningatrippi og keppt verður til úrslita um Reynisbikarinn og Gunn- arsbikarinn. Verðlaun verða afhent í matsal skólans við athöfn sem hefst klukk- an 15. Þar verður kaffihlaðborð og dregið í stóðhestahappdrætti Grana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvanneyri Skeifudagurinn er uppskeru- hátíð nemenda í hestagreinum við LBHÍ. Skeifudagur á Hvanneyri á sumardaginn fyrsta Míla, sem rekur fjarskiptakerfi, og Gagnaveita Reykjavíkur, sem er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykja- víkur og rekur ljósleiðarakerfi, hafa gert með sér samkomulag um sam- starf við uppbyggingu ljósleiðara til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur í tilkynningu að sam- komulagið feli í sér að hvort félag um sig taki að sér ákveðin svæði og leggi þar tvö sjálfstæð ljósleiðara- kerfi fyrir báða samningsaðila í einni og sömu framkvæmdinni. Markmið með samstarfinu sé að ná fram hagræðingu með því að koma í veg fyrir mögulegan tví- verknað, stytta verktíma og minnka jarðrask og áhrif á íbúa. Framkvæmdir að hefjast Svæðin sem um ræðir eru í Hafn- arfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og verklok verða fyrir árslok. Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eiga í samkeppni og hafa því fengið undanþágu frá Samkeppniseftirlit- inu til þess að eiga með sér þetta samstarf. Morgunblaðið/Golli Ljósleiðari Unnið að því að leggja ljósleiðarakerfi í Reykjavík. Míla og Gagnaveit- an hefja samstarf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.