Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Rússar sögðu í gær að sérfræðingar
Alþjóðlegu efnavopnastofnunarinn-
ar (OPCW) myndu fá að fara á stað-
inn þar sem meint efnavopnaárás
var gerð í bænum Douma í Sýrlandi
7. apríl.
Sérfræðingarnir fóru til Damas-
kus, höfuðborgar landsins, á laugar-
daginn var en fengu ekki að fara til
Douma fyrr en í gær. Rússar höfðu
sagt að eftirlitsmenn OPCW gætu
ekki farið þangað af „öryggisástæð-
um“.
Ríkisfjölmiðlar í Sýrlandi sögðu í
gær að eftirlitsmenn OPCW væru
komnir til Douma en stofnunin hafði
ekki staðfest það. Fréttaveitan AFP
hafði eftir rússneskum embættis-
mönnum að eftirlitsmenn fengju að
fara á vettvang árásarinnar í dag.
Vonast er til að þeir geti þá byrjað að
safna sýnum úr jarðvegi og bygging-
um á staðnum.
Sendiherra Bandaríkjanna, Kenn-
eth Ward, sagði á fundi OPCW í
Haag í fyrradag að óttast væri að
Rússar hefðu fjarlægt sönnunar-
gögn af vettvangi árásarinnar til að
torvelda rannsókn sérfræðinga
stofnunarinnar. Utanríkisráðuneyti
Frakklands tók í sama streng í gær
og sagði að „mjög líklegt“ væri að
sönnunargögn hefðu verið fjarlægð
af staðnum. Sergej Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, neitaði
þessu og kvaðst geta ábyrgst að
Rússar hefðu ekki gert neitt til að
torvelda rannsóknina. Hann sagði
ásakanirnar um að Sýrlandsher
hefði beitt efnavopnum í Douma
væru reistar á „fréttum fjölmiðla og
samfélagsmiðla“ og árásin hefði ver-
ið sett á svið. Einræðisstjórnin í Sýr-
landi segist aldrei hafa beitt efna-
vopnum í stríðinu. Sérfræðingar
Sameinuðu þjóðanna og OPCW hafa
hins vegar sagt að Sýrlandsher hafi
gert fjórar efnavopnaárásir á svæði
sem eru á valdi uppreisnarmanna,
m.a. beitt eiturefninu sarín í árás á
bæinn Khan Sheikhoun í apríl 2017.
Bandaríkin, Bretland og Frakk-
land gerðu loftárásir á skotmörk á
Sýrlandi á laugardaginn var vegna
efnavopnaárásarinnar en Emmanuel
Macron, forseti Frakklands, viður-
kenndi í gær að þær hefðu takmark-
aða þýðingu. „Þessar árásir leysa
ekki endilega vandann en ég tel þær
mjög mikilvægar,“ sagði hann og
bætti við að markmiðið hefði verið að
verja „heiður alþjóðasamfélagsins“.
Óttast að sönn-
unargögn hafi
verið fjarlægð
Eftirlitsmenn sagðir fá að rannsaka
vettvang meintrar efnavopnaárásar
Yfirráðasvæði skv.
síðustu fréttum
Erlendar
hersveitir
Loftárásirnar
14. apríl
50 km
TYRKLAND
LÍBANON
JÓRDANÍA
ÍRAK
RÚSSLAND
VESTRÆN RÍKI
Deir
Ezzor
Raqa
Aleppo
Afrin
Homs
Palmyra
DAMASKUS
Daraa
Tyrkir og bandamenn þeirra
Kúrdar og bandamenn þeirra
Sýrlandsher og bandamenn
Uppreisnarmenn/íslamistar
Samtökin Ríki íslams
Heimildir: SOHR ISW, AFP, US media
Bandarískar
Tyrkneskar
Bandaríkin,
Bretland og
Frakkland
Sveitir sem njóta
stuðnings Írana
Rússneskar
Tartus
Rússneskar stöðvar
með loftvarna-
búnað
Khmeimim
Latakía
Erlendar hersveitir í Sýrlandi
S 400 loftvarnakerfi
2.954 hermenn
Tyrklandsher og
bandamenn Tyrkja
Su-24 og Su-34 orrustu-
og sprengjuvélar
2.000 bandarískir hermenn
sem berjast gegn Ríki íslams
Orrustuþotur
Idlib
Flugbrautir fyrir
flutningavélar
Su-35 loftvarnavélar
Beitiskip og tundurspillar
Freigátur með stýriflaugar
sem voru notaðar 14. apríl
Su-30 orrustuþotur
Arabaríki leggi til herlið
» Bandaríkjastjórn hefur beitt
sér fyrir því að arabaríki sendi
hermenn til norðausturhluta
Sýrlands til að taka við af
bandarískum hermönnum sem
hafa barist gegn Ríki íslams,
samtökum íslamista.
» Bandarískir embættismenn
hafa rætt þetta við stjórnvöld í
Egyptalandi, Sádi-Arabíu, Kat-
ar og Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, að sögn The
Wall Street Journal.
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, sagði í ræðu á Evrópuþing-
inu í Strassborg í gær að svo virt-
ist sem „borgarastríð“ geisaði
innan Evrópusambandsins milli
frjálslyndrar lýðræðisstefnu ann-
ars vegar og „valdboðsstefnu“ og
þjóðernishyggju hins vegar.
„Það virðist geisa nokkurs konar
evrópskt borgarastríð þar sem
deilur okkar og stundum þjóðernis-
sérgæska virðast vera mikilvægari
en það sem sameinar okkur,“ sagði
Macron. Hann bætti við að stjórn-
málamenn í sumum löndum virtust
hampa „ófrjálslyndi“ af sífellt
meiri hrifningu og hvatti til nýrrar
lýðræðisvakningar í Evrópu. „Ég
vil ekki tilheyra kynslóð svefn-
gengla, vil ekki tilheyra kynslóð
sem hefur gleymt fortíð sinni,“
sagði hann og skírskotaði til að-
draganda þess að Evrópusam-
bandið var stofnað eftir síðari
heimsstyrjöldina. „Ég vil tilheyra
kynslóð sem ver evrópska full-
veldið vegna þess að við börðumst
til að öðlast það. Og ég ætla ekki
að gefast upp fyrir neins konar
þráhyggju fyrir valdboðsstefnu.“
Forsetinn hvatti einnig til um-
bóta, sem hann telur nauðsynlegar
til að bjarga evrusamstarfinu, og
talaði meðal annars fyrir stofnun
sérstaks sjóðs til að styrkja sam-
félög sem tækju við flóttafólki.
AFP
Gegn þjóðernishyggju Emmanuel Macron, forseti Frakklands, flytur ræðu á Evrópuþinginu í Strassborg.
Segir deilurnar eins
og „borgarastríð“
Macron gagnrýnir þjóðernishyggju