Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 22

Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 22
✝ Marel Andrés-son fæddist á Drangsnesi við Steingrímsfjörð 13. janúar 1937. Hann lést í Keflavík 10. apríl 2018. Foreldrar hans voru Andrés Guð- björn Magnússon, f. 8.9. 1906, d. 12.12. 1979, og Guðmundína Arn- dís Guðmundsdóttir, f. 20.9. 1911, d. 28.9. 1978. Systkini Marels eru; Anna Guðmunda, f. 18.12. 1928, d. 18.1. 1935, Stefanía Guðrún, f. 12.2. 1930, Magnús, f. 13.9. 1931, Friðrik, f. 9.3. 1934, d. 17.2. 2005, Anna Guðmunda, f. 28.2. 1935, Guðrún, f. 29.6. 1939, Har- aldur Vignir, f. 9.8. 1940, d. 30.3. 1961, Herdís Ólína, f. 22.10. 1941, Ingólfur, f. 21.5. 1944, Efemía Guðbjörg, f. 28.8. 1945, Hulda, f. 4.1. 1947, d. 23.5. 1957, Bjarni, f. 8.12. 1949, Ríkey, f. 16.5. 1951 og Hrefna, f. 2.6. 1952. hófu búskap árið 1959 og gengu í hjónaband 30. desem- ber 1960. María lést 1. október 2015. Börn þeirra eru þrjú; 1) Þórður Ingi f. 1958, maki Fríður María Halldórsdóttir. Börn þeirra eru fimm; Einar Aron í sambúð með Steinunni Ósk Larsen, börn þeirra eru Hrafntinna og Móeiður, Marí- anna í sambúð með Andra Þór Arnarssyni, Halldór Jón Sig- urður, Katrín Edda og Magnús Ingi. 2) Kolbrún, f. 1962, maki Ragnar Kristjánsson. Börn þeirra eru fjögur; Kristján Þór í sambúð með Júníu Sig- mundsdóttur, María Rán í sambúð með Arnóri Laxdal, börn þeirra eru Katla Þyrí og Ármann Laxdal, Marel í sam- búð með Freydísi Leifsdóttur, Magnþór Breki, unnusta hans er Birta María Ómarsdóttir. 3) Ólafía, f. 1969, maki Magnús Þórisson. Börn þeirra eru þrjú; Ragnheiður Eir, Markús Már, unnusta hans er Kristín Helgadóttir, og Tómas Ingi. Útför Marels verður frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag, 18. apríl 2018, klukkan 14 og jarðsett verður frá Hvalsneskirkju. Marel ólst upp á Drangsnesi, gekk í barna- skóla þar og tók ungur til hend- inni við vinnu og íþróttastarf þar. Hann stundaði frjálsar íþróttir, knattspyrnu og skíði. Marel fór á sjó á unglings- aldri en fluttist 15 ára gamall til Sandgerðis og fór á vertíð. Var hann til sjós fram til ársins 1976 en hóf þá störf sem málari, lærði og vann síðan við þá iðn til starfsloka. Hann þjálfaði yngri flokka í knattspyrnu hjá Reyni Sandgerði og einn- ig eldri borgara í Sandgerði og tók virkan þátt í starfsemi þeirra. Marel bjó í Sandgerði þar til hann fluttist til Kefla- víkur þar sem hann bjó síð- asta árið. Marel kynntist árið 1956 Maríu Ármannsdóttur, f. 1. mars 1939 í Sandgerði. Þau Elsku besti pabbi okkar. Nú er komið að kveðjustund og minningarnar streyma fram í hugann. Þú varst kletturinn okkar, bæði pabbi okkar og besti vinur. Þú gerðir allt fyrir okkur og varst t.d. viðstaddur fæðingu nokkurra barnabarna, sem þótti mjög óvenjulegt. Það var sama hvar þú komst, þér fylgdi alltaf svo mikill kraftur og jákvæðir straumar. Þú varst svo mikill nagli en samt svo mjúkur í allri framkomu. Þú varst fyrirmyndin okkar og kenndir okkur svo margt. Lífs- reglur þínar munu verða leið- arljós í lífi okkar. Það var sama hvað það var, þú komst alltaf og tókst málin í þínar hendur. Þegar það þurfti að mála varstu mættur á staðinn og eina áhyggjuefni þitt var að við vær- um ekki að gera hlutina nógu vel. Þú vildir öllum svo vel og varst aldrei með neina uppgerð, heldur komst til dyranna eins og þú varst klæddur. Þú varst svo stór hluti af lífi okkar og svo mikill vinur okkar allra, bæði okkar systranna og barna- barnanna. Þú varst svo mikill snyrtipinni og fórst vel með allt sem þú áttir. Okkur er í fersku minni þegar við gáfum þér gönguskó og þú vildir ekki nota þá í bleytu því þá yrðu þeir sjúskaðir og ljótir. Einnig vildir þú að við færum með þig um íbúðina í veikindunum til að sjá hvernig við gengjum um þótt þú værir sárlasin. Fótbolti var líf þitt og yndi. Þú varst með fótboltann í blóðinu og mikill Arsenal- og Reynismaður. Þú mættir á alla leiki Reynis og það vissu allir þegar Malli var mættur á völlinn því það heyrð- ist langar leiðir. Barnabörnin þín áttu líka ófáar stundir með þér fyrir framan sjónvarpið að horfa á fótbolta. Það mátti heyra hrópin, hláturinn og köll- in langar leiðir og oft fylgdi einn kaldur með. Þú þjálfaðir yngri flokka Reynis og þótt þú værir hættur að þjálfa fylgdist þú með því hvernig þeim sem þú þjálfaðir vegnaði í lífinu. Samverustundirnar með þér voru svo skemmtilegar og alltaf fullar af gleði og hlátri. Það voru ófáar stundir sem við átt- um saman í sumarbústaðnum, en þú elskaðir að fara í sveitina og þar naustu þín í botn. Þú varst svo stoltur af okkur og hvernig við stóðum saman eftir að mamma dó og í veikindum þínum. Þú varst svo þakklátur fyrir að fá að vera heima fram á síðasta dag og notaðir hvert tækifæri til að þakka okkur það. Þessi tími var öllum erf- iður en samt voru gæðastund- irnar svo margar og dýrmætar. Þessar samverustundir voru okkur öllum svo mikilvægar og ekki síst barnabörnunum. Styrkurinn sem heimahjúkrun- in veitti okkur var ómetanlegur og einnig Sigurður prestur. Færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir þann stuðning. Veikindunum tókstu með ótrú- legu æðruleysi og varst sá sem huggaðir okkur hin. Þú varst sáttur við ævistarf þitt og það eina sem þú vildir var að við yrðum góð hvort við annað þeg- ar þín nyti ekki lengur við. Það er svo ótrúlega leiðinlegt að hafa þig ekki lengur hjá okkur því nú eru okkar föstu liðir eins og laugardagskaffið ekki lengur til staðar. Það verður skrýtið að halda áfram án þín en við hugg- um okkur við að nú eruð þið mamma sameinuð á ný. Við elskum þig. Kolbrún og Ólafía. Pabbi fæddist inn í lítið sjáv- arþorp þar sem lífið snerist um að hafa í sig og á. Oft á tíðum var erfitt um vik enda fjöl- skyldan stór. Allir þurftu að taka til hendinni á unga aldri og þótti það sjálfsagður hlutur. Úti í heimi voru víðsjárverðir tímar sem höfðu sín áhrif á okkar ágæta land. Þessar aðstæður, ytri og innri, hafa líklega mótað þann mann sem pabbi var alla tíð. Þegar pabbi stóð frammi fyrir verkefni var gengið í að klára það. Hann sýndi af sér fádæma dugnað þegar hann bjó fjöl- skyldu okkar heimili í Sand- gerði, gekk í það verk og vann það vel. Pabbi flutti 15 ára gamall til Sandgerðis til að fara á vertíð og alla tíð var hann eftirsóttur og harðduglegur sjómaður bæði á dagróðrabátum frá Sandgerði og eins frá Reykjavík. Mér er minnisstætt hversu stoltur og ánægður hann var að vera kom- inn með pláss á Guðmundi RE, en það var mikið aflaskip. Þegar pabbi hætti á sjó fór hann að starfa sem málari uppi á velli en þar eins og fyrr var hann þekktur fyrir dugnað og kraft í því sem hann tók að sér. Alla tíð var hann mjög fé- lagslyndur og vildi vera innan um fólk, hann tefldi skák og spilaði bridge. Saman horfðum við á heimsmeistaraeinvígið í skák í Laugardalshöllinni og mér er eftirminnilegt hversu mikil upphefð mér fannst í því að fá að fara með honum. Pabbi hafði mikið keppnis- skap og kenndi mér margt. Hann hvatti mig áfram, studdi og styrkti í mínu áhugamáli sem var knattspyrna og kenndi mér að gefast ekki upp þegar á móti blés. Hann kom einnig þétt að knattspyrnumálum hjá Reyni í Sandgerði. Og það fór ekkert á milli mála þegar pabbi var mættur á völlinn, en hann sparaði ekki hvatningarorðin og átti það alveg til að blóta há- stöfum svo undir tók í stúkunni. Foreldrar mínir voru fyrir- myndarhjón og lögðu mikið upp úr því að halda heimili sínu hlý- legu og snyrtilegu. Það kom í þeirra hlut að hugsa um afa síð- ustu ár hans og frá því að mamma veiktist var pabbi sér- lega natinn við hana. Eftir að mamma dó átti hann mjög góð- an tíma á sínu nýja heimili í Keflavík umkringdur barna- börnum sem hugsuðu mjög vel um afa sinn. Sá hópur gengur undir nafninu Ollarnir. Fyrir ári fórum við strák- arnir í fjölskyldunni í knatt- spyrnuferð til Englands og var pabbi hrókur alls fagnaðar í þeirri ferð. Þar var skálað fyrir líðandi stundu. Aldursbilið var ekkert, sá yngsti þrettán ára og sá elsti áttræður. Aðspurður, á síðustu dögum, sagðist hann hvorki vera hræddur né kvíðinn. Og þegar ég hlustaði á hann og fylgdist með honum fylltist ég aðdáun og stolti yfir þessu sterka og kraftmikla hugarfari fársjúks manns og tel að á lokadögum sínum hafi hann kennt okkur öllum, börnum, barnabörnum og tengdabörnum eitthvað mjög verðmætt og dýrmætt sem erfitt er að útskýra með orðum. Hann hafði í farteskinu eitthvað frá uppvextinum sem gaf honum þann styrk sem þurfti til þegar hann tókst á við lokadagana í lífi sínu, fullur hugrekkis, æðruleysis og sáttur við sitt. Það er sárt að kveðja góðan föður og góða fyrirmynd en minning um góðan mann lifir. Þórður Ingi Marelsson. Þá er komið að kveðjustund og hann Malli tengdapabbi minn búinn að fara síðustu sjó- ferðina. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa til Malla tengdapabba er hvað hann var hress, ákveðinn og stundum hávær maður sem lét hlutina ganga. Þakklæti kemur einnig sterkt upp í hug- ann, það var æði margt sem hann hjálpaði okkur með í gegnum tíðina. Það var gott að vita til þess að alltaf átti Kolla mín hjálp hans vísa þegar ég var langdvölum úti á sjó. Hann var meira að segja viðstaddur fæðingu þriggja af fjórum börnum okkar þar sem ég var fjarri úti á sjó. Hann hafði mik- inn áhuga á sjómennsku minni og vildi alltaf vita hvar við vær- um staddir og hvernig veiðin gengi og hringdi oft til að fylgj- ast með. Það er ómetanlegt að hafa verið svo heppinn að fá að kynnast manni eins og honum. Hann stóð alltaf þétt með sínu fólki, sama hvort það var fjöl- skyldan eða fótboltaklúbbarnir, Reynir Sandgerði og Arsenal. Margar minningar mínar með Malla tengjast fótboltaleikjum. En sú sem stendur upp úr er ferð á heimavöll Arsenal sem ég var svo lánsamur að vera með í, vera viðstaddur þegar hann kom í fyrsta sinn á heima- völl Arsenal, Mekka fótboltans fyrir honum. Malli kom úr stórum systkinahópi og var alla tíð mikill fjölskyldumaður. Allt- af var hann tilbúinn að hjálpa við hvað sem var, hvort sem um var að ræða barnapössun eða að mála eins og eitt hús. Hann hafði líka þann góða kost að geta þegið hjálp, enda var hann gegnheill samvinnumaður. Takk fyrir allt og allt, Malli minn. Kveðja, þinn tengdasonur Ragnar. „Hevvíddi mar!“ Kannski ekki viðeigandi að hefja minn- ingargrein á þessum orðum en þetta var gjarnan viðkvæðið, alltaf á jákvæðan hátt og sagt með hressleika. Malli var Strandamaður, sterkur, hraustur, ákveðinn, drífandi, traustur, rausnarleg- ur, hlýr og hjartgóður. Hann var höfuð fjölskyldunnar, klett- urinn, foringinn, höfðinginn. Hann kom hreint og beint fram, orðaði hlutina eins og þeir voru, beinskeyttur og ekki beint lágstemmdur. En hann var jafnframt mikill fjölskyldu- maður, vildi vera nálægt sínum og sinnti sínu fólki einstaklega vel. Hann vildi hafa hreint og snyrtilegt í kringum sig, innan- dyra sem utan, og bar heimilið vott um mikla snyrtimennsku og alúð. Malli var þannig gerður að ef verk þurfti að vinna var gengið í það og verkið klárað. Þannig var það bara. Þetta einkenndi Malla alla tíð. Hann var sérlega bóngóður og greiðvikinn, af- kastamikill og gerði vel það sem hann gerði. Malli og Mæja voru góðar fyrirmyndir. Hjónaband þeirra fannst mér einstakt því eftir- Marel Andrésson 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR REYNIR GUÐMUNDSSON múrarameistari, Kveldúlfsgötu 21, Borgarnesi, lést sunnudaginn 8. apríl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 14. Herdís Jónasdóttir Jónas Guðmundsson Fjóla Guðmundsdóttir Guðmundur Guðmundsson Nína Rún Höskuldsdóttir Hrönn Guðmundsdóttir Gunnar Máni Hermannsson Saga, Hugi, Emma, Reynir, Tómas og Frosti Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA PÁLSDÓTTIR, Heiðargerði 42, lést á Landspítalanum að kvöldi þriðjudagsins 10. apríl. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 20. apríl klukkan 13. Pálmar Kristinsson Hallfríður Frímannsdóttir Halldór Kristinsson Gunnar S. Kristinsson Gréta Vigfúsdóttir Sævar Kristinsson Ólöf Kristín Sívertsen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HRÓLFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, föstudaginn 13. apríl. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 21. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök heilbrigðisþjónustu á Fljótsdalshéraði. Þórarinn Gunnlaugsson Steinþóra Guðmundsdóttir Hrólfur S. Gunnlaugsson Elínborg Angantýsdóttir Ína G. Gunnlaugsdóttir Lára Ósk Gunnlaugsdóttir Stefán Brimdal Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, ÞÓRA STEPHENSEN aðstoðarskólastjóri, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 24. apríl klukkan 13. Örvar Andrésson Dagbjört Andrésdóttir Þórir Stephensen Dagbjört G. Stephensen Elín Stephensen Ólafur Stephensen Ragnheiður D. Agnarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN GUÐMUNDSSON Árskógum 6, lést miðvikudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 2. maí klukkan 13. Blóm vinsamlega afþökkuð. Bergþóra S. Ottesen Guðmundur Björnsson Helga Egilsdóttir Hildur Björnsdóttir Árni Valur Garðarsson Snæbjörn Björnsson Pétur Björnsson Ingibjörg Óskarsdóttir Helgi Björnsson Berglind Levísdóttir Magnea Lena Björnsdóttir Hallur Símonarson Björn Þór Björnsson Benedikta Björnsdóttir Viggó H. Valgarðsson barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.