Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 31

Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Fyrir rúmum tveimur árumfrumsýndi leikhópurinnÓskabörn ógæfunnar eig-in leikgerð á verðlauna- skáldsögunni Illsku eftir Eirík Örn Norðdahl í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar. Það samstarf heppn- aðist með miklum ágætum og hlaut sýningin sex tilnefningar til Grím- unnar 2016 auk þess sem Sólveig Guðmundsdóttir fékk Menningar- verðlaun DV í leiklist fyrir túlkun sína á Agnesi í Illsku og Sóleyju Rós ræstitækni í samnefndu leik- riti. Það er því eðlilegt að vilji hafi staðið til áframhaldandi samstarfs og um miðjan síðasta mánuð frum- sýndi Óskabörn ógæfunnar leiksýn- inguna Hans Blævi eftir Eirík í leikstjórn Vignis. Á sínum tíma vann leikhópurinn leikgerð upp úr skáldsögu, en að þessu sinni vinnur Eiríkur sjálfur leiktextann upp úr óbirtri skáldsögu sem væntanleg mun vera fyrir næstu jól. Sýningin hefst á endalokunum. Áhorfendur fá strax að vita að titil- persónan hafi fundist látin ásamt móður sinni eftir að ljóstrað hefur verið upp að Hans Blær hafi stundað lyfjanauðganir á skjól- stæðingum meðferðarheimilisins Samastaðar sem ætlað var þol- endum nauðgana. Í framhaldinu er tíminn skrúfaður aftur og við kynnumst Hans Blævi á yngri ár- um persónunnar. Í ljós kemur að Hans Blær fæddist intersex með óræð kynfæri sem móðir persón- unnar kýs að nefna „gálkn“ með vísan í finngálkn sem er afkomandi tófu og kattar. Jafnframt ákveður hún að gefa barni sínu nafnið Ilm- ur Þöll Viggósdóttir og ala hana upp sem stúlku. Vegna frávika sinna frá norminu verður Ilmur fyrir einelti sem mótar hana óneit- anlega, en mótun einstaklingsins er meðal þess sem höfundurinn veltir fyrir sér í verkinu. Það eru áhuga- verðar pælingar, enda flókið sam- spil að skoða áhrif uppeldis, sam- félagsins og persónulegra sam- skipta við líkamlegt og andlegt upplegg einstaklingsins. Hvaða áhrif hefur það til dæmis á mann- eskju og kynvitund hennar þegar móðir hennar nefnir kynfæri við- komandi eftir skrímsli? Samleikur Sólveigar Guðmunds- dóttur, í hlutverki hinnar ófram- færnu móður, og Söru Martí Guð- mundsdóttur, í hlutverki Ilmar, var best heppnaði hluti sýningarinnar. Sólveig dró upp áhrifaríka mynd af móður sem elskar barnið sitt og vill gera allt rétt, en hefur ekki forsendur til að gera annað en normið krefst vegna eigin fordóma og innrætingar. Sara Martí skapaði mjög áhugaverða persónu sem er allt í senn eldklár og meinfyndin, en fullkomlega siðblind enda virðist hún ljúga blygðunarlaust til þess eins að sjá hvort og hvaða áhrif orð hennar hafi. Á sama tíma og hægt var að hlæja að meinlegum athugasemdum hennar rann þeim sem hér skrifar nánast kalt vatn milli skinns og hörunds yfir skeyt- ingarleysi persónunnar og algjör- um skorti á samkennd, sem er eitt lykileinkenni sósíópata eða sið- blindra. Í samfélagi sem hampar þeim sem pönkast á öllum, allt frá minnihlutahópum til femínista, og trolla í netheimum er frami Ilmar skjótur upp á stjörnuhimininn í fjölmiðlaheiminum. En þegar Ilmur er kærð fyrir hatursorðræðu í garð hinsegin fólks velur hún að reyna að slá vopnin úr höndum gagnrýn- enda sinna með því að leggjast undir hnífinn og stíga síðan fram sem hánið Hans Blær Viggósbur sem skilgreinir sig hvorki sem karl- eða kvenkyns og virðist lifa fyrir það eitt að storka heiminum og afvegaleiða umræðuna. Í viðtali við Morgunblaðið stuttu fyrir frumsýningu sagðist höfundurinn meðal annars í verkinu vera að skoða fjarvistarsannanir þeirra sem tala óvarlega, það er hvort það sé hver viðkomandi er eða hvað viðkomandi segir sem dæmi orð og athafnir einstaklingsins. Þetta eru áhugaverðar vangaveltur sem verð- skuldað hefðu dýpri útfærslu en þær fá í sýningunni, en birtast von- andi í væntanlegri skáldsögu. Umbreytingin á Ilmi yfir í Hans Blævi á sér stað um miðbik sýning- arinnar og víkur Sara Martí þá fyrir þeim Jörundi Ragnarssyni, Kjartani Darra Kristjánssyni og Sveini Ólafi Gunnarssyni sem allir skarta húðlitri andlitsgrímu og hárkollu í túlkun sinni á titil- persónu verksins. Sú ákvörðun að láta þrjá leikara túlka Hans Blævi átti mögulega að undirstrika marg- ræðni persónunnar eða sýna áhorf- endum að tröllin leynast víða í samfélaginu, en gervið gerði það að verkum að persóna Hans Blævar varð óþarflega fjarlæg og hætti að koma áhorfendum við. Einnig fannst of skýrt fyrir því hversu langt um liðið var frá síðustu sýn- ingu, því töluverður skortur var á nauðsynlegri snerpu í textaflutn- ingnum og hita í leiknum. Sam- tímis þessu reyndist stökkið frá út- varpsþáttastjórnandanum sem kærður er fyrir hatursorðræðu til fjölmiðlastjörnunnar sem fer að reka eigið meðferðarheimili fyrir þolendur nauðgana of stórt. Það vantaði einfaldlega fleiri púsl inn í myndina og meira kjöt á beinin til þess að gera framvinduna skiljan- legri og áhugaverðari. Leikstjórinn Vignir Rafn Val- þórsson gerir fínar tilraunir með leikrými Tjarnarbíós í sviðsetningu sinni þar sem hann leikur sér markvisst með nálægð og fjarlægð persóna við áhorfendur. Þannig geta leikarar leikið ofan í áhorf- endum (sem aðeins sitja í efri helmingi salarins) þegar þeir eru staðsettir á háum pöllum. Lofthátt tjaldið á sviðsbrúninni, sem fjar- lægt er eftir umskipti Hans Blæv- ar, nýtist vel til að varpa á það tístum og upplýsingatexta um tröll í sögu Íslands. Hvítu flekarnir sem áberandi eru í leikmynd Brynju Björnsdóttur minntu ýmist á brot úr stjörnum, vígtennur í gapandi gini, gogga á fuglabjargi eða grýlu- kerti – ekki síst í lokamyndinni þar sem glitrandi búningur í samspili við flotta lýsingu Arnþórs Þór- steinssonar og Kjartans Darra Kristjánssonar skapaði nánast snjókomu á sviðinu. Hvítir bún- ingar Enólu Ríkeyjar minntu helst á líkklæði, enda persónur málaðar gráhvítar í framan líkt og uppvakn- ingar. Erfitt var samt að lesa heildstæða merkingu út úr þeim táknum sem borin voru á borð sem og dansinum úr smiðju Höllu Ólafsdóttur. Átti Kjartan Darri í hlutverki Hans Blævar í lokadans- inum, með ermar sem minntu á vængi, að vera einhvers konar vís- un í ljóta andarungann sem varð að fallegum svani? Og hvernig á að lesa í það að persónan reynir árangurslaust að svipta sig grím- unni og flysjar umbúðirnar af sér eins og lauk? Er niðurstaða verks- ins að nettröllið er á endanum jafn innantómt og laust við kjarna og Pétur Gautur? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tóm „Er niðurstaða verksins að nettröllið er á endanum jafn innantómt og laust við kjarna og Pétur Gautur?“ Trunt, trunt og tröllin Tjarnarbíó Hans Blær bbmnn Eftir Eirík Örn Norðdahl. Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson. Dans: Halla Ólafsdóttir. Leikmynd: Brynja Björns- dóttir. Búningar: Enóla Ríkey. Lýsing: Arnþór Þórsteinsson og Kjartan Darri Kristjánsson. Hljóð: Áslákur Ingvarsson. Myndband: Roland Hamilton. Guðs- sending: Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Leikarar: Jörundur Ragnarsson, Kjartan Darri Kristjánsson, Sara Martí Guð- mundsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikhóp- urinn Óskabörn ógæfunnar frumsýndi í Tjarnarbíói 14. mars 2018, en rýnt í aðra sýningu 11. apríl 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 20/4 kl. 19:30 46.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Aðfaranótt (Kassinn) Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 11:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.