Morgunblaðið - 20.04.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
Stærðir XS-XXL
Verð 16.995 kr.
Ný glæsileg
sending
frà InWear
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Trausti Valsson, prófessor em-erítus í skipulagi við HÍ, skrif-
aði á dögunum um borgarlínu-
hugmynd meirihlutans í borginni,
sem gangi út á að „meðfram lín-
unum komi 400 m þéttbýlisbelti á
hvora hönd. Á þessi
belti á að koma
nær öll byggða-
aukning til ársins
2040“.
Trausti sagðihugmyndina
að stutt væri í nýja
strætóinn og að með því að auka
byggð nærri honum ykjust líkurnar
á að fólk vildi nota hann.
Svo sagði hann: „Það er alþekktað skipulagsmenn teikna alls-
konar þjónustu á uppdrætti sína,
þjónustu sem oft kemur alls ekki,
eins og var t.d. í Bryggjuhverfinu
við Grafarvog. Sama núna: Skipu-
leggjendur borgarlínu gera ráð
fyrir mikilli þjónustustarfsemi á
hinum þéttu „þróunarsvæðum“
… sem er alger veruleikafirring.
Sagt er jafnvel að þarna meðfram
þessum 57 km borgarlínum eigi að
myndast „þorpsstemning“!“
Í greininni sagði Trausti einnig aðlínubyggð „byði vissulega upp á
nálægð við borgarlínuna en mundi,
að áliti undirritaðs, verða dauð, ljót
og leiðinleg. Þessi byggð mundi að
auki stinga í stúf við byggð-
armynstur sveitarfélaganna.“
Hann klykkti út með því aðbenda á að stjórnmálamenn
ættu frekar að gefa fólki kost á að
búa þar sem fallegt væri. „Við eig-
um að láta annað móta byggðina en
það eitt að stutt sé í borgarlínu-
strætó … sem kemur svo kannski
aldrei,“ sagði Trausti.
Það er heilmikið til í því.
Trausti Valsson
Veruleikafirringin
og leiðindi línunnar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.4., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 8 léttskýjað
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 15 heiðskírt
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 18 léttskýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 26 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 26 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 23 heiðskírt
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 19 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 22 heiðskírt
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 8 léttskýjað
Montreal 4 snjóél
New York 5 rigning
Chicago 5 léttskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:38 21:17
ÍSAFJÖRÐUR 5:32 21:32
SIGLUFJÖRÐUR 5:14 21:16
DJÚPIVOGUR 5:05 20:49
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti
styrki til fjögurra gæðaverkefna í heilbrigðis-
þjónustu í vikunni. Gæðastyrkirnir hafa verið
veittir frá 2001 og eru hugsaðir til þess að stuðla
að umbótastarfi, nýbreytni og auknum gæðum
heilbrigðisþjónustunnar.
Um styrkina bárust 45 umsóknir vegna fjöl-
breyttra verkefna og var úthlutunarnefnd skipuð
þremur fulltrúum velferðarráðuneytisins. Þau
verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni voru
eftirfarandi: Flæðisvið Landspítala hlaut styrk
til verkefnis um styttingu meðferðartíma á
bráða- og göngudeild, veittur var styrkur til
verkefnis um fjarþjónustu á vegum Heyrnar- og
talmeinastöðvar Íslands í samstarfi við Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða, innkirtladeild Land-
spítalans hlaut styrk til að skima fyrir sjón-
kvillum hjá sjúklingum með sykursýki af tegund
1 og menntadeild Landspítalans hlaut styrk
vegna gerðar fræðsluefnis fyrir sjúklinga um
örugga dvöl á sjúkrahúsum.
Hvert um sig fengu verkefnin fimm hundruð
þúsund krónur í styrk.
Fjögur gæðaverkefni hlutu styrk
Stuðla að umbótastarfi
í heilbrigðisþjónustu
Ljósmynd/Velferðarráðuneytið
Gæðastyrkir Heilbrigðisráðherra, Svandís Svav-
arsdóttir, ásamt styrkþegum við úthlutunina.
Kristján Þór Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings, mun leiða lista
Sjálfstæðisflokksins í sveitarfé-
laginu í sveitarstjórnarkosning-
unum í lok maí. Kristján varð sveit-
arstjóri meirihlutastjórnar
Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna eftir síðustu kosningar.
Hann hefur áður starfað hjá Há-
skóla Íslands og hjá Embætti land-
læknis. Hann er með doktorspróf í
íþrótta- og heilsufræðum frá Há-
skóla Íslands. Í öðru sæti á listanum
er Helena Eydís Ingólfsdóttir, sem
er verkefnastjóri hjá Þekkingar-
neti Þingeyinga. Framboðslisti
sjálfstæðismanna í Norðurþingi var
samþykktur á félagsfundi sjálf-
stæðisfélaganna í Norðurþingi á
miðvikudagskvöldið. Í þriðja sæti á
listanum er Örlygur Hnefill Örlygs-
son, hótelhaldari á Húsavík.
Kristján leiðir
í Norðurþingi
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bæjarstjóri Kristján Þór Magn-
ússon, sveitarstjóri Norðurþings.