Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSANMICRA
NISSANMICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Iðnaðarmenn vinna þessa dagana
að því að skipta um hlífðargler í
gluggum Skáholtskirkju og er það
hluti af umfangsmeiri viðgerðum á
kirkjunni. Nokkuð er síðan ljóst
varð að 43 steindir gluggar kirkj-
unnar, sem eru eftir Gerði Helga-
dóttur, væru illa farnir vegna raka
og karmar þeirra fúnir. Menn frá
Oidtmann-verkstæðinu í Linnich í
Norður-Þýskalandi eru þegar búnir
að gera við fimm af þessum list-
gluggum, sem þeir fóru með utan
og komu aftur með til baka. Þrettán
gluggar eru í viðgerð þessa dagana.
Þeir verða settir upp í júní. Verkinu
öllu ætti svo að ljúka í haust.
Betri birta
Kostnaður vegna viðgerðanna á
gluggunum er um 30 milljónir
króna, að sögn séra Kristjáns Vals
Ingólfssonar, vígslubiskups í Skál-
holti. Er það umtalsvert minni
kostnaður en búist var við í fyrstu.
„Við komumst nokkuð vel frá við-
gerðum á gluggunum. Úr Húsafrið-
unarsjóði fáum við níu milljóna
króna framlag og auk átaks sem
efnt var til undir merkjum Skál-
holtsdómkirkju hafa safnast um 14
milljónir króna,“ segir Kristján Val-
ur. Þá segir hann viðgerðir Þjóð-
verjanna á þeim fimm gluggum sem
lokið er hafa tekist vel; þannig að
nú nær birta betur en nokkru sinni
fyrr í gegnum litað glerið, sem skil-
ar fallegum svip inn í sjálft kirkju-
skipið.
Mikil útgjöld fyrirsjáanleg
Fyrir liggur úttekt verkfræðinga
á ástandi kirkjunnar sem staðfestir
bágt ástand hennar. Víða eru
sprungur í veggjum, rakaskemmdir,
svo og í turni, þar sem ein klukka úr
klukkuverki kirkjunnar liggur en
hún féll þar niður fyrir allmörgum
árum. Þá þarf að endurbæta tröpp-
ur við kirkjuna, sem var vígð árið
1963. Í jarðskjálftunum á Suður-
landi árin 2000 og 2008 urðu tals-
verðar skemmdir á Skálholtskirkju
sem komu þó ekki allar í ljós fyrr en
alllöngu síðar. Mikil útgjöld eru því
fyrirsjáanleg á næstu misserum, að
sögn Kristjáns Vals, þó svo við-
gerðin á gluggunum hafi reynst
ódýrari en ætlað var í fyrstu.
Morgunblaðið/Stefán Einar
Skálholt Viðgerðir hafa staðið yfir.
Gluggaviðgerðum
lýkur í Skálholti
Mikilla endurbóta var þörf
Fráveitugjald Veitna í Borgar-
byggð er 32% hærra en í Reykjavík
og á Akranesi. Skýrist það af
samningum sem sveitarstjórn
Borgarbyggðar gerði þegar Orku-
veita Reykjavíkur tók við uppbygg-
ingu og rekstri fráveitunnar í
Borgarnesi á sínum tíma. Mat á
veitunum sýndi að þörf væri á
meiri og kostnaðarsamari upp-
byggingu í Borgarbyggð en hinum
sveitarfélögunum.
Gjaldskrá fráveitugjalds í Borg-
arbyggð hækkaði um 4,5% um ára-
mót, í samræmi við þróun bygg-
ingavísitölu. Aftur á móti hafa
orðið meiri hækkanir þar á síðustu
árum en í hinum sveitarfélögunum.
Hækkaði með framkvæmdum
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi Veitna, rekur
hana til aðgerðaráætlunarinnar
Plansins sem gripið var til á árinu
2011 vegna fjárhagsvanda Orku-
veitu Reykjavíkur.
Gjaldskrá fyrir fráveitugjöld
hafði dregist verulega aftur úr
byggingavísitölu. Hluti af Planinu
var að hækka fráveitugjöld á öllum
gjaldskrársvæðum um 45%. Eftir
gildistöku Plansins var vikið tíma-
bundið frá þeim forsendum til að
koma til móts við Borgarbyggð
vegna frestunar fráveitufram-
kvæmda í sveitarfélaginu.
Gjaldskráin var sú sama og í
Reykjavík og á Akranesi út árið
2015. Þá hófust fráveitufram-
kvæmdir aftur af fullum krafti,
samkvæmt upplýsingum Ólafar, og
fyrri gjaldskrá tekin upp með til-
heyrandi hækkun í Borgarbyggð.
Ólöf segir að framkvæmdir við
uppbyggingu fráveitukerfisins í
Borgarbyggð séu á lokastigi. Nú
hafi verið teknar í notkun hreinsi-
stöðvar á Bifröst, í Reykholti og á
Varmalandi og ný hreinsistöð
gangsett í Brákarey í Borgarnesi.
Í sumar verða fráveitumál í
Borgarbyggð í fullu samræmi við
lög og reglugerðir, samkvæmt upp-
lýsingum hennar. helgi@mbl.is
Fráveitugjaldið 32%
hærra í Borgarbyggð
Skýrist af samningum við Orkuveitu Reykjavíkur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Miklar framkvæmdir við uppbyggingu fráveitukerfis í Borg-
arbyggð eru á lokastigi. Nýjar hreinsistöðvar hafa verið byggðar.