Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 14

Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 Óvenjumargir flækingsfuglar þreyðu veturinn í görðum á Seyðisfirði en sýna á sér fararsnið núna þegar varpfuglarnir streyma til landsins. Á meðal þeirra er hettusöngvari, fjallafinka og gráþröstur sem voru í garði einum á Garðars- vegi í vikunni. Nokkrum dögum áður voru gló- brystingur, svartþröstur, tvær silkitoppur og annar gráþröstur í sama garði. Eigendur hans, hjónin Þorsteinn Rúnar Eiríksson og Sólveig Sigurðardóttir, gefa fuglunum á hverjum degi yfir veturinn. Þau segja að óvenjumargir flæk- ingar hafi verið í garðinum í vetur og haldið sig þar óvenjulengi. T.a.m. hafi hettusöngvarinn sést um haustið og horfið en snúið aftur í garð- inn í janúar. Um tíma voru alls fimm gráþrestir í garðinum, allt að fimm svartþrestir og auk fyrr- nefndra fugla sást hringdúfa þar og víðar í bæn- um. Í öðrum garði höfðu sést tveir glóbrystingar og í vikunni var þar mistilþröstur en hann var vant við látinn og gaf ekki kost á myndatöku. bogi@mbl.is Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Kærkomnir vetrargestir á Seyðisfirði Hettusöngvari Karlfugl- inn er grár að lit og með svarta hettu. Kvenfuglar og ungfuglar eru með ryð- brúna hettu. „Ég hafna því að fiskarnir séu svo fá- ir að við höfum ekki rétta mynd af ástandi og stærð hgrásleppustofns- ins,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrann- sóknastofnunar. Hann segir að sam- ræmið á milli vísitölu grásleppu og aflabragða á sóknareiningu sé þokkalega gott. Axel Helgason, formaður Lands- sambands smábátaeigenda, sagði í samtali við mbl.is á þriðjudag, að skoða þyrfti þá aðferðafræði Haf- rannsóknastofnunar, að nota þá grá- sleppu sem veiðist í vorrallinu sem grundvöll veiðiráðgjafar. Grásleppa væri uppsjávarfiskur og í rallinu væri togað á 600 stöðvum í landhelg- inni, sem í ár hefði skilað tæplega 1.000 grásleppum. Til að setja þá tölu í samhengi mætti geta þess að þessar þúsund grásleppur væru um það bil þrjú tonn. Út frá þeim væri reiknuð ráðgjöf upp á tæp 5.500 t. Þorsteinn segir að þetta sé ekki einungis spurning um fjölda fiska, heldur hversu góður mælikvarði fengist á stofninn. Byggt væri á yfir 30 ára reynslu af togararalli í mars og í ýmsum öðrum tegundum hefðu færri fiskar gefið góða mynd af þró- un stofnanna. Nefndi Þorsteinn keilu, löngu, blálöngu og tegundir flatfiska. Rannsóknir á þessum teg- undum hefðu eins og varðandi grá- sleppu tvímælalaust spágildi þó þeim hefði upphaflega verið safnað í öðr- um tilgangi. Fer upp og niður í sjónum „Svo er það spurning hvort grá- sleppan sé eingöngu uppsjávarfisk- ur,“ segir Þorsteinn. „Talsverðar rannsóknir hafa verið stundaðar hjá okkur síðustu ár og merkingar með rafeindamerkjum hafa sýnt að fisk- urinn fer upp og niður í sjónum nán- ast á hverjum sólarhring. Gráslepp- an er því mjög aðgengileg í botntroll á ákveðnum tímum sólarhrings og í yfirborðinu á öðrum tímum, í það minnsta þegar hann er að ganga inn á hrygningarsvæðið.“ Rannsóknir og síðan ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar um rúmlega fimm þúsund tonna grásleppuafla hafi bent til meðalvertíðar. Skoðun á löndun grásleppubáta fyrstu 20 daga vertíðar hafi bent til sömu niður- stöðu. aij@mbl.is Ekki bara spurn- ing um fjölda fiska  Þokkalega gott samræmi á milli vísi- tölu grásleppu og afla á sóknareiningu Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775 Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar tryggja betri fundarhlé. Fundarfriður áHótelÖrk ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.