Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Fjöldamótmæli hófust í gær í Frakklandi gegn Emmanuel Mac- ron forseta landsins. Frá þessu er sagt á fréttasíðum Huffington Post og AFP. Mótmælin voru skipulögð að undirlagi verkalýðsfélaganna Confédérate générale du travail (CGT) og Union syndicale Solidai- res í von um að sameina andstæð- inga forsetans og skapa samheldna mótspyrnu gegn efnahagsáætlun hans. Slagorð mótmælanna eru „Convergence des luttes!“ eða „Samruni baráttanna!“. Macron hefur látið sér fátt um finnast og sagði á miðvikudag um mótmælend- ur að „þau [væru] úti á götu vegna þess að þau vilja ekki breytingar.“ Mótstaða úr mörgum áttum Síðustu mótmælin af þessu tagi fóru fram í nóvember á síðasta ári og komu þar um 80.000 manns út á götur Frakklands til að mótmæla breytingum Macrons á vinnulögum Frakklands. Frá því í byrjun apríl hafa margir franskir járnbrauta- verkamenn farið í verkfall tvo af hverjum fimm dögum til að mót- mæla fyrirhuguðum umbótum rík- isstjórnarinnar á franska járn- brautakerfinu af ótta við að hún hyggist einkavæða það. Háskólanemendur hafa einnig reiðst Macron fyrir áætlanir um að þrengja inngönguskilyrði í háskóla svo menntaskólagráðan ein nægi ekki til. Því hafa nemendurnir lokað mörgum háskólum Frakklands undanfarna daga en aðeins fjórir þeirra eru enn lokaðir og skoðana- könnun meðal nemenda Strass- borgarháskóla gefur til kynna að flestir vilji að kennsla hefjist að nýju. „Nauðsyn þess er ljós að samein- ast í baráttunni,“ sagði Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi la France inso- umise-hreyfingarinnar við stuðn- ingsmenn sína í Marseille. „Í senn verður að styðja kröfur hvers og eins […] og skipuleggja sameigin- legar aðgerðir okkar allra. […] Of- stækisfull hegðun forsetans hefur ýtt okkur öllum til samstöðu.“ Þrátt fyrir þessi fyrirheit er ekki víst að allir andstæðingar Macrons taki þátt í mótmælunum. Fulltrúar stéttarfélaganna CFDT og Force ouvrière ákváðu að taka ekki þátt. „Ég veit ekki til hvers við ættum að mæta,“ sagði Jean-Claude Mailly, aðalritari Force ouvrière í byrjun mars. „Þetta er pólitísk nálgun, sem er ekki sú sem við kjósum okkur,“ sagði Laurent Berger, aðalritari CFDT, og neitaði að sameinast hin- um í baráttu sinni. Fjöldamótmæli í Frakklandi  „Ofstækisfull hegðun forsetans hefur ýtt okkur öllum til samstöðu,“ segir Jean-Luc Mélenchon um Emmanuel Macron Frakklandsforseta AFP Óeirðir Franskir nemendur í Marseille mótmæla fyrirhuguðum breytingum á inngönguskilyrðum í háskóla lands- ins. Á skiltinu stendur „Neydd áfram“ (En marche forcée) sem vísar í nafn stjórnmálaflokks Macrons forseta. Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, lýsti því yfir á fimmtudaginn að hann myndi sækjast eftir friðarsátt- mála til þess að binda formlega enda á Kóreustríðið á væntanlegum fundi sínum með Kim Jong-un, leið- toga Norður-Kóreu hinn 27. apríl. Frá þessu er greint á fréttasíðu AFP. Formlega séð var aldrei bundinn endi á Kóreustríðið sem háð var milli ríkjanna frá 1950 til 1953 heldur einungis samið um vopnahlé sem hefur nú dregist á langinn í 65 ár. Ríkisstjórnir beggja ríkjanna gera tilkall til yfirráða á öllum Kóreuskaga en friðarsátt- máli gæti leitt til þess að ríkin við- urkenni hvort annað. Moon hefur þó gefið til kynna að friðarsáttmáli velti á því að Norður-Kóreumenn samþykki að láta af hendi kjarna- vopn sín. Fundur Moons og Kims verður í aðdraganda fyrirhugaðs fundar Kims og Donalds Trump Bandaríkjaforseta og niðurstöður fyrri fundarins munu að líkindum hafa áhrif á hinn seinni. KÓREA AFP Kórea Moon Jae-in, forseti Suður- Kóreu, mun hitta Kim Jong-un í lok apríl. Moon sækist eftir friðarsáttmála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.