Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 17
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Við vitum að HB Grandi er gott fyrir-
tæki og vel rekið. Á síðustu árum hefur
verið mikið fjárfest í innviðum félagsins,
s.s. með nýjum skipum og uppsjáv-
arvinnslu á Vopnafirði, og þess utan
þekki ég persónulega marga starfsmenn
og stjórnendur fyrirtækisins og veit að
þar vinnur afbragðsfólk.“
Þetta segir Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri Brims hf., en tilkynnt var seint
á miðvikudagskvöld að Brim hefði keypt
34,1% hlut í HB Granda fyrir um 21,7
milljarða króna. Seljendur eru Vogun,
dótturfélag Hvals hf. þar sem Kristján
Jónsson er stærsti hluthafinn, og Fisk-
veiðihlutafélagið Venus sem átti um
hálft prósent í HB Granda.
Guðmundur er aðaleigandi Brims en
hann á félagið með bróður sínum
Hjálmari og systur.
Skapar yfirtökuskyldu
Kaupverðið er 35 krónur á hlut sem
er um 16% yfir markaðsverði bréfa HB
Granda á miðvikudag. Guðmundur segir
verðið sanngjarnt. „Kaupverðið er vel
yfir markaðsverði enda erum við að
eignast ráðandi hlut í félaginu. Er verð-
ið þó mjög nálægt meðalverði HB
Granda undanfarin 2-3 ár. Bæði kaup-
andi og seljendur geta vel við unað.“
Kaupin fjármagnar Brim bæði með
sölu eigna og með liðsinni fjár-
málastofnana. Guðmundur játar að um
stóran bita sé að ræða en segir Brim
standa vel að vígi og bendir á að fyrir
kaupin hafi eignir félagsins numið um
50 milljörðum króna. Fyrir á Brim stór-
an hlut í Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum, og eignaðist árið 2016 út-
gerðarfélagið Ögurvík hf. „Þó að kaupin
á þriðjungshlut í HB Granda séu stór
biti, þá voru kaup okkar á Útgerð-
arfélagi Akureyringa árið 2004 hlutfalls-
lega stærri fyrir okkur,“ útskýrir hann.
Þar sem Brim eignast meira en 30%
hlut í HB Granda skapa kaupin yf-
irtökuskyldu en Guðmundur vonar að
sem flestir núverandi hluthafa verði
áfram eigendur í félaginu. „Það er einn
af styrkleikum HB Granda að félagið
skuli vera skráð á verðbréfamarkað og
að eignarhaldið sé dreift,“ segir Guð-
mundur og áætlar að ýmsir lífeyris-
sjóðir og fjárfestingarsjóðir eigi samtals
um helming allra hlutabréfa í HB
Granda. Hann segir að það muni ekki
valda vandræðum ef margir vilja nýta
yfirtökuskylduna og verði þá einfaldlega
fleiri nýir eigendur fengnir að borðinu.
Kaupunum er þannig háttað að
hvorki Brim né HB Grandi fara yfir við-
mið um hámarks kvótaeign. Þá á Guð-
mundur ekki von á að samkeppnisyfir-
völd geri athugasemdir við kaupin enda
lítil sem engin samkeppni á milli félag-
anna á innanlandsmarkaði og selja þau
nær allar afurðir sínar á erlendum
mörkuðum.
Gætu snúið bökum saman
við sölu afurða erlendis
Aðalfundur HB Granda verður hald-
inn snemma í næsta mánuði. Er ekki að
heyra á Guðmundi að hann telji þörf á
miklum breytingafundi og segir hann
starfsemi félagsins í góðum höndum.
Guðmundur vonast til að með kaup-
unum skapist grundvöllur fyrir náið
samstarf Brims og HB Granda, og eyg-
ir hann möguleika á mjög jákvæðum
samlegðaráhrifum. Hann tiltekur að
ólíkt Brimi reki HB Grandi landvinnslur
sem Brim gæti hugsanlega nýtt, báðum
fyrirtækjunum til hagsbóta. „Mest mun-
ar samt um að með samstarfi gætum
við staðið betur að vígi við sölu afurða
erlendis. Úti á hinum stóra markaði eru
íslensku fyrirtækin afskaplega lítil og
yrðu félögin sterkari með því að vinna
saman.“
Stór en viðráðanlegur biti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vöxtur „Úti á hinum stóra markaði eru íslensku fyrirtækin afskaplega lítil og yrðu félögin sterkari með
því að vinna saman,“ segir Guðmundur. Hann hefur nú stóraukið umsvif sín í íslenskum sjávarútvegi.
Brim eignast 34,1% hlut í HB Granda fyrir 21,7 milljarða króna Kaupverðið er um 16% yfir
markaðsverði og hefur skapast yfirtökuskylda Möguleg samlegðaráhrif t.d. í markaðsmálum
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2018
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir mánudaginn 23. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
27. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ
Á þriðjudag fór verð Brent-hráolíu
yfir 74 dali á fatið og hefur ekki
verið hærra síðan 2014. Hefur
Brent-hráolía hækkað um 8% það
sem af er þessu ári og fór verðið
hæst upp í 74,72 dali á þriðjudag.
Er hækkun olíuverðs einkum
tengd samkomulagi Opec-ríkjanna,
Rússlands og annarra olíufram-
leiðslulanda um að draga úr fram-
boði. Þegar samstarf þeirra hófst
fyrir 16 mánuðum var heimsmark-
aðsverð hráolíu 55 dalir á fatið.
Að sögn FT hefur það einnig ýtt
verði olíu upp að hætta er talin á
að olíuframleiðsla í Venesúela
kunni að raskast vegna mikilla
efnahagsörðugleika þar í landi, og
sömuleiðis talið mögulegt að
Bandaríkin beiti Íran frekari við-
skiptaþvingunum sem myndi
minnka framboð á olíu enn frekar.
Hefur líka dregið úr áhyggjum
markaðarins af að viðskiptadeilur
Bandaríkjanna og Kína gætu hægt
á alþjóðahagkerfinu, og þar með
dregið úr eftirspurn eftir olíu.
Deilur ríkjanna hafa ekki versnað í
þessari viku og hefur verið stað-
fest að viðræður eigi sér stað á
milli hátt settra embættismanna.
ai@mbl.is
AFP
Horfur Ástandið í Venesúela og Íran spilar m.a. inn í verðþróunina.
Hráolíuverð yfir
74 dali á fatið
Viðskiptin með hlutabréfin í HB Granda eru ekkert
smáræði og eðlilegt að spyrja Guðmund hvort
Brim hafi t.d. skoðað að fjárfesta frekar í öðrum
greinum en sjávarútvegi. Hann segir kaupin ekki
bara gerð til að ná fram jákvæðum samlegðar-
áhrifum heldur sé Brim að fjárfesta í blómlegri at-
vinnugrein með bjarta framtíð. „Ég hef unnið við
sjávarútveg allt mitt líf og haft af því bæði yndi og
ánægju. Ég hef fulla trú á greininni enda íslenskur
sjávarútvegur einn sá best rekni í öllum heiminum
og atvinnuvegur sem við getum öll verið stolt af.
Á það sama við um þann iðnað og þjónustu sem
hefur orðið til í kringum sjávarútveginn og þau
öflugu tæknifyrirtæki sem greinin reiðir sig á,“
segir hann. „Fyrst og síðast lít ég samt á kaupin
sem tækifæri til að vinna með því góða fólki sem
starfar hjá HB Granda, og með öðrum hluthöfum
félagsins.“
Með óbilandi trú á íslenskum sjávarútvegi
SNÝST EKKI BARA UM SAMLEGÐARÁHRIF