Morgunblaðið - 20.04.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
Reykjavík Börn og fullorðnir fögnuðu sumri með ýmsum hætti í gær. Nokkrir krakkar notuðu tækifærið og sulluðu svolítið á Ingólfstorgi, enda var komið sumar!
Kristinn Magnússon
Þegar leið á síðustu
viku drógu ýmsir
fréttaskýrendur í Evr-
ópu og Bandaríkjunum
í efa að Bashar al-
Assad Sýrlandsforseta
yrði refsað fyrir að
beita eiturefnum í
bænum Douma,
skammt frá Damaskus,
höfuðborg Sýrlands.
Donald Trump Banda-
ríkjaforseti sagði skömmu eftir árás-
ina laugardaginn 7. apríl að nú
skyldu þeir sem stóðu að árásinni
gæta sín, henni yrði svarað af hörku.
Eftir því sem fleiri dagar liðu án
þess að nokkuð gerðist var bent á að
ekki væri alltaf að marka allt sem
Bandaríkjaforseti segði, eitt í dag
annað á morgun. Líklega yrði Assad
ekki refsað. Eftir árásir Bandaríkja-
manna, Breta og Frakka með rúm-
lega 100 stýriflaugum aðfaranótt 14.
apríl reyndust allar getgátur um að-
gerðaleysi ríkisstjórna landanna
marklausar. Þá breyttist gagnrýnin
og tók að snúast um árásina, hana
hefði ekki átt að gera eða hún skilaði
ekki nægum árangri.
Þetta eru sígild umræðuefni í
hvert sinn sem lýðræðisríkin telja
nauðsynlegt að grípa til sameig-
inlegra aðgerða. Sú breyting hefur
þó orðið frá fyrri tíð að allur heim-
urinn getur fylgst með öllu sem ger-
ist á sama tíma og þegar það gerist.
Þess vegna er enn brýnna en nokkru
sinni fyrr að allt sem lýðræðisríkin
gera sé á þann veg að það þoli beina
útsendingu í öllum
heimshornum.
Árásirnar á Sýrland
stóðust kröfuna um að
ekkert færi úrskeiðis.
Þær voru takmarkaðar
við þrjár efnavopna-
stöðvar, stóðu aðeins í
45 mínútur og ekki einn
almennur borgari féll.
Forherðing Sýr-
landsforseta er ef til
vill of mikil til að hann
átti sig á nauðsyn þess
að halda frekar aftur af
efnavopnasveitum sínum en gefa
þeim fyrirmæli um árás. Að búast
við að hann játi á sig beitingu efna-
vopna er borin von. Þetta er ekki að-
eins vegna ótta hans við að upplýsa
um eigin gjörðir heldur einnig til að
stuðningsmenn Assads í lýðræðis-
ríkjunum (já, þeir eru til) geti sagt
að allt sem gert er á hlut þeirra
manns sé án sannana um brot. Þetta
er sama aðferð og rússnesk stjórn-
völd og sporgöngumenn þeirra í opn-
um samfélögum nota Rússum til
varnar vegna ásakana um eitur-
efnaárásina í Salisbury.
Óvandaður eftirleikur
Í heila viku lá fyrir að í höfuð-
borgum Bandaríkjanna, Bretlands
og Frakklands ræddu ráðamenn
hvort, hvernig og hvenær ætti að
refsa fyrir efnavopnaárásina. Í sömu
viku ræddu íslenskir þingmenn
skýrslu utanríkisráðherra. Í umræð-
unum um hana fá þingmenn opið og
víðtækt tækifæri til að ræða hvað
sem þeim kemur í hug varðandi ut-
anríkismál. Af fréttum var ekki ráðið
að þeim hefði legið þungt á hjarta að
fá upplýsingar um afstöðu rík-
isstjórnar Íslands til þess ef ráðist
yrði á Sýrland í refsingarskyni
vegna eiturefnaárásanna. Fátt bar
þó hærra á alþjóðavettvangi þá
stundina.
Eftir árásina fóru fréttamenn rík-
isútvarpsins á stjá og er afrakstr-
inum lýst á þennan veg í leiðara
Morgunblaðsins mánudaginn 16.
apríl:
„Í fréttum „RÚV“ í gær var sagt
frá ruglingslegum umræðum í boði
hússins, þar sem látið var eins og
NATO hefði ákveðið loftárásirnar á
Sýrland. Var vitnað í orð Stolten-
berg framkvæmdastjóra um að allir
fastafulltrúar bandalagsins hefðu
lýst yfir stuðningi við þessar aðgerð-
ir. Árásirnar ultu ekki á þeirri yf-
irlýsingu. Ruglingstal um það að ein-
hver ríki hefðu getað beitt
neitunarvaldi og hefðu þá jafnvel
orðið að segja sig úr NATO(!) fylgdi í
kjölfarið.“
Í umræðunum sem þarna eru
nefndar voru ráðherrar og alþing-
ismenn spurðir um afstöðu sína á
þann veg að ætla hefði mátt að svar-
ið við efnavopnum Assads hefði á
einhvern hátt ráðist hér á landi.
Skortur á þekkingu á því hvernig
staðið er að töku ákvarðana um mál
af þessum toga eða ranghugmyndir
um stöðu Íslands kunna að hafa ráð-
ið spurningum fréttamannanna.
Svörin tóku mið af spurningunum.
Þegar vitlaust er spurt er ekki von á
öðru en svörin hljómi undarlega,
sýni svarandinn þá kurteisi að benda
ekki á villuna í forsendum spyrjand-
ans.
Að sauma að VG
Nú hefur skýrst að tilgangur
fréttamanna ríkisútvarpsins var að
gera Katrínu Jakobsdóttur, for-
manni VG (á móti NATO) og for-
sætisráðherra, erfitt að komast frá
málinu. Tækist það yrði einnig kom-
ið höggi á ríkisstjórn Katrínar. Til-
gangurinn var með öðrum orðum að
breyta Sýrlandsmálinu í ágreinings-
efni innan lands. Það tókst að
nokkru leyti eins og heyra mátti á
málflutningi Loga Einarssonar, for-
manns Samfylkingarinnar, í Kast-
ljósi mánudaginn 16. apríl. Hann
taldi sig þá skorta sannanir til að
styðja árásina á Assad. Hann var
kokhraustari um nauðsyn þessa
refsa Assad fyrst þegar rætt var við
hann um árásina, engu er líkara en
fréttamennirnir hafi snúið honum.
Fyrir Katrínu Jakobsdóttur sner-
ist þetta mál ekkert um ákvarðanir
fyrr en að loknu verkinu og skýrsla
var gefin um það í höfuðstöðvum
NATO í Brussel síðdegis laugardag-
inn 14. apríl. Þar fluttu fulltrúar
Bandaríkjanna, Breta og Frakka
bandamönnum sínum skýrslu og
þeir lýstu stuðningi við það sem
gerst hafði.
Það er rétt sem segir í leiðara
Morgunblaðsins að ákvarðanir um
að eyðileggja efnavopn Sýrlands-
stjórnar réðust ekki af yfirlýsingu
Jens Stoltenbergs, framkvæmda-
stjóra NATO, eftir að verkinu var
lokið. Til samanburðar má minna á
að árið 2011 var ákvörðun um loft-
árásir á Líbíu kynnt fyrir Atlants-
hafsráðinu og síðan barist undir
merkjum NATO. Um það segir í
fyrrnefndum leiðara Morgunblaðs-
ins: „Fyrsta „hreina vinstristjórnin“
[stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
2009 til 2013] er hin eina sem borið
hefur fulla og ótakmarkaða ábyrgð á
styrjöldum NATO í „vorhreingern-
ingunum“ svokölluðu og hefði getað
komið í veg fyrir að þær árásir yrðu
gerðar í nafni NATO.“
Að telja sjálfkrafa að VG sé í and-
stöðu við allt sem gert er í nafni vest-
rænnar samstöðu á vegum NATO er
í raun tímaskekkja eða pólitísk ósk-
hyggja. Ari Trausti Guðmundsson,
þingmaður VG, lýsti stöðunni rétti-
lega í Fréttablaðinu þriðjudaginn 17.
apríl þegar hann sagði: „Ef vinstri
græn ætluðu alltaf að halda þessu til
ýtrasta málstaðar, þá sætu þau nátt-
úrulega aldrei í ríkisstjórn því þetta
er eini flokkurinn á Íslandi sem vill
úrsögn úr NATO og er andvígur öll-
um hernaðaríhlutunum.“
Ari Trausti lét þess að vísu ógetið
að VG samþykkti þjóðaröryggis-
stefnuna þar sem segir að aðild að
NATO og varnarsamstarf við
Bandaríkin séu grunnþættir hennar.
Rússar eru í tilvistarkreppu og
hræddir við NATO. Hvað skyldi
valda ótta VG?
Eftir Björn
Bjarnason » Tilgangurinn var
með öðrum orðum
að breyta Sýrlands-
málinu í ágreiningsefni
innan lands. Það tókst
að nokkru leyti.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Eiturörvum Assads breytt í VG-vanda og Katrínar