Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 Reykjavík Börn og fullorðnir fögnuðu sumri með ýmsum hætti í gær. Nokkrir krakkar notuðu tækifærið og sulluðu svolítið á Ingólfstorgi, enda var komið sumar! Kristinn Magnússon Þegar leið á síðustu viku drógu ýmsir fréttaskýrendur í Evr- ópu og Bandaríkjunum í efa að Bashar al- Assad Sýrlandsforseta yrði refsað fyrir að beita eiturefnum í bænum Douma, skammt frá Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Donald Trump Banda- ríkjaforseti sagði skömmu eftir árás- ina laugardaginn 7. apríl að nú skyldu þeir sem stóðu að árásinni gæta sín, henni yrði svarað af hörku. Eftir því sem fleiri dagar liðu án þess að nokkuð gerðist var bent á að ekki væri alltaf að marka allt sem Bandaríkjaforseti segði, eitt í dag annað á morgun. Líklega yrði Assad ekki refsað. Eftir árásir Bandaríkja- manna, Breta og Frakka með rúm- lega 100 stýriflaugum aðfaranótt 14. apríl reyndust allar getgátur um að- gerðaleysi ríkisstjórna landanna marklausar. Þá breyttist gagnrýnin og tók að snúast um árásina, hana hefði ekki átt að gera eða hún skilaði ekki nægum árangri. Þetta eru sígild umræðuefni í hvert sinn sem lýðræðisríkin telja nauðsynlegt að grípa til sameig- inlegra aðgerða. Sú breyting hefur þó orðið frá fyrri tíð að allur heim- urinn getur fylgst með öllu sem ger- ist á sama tíma og þegar það gerist. Þess vegna er enn brýnna en nokkru sinni fyrr að allt sem lýðræðisríkin gera sé á þann veg að það þoli beina útsendingu í öllum heimshornum. Árásirnar á Sýrland stóðust kröfuna um að ekkert færi úrskeiðis. Þær voru takmarkaðar við þrjár efnavopna- stöðvar, stóðu aðeins í 45 mínútur og ekki einn almennur borgari féll. Forherðing Sýr- landsforseta er ef til vill of mikil til að hann átti sig á nauðsyn þess að halda frekar aftur af efnavopnasveitum sínum en gefa þeim fyrirmæli um árás. Að búast við að hann játi á sig beitingu efna- vopna er borin von. Þetta er ekki að- eins vegna ótta hans við að upplýsa um eigin gjörðir heldur einnig til að stuðningsmenn Assads í lýðræðis- ríkjunum (já, þeir eru til) geti sagt að allt sem gert er á hlut þeirra manns sé án sannana um brot. Þetta er sama aðferð og rússnesk stjórn- völd og sporgöngumenn þeirra í opn- um samfélögum nota Rússum til varnar vegna ásakana um eitur- efnaárásina í Salisbury. Óvandaður eftirleikur Í heila viku lá fyrir að í höfuð- borgum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands ræddu ráðamenn hvort, hvernig og hvenær ætti að refsa fyrir efnavopnaárásina. Í sömu viku ræddu íslenskir þingmenn skýrslu utanríkisráðherra. Í umræð- unum um hana fá þingmenn opið og víðtækt tækifæri til að ræða hvað sem þeim kemur í hug varðandi ut- anríkismál. Af fréttum var ekki ráðið að þeim hefði legið þungt á hjarta að fá upplýsingar um afstöðu rík- isstjórnar Íslands til þess ef ráðist yrði á Sýrland í refsingarskyni vegna eiturefnaárásanna. Fátt bar þó hærra á alþjóðavettvangi þá stundina. Eftir árásina fóru fréttamenn rík- isútvarpsins á stjá og er afrakstr- inum lýst á þennan veg í leiðara Morgunblaðsins mánudaginn 16. apríl: „Í fréttum „RÚV“ í gær var sagt frá ruglingslegum umræðum í boði hússins, þar sem látið var eins og NATO hefði ákveðið loftárásirnar á Sýrland. Var vitnað í orð Stolten- berg framkvæmdastjóra um að allir fastafulltrúar bandalagsins hefðu lýst yfir stuðningi við þessar aðgerð- ir. Árásirnar ultu ekki á þeirri yf- irlýsingu. Ruglingstal um það að ein- hver ríki hefðu getað beitt neitunarvaldi og hefðu þá jafnvel orðið að segja sig úr NATO(!) fylgdi í kjölfarið.“ Í umræðunum sem þarna eru nefndar voru ráðherrar og alþing- ismenn spurðir um afstöðu sína á þann veg að ætla hefði mátt að svar- ið við efnavopnum Assads hefði á einhvern hátt ráðist hér á landi. Skortur á þekkingu á því hvernig staðið er að töku ákvarðana um mál af þessum toga eða ranghugmyndir um stöðu Íslands kunna að hafa ráð- ið spurningum fréttamannanna. Svörin tóku mið af spurningunum. Þegar vitlaust er spurt er ekki von á öðru en svörin hljómi undarlega, sýni svarandinn þá kurteisi að benda ekki á villuna í forsendum spyrjand- ans. Að sauma að VG Nú hefur skýrst að tilgangur fréttamanna ríkisútvarpsins var að gera Katrínu Jakobsdóttur, for- manni VG (á móti NATO) og for- sætisráðherra, erfitt að komast frá málinu. Tækist það yrði einnig kom- ið höggi á ríkisstjórn Katrínar. Til- gangurinn var með öðrum orðum að breyta Sýrlandsmálinu í ágreinings- efni innan lands. Það tókst að nokkru leyti eins og heyra mátti á málflutningi Loga Einarssonar, for- manns Samfylkingarinnar, í Kast- ljósi mánudaginn 16. apríl. Hann taldi sig þá skorta sannanir til að styðja árásina á Assad. Hann var kokhraustari um nauðsyn þessa refsa Assad fyrst þegar rætt var við hann um árásina, engu er líkara en fréttamennirnir hafi snúið honum. Fyrir Katrínu Jakobsdóttur sner- ist þetta mál ekkert um ákvarðanir fyrr en að loknu verkinu og skýrsla var gefin um það í höfuðstöðvum NATO í Brussel síðdegis laugardag- inn 14. apríl. Þar fluttu fulltrúar Bandaríkjanna, Breta og Frakka bandamönnum sínum skýrslu og þeir lýstu stuðningi við það sem gerst hafði. Það er rétt sem segir í leiðara Morgunblaðsins að ákvarðanir um að eyðileggja efnavopn Sýrlands- stjórnar réðust ekki af yfirlýsingu Jens Stoltenbergs, framkvæmda- stjóra NATO, eftir að verkinu var lokið. Til samanburðar má minna á að árið 2011 var ákvörðun um loft- árásir á Líbíu kynnt fyrir Atlants- hafsráðinu og síðan barist undir merkjum NATO. Um það segir í fyrrnefndum leiðara Morgunblaðs- ins: „Fyrsta „hreina vinstristjórnin“ [stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009 til 2013] er hin eina sem borið hefur fulla og ótakmarkaða ábyrgð á styrjöldum NATO í „vorhreingern- ingunum“ svokölluðu og hefði getað komið í veg fyrir að þær árásir yrðu gerðar í nafni NATO.“ Að telja sjálfkrafa að VG sé í and- stöðu við allt sem gert er í nafni vest- rænnar samstöðu á vegum NATO er í raun tímaskekkja eða pólitísk ósk- hyggja. Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG, lýsti stöðunni rétti- lega í Fréttablaðinu þriðjudaginn 17. apríl þegar hann sagði: „Ef vinstri græn ætluðu alltaf að halda þessu til ýtrasta málstaðar, þá sætu þau nátt- úrulega aldrei í ríkisstjórn því þetta er eini flokkurinn á Íslandi sem vill úrsögn úr NATO og er andvígur öll- um hernaðaríhlutunum.“ Ari Trausti lét þess að vísu ógetið að VG samþykkti þjóðaröryggis- stefnuna þar sem segir að aðild að NATO og varnarsamstarf við Bandaríkin séu grunnþættir hennar. Rússar eru í tilvistarkreppu og hræddir við NATO. Hvað skyldi valda ótta VG? Eftir Björn Bjarnason » Tilgangurinn var með öðrum orðum að breyta Sýrlands- málinu í ágreiningsefni innan lands. Það tókst að nokkru leyti. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Eiturörvum Assads breytt í VG-vanda og Katrínar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.