Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 23

Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 23
✝ ÞorsteinnHjartarson fæddist 27.4.1935 í Reykjavík. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 8. apríl 2018. Foreldrar hans voru Sigrún Ein- arsdóttir, fædd í Flatey á Breiðafirði 29.10. 1905, látin 1939 í Reykjavík, og Hjörtur Þorsteinsson, fædd- ur í Eyvindartungu Laugardal 28.10. 1902, látinn 1991 á Eyri í Kjós. Seinni kona Hjartar og stjúpmóðir Þorsteins var 1. september 1904, dáinn 1996, og Guðrún Ingimarsdóttir frá Efri-Reykjum í Biskupstungum, fædd 4. ágúst 1905 og dáin 1981. Systkini Guðrúnar eru Ingi- björg, f. 1931, Gísli f. 1932, hann er látinn, Ingimar, f.1935, El- ínborg, f. 1939, Þóra, f. 1945, og Magnús, f.1949. Þorsteinn og Guðrún eign- uðust dótturina Rúnu Björk Þorsteinsdóttur, f. 27.6. 1964. Barnarnabörnin eru tvö. Þor- finnur Guttormsson, fæddur 28.8. 1990, faðir hans er Gutt- ormur Þorfinnsson. Guðrún Embla Eiríksdóttir, fædd 11.12. 1998, faðir hennar er Eiríkur Sæmundsson. Þorsteinn vann mest sem bíl- stjóri en einnig önnur störf seinni hluta starfsævinnar. Þorsteinn verður jarðsunginn frá Lindakirkju í dag, 20. apríl 2018, klukkan 13. Kristín Jónsdóttir, f. 20.6. 1913 Þúfu í Kjós, látin 1999. Systkini hans eru: Arnheiður, f.1928, hún er látin, Har- aldur, f. 1942, Sig- rún, f. 1944, og Jón, f. 1946. Þorsteinn ólst upp að Eyri í Kjós en fluttist ungur til Reykjavíkur. Þorsteinn giftist Guðrúnu Einarsdóttur, f. 16.2. 1937, frá Kjarnholtum í Biskupstungum. Foreldrar hennar voru Einar Gíslason, fæddur í Kjarnholtum Nú er Steini mágur minn fall- inn frá, laus úr viðjum sjúkdóma og erfiðleika og kominn í sum- arlandið. Líf Steina hefur ekki alltaf verið dans á rósum og mótaðist æska hans örugglega mikið af því að hann missir móður sína á barnsaldri einungis fjögurra ára gamall og hefur það örugglega reynt mikið á barnssálina. Þegar ég var ung og ógift hjálpaði hann mér mjög mikið og er ég honum þakklát fyrir það. Á þessum árum vann ég ekki í Reykjavík en var oft að koma í bæinn og var heimagangur hjá Dúnu systur og Steina. Þau tóku mér ávallt vel og átti ég visst athvarf hjá þeim á þess- um árum . Þarna var Rúna Björk ung stelpa, mjög skemmtileg. Steini var góður dansari og var afar gaman að taka sporið með honum. Hann dansaði til dæmis vel djæf og fleiri dansa. Þegar kom að því að ég vildi kaupa mér bíl var Steini mér mikil stoð og stytta og aðstoðaði mig við bílakaupin á allan máta. Steini keyrði sendibíl til fjölda ára og var einn af fyrstu bílstjór- um Nýju sendibílastöðvarinnar og var mjög ötull við þá vinnu og fór hann stundum með hljómsveitir út á land um helgar. Nú á síðari árum átti Steini við heilsufarsvanda að stríða og fór hann meðal annars í mjög erfiða aðgerð fyrir um 15 árum. Þá var honum haldið sofandi svo vikum skipti og varla hugað líf um tíma. Mér fannst hann aldrei ná fyrri styrk eftir þetta. Á undanförnum árum hafa Steini og Dúna haft mikið yndi af því að ferðast til sólarlanda og hafa oft farið tvisvar sinnum á ári sér til eflingar og heilsubótar. Ég er viss um að Steini fær góðar móttökur frá móður sinni og fleirum á æðra tilverustigi. Ég vil að endingu þakka Steina mági mínum samfylgdina í gegnum árin og bið guð að geyma hann. Þóra Einarsdóttir. Nú þögn er yfir þinni önd og þrotinn lífsins kraftur í samvistum á sæluströnd við sjáumst bráðum aftur. (Ingvar N. Pálsson.) Nú er hann Steini hennar Dúnu farinn í sumarlandið sadd- ur lífdaga. Annan í páskum fékk Steini heilablæðingu og lést í kjölfarið sex dögum seinna. Mér finnst ég hafa þekkt hann Steina alla mína ævi og mjög vel frá því ég fluttist að heiman þá 16 ára og eru því liðin 45 ár. Ég hef í 45 ár verið mikið viðloðandi heimili Steina og Dúnu, fyrst sem unglingur og síðan móðir og að lokum amma. Alltaf þegar Steini og Dúna fóru til sólarlanda, sem þau gerðu einu sinni til tvisvar á ári, var ég beðin um að líta eftir Rúnu og vera henni innan hand- ar, þ.e.a.s. ef hún fór ekki með þeim og þá var alltaf farið yfir sömu rulluna um bankahólfið og hvar það væri ef flugvélin færist nú. Ég tók nú ekki betur eftir því öll þessi ár, en að ég hefði örugg- lega aldrei fundið hólfið ef eitt- hvað hefði komið fyrir, mér fannst alltaf svo fyndið þegar rullan um bankahólfið hófst hjá þeim, enda þekkti ég ekki nokk- urn mann sem var með banka- hólf. Steini, Dúna, Rúna og fjöl- skylda hennar voru alltaf kölluð til ef eitthvað var um að vera í fjölskyldunni okkar og gagn- kvæmt. Skírn, ferming, útskrift, skírn barnabarnanna, jólaboðin og svo í áramótaboðin, alltaf voru þau talin með og gaman að hafa þau með okkur. Eins og gengur og gerist hjá öllum með hækkandi aldri þá fer heilsan að bila og að lokum kveðjum við og höldum í sum- arlandið og þangað er hann Steini kominn núna og orðinn heill heilsu, eða því vil ég trúa og búinn að hitta þá sem voru þar fyrir. Alla tíð tók Steini mér vel, og aldrei varð okkur sundurorða. Steini var ekki maður margra orða, sérstaklega hin síðari ár, en alltaf tókst mér þó að fá hann til að brosa svolítið að bullinu í mér. Síðustu þrjú árin höfum við Krissi búið í nágrenni við Steina og Dúnu og notið þess að fá þau í kaffibolla við og við. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson.) Ég er þakklát fyrir þá gæfu að hafa átt vegferð með Steina í öll þessi ár. Ég og fjölskylda mín þökkum og blessum minningu góðs manns. Guðrún B. Ketilsdóttir (Lilla). Þorsteinn Hjartarson MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 ✝ GuðmundurReynir Guð- mundsson fæddist í Kolviðarnesi í Eyja- hreppi 22. mars 1941. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 8. apríl 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, f. 15. sept. 1902, d. 24. jan. 1993, og Margrét Guð- jónsdóttir, f. 3. mars 1923, d. 2. maí 2013, bændur í Dalsmynni, Eyjahreppi. Systkini Guðmundar Reynis eru Eygló, f. 13. apríl 1940, Ágúst Guðjón, f. 6. júlí 1943, Ástdís, f. 18. sept. 1944, Svava Svandís, f. 4. okt. 1946, Margrét Svanheiður, f. 18. ágúst 1948, Svanur Heiðar, f. 29. nóv. 1950, maí 1999, og Reynir, f. 4. okt. 2007. 3) Guðmundur, f. 4. ágúst 1978, eiginkona Nína Rún Hösk- uldsdóttir, f. 10. ágúst 1978, börn þeirra eru Emma, f. 10. nóv. 2006, og Guðmundur Tóm- as, f. 1. júlí 2010. 4) Hrönn, f. 1. ágúst 1983, sambýlismaður Gunnar Máni Hermannsson, f. 16. júlí 1985, sonur hans er Óm- ar Freyr, f. 25. okt. 2007, sonur þeirra er Frosti, f. 15. jan. 2018. Guðmundur Reynir ólst upp í Kolviðarnesi til sjö ára aldurs en flutti þá í Dalsmynni í Eyja- hreppi þar sem hann bjó öll sín uppvaxtarár. Hann hóf búskap í Borgarnesi árið 1967 ásamt Herdísi konu sinni. Guðmundur Reynir lauk vél- stjóraprófi frá Vélskóla Íslands 1962. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Borgarnesi, lauk sveinsprófi þaðan í múrsmíði 1971 og hlaut meistararéttindi 1974. Hann starfaði við múrverk alla tíð, fyrst sjálfstætt en í Loft- orku frá 1981. Útför Guðmundar Reynis fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 20. apríl 2018, klukkan 14. Kristján Guðni, f. 2. sept. 1952, Tryggvi Gunnar, f. 23. júní 1956, Sigrún Haf- dís, f. 9. apríl 1960, og Skarphéðinn Pálmi, f. 11. apríl 1962. Þann 6. júlí 1968 kvæntist Guð- mundur Reynir Herdísi Jónas- dóttur, f. á Innra- Leiti 15. júní 1950. Foreldrar hennar voru Jónas Guðmunds- son, f. 27. apríl 1905, d. 27. júlí 1978, og Lára Jóelsdóttir, f. 11. mars 1909, d. 23. mars 1969, bændur á Læk, Skógarströnd. Börn þeirra eru: 1) Jónas, f. 24. apríl 1970, 2) Fjóla, f. 11. feb. 1972, börn hennar og fyrrv. eig- inmanns, Ólafs Árnasonar, eru Saga, f. 27. sept. 1997, Hugi, f. 6. Í dag berum við til grafar elsku- legan föður minn. Elsku pabbi, ég trúi ekki að þú sért dáinn – það trúir því enginn! Þú, manna hressastur og hraust- astur. Það var nú bara fyrir rétt rúmu ári sem þú hjálpaðir mér að bera níðþungan eikarskáp upp fjórar hæðir til mín. Þú varst síst þreyttari en ég. Og bara fyrir þremur vikum náðu barnabörnin að plata þig út í fótbolta á Kveld- úlfsgötunni góðu. Þú varst alltaf svo hjálpsamur og áhugasamur um það sem gekk á í mínu lífi, en oftar en ekki fór spjall okkar út í vinnutengd efni. Það er kannski ekki skrítið þar sem við vorum vinnufélagar til margra ára. Þú kenndir mér ótalmargt, en það var kannski ekki alltaf auðveldast í heimi að vinna með pabba sínum. Í dag hugsa ég um þessa daga með hlýju og þykir mjög vænt um þessi ár. Þeir eru fáir sérvitrari en þú varst, en vandvirkari er enginn. Þú gerðir allt eftir þínu höfði, gafst ekki mikið fyrir það sem „hvít- hjálmarnir“ sögðu. Þú sagðir alltaf: „Bara hlusta á þá og segja já og amen, en gera síðan eitthvað gáfu- legt.“ Þau voru líka fá verkfærin sem ekki mátti betrumbæta eitt- hvað aðeins og síðan var líka bara hægt að finna eitthvað stórkostlegt upp. Uppfinningarnar eru margar hverjar alveg kostulegar: sigti og flísasög knúin þvottavélamótorum, „skódarnir“ og allir færanlegu tor- færuvinnupallarnir með hjólböru- dekkjunum. Þú varst yndislegur afi. Það sem barnabörnin gátu platað þig út í og alltaf varst þú til. Ég man ekki eftir því að hafa spilað við þig fótbolta í æsku, en það sem þú gast leikið við afabörnin: Fótbolti, kubb, hið heimatilbúna krolf og svo ekki sé minnst á að tjalda úti á túni um miðjan apríl! Þú gerðir líka margt fyrir okkur systkinin: hentir upp steyptri sundlaug í bakgarðinum og leyfðir mér að sigla litlu skút- unni þinni eins og ég nennti þegar ég var gutti. Þú varst fljótur að fara, pabbi. Enginn var tilbúinn að kveðja, enginn nema þú. Þú varst tilbúinn og sterkur fyrir okkur hin. Úr því sem komið var varst þú ekk- ert að tvínóna við hlutina. Þú laukst þessari stuttu baráttu hratt og örugglega. … og fyrirgefðu, pabbi, þú vildir víst engan lofsöng eftir þína daga – það er bara ekki annað hægt! Vertu sæll og blessaður, besti pabbi í heimi. Þinn sonur, Guðmundur. Ég sit í stofunni á Kveldúlfsgöt- unni og horfi út um gluggann, út á sjóinn, og rifja upp minningar um pabba. Það var einmitt í þessari stofu sem við Gummi bróðir vorum að fljúgast á yfir fréttunum og pabbi skammaði okkur (enda vor- um við frekar óþolandi). Þetta er eina skiptið sem ég minnist þess að pabbi hafi skammað mig, og þegar ég hugsa til baka þá held ég að hann hafi nú bara aðeins hækkað róminn og sagt: „Óttaleg læti eru þetta í ykkur, krakkar.“ Pabbi var með einstakt jafnaðargeð og ef- laust of mikið, svona uppeldislega séð. Ég get rifjað upp alveg ógrynni af ljúfum minningum úr barnæsku, til dæmis kofasmíði í garðinum, skútusiglingar úr fjör- unni heima, öll ferðalögin um land- ið (með mig bílveika) og ýmislegt bras með pabba. Einhverra hluta vegna var honum mikið í mun að ég yrði ekki öðrum háð og gæti bjarg- að mér sjálf. Þegar ég var yngri lét hann mig gera allskonar, til dæmis mála, sparsla, negla, bora og síðast en ekki síst skipta um dekk á bíln- um mínum. Ekki vildi hann vita af litlu stelpunni sinni bjargarlausri uppi á heiði með sprungið á bílnum! Já, hann pabbi minn var ein- stakur karl og ég er viss um að margir taka undir það. Einmitt þess vegna gerði sér enginn grein fyrir því að krabbameinið myndi leggja hann að velli og hvað þá svona snögglega. Pabbi var alltaf svo hraustur og jákvæður að hann myndi nú sigra þennan fjanda jafn auðveldlega og að drekka vatn. Svo var ekki. Það er ólýsanlega sárt að kveðja pabba sinn. Pabbi var líka einstakur afi og mesta eftirsjáin er að Frosti minn fái ekki að kynnast honum betur. Ég veit að þegar pabbi á lausa stund þá fylgist hann með okkur úr fjarlægð, en ef ég þekki karlinn rétt þá situr hann ekki auðum höndum þar sem hann er staddur núna. Hrönn. Heilsteyptur, traustur, rólynd- ur, góður, pælari, iðinn, brosmild- ur, sérvitur, hjálpsamur … þetta eru orðin sem koma upp í hugann þegar ég minnist elsku pabba. Meira jafnaðargeð er vart hægt að ímynda sér. Það var sko ekki verið að æsa sig yfir hlutunum. Ég man t.d. aðeins eftir því að hann hafi skammað mig einu sinni. Einu sinni. Og þá var ég orðin tólf ára. Samt var ég ekkert sérstaklega stillt barn. Það var svo gaman að spá og spekúlera með pabba og hann kom oft með sniðugar hugmyndir þegar maður var að pæla eitthvað. Og þau eru ófá handtökin sem liggja eftir hann á heimili mínu. Það þurfti varla að biðja, hann var mættur með kerruna fulla af múr- græjum ef einhverjar framkvæmd- ir voru fyrirhugaðar. Dásamlegt var að fylgjast með honum sinna barnabörnunum, þeirra missir er ákaflega mikill. Afi var alltaf til í að fara út að leika, nið- ur í fjöru, út á róló, eða í fótbolta, en á efri árum komu í ljós áður óþekktir hæfileikar á því sviði! En það var líka notalegt að sitja í ró- legheitum hjá afa og lesa eða spila. Það er hvergi betra að vera en á Kveldúlfsgötunni. Gagnkvæmt traust, virðing og ást ríkti alltaf milli mömmu og pabba og fann maður það sterkt á heimili þeirra, þar er alltaf friður og ró. Pabbi tók veikindum sínum af miklu æðruleysi og skildi sáttur við þessa tilvist. Það hentaði honum svo sannarlega ekki að liggja veik- ur og kláraði hann þetta síðasta verkefni sitt af sömu drift og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Söknuðurinn er sár, tómarúmið er mikið en ljúfar minningar streyma fram. Hafðu þökk fyrir allt, elsku pabbi, sofðu rótt. Þín Fjóla. Afi, þú gerðir líf mitt betra. Þú varst alltaf svo glaður og góður. Ef ég væri með nógu mikla málningu myndi ég mála allan heiminn fyrir þig, afi, fyrir þig. Ég man þegar við fórum saman í myllu og þú vannst mig eiginlega alltaf. Ég man eftir sumrunum þegar við fórum saman í fótbolta – oh hvað það var gaman. En nú er allt breytt, nú mun ég ekki koma í Borgarnes og fá knús frá þér. Þú og amma voruð alveg einstök. Þú og amma, þú og amma. Nú kveð ég þig, afi, nú kveð ég þig, nafni. Reynir Ólafsson. Í dag kveðjum við með söknuði kæran bróður. Reynir var næst- elstur ellefu barna Guðmundar og Margrétar í Dalsmynni. Hann var fæddur í Kolviðarnesi, við sjóinn þar sem Snæfellsjökull og allur fjallahringurinn skartar sínu feg- ursta. Á þessum tíma fengu börn snemma að taka þátt í bústörfun- um og Eygló, elsta systirin, minnist þess að í Kolviðarnesi, þar sem Reynir ólst upp fyrstu árin, hafi hann mjög snemma verið farinn að gera gagn. Hann tók þátt í að gæta yngri systkinanna, snúast í kring- um skepnur o.fl. Þá kom fljótt í ljós hve samviskusamur og ábyrgur hann var, að gera vel og ljúka því strax sem hann var beðinn um að gera. Þegar hann var sjö ára flutti fjölskyldan að Dalsmynni og þó að búskapurinn hafi ekki heillað hann vann hann öll sín verk af mikilli samviskusemi og vandvirkni og þannig var hann allt sitt líf, gegn- heill maður með ljúfa lund og skipti sjaldan skapi. Þeir Gústi bróðir fóru saman á samning hjá Stefáni Jónssyni og lærðu múrverk. Þeir unnu mikið saman fyrstu árin en svo hóf Reyn- ir sitt ævistarf hjá Loftorku. Áður hafði hann farið í Vélskólann og vann um tíma á bílaverkstæði en fór svo sem vélstjóri á sjó nokkrar vertíðir. Eitt sinn hafði Gústi tekið að sér of mikla vinnu og bað Reyni að koma í land og vinna með sér sem hann gerði, en stuttu seinna fórst báturinn. Lánið lék svo oft við Reyni, hann hitti hana Heddý sína, yndislega stúlku af Skógarströndinni. Þau komu sér upp húsi á Kveldúlfsgöt- unni í rólegheitum og gáfu sér góð- an tíma til þess. Þar bjuggu þau sér og börnunum notalegt heimili, fullt af væntumþykju og hlýju. Þangað var alltaf gott að koma og áttum við öll margar góðar samverustundir þar, bæði þegar stórfjölskyldan kom saman í Borgarnesi og eins dvöldumst við yngri systkinin hjá þeim um tíma vegna vinnu. En skjótt skipast veður í lofti. Við hitt- um Reyni í lok mars kátan og hressan eins og hann átti að sér að vera, hálfum mánuði seinna kvaddi hann þessa jarðvist eftir snarpa baráttu við krabbamein. Það er erf- itt að sætta sig við að Reynir, sem alla tíð var við hestaheilsu með fulla starfsorku, væri kvaddur á brott svo skyndilega. Þetta varð öllum mikið áfall og er hugur okkar og samúð hjá Heddý og fjölskyldunni allri. Þau hjónin voru nýhætt að vinna og farin að njóta efri áranna. Með ferðalög í farvatninu og bjarta framtíðardrauma. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Elsku Heddý, Jónas, Fjóla, Guðmundur, Hrönn og fjölskyldur, það er skarð fyrir skildi hjá ykkur öllum. Megi guð og góðar vættir veita ykkur styrk á erfiðum tíma. Systkinin frá Dalsmynni, Eygló, Ágúst, Ástdís, Svandís, Margrét, Svanur, Kristján, Tryggvi, Sigrún og Skarphéðinn. Minn kæri Reynir. Nú er komið að kveðjustund, mér finnst það bara ekki geta verið en svo er það víst. Á svona stund sér maður hve dýrmætar minningar eru og á ég þær margar. Árshátíðir, þorrablót, réttir og lengi mætti telja og eiga þær allar það sameiginlegt að vera fullar af hlátri, gleði og væntum- þykju, ein af mínum dýrmætustu minningum er þegar þú og Birgir frændi fóruð með okkur krakkana í göngu upp á Bíldhólsfellið og man ég hvað mér þótti merkilegt að fá að fara með og hef líklegast talað alla leiðina upp og líka niður gæti ég trúað. Það sem er mér líka dýrmætt er að börnin mín fengu að kynnast þér og eiga sínar minningar um þig. Ég vil bara þakka þér, kæri Reynir, fyrir allar góðu stundirnar. Elsku Heddý, Jónas, Fjóla, Guðmundur, Hrönn og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar óskir um að guðs englar og góðar vættir vaki yfir ykkur alla tíð Eva María Jóelsdóttir. Guðmundur Reyn- ir Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Ég vil ekki gera upp á milli afa minna, en ég get sagt það að þú hefðir ekki getað verið betri afi fyrir mér. Þú varst svo góður að vilja nánast alltaf fara út að leika með mér, Tómasi og Reyni. Þú varst líka góður á margan annan hátt. Ef ég ætti eina ósk myndi ég óska mér að þú værir ennþá á lífi og að ekk- ert af þessu hefði gerst. Ég gleymi þér aldrei. Þín Emma.  Fleiri minningargreinar um Guðmund Reyni Guðmunds- son bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.