Morgunblaðið - 20.04.2018, Page 36

Morgunblaðið - 20.04.2018, Page 36
FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Gamalt bankaútibú verður heimili 2. Ólafur Elíasson selur … glæsihús 3. Grunur um að Sindri sé á Spáni 4. Mengunarvörn fannst … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter er annar myndlistarmaðurinn sem ræðst inn í Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn í öðrum innrásarlið sýningarinnar List fyrir fólkið og verður sýning hennar opnuð í safninu á morgun kl. 16. Hrafnhildur tekst á við verk myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar og bygginguna sjálfa, en hún er þekkt fyrir stórar og litríkar innsetningar sem unnar eru úr hári. Morgunblaðið/Golli Innrás Shoplifter  Söngsveitin Ægisif heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun kl. 17 og syngur á þeim kórverkið Bjöll- urnar ásamt völd- um perlum úr Náttsöngvunum eftir Sergej Rachmaninoff. Kórsinfóníuna Bjöllurnar samdi Rachmaninoff árið 1913 og hefur verkið ekki verið flutt áður hér á landi. Einsöngvarar verða Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Hrafnhildur Árnadóttir og Fjölnir Ólafsson. Píanóleikari er Anna Guðný Guðmundsdóttir. Bjöllur frumfluttar  Kammersveitin Stelkur heldur út- gáfutónleika annað kvöld kl. 20 í Ár- bæjarsafni vegna plöt- unnar Stórval sem inniheldur samnefnt verk Charles Ross sem er tileinkað og byggt á verkum myndlistar- mannsins Stórvals. Stelkur fagnar útgáfu Stórvals Á laugardag Hæg austlæg átt og skýjað með köflum en austan 5- 13 m/s um kvöldið og yfirleitt þurrt en dálítil rigning SA-lands. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast SV-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Lítils- háttar væta norðan heiða, en stöku skúrir syðra. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast sunnanlands. VEÐUR Ég held að við séum að fara fá svakalega viðureign á milli Tindastóls og KR. Stólarnir pökkuðu KR eftirminnilega í bikarúrslitaleiknum. Það að vinna titil fær menn til að vilja vinna fleiri titla. Að vinna titla er eins og kynlíf, segir Bene- dikt Guðmundsson um rimmu KR og Tindastól um Ís- landsmeistaratit- ilinn í körfuknatt- leik karla. »4 Að vinna titla er eins og kynlíf Hann var ekki æsispennandi, fyrsti leikur úrslitaeinvígis úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í gærkvöldi. Haukar sigruðu Valskonur á mjög sannfærandi hátt, 85:68, og tóku forystuna í rimmunni en vinna þarf þrjá leiki til að hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Haukar réðu ferðinni allan tímann og eru nú 1:0 yfir í einvíginu. Liðin mætast næst á Hlíðarenda á morgun. »2 Haukar unnu mjög sannfærandi sigur „Stjarnan er metnaðarfullt félag sem áratugum saman hefur átt kvenna- handboltalið í allra fremstu röð hér á landi. Mér finnst það fyrst og fremst vera heiður að fá að vinna fyrir félag- ið og um leið að standa í baráttu um titla,“ segir Sebastian Alexandersson sem í gær var ráðinn þjálfari kvenna- liðs Stjörnunnar í handknattleik ásamt Rakel Dögg Bragadóttur. »4 Fyrst og fremst heiður að vinna fyrir Stjörnuna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég vil leggja allt í að komast vel frá því sem ég geri. Ná því besta sem hægt er út úr hrossinu,“ segir Gunnhildur Birna Björnsdóttir, nemandi á Hvanneyri, sem vann Morgunblaðsskeifuna í ár. Verð- launin eru veitt á skeifudegi Land- búnaðarháskóla Íslands og Hesta- mannafélagsins Grana á Hvanneyri en skeifudagurinn er ávallt sum- ardagurinn fyrsti. Morgunblaðsskeifan er veitt þeim nemanda sem náð hefur bestum samanlögðum árangri í reið- mennskuhluta knapamerkis 3. Allir nemendur starfsmenntabrauta og háskóladeilda Landbúnaðarháskól- ans sem ekki hafa tekið þátt í skeifukeppni áður hafa þátttöku- rétt. Gunnhildur hefur unnið á hesta- búinu á Skáney og telur hún að reynslan þaðan hafi hjálpað sér í skeifukeppninni í vetur. Hún sér nú á eftir trippinu sem hún tamdi í vet- ur í sláturhúsið vegna þess að það er bæklað og ekki hægt að nota það. Framtíðin óráðin Gunnhildur ólst upp á Snartar- stöðum í Lundarreykjadal í Borgar- firði og býr nú í Bæ í Bæjarsveit. Hún segist ekki hafa alist upp við hestamennsku. Hún hafi hins vegar fengið áhugann þegar hún kynntist hestum og hestamennsku hjá Ólöfu Kolbrúnu Guðbrandsdóttur í Nýja- bæ. „Olla er hestaamma mín,“ segir hún. Hún bætir því við að móðir hennar, Gro Jorunn Hansen sem er norsk að uppruna hafi komið hingað til lands vegna áhuga á íslenskum hestum. Faðir hennar er Björn Björnsson sem var bóndi á Snartar- stöðum. Framtíðin er óráðin hjá Gunn- hildi. Hún segist ekki hafa ákveðið hvað hún tekur sér fyrir hendur að loknu búfræðináminu á Hvanneyri. Hún telur þó að hestar muni verða hluti af hennar lífi áfram. Hún lærði hestanudd í Noregi og hefur fengist við það eftir því sem tími hefur gef- ist til. Þá hefur hún mikinn áhuga á ljósmyndun og landbúnaði almennt. „Það er fínt að blanda öllu þessu saman,“ segir hún. Gunnhildur segir að hópurinn í hestafræðinni hafi verið góður í vet- ur og allir duglegir að temja og hugsa um hestana sína. Morgunblaðið hefur veitt Morg- unblaðsskeifuna til nemenda á Hvanneyri samfellt frá árinu 1957. Upphaflega var það að frumkvæði Gunnars Bjarnasonar, kennara við Bændaskólann á Hvanneyri og hrossaræktarráðunautar Búnaðar- félags Íslands. Vildi Morgunblaðið með þessu framtaki sýna hug sinn til þessarar fornu og göfugu íþróttar, hestamennskunnar. Gunn- hildur Birna er 61. skeifuhafinn. Olla er hestaamman mín  Gunnhildur er 61. handhafi Morgun- blaðsskeifunnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fimm efstu Ágúst Gestur Guðbjargarson varð í 5. sæti Skeifukeppninnar, lengst til vinstri á myndinni, Dagrún Kristinsdóttir í 4. sæti, Heiðar Árni Baldursson í 3. sæti, Hólmfríður Ruth Guðmundsdóttir varð önnur og Gunn- hildur Birna Björnsdóttir sigraði. Lengst til hægri er reiðkennarinn, Heiða Dís Fjeldsted. Fjöldi viðurkenninga er veittur á skeifudaginn, auk Morgunblaðs- skeifunnar. Heiðar Árni Bald- ursson sigraði í fjórkeppni nem- enda og fékk Gunnarsbikarinn sem gefinn var til minningar um Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunaut og kenn- ara. Heiðar vann einnig reið- mennskuverðlaun Félags tamn- ingamanna. Daníel Atli Stefánsson fékk framfarabikar Reynis fyrir góða ástundum og framfarir í náminu en bikarinn er gefinn til minningar um Reyni Aðalsteinsson, tamningameistara og reiðkennara. Rebekka Rún Helgadóttir fékk Eiðfaxabikarinn fyrir bestu einkunn í bóklegum áfanga hestafræðinnar. Þá kepptu nemendur úr námskeiðsröðinni reiðmanninum í gangtegunda- og fimikeppni sem Reynir Aðal- steinsson útfærði upphaflega. Sigurður Halldórsson sigraði og fékk Reynisbikarinn. Fóru heim með bikarana FJÖLDI VIÐURKENNINGA AFHENTUR Sigurvegari Gunnhildur Birna Björnsdóttir með verðlaunin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.