Morgunblaðið - 23.04.2018, Side 1
Handtekinn Sindri Þór er nú í haldi
lögreglunnar í Amsterdam.
Sindri Þór Stefánsson, sem strauk
úr fangelsinu á Sogni í síðustu viku,
var handtekinn í miðborg Amster-
dam í Hollandi í gær. Þetta staðfesti
Rob van der Veen, talsmaður lög-
reglunnar í Amsterdam, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Hann sagði lögregluna í Amster-
dam ekki vilja tjá sig frekar um
kringumstæður handtökunnar að
svo stöddu, en sagði jafnframt að
málið væri nú hjá héraðssaksóknara
í Amsterdam og yrði haft samband
við íslensk yfirvöld um framhaldið.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti
einnig handtöku Sindra Þórs, en
sagðist ekki geta tjáð sig um næstu
skref þegar mbl.is ræddi við hann
seint í gærkvöldi.
Lögmaður Sindra Þórs, Þorgils
Þorgilsson, sagði við mbl.is í gær-
kvöldi að hann hefði ekki heyrt af
handtökunni annað en það sem kom-
ið hefði fram í fjölmiðlum.
Sindri Þór laumaðist út um
glugga aðfaranótt þriðjudags á með-
an hann var vistaður í fangelsinu á
Sogni. Áður en það uppgötvaðist
komst hann um borð í flugvél Ice-
landair til Stokkhólms í Svíþjóð.
Sindri
handtekinn í
Amsterdam
Næstu skref
liggja ekki fyrir
M Á N U D A G U R 2 3. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 94. tölublað 106. árgangur
MARGFALDUR
MEISTARI Í
FRJÁLSUM
FLJÓTUR AÐ HLAUPA 5 KM
LISTAHÁTÍÐ ER
HÁTÍÐ ALLRA
LANDSMANNA
HLYNUR ANDRÉSSON ÍÞRÓTTIR VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR 26
Geðfatlaður og býr í bíl
Hefur ekki tölu á þeim fundum sem hún hefur farið á vegna vanda föður síns
965 á biðlista eftir félagslegu húsnæði í borginni Meðalbið lengri en þrjú ár
verið til um 120 viðtakenda; þing-
manna, ráðherra, borgarstjórans í
Reykjavík og yfirmanna velferðar-
mála.
Steindór Einarsson, faðir Aldísar,
er geðfatlaður, hann hefur verið hús-
næðislaus í um tvö ár og þrátt fyrir
að hafa verið efstur á biðlista í marga
mánuði eftir félagslegu húsnæði hjá
þeirri þjónustumiðstöð borgarinnar
sem fer með hans mál fær hann ekk-
ert húsnæði úthlutað. Hann heldur
nú að mestu leyti til í bifreið sinni.
Aldís er talsmaður föður síns og
segist ekki hafa tölu á öllum þeim
fundum sem hún hefur farið á vegna
húsnæðisvanda hans. „Ég finn til
með öllum þeim sem eru í sömu spor-
um og pabbi og eru ekki með neinn
til að tala fyrir sig,“ segir hún.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Með því að segja frá aðstæðum
Steindórs í opnu bréfi vonar fjöl-
skyldan að hver sá sem les þetta geti
á einhvern hátt aðstoðað fjölskyld-
una við að koma Steindóri í öruggt
viðeigandi frambúðarhúsnæði.“
Á þessum orðum endar opið bréf
sem Aldís Steindórsdóttir sendi ný-
Biðin langa
» 965 bíða eftir félagslegu
húsnæði í borginni.
» Meðalbiðtími í fyrra var 38
mánuðir.
» Það er meira en tvöfalt
lengri bið en árið 2010.
MBúin að tæma » … 11
Sólin hellti hlýjum geislum sínum yfir landið um
helgina og í borginni mátti víða sjá bros á andliti
fólks. Í Árbæjarsafni, á síðasta degi Barnamenn-
ingarhátíðar, var boðið í ýmsa leiki sem vant
fólk stjórnaði og hentuðu börnum sem full-
orðnum. Var meðal annars farið í boltaleiki,
pokahlaup, hafnabolta og stultugöngu og syst-
urnar ungu fóru í lystireisu um safnlóðina á baki
föður síns.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Systurnar bornar á baki föður síns
Líf og fjör í Árbæjarsafni á síðasta degi Barnamenningarhátíðar í Reykjavík
Nýr samningur Sjúkratrygginga
Íslands við ljósmæður í heimaþjón-
ustu sem starfa sem verktakar ligg-
ur ósamþykktur í ráðuneytinu og
hefur verið þar frá því fyrir páska.
Svandís segist ekki hafa heyrt frá
ljósmæðrum og hún hafi fyrst heyrt
af aðgerðunm í fjölmiðlum.
„Það voru tilteknir þættir í þess-
um samningsdrögum sem þörfnuð-
ust viðbragða frá Landspítalanum
og sjúkrahúsinu á Akureyri,“ segir
hún. Svar sjúkrahússins á Akureyri
barst ráðuneytinu 6. apríl sl. en enn
er beðið viðbragða Landspítalans.
„Ég mun funda um þetta mál í ráðu-
neytinu í fyrramálið,“ segir Svan-
dís.
Miklar líkur eru á því að álag á
Landspítalann aukist næstu daga, en
ljósmæður á Landspítala mega ekki
ganga í störf heimaljósmæðra. »2
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að aðgerðir ljós-
mæðra í heimaþjónustu hafi komið
á óvart, en minnst 60 af 95 ljós-
mæðrum í heimaþjónustu leggja
niður störf í dag vegna óánægju
með kjaramál sín. „Það kemur mér
á óvart að þetta skuli koma fyrst
fram í fréttum með sólarhrings-
fyrirvara, ég hef ekki heyrt í ljós-
mæðrum sjálf,“ segir Svandís.
Undrast aðgerðir ljósmæðra
60 ljósmæður leggja niður störf Bíða svara Landspítala
Sá fjöldi fram-
boða sem nú er
kominn fram fyr-
ir borgarstjórn-
arkosningarnar í
Reykjavík í
næsta mánuði
leiðir til þess að
athygli fjölmiðla
dreifist. „Grund-
völlur lýðræð-
isins er sá að þegar við greiðum at-
kvæði sé það upplýst ákvörðun
enda höfum við áður kynnt okkur
um hvað er að velja,“ segir Birgir
Guðmundsson stjórnmálafræð-
ingur og dósent við Háskólann á
Akureyri.
Birgir segir að 90% frambjóð-
enda telji að mikilvægt sé að vera á
Facebook til að koma sínum sjónar-
miðum á framfæri. »6
Facebook er mikil-
vægt í kosningunum
Birgir
Guðmundsson
ÁRNÝ HEIÐARSDÓTTIR 12