Morgunblaðið - 23.04.2018, Side 2
Ljósmynd/Aðsend
Maraþonhlaupari Helga Erlingsdóttir ásamt dóttur sinni, Sigrúnu Briem.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Helga Erlingsdóttir hlaupakona var
meðal rúmlega 40 þúsund hlaupara
sem tóku þátt í Lundúnamaraþon-
inu í gær. Afar heitt var í London í
gær, hitinn mældist 24,1 stig og hef-
ur maraþonið aldrei verið hlaupið í
jafnmiklum hita.
„Þetta er náttúrlega alveg ótrúleg
upplifun að hlaupa hérna. Það var
bara svakaleg stemning alla leiðina,
frá upphafspunkti og út á enda, fullt
af fólki meðfram allri brautinni,“
sagði Helga í gær að hlaupinu loknu.
Um aðstæðurnar sagði hún að það
hefði verið fremur heitt. „Mér skilst
að það hafi ekki verið svona heitt í
þessu hlaupi áður. Það var alveg
óhemju heitt í dag [í gær], það var
búið að setja upp eitthvað af auka-
sturtum þannig að hlauparar gátu
hlaupið í gegnum þær. Það var bætt
við vatnsbirgðum, það var vatn, gel
og orkudrykkir.“
Að sögn Helgu var vel að hlaup-
inu staðið og skipulagið til fyrir-
myndar. Hún staðhæfði að þrátt
fyrir mikinn fjölda þátttakenda og
áhorfenda „gekk þetta alveg eins og
í sögu“.
„Hlaupararnir voru rosalega mik-
ið að hjálpa hver öðrum alls staðar.
Ef einhver datt eða var alveg ör-
magna studdu hlaupararnir hver
annan. Löbbuðu bara að þessum og
hinum þótt þeir væru kannski að
keppa að einhverjum tíma sjálfir.
Þetta fannst mér alveg ótrúlega
flott, alveg meiriháttar,“ sagði
Helga. Hún bætti við að gríðarlega
góður andi hefði verið í maraþoninu,
bæði meðal hlaupara og áhorfenda.
Ánægð með árangurinn
Helga sagði að sér hefði gengið
ágætlega. „Ég náði nú ekki mínu
markmiði, ég fékk einhvern hlaupa-
sting þegar ég var komin 20 kíló-
metra og þurfti að hægja á mér. Það
hafði gengið mjög vel fram að því.
Svo þegar ég var komin 30 kíló-
metra var ég komin með stein-
steypu í lærin þannig að þetta var
svolítið öðruvísi en ég hafði hugsað
mér.“
Helga kom í mark á tímanum
03:43:37 og sagðist mjög sátt við
árangurinn. „Ég er bara ánægð að
hafa komið mér í mark. Það voru nú
sumir komnir 40 kílómetra og áttu
tvo eftir og komust bara ekki
lengra.“
Helga hljóp í hlýjasta Lund-
únamaraþoninu frá upphafi
Hlaupið í gegnum sturtur Hitamet slegið Svakaleg stemning og hjálpsemi
AFP
London Um 40 þúsund hlauparar tóku þátt í Lundúnamaraþoninu í gær.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Unnið er að því
að setja upp
eftirlits-
myndavélar í
Kópavogi um
þessar mundir.
Vélarnar verða
settar upp á
Fífuhvammsvegi
og við Skógar-
lind. Samningur
hefur verið und-
irritaður milli Kópavogsbæjar,
Neyðarlínunnar og lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu til að tryggja
að einungis lögreglan hafi aðgang
að efni vélanna.
„Þetta er verkefni sem var sett
inn í íbúakosningu að ósk íbúa í
Lindahverfi í verkefninu Okkar
Kópavogur,“ sagði Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, um
myndavélarnar en umrædd kosning
fór fram í janúar og febrúar síðast-
liðnum. Ármann segir hugmyndina
að verkefninu hafa komið frá íbúa
vegna hárrar innbrotatíðni í Kópa-
vogi fyrir um tveimur árum og að
fyrirmyndin hafi verið sambærilegt
myndavélakerfi í Hveragerði. „Ég
hafði á sínum tíma samband við
sveitarstjórnarfulltrúa í Hveragerði
og hann taldi að þetta hefði fæling-
armátt. Það er þó erfitt að mæla
hvort þetta hefur komið í veg fyrir
innbrot eða ekki.“
Um er að ræða 12 myndavélar,
þar af fjórar sem taka myndir af
bílnúmerum og átta yfirlitsvélar.
Kostnaður er fjórar milljónir króna
í þessum áfanga. thorgrimur@mbl.is
Eftirlits-
vélar í
Kópavogi
Ármann Kr.
Ólafsson
Þær eiga að greina
númeraplötur bíla
Höfuðborgarlistinn ætlar á kom-
andi kjörtímabili að standa fyrir
byggingu 10.000 nýrra íbúða í
Reykjavík, í efri byggðum borg-
arinnar. Íbúðirnar verða sérstak-
lega fyrir einstaklinga og ungt fólk
sem er að kaupa sína fyrstu eign.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
í gær þar sem stefnuskrá framboðs-
ins var kynnt.
Höfuðborgarlistinn ætlar að
hreinsa borgina og halda mengun
ávallt undir viðmiðunarmörkum.
Fjölga á hringtengingum í stofn-
kerfinu, bæta við undirgöngum og
byggja mislæg gatnamót til að létta
álagi af umferðarþyngstu vegum
og gatnamótum borgarinnar.
Sundabraut verður sett í algjöran
forgang, auk þess sem tenging
Skerjafjarðar, Kársness og Álfta-
ness verður útbúin á kostnað Kópa-
vogs og Garðabæjar. sbs@mbl.is
Ætla að byggja 10
þúsund nýjar íbúðir
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Líklegt er að álag aukist til muna á
meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítalans á næstu dögum, en að
minnsta kosti sextíu ljósmæður á
landsvísu sem sinna heimaþjónustu
leggja niður störf í dag til að sýna
óánægju sína með kjaramál sín í
verki. Nýr samningur þeirra við
Sjúkratryggingar Íslands hefur leg-
ið ósamþykktur hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu frá því fyrir páska.
95 ljósmæður
eru skráðar í
kerfi heimaljós-
mæðra, en um
helgina skráðu 60
þeirra sig út úr
því.
„Væntanlega
koma hinar í kjöl-
farið,“ segir Ellen
Bára Valgerðar-
dóttir, ljósmóðir á
Landspítala og sjálfstætt starfandi
ljósmóðir í heimaþjónustu, en hún
segir að nýbakaðir foreldrar muni að
líkindum þurfa að dvelja lengur á
spítalanum og fjöldinn safnast sam-
ann, ekki síst frumbyrjur.
Að hennar sögn eru líkur á því að
einhverjar þeirra kvenna sem liggja
á meðgöngu- og sængurlegudeild
muni missa rétt til heimaþjónustu,
en þær eiga rétt á fimm til sjö vitj-
unum sem þær verða að nýta innan
tíu daga. Aðrar ljósmæður geta ekki
gengið í störf utan spítala í ljósi þess
að leyfi þarf frá landlækni, tilteknar
tryggingar sem verktaki í heilbrigð-
isþjónustu og samning við Sjúkra-
tryggingar.
„Þetta er því miður eina leiðin sem
við getum farið til að bregðast við
þessu,“ segir Ellen Bára og nefnir að
hópurinn sé sá lægst launaði á Ís-
landi í hópi verktaka. Yfirvöldum var
tilkynnt um aðgerðirnar í gær.
Sinna margs konar eftirliti
Spurð hve margar mæður verði
fyrir áhrifum segir hún að erfitt sé
að fullyrða um það, en bendir á að
níu fæðingar að meðaltali séu á
Landspítalanum á degi hverjum.
Einnig sé erfitt sé segja til um hvort
hætta skapist af aðgerðunum.
„Konur hafa auðvitað aðgang að
Landspítalanum, bæði meðgöngu-
og sængurlegudeild og svo bráða-
móttöku barna. Það er samt okkar
hlutverk að fylgjast með nýburun-
um, gulu, þyngdaraukningu, brjósta-
gjöf o.fl. Margar konur eru líka veik-
ari nú en áður, sumar þeirra hafa
háan blóðþrýsting, meðgöngusykur-
sýki og annað sem við höfum eftirlit
með. Þær standa dálítið einar.“
Ljósmæður leggja niður störf í dag
Ljósmæður í heimaþjónustu þrýsta á ráðherra Fjölgun nýbakaðra foreldra á spítalanum viðbúin
Ellen Bára
Valgerðardóttir
Vegna hitastigsins í gær voru hlauparar sérstaklega varaðir við þar sem
malbikið var sagt hafa safnað í sig hita og mikill fjöldi þátttakenda gæti
skapað erfiðar aðstæður.
Mikil hefð er fyrir því að hlaupa í búningum af ýmsum toga í hlaupinu,
en hlauparar voru beðnir að hugsa sig tvisvar um áður en ákvarðanir yrðu
teknar um klæðaburð þar sem fyrirferðarmiklir búningar gætu skapað
hættu.
Árið 2007 lést einn hlaupari og 73 voru sendir á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar vegna hita. Í ár sögðust skipuleggjendur hafa undirbúið sig vel
vegna hitans og var fjórum og hálfum lítra af vatni dreift á hvern þátttak-
anda, meira magni en dreift hefur verið á nokkrum sambærilegum við-
burði. Þrátt fyrir þessa miklu vatnsdreifingu kláraðist vatnið á þremur
drykkjarstöðvum.
Sagt að huga að klæðaburði
FJÓRIR OG HÁLFUR LÍTRI AF VATNI Á HVERN HLAUPARA