Morgunblaðið - 23.04.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Endurvinnsla er óumdeild. Allirvilja minnka sóun og nýta
gæði jarðar eins vel og hægt er.
Þess vegna hafa allir flokkar á
stefnuskrá sinni að endurvinna.
Sumir gangalengra og end-
urvinna jafnvel
sjálfa stefnuskrána.
Það er auðvitað
ekki síður til fyr-
irmyndar, því að um
leið og það kemur í
veg fyrir að prenta
þurfi nýja kosningabæklinga spar-
ar þetta kjósendum tíma. Þeir
þurfa ekki að kynna sér nýjar
áherslur, þær gömlu halda gildi
sínu.
Þetta sást vel um helgina þegarSamfylkingin kynnti stefnu
sína fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar sem fram fara eftir rúman
mánuð.
Á kynningarfundinum sagðiDagur oddviti að húsnæðismál
væru megináskorun stjórnar borg-
arinnar og lofaði að byggja fjölda
íbúða á næsta kjörtímabili.
Fyrir fjórum árum sagði samiDagur líka að húsnæðismálin
væru eitt af helstu málunum. Og þá
lofaði hann byggingu 3.000 íbúða.
Síðan hefur Dagur verið borgar-stjóri og hann hefur, minnugur
mikilvægis endurvinnslunnar, gætt
þess vel að ekki yrði staðið við þetta
mikilvæga kosningaloforð á kjör-
tímabilinu.
Hann vissi að brátt kæmu nýjarkosningar og þá væri vissara
að eiga gott kosningaloforð uppi í
erminni sem hægt væri að endur-
vinna svo eftir yrði tekið.
Dagur B.
Eggertsson
Getur endurvinnsla
gengið of langt?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.4., kl. 18.00
Reykjavík 10 léttskýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 5 skýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 14 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 4 rigning
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 24 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 alskýjað
London 20 léttskýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 20 þoka
Hamborg 20 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 2 snjóél
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 22 heiðskírt
Mallorca 24 heiðskírt
Róm 21 heiðskírt
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 13 skýjað
Montreal 0 heiðskírt
New York 8 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 24 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:27 21:26
ÍSAFJÖRÐUR 5:20 21:43
SIGLUFJÖRÐUR 5:03 21:26
DJÚPIVOGUR 4:54 20:58
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Holuhraunsgos
og Skaftáreldar
af sömu rótinni
Háfjallakvöld í Háskólabíói á morgun
„Sterk rök eru fyrir því að Skaftár-
eldar, eitt allra stærsta eldgos Ís-
landssögunnar og orsök Móðuharð-
indanna 1783-84, hafi orðið samfara
öskjusigi í Gríms-
vötnum inni í
miðjum Vatna-
jökli,“ segir
Magnús Tumi
Guðmundsson
jarðeðlisfræðing-
ur og prófessor
við Háskóla Ís-
lands.
„Þetta skýrir
stærð gossins og
hve einsleit kvik-
an sem upp kom var. Eldgosið í Holu-
hrauni og öskjusigið í Bárðarbungu
samfara því haustið og veturinn 2014
til 2015 urðu með þessum hætti og
vörpuðu þannig nýju ljósi á Skaftár-
elda.“
Magnús Tumi verður meðal frum-
mælenda á svonefndu Háfjallakvöldi
sem haldið verður á morgun í Há-
skólabíói í Reykjavík. Að því standa
Vinir Vatnajökuls og Ferðafélag Ís-
lands í samstarfi við Félag íslenskra
fjallalækna og hefst samkoman kl. 20.
Vatnajökull verður í brennidepli, en
hann hefur verið mikið í sviðsljósinu
vegna jarðhræringa í Öræfajökli og
Bárðarbungu og vegna umsóknar um
skráningu Vatnajökulsþjóðgarðs á
heimsminjaskrá UNESCO.
Aðalfyrirlesari kvöldsins er Norð-
maðurinn Børge Ousland, einn þekkt-
asti núlifandi pólfarinn. Hann þveraði
fyrstur norður- og suðurpólinn einn
síns liðs. Hann hefur þverað Græn-
landsjökul og Vatnajökul frá vestri til
austurs og mun hann segja frá því og
fleiru. Einnig verða sýndar myndir úr
flugferðum Ragnars Axelssonar, ljós-
myndara Morgunblaðsins, og Tómas-
ar Guðbjartssonar læknis yfir Vatna-
jökul. Þá sýna Tómas og Ólafur Már
Björnsson augnlæknir, sem eru for-
sprakkar FÍFL og áhugamenn um
útivist og náttúruvernd, ljósmyndir
og stutt myndbönd úr ferðum sínum
um Vatnajökulsþjóðgarð. Aðgangur
er ókeypis en tekið er á móti styrkjum
til uppbyggingar Vatnajökuls-
þjóðgarði. sbs@mbl.is
Magnús Tumi
Guðmundssson
Morgunblaðið/RAX
Holuhraun Eldgosið stóð lengi og glóandi elfurin flæmdist um stórt svæði.