Morgunblaðið - 23.04.2018, Page 12
Elja Árný er byrjuð að æfa frjálsar
og lætur aldurinn ekki stöðva sig.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég var eiginlega hætt ener samt byrjuð að spriklaaftur,“ segir Árný Heið-arsdóttir, Eyjamær og
margfaldur Íslands-, Norðurlanda-
og Evrópumeistari í frjálsum íþrótt-
um, sem komist hefur fjórum sinn-
um á pall á heimsmeistaramótum í
flokki öldunga.
„Ég byrjaði 14 ára að æfa
frjálsar íþróttir. Pabbi minn var
þjálfari í frjálsum og tók okkur
systkinin með en við erum sjö, fimm
stelpur og tveir strákar,“ segir
Árný. Hún segist hafa hætt að æfa
frjálsar 16 ára.
„Ég komst í unglingalandsliðið
en áhuginn fyrir því að skoða strák-
ana og þræða göturnar eins og ungt
fólk gerir stundum var meiri en að
taka þátt í landsliðsæfingum og ég
hætti að æfa í mikilli óþökk pabba,“
segir Árný og bætir við að stráka-
leitin hafi skilað árangri og hún
kynnst á þessum tíma núverandi
eiginmanni sínum, Ólafi Guðjónssyni
skipstjóra. Saman eiga þau þrjú
börn og sjö barnabörn.
Öll börn Árnýjar hafa orðið Ís-
landsmeistarar í fjálsum íþróttum
og barnabörnin eru farin að æfa
frjálsar.
„Þegar ég var 28 ára var ekkert
um að vera í frjálsum íþróttum í
Eyjum. Anna Día Erlingsdóttir
íþróttakennari var fengin til þess að
Margfaldur Íslands-,
Norðurlanda- og
Evrópumeistari
Árný Heiðarsdóttir byrjaði 14 ára að æfa frjálsar íþróttir. Tveimur árum síðar
hætti hún þrátt fyrir að hafa átt þess kost að æfa með landsliðinu í frjálsum.
Strákarnir og unglingalífið heilluðu meira. Árný byrjaði aftur æfingar 28 ára
gömul og 30 ára keppti hún á fyrsta Íslandsmótinu. Árný keppti þar til hún lenti í
meiðslum fimmtug. Eftir viðburðaríkan feril er Árný aftur farin að æfa frjálsar.
Garpar Þrír ættliðir, Árný, sonur-
inn Árni Óli og dóttir hans Elíana.
Ferðalangur Árný ferðast meira eftir að hún hætti rekstri gistiheimilisins.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
Það er að detta í vor á Íslandi,orðið bjart snemma á morgn-ana, lóan mætt, sumardagur-
inn fyrsti liðinn og bara nokkrir dagar
í að Íslandsmótin í fótbolta hefjist.
Þrátt fyrir að knattspyrnuhallir af
ýmsum stærðum og gerðum spretti
upp eins og gorkúlur víða um land er
fótbolti fyrst og síðast útiíþrótt. Börn,
unglingar, fullorðnir og gamalmenni á
besta aldri spila fótbolta reglulega. Ég
hef gaman af því að fylgjast með
skipulögðum keppnum, horfi á alla
landsleiki og mæti á völlinn til að fylgj-
ast með mínum liðum hvort sem það er
í sjöunda flokki, þriðja flokki eða
meistaraflokki. En ég hef enn meira
gaman af fótbolta sem óskipulagðri
fjölskylduhreyfingu. Fótbolti er ein-
föld íþrótt sem allir geta tekið þátt í.
Leikurinn gengur bara út á að sparka í
bolta og koma honum í mark andstæð-
inganna. Ég á margar góðar minn-
ingar um skemmtilega leiki sem
hvorki KSÍ né FIFA skipulögðu. Leik-
skólakennarar á Birkibæ áttu til dæm-
is stórleik á móti elstu börnunum á
vorhátíð leikskólans árið 2004. Þær
unnu leikinn eftir mikla baráttu við
krakkana sem gáfu þeim reyndar lítið
eftir. Leikur milli foreldra 6. flokks liða
Aftureldingar og Fylkis sem fór fram
tveimur árum síðar, var sömuleiðis
stórskemmtilegur. Bæði fyrir foreldr-
ana og fyrir krakkana sem fannst frá-
bært að skipta einu sinni um hlutverk
við foreldra sína og fá að hvetja þá til
dáða af hliðarlínunni. Foreldrar 3.
flokks Aftureldingar áttu sömuleiðis
stórleik gegn ungu atvinnumönnunum
sínum á fótboltamaraþoni flokksins í
fyrra. Mömmur og pabbar sýndu þar
óvænta takta og komu sonum sínum í
opna skjöldu með yfirvegun og útsjón-
arsemi. Svo er upplagt að tengja fót-
bolta við ferðalög, við fjölskyldan brut-
um upp fyrir nokkrum árum ferðalag
frá Bjarnafirði á Ströndum í Mosfells-
bæ með því að stoppa á öllum batta-
völlum á leiðinni og spila stuttan leik.
Hólmavík, Búðardalur, Bifröst, Borg-
arnes, Kjalarnes, Mosfellsbær voru
leikstaðirnir í mjög eftirminnilegri
ferð. En sá leikur sem ég man hvað
mest eftir þegar ég hugsa um fótbolta
sem fjölskylduíþrótt var leikur inn-
flytjendafjölskyldu í Danmörku. Þau
voru fjögur. Pabbi og dóttir á móti
mömmu og syni. Ólínustrikaður leik-
völlur í Munkemose-garðinum í Óðins-
véum. Glampasól. Brosandi andlit.
Leikgleði á hæsta stigi. Við konan mín
vorum barnlaus á þessum tíma, en ég
man eftir því að hafa hugsað að þetta
ætlaði ég sko að gera þegar við mynd-
um eignast börn.
Njótum ferðalagsins!
Gaui.
Hugleiðingar um heilsu og hamingju
Morgunblaðið/Eggert
Gaman saman Fótbolti er einföld íþrótt sem allir geta tekið þátt í.
Leikgleðin er málið
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi, sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Félagar úr Sunnukórnum og nem-
endur Tónlistarskóla Ísafjarðar
ásamt fleirum taka þátt í nemenda-
óperu Söngskólans í Reykjavík á
óperettunni Leðurblökunni eftir Jo-
hann Strauss í Edinborgarsalnum í
kvöld.
Nemendaópera Söngskólans setur
árlega upp sýningar þar sem nem-
endur fá að spreyta sig á hinum ýmsu
hlutverkum óperutónbókmenntanna
auk þess sem þeir öðlast reynslu við
að koma fram og starfa í leikhús-
umhverfi.
Sögusvið óperettunnar Leðurblök-
unnar er Vínarborg um áramótin
1874-1875. Söguþráður er á þá leið
að það er á allra vörum og í öllum
blöðum að Eisenstein sé á leiðinni í
fangelsi. Fyrsti þátturinn gerist
heima hjá hjónunum Eisenstein og
Rosalinde. Annar þátturinn er veisla
heima hjá rússneskum prinsi, þar
sem Eisenstein fellur fyrir Adele.
Þriðji og síðasti þátturinn gerist í
fangelsinu, þar sem framhjáhaldið
kemur í ljós.
Óperettan hefst kl. 19.30. Frítt er
fyrir börn yngri en 7 ára og 7 til 14 ára
greiða hálft gjald.
Miðasala er við innganginn og á
midi.is.
Menning á Vestfjörðum
Syngja Leðurblökuna á Ísafirði
Óperetta Engum ætti að leiðast á Leðurblökunni í Edinborg á Ísafirði í kvöld.