Morgunblaðið - 23.04.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.04.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Að minnsta kosti 57 létust og 119 særðust í sjálfsmorðsárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær. Frá þessu er greint á fréttasíðum AFP, CNN og Washington Post. Árásin var gerð á skrifstofu þar sem Afgan- ar komu saman til að sækja um skil- ríki til að komast á kjörskrá fyrir kosningar sem verða haldnar í októ- ber. Að sögn Dawoods Amins, lög- reglustjóra í Kabúl, sprakk sprengj- an við inngang kosningaskrifstof- unnar. Óöryggi í aðdraganda kosninga Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Ashraf Ghani, for- seti Pakistans, fordæmdi árásina og sagði að slíkar árásir „villimanns- legra hryðjuverkamanna“ myndu „aldrei draga úr áræði og vilja fólks- ins okkar til að auka þátttöku í lýð- ræðislegu ferli“. Abdullah Abdullah, leiðtogi afganska framkvæmda- valdsins, fordæmdi árásina einnig á Twitter og sagðist standa með fórn- arlömbum þessarar „huglausu árás- ar“. Jafnframt sagði hann að „áræði okkar til frjálsra og gegnsærra kosn- inga [héldi] áfram og hryðjuverka- menn [myndu] ekki vinna gegn vilja afgönsku þjóðarinnar“. „Þetta tilgangslausa ofbeldi sýnir fram á hugleysi og ómennsku óvina lýðræðis og friðar í Afganistan,“ sagði John Bass, sendiherra Banda- ríkjanna í landinu. Aðrar árásir hafa verið gerðar á kosningaskrifstofur og embættis- menn síðan skráningarferlið hófst fyrir rúmri viku en árásin á sunnu- dag var sú mannskæðasta til þessa. Önnur árás var einnig gerð á sunnu- daginn þar sem sex manns létust í sprengingu í héraðinu Baghlan í norðurhluta landsins. Síðasta meiri- háttar árásin í Kabúl var gerð 21. mars þegar vígamaður íslamska rík- isins sprengdi sig upp á miðri pers- neskri nýárshátíð og drap að minnsta kosti þrjátíu og þrjá. Afgönum sem hafa skráð sig á kjörskrá hefur fækkað talsvert í ár og útlit er fyrir að áhugi á kosning- unum sé lítill vegna meints kosn- ingasvindls og svikinna loforða af hálfu stjórnmálamanna. Kosning- arnar átti í upphafi að halda vorið 2015 en þeim var frestað vegna lé- legrar öryggisgæslu og skipulags- leysis. Í fyrstu var þeim frestað fram í júlí 2018 og síðan fram í október. Friðarviðræður við talibana Afganskir embættismenn hafa viðurkennt að öryggisgæsla sé áhyggjuefni í framkvæmd kosning- anna þar sem talibanar og aðrir skæruliðahópar stjórna enn stórum hlutum landsins. Hermönnum og lögreglumönnum hefur verið falið að standa vörð um kjörstaði. Ghani forseti bauð talibönum frið- arsáttmála í janúar sem myndi gefa þeim leyfi til að starfa sem lögmætur stjórnmálahópur í afganska lýðveld- inu. Svar talibana hefur verið í dauf- ari kantinum og óvíst að neitt verði úr hugmyndum forsetans um frið. John Nicholson hershöfðingi, foringi herliðs Bandaríkjamanna og Atl- antshafsbandalagsins í Afganistan, sagði sjónvarpsstöðinni Tolo í síð- asta mánuði að hann byggist við því að talibanar myndu gera fleiri sjálfs- morðsárásir seinna á árinu. 57 létust í sjálfsmorðsárás í Kabúl  Árás íslamska ríkisins skekur Afganistan í aðdraganda þingkosninga  Ghani forseti segir hryðju- verk „aldrei [munu] draga úr áræði og vilja fólksins okkar til að auka þátttöku í lýðræðislegu ferli“ AFP Sjúkrahús Særð afgönsk kona er flutt inn á Isteqlal-sjúkrahúsi í Kabúl eftir sjálfsmorðsárás hinn 22. apríl. 119 særðust í árásinni auk 57 sem létu lífið. Sprengingin var ein margra árása í aðdraganda þingkosninga í haust. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Rúmlega tuttugu manns eru látnir eftir átök milli lögreglu og mótmæl- enda í Níkaragva. Frá þessu er sagt á fréttasíðum AFP og The Guardian. Mótmælin brutust út á miðvikudag- inn vegna áætlana Daniels Ortega, forseta landsins, um að koma á um- bótum í lífeyriskerfi Níkaragva. Kerfisbreytingarnar setja fimm pró- senta skatt á lífeyri aldraðra og bæklaðra og auka greiðsluhlutfall vinnuveitenda og vinnuþega í lífeyr- inum. Meðal hinna látnu er Ángel Ga- hona, fréttamaður sem var skotinn til bana á meðan hann fór fyrir beinni útsendingu af mótmælunum í bænum Bluefields. Fréttamenn hafa orðið fyrir árásum, verið fangelsaðir og sviptir útbúnaði sínum síðan mót- mælin hófust. Til að róa mótmælendurna féllst Daniel Ortega á að ræða við einka- geira landsins um velferðarumbæt- ur. Stéttarleiðtogar athafnamanna í Níkaragva hafa hins vegar neitað að tala við forsetann nema ríkisstjórnin hætti umsvifalaust valdbeitingu lög- reglunnar gegn mótmælendum. Frans páfi, fyrsti páfinn frá róm- önsku Ameríku, ávarpaði Níkaragva í sunnudagsmessu sinni og hvatti stjórnvöld landsins til að „forðast til- gangslausar blóðsúthellingar“. Íbúar Níkaragva mótmæla breytingum á lífeyriskerfi AFP Mótmæli Háskólanemar í átökum við lögreglu í Managua, höfuðborg Ník- aragva, hinn 21. apríl, stutt frá tækniháskóla borgarinnar.  Um tuttugu látnir í átökum við lögregluna Nikol Pashinyan, leiðtogi armensku stjórnarandstöðunnar, hefur verið hnepptur í varðhald í miðjum fjölda- mótmælum gegn ríkisstjórn lands- ins. Frá þessu er sagt á fréttavef The Guardian. Mótmæli hafa staðið yfir í tíu daga gegn Serzh Sarksyan, forsætisráð- herra og fyrrverandi forseta Armen- íu. Sarksyan var útnefndur forsætis- ráðherra hinn 17. apríl eftir að hafa setið sem forseti landsins í tíu ár. Í forsetatíð Sarksyans var stjórnar- skrá Armeníu breytt og þingræði komið á í stað forsetaræðis. Sarks- yan hafði lofað að hann myndi ekki halda í völd með því að gerast for- sætisráðherra eftir að forsetatíð hans lyki. Mótmælin brutust út eftir að hann braut það loforð. Pashinyan hafði krafist afsagnar hans. Forsætisráðherra Armeníu mótmælt AFP Armenar Serzh Sarksyan (t.v.) og Nikol Pashinyan. Andrea Nahles hefur verið kjör- in formaður þýska Jafn- aðarflokksins. Frá þessu er greint á fréttavef The Guardian. Nahles er fyrsta konan sem hefur leitt flokkinn í 155 ára sögu hans. „Við erum að brjótast í gegn- um glerþak Jafnaðarflokksins,“ sagði Nahles á flokksfundi í Wiesbaden, „og þakið verður opið áfram.“ Nahles var atvinnumála- ráðherra í síðustu ríkisstjórn Þýskalands og bar meðal annars ábyrgð á upptöku lágmarkslauna. ÞÝSKALAND Jafnaðarmenn kusu nýjan formann Andrea Nahles, nýr formaður SDP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.