Morgunblaðið - 23.04.2018, Qupperneq 18
Við hjá Mið-
flokknum höfum bent á
nú um nokkurt skeið
að það þarf að stilla
umferðarljós betur
þannig að þau vinni
saman sem heild. Árið
2006 var fjárfest í
flottri ljósastýring-
artölvu frá Siemens:
Sitraffic Central, sem
átti að samtengja allar
ljósastýringar á svæð-
inu. En það voru aðeins nokkur um-
ferðarljós tengd við þessa tölvu og
aldrei klárað að stilla kerfið þannig
að það skilaði nokkrum árangri. Við
hjá Miðflokknum höfum að und-
anförnu hitt bæði séfræðinga í
ljósastýringarmálum og starfsmenn
borgarinnar sem hafa unnið í þess-
um málum. Þeim ber saman um að
það er hvergi nærri búið að sinna
þessum málum nægilega vel.
Samgöngumál borgarinnar hafa
verið vanrækt á síðustu árum með
vítaverðum hætti. Allt sem teljast
mætti einkabílnum til tekna hefur
verið hundsað eða markvisst ýtt til
hliðar. Borgarstjórn gerði ásamt
öðrum sveitarfélögum á höfuðborg-
arsvæðinu árið 2012
samning við Vegagerð-
ina um að slá stærri
framkvæmdum á frest í
10 ár, svo sem Sunda-
braut og tvöföldun á
Reykjanesbraut. Við-
hald gatna hefur einnig
verið vanrækt og holur
í malbiki hafa valdið
gríðarlegu tjóni. En
minna hefur verið talað
um að umferð-
arljósastýringu sé
ábótavant. Þar til ný-
lega að frétt birtist á
RÚV þar sem Hrafnkell Proppé,
sem fer fyrir stýrihóp um sam-
göngur á höfuðborgarsvæðinu, lýsir
þeirri skoðun að það vanti að stilla
ljósin.
Það er ágætt að Samtök sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu séu
búin að taka upp stefnu Miðflokks-
ins í þessu máli. Við höfum talað fyr-
ir því um nokkurt skeið að það þurfi
að stilla ljósin og það strax. Það þarf
að klára að tengja öll 131 ljósa-
gatnamótin á höfuðborgarsvæðinu,
þar af 116 í Reykjavík, við rándýra
og fína kerfið sem var keypt og
leggja vinnuna í að forrita kerfið
þannig að það sé að gera eitthvert
gagn. Forritun kerfisins er í raun
mikilvægust í þessu öllu, að kerfið sé
stillt rétt og reglulega. Því annars
gerir það ekkert gagn eða jafnvel illt
verra.
Dæmi um áratugagamlar
stillingar í borginni
Í skýrslu sem Vegagerðin lét gera
um málið kemur fram að það séu
mörg dæmi um áratugagamlar still-
ingar á ljósum á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar er umferðinni stýrt eins og
hún var fyrir áratugum, en ekki eins
og hún er í dag. Í skýrslu Vegagerð-
arinnar segir líka að það þurfi að
uppfæra stillingar á 3-5 ára fresti og
oftar fyrir hverfi sem eru í örri þró-
un. Þegar klárað var að tengja
fyrsta áfanga af umferðarljósum við
Siemens-kerfið var sett inn sams-
konar forritun á ljósin eins og var á
þeim fyrir. Þannig er í raun sama
stillingin enn á þessum ljósum. Því
aldrei var farið í bestun á stillingum,
mögulega því að það kom efnahags-
hrun fljótlega eftir þetta og áhuginn
á verkefninu virðist hafa fjarað út.
Dagur B. borgarstjóri skar köku
sem leit út eins og umferðarljós þeg-
ar tölvan var keypt, en þar með lauk
afskiptum hans af málinu.
Ábati umferðarljósabestunar
talinn í milljörðum
Rannsókn á vegum Federal
Highway Administration í Banda-
ríkjunum hefur metið ábata af ljósa-
stýrikerfum vera allt að 40 á móti 1.
Það er að hver króna sem er sett í
þennan málaflokk geti skilað sér
fjörtíufalt til baka í formi tímasparn-
aðar og eldsneytissparnaðar. Þar er
einnig sagt að slíkar fjárfestingar
séu yfirleitt búnar að skila sér á inn-
an við ári.
Í Osló og Eindhoven var gerð
könnun á ferðatíma fyrir og eftir
slíkar stillingar og var munurinn
15% í Osló og 17% í Eindhoven.
Í útreikningum sem birtust á síðu
Stjórnarráðsins í janúar 2008 í
tengslum við hið nýja kerfi var áætl-
að að hver prósenta í styttingu
ferðatíma myndi spara ökumönnum
um 143 milljónir í eldsneyti og tíma.
Þannig að ef árangur yrði samskon-
ar eins og í Eindhoven væru það
2.436 milljónir á ári (tölurnar allar á
núvirði). Inni í þessum tölum er auð-
vitað ekki sá þjóðhagslegi ávinn-
ingur sem felst í því að fækka slys-
um né gerð tilraun til að verðmeta
þau auknu lífsgæði sem felast í
styttri ferðatíma. Svo fyrir utan að
þetta gæti hreinlega bjargað manns-
lífum með því að liðka fyrir akstri
neyðarþjónustu.
Ég hef hér útskýrt hvernig þetta
virkar á mjög einfaldaðan máta og
bent á að reynsla og rannsóknir sýni
hagkvæmnina í bestun umferðar-
ljósa. En nú er spurning hvort borg-
armeirihluti vilji nokkuð gera til að
greiða fyrir umferð akandi. Þeir
hafa ekki sýnt neina tilburði í þá
veru sl. 12 ár sem Dagur B. hefur
verið ýmist borgarstjóri eða í meiri-
hluta. Það ætti vitanlega að setja
sem langtímamarkmið að fækka
þessum ljósastýringum verulega.
En þangað til þá er gríðarlega
ábatasamt að láta stilla ljósin og
klára tengingu við hið miðlæga kerfi
sem gerir stillingu og samræmingu
enn auðveldari. Það er ekki eftir
neinu að bíða að fara í þá vinnu strax
eftir kosningar og það ætlum við í
Miðflokknum að gera fáum við um-
boð ykkar til þess.
Bestun ljósa sparar milljarða
Eftir Viðar Frey
Guðmundsson » Allt sem teljast
mætti einkabílnum
til tekna hefur verið
hundsað eða markvisst
ýtt til hliðar.
Viðar Freyr
Guðmundsson
Höfundur er frambjóðandi
Miðflokksins í Reykjavík
vidarfreyrgudmundsson@gmail.com
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Sjúkraliðafélag Ís-
lands verður með ráð-
stefnu um réttindi aldr-
aðra þann 26. apríl nk.
á Hótel Natura og eru
allir velkomnir. Line
Miriam Sandberg,
ráðuneytisstjóri í nýju
ráðuneyti Norðmanna
sem sinnir öldruðum og
lýðheilsu, mun þar m.a.
fara yfir stefnu Norð-
manna. Einnig munu
sérfræðingar í öldrunarlækningum,
hjúkrun og félagsþjónustu fjalla um
stöðu aldraðra.
Samstarfsnefnd á vegum
heilbrigðisráðuneytisins
Samstarfsnefnd um málefni aldr-
aðra starfar á grundvelli 4. gr. laga
um málefni aldraðra, nr. 125/1999,
með síðari breytingum, en sam-
kvæmt ákvæðinu skipar ráðherra
fimm manna samstarfsnefnd eftir
hverjar almennar alþingiskosningar.
Nefndin skal skv. 5. gr. laganna vera
ráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis
um málefni aldraðra og vera tengilið-
ur milli ráðuneyta, stofnana og sam-
taka sem starfa að málaflokknum.
Heilbrigðisráðherra skipaði verk-
efnisstjórn árið 2015 til að greina
stöðu heilbrigðishluta þjónustu við
aldraða og setja fram tillögur að mót-
un nýrrar stefnu í málaflokknum í
þjónustu við aldraða. Verkefnis-
stjórnin skilaði tillögum til heilbrigð-
isráðherra í mars 2016. Samstarfs-
nefndin lagði áherslu á mikilvægi
þess að stefna í þjónustu við aldraða
endurspeglaði samfellu og gráum
svæðum í verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga á sviði velferð-
arþjónustu yrði fækkað. Hugað yrði
að samþættingu mismunandi þjón-
ustuþátta með það að markmiði að
auka gæði þjónustunnar og lífsgæði
þeirra einstaklinga sem hennar njóta.
Margt gott má segja um tillög-
urnar en spurning er hvort eitthvað
af því sé komið til fram-
kvæmda. Hægt er að
fullyrða að mikið sé
óunnið af þeim
áherslum sem nefndin
gaf álit sitt á, þó svo að
eitthvað hafi verið káfað
í sumum málum. Eftir-
farandi eru megin-
áherslur nefndarinnar:
Almannatrygg-
ingakerfið verði
einfaldað og réttindi
aldraðra betur
skilgreind
Mikið vantar á að greining á stöðu
aldraðra hafi verið nægjanlega vel
unnin þegar almannatryggingakerfið
var endurskoðað. Má þar nefna
skatta sem á aldraða eru lagðir með
krónu á móti krónu skerðingu. Stað-
an er sú að þó svo að aldraður ein-
staklingur sjái sér fært að vinna eitt-
hvað með tilliti til heilsu, er honum
refsað með því að leggja á hann
þyngri skatt.
Heilsuefling og virkni aldraðra
Þessi flokkur hefur ekki virkað
sem skyldi þar sem heilbrigðiskerfið
er í molum og biðlisti er eftir aðgerð-
um og endurhæfingu. Sum sveitar-
félög eiga þó hrós skilið fyrir viðleitni
þeirra til þess að eldri borgarar þurfi
ekki að leggja út í mikinn kostnað af
því að fara í sund og annað sem að
gagni gæti komið.
Réttur aldraðra til sjálfstæðrar
búsetu og sjálfræðis
Þessi réttur hefur alls ekki verið
virtur. Heilbrigðisyfirvöld hafa ekki
byggt upp upp nægjanlega mörg
hjúkrunarrými og hafa jafnvel að-
skilið hjón með því að senda hinn
sjúka langar leiðir til búsetu í önnur
sveitarfélög og koma þar með í veg
fyrir að þeir nánustu geti heimsótt
maka sinn og ástvin.
Gæðaviðmið
Ráðstefna Sjúkraliðafélags Íslands
kallar eftir að sýnt verði fram á að
gæðaviðmið séu til staðar og þau síð-
an virt.
Stöðugleiki og aukin hæfni
starfsfólks
Um þennan þátt er hægt að skrifa
langan doðrant. Landlæknisembættið
hefur fylgt málum eftir með því að
gera úttekt á stöðu hjúkrunarheimila
og birta á heimasíðu embættisins.
Form. Sjúkraliðafélags Íslands
hefur gagnrýnt þessar úttektir. Í
þeim er ekkert rætt um stöðu ann-
arra fagstétta en lækna og hjúkr-
unarfræðinga. Þetta er miður og ekki
til þess fallið að auka gæði þjónust-
unnar eða traust á skýrsluhöfundum.
Það er vont að vita til þess að Emb-
ætti landlæknis telji enga þörf á að
líta út fyrir rammann „læknar/
hjúkrunarfræðingar“ í eftirliti sínu.
Allir sem þurfa á þjónustunni að
halda hafa áttað sig á að öll starfsem-
in er ein heild sem lítið getur veitt ef
eitt tannhjólið klikkar. Það eru því
þjónustuþegarnir sem verða fyrir
skaðanum.
Heilabilun
Hanna Steinsson, félagsráðgjafi,
hefur látið að sér kveða í greiningu á
stöðu heilabilaðra á Norðurlöndum.
Á ráðstefnunni mun hún fjalla um
stefnu Dana og Svía í öldrunarþjón-
ustu og mun koma inn á málefni
heilabilaðra, en það er eitt meg-
ininntak umræddrar skýrslu frá
2016.
Upplýsingavefur um
öldrun og aldraða
Jákvætt ef eitthvað hefur gerst í
þessum málum, en mér er ekki kunn-
ugt um að svo sé.
Réttindagæsla aldraðra
Á tímabili var mikið rætt og ritað
um að koma þyrfti á fót umboðs-
manni aldraðra, enda eitt af því sem
nefndin leggur til í þessum hluta
nefndarálitsins. Enn bólar ekkert á
því embætti.
Óljóst ábyrgðarsvið þjónustuað-
ila – „grá svæði“ í þjónustu við
aldraða og notendasamráð
Við undirbúning ráðstefnunnar
kom m.a. fram að óljós skil eru á því
hverjir eiga að svara fyrir eftirlit með
þjónustu við aldraða eftir því hvort
um beina heilbrigðisþjónustu eða vel-
ferðarþjónustu sveitarfélaganna er
að ræða. Svo ljóst er að mikið vantar
upp á að unnið hafi verið með þetta
nefndarálit. Að lokum skal vakin at-
hygli á að hægt er að skrá sig á ráð-
stefnuna á heimasíðu Sjúkraliða-
félagsins, slfi.is, á meðan húsrúm
leyfir.
Eftir Kristínu Á.
Guðmundsdóttur
»Mikið vantar upp á
að unnið hafi verið
með álit samstarfs-
nefndar um málefni
aldraðra.
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
Höfundur er formaður
Sjúkraliðafélags Íslands.
Lítið ágengt í málefnum
aldraðra á Íslandi
Í Morgunblaðinu gaf
að líta tilfinninga-
þrungna grein á mið-
opnu 3. apríl 2018. Þar
kveður Miðflokks-
þingmaður Alþingi
þurfa að vera vel upp-
lýst um stöðu og þróun
mála og taka hlutverk
sitt alvarlega. Er það
vel.
Þingmenn ættu að
kynna sér þau mál sem þeir fjalla um.
Það er sorglegt til þess að vita, að á
þingi eigi sæti menn sem eru jafn
ófróðir um nýlega sögu Evrópu og
greinarhöfundurinn heiftúðugi.
„Innrásir“ Rússa
„Ráðamenn í Kreml“ eiga að hafa
hafið blóðugt stríð við Japani árið 1903
í því skyni að hefja byltingu. Þá var
Rússlandi stjórnað af keisara sem sat í
Pétursborg en ekki í Kreml og hafði
varla byltingu í hyggju.
Tétsnía er lýðveldi í Rússneska
sambandsríkinu og hefur verið hluti
Rússaveldis síðan á keisaratíma.
Það voru Georgíumenn sem hófu
átökin við Rússa með innrás 8. ágúst
2008, undir stjórn Mikhails Saaka-
shvilis.
Í Úkraínu var framið vopnað valda-
rán í febrúar 2014 og rússneskumæl-
andi íbúar í austurhéruðum landsins
kröfðust sjálfstjórnar; valdaráns-
stjórnin í Kænugarði svaraði með
mannskæðu stríði á hendur löndum
sinum í Donbas, sem njóta stuðnings
Rússa. Krímverjar kusu í almennum
kosningum, í samræmi við samþykktir
SÞ um sjálfsákvörðunarrétt smá-
þjóða, að gerast aftur hérað í Rúss-
neska sambandsríkinu. Þar með var
komið í veg fyrir að árásarstríð
Kænugarðsstjórnarinnar næði einnig
til Krímskagans.
Frá 2011 hafa staðið linnulaus
stríðsátök í Sýrlandi og vesturveldin
hafa magnað þau í því skyni að koma
lögmætri stjórn frá. Rússar réðust
ekki inn í Sýrland heldur komu lög-
mætum stjórnvöldum til aðstoðar að
beiðni þeirra. Dvöl rússneska hersins
þar er því í samræmi við
alþjóðalög.
Rökleysa
Yfirlýsing Bandaríkja-
manna, Þjóðverja,
Frakka og Breta, sem
sjálfur framkvæmda-
stjóri NATO samsinnir,
á að sanna að rússnesk
stjórnvöld beri ábyrgð á
ódæðinu í Salisbury, þótt
þau taki því víðs fjarri.
Rússum er harðneitað
um upplýsingar sem þeir krefjast.
Er það „sambland af áróðri og kúg-
un“ og „harðstjórn og spillingu“ sem
varð þess valdandi að Bjarni Bene-
diktsson var kosinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins með 97% atkvæða,
sama daginn og Pútín fékk ekki nema
77%?
Hvaðan hefur greinarhöfundur
upplýsingar um innanlandsástand i
Rússlandi og sætaskipan í Dúmunni?
Í Dúmunni er öflug stjórnarandstaða,
m.a. kommúnistar.
Ef ekki eru allir á einu máli innan
NATO og ESB, þá er það Rússum að
kenna!
Ef Hollendingar samþykkja ekki
viðskiptasamning ESB við Úkraínu,
þá hafa þeir orðið fyrir barðinu á
Rússum!
Ógnun
Ef eitthvað er ógnun við frið og ör-
yggi í Evrópu, þá er það sá einstreng-
ingslegi ofstopi og það glórulausa
Rússahatur, byggt á vanþekkingu,
sem greinarhöfundurinn heiftúðugi er
haldinn. Og því miður miklu fleiri.
Stríðsæsingar
Eftir Hauk
Jóhannsson
Haukur Jóhannsson
»Ef eitthvað er ógnun
við frið og öryggi í
Evrópu, þá er það sá
einstrengingslegi of-
stopi og glórulaust
Rússahatur, byggt á
vanþekkingu.
Höfundur er lífeyrisþegi.
haujo@simnet.is
Allt um sjávarútveg