Morgunblaðið - 23.04.2018, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Atvinnuauglýsingar
Interviews will be held
in Reykjavík in May.
For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492
Fax:+ 36 52 792 381
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Study Medicine and Dentistry
In Hungary “2018”
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl. 9,
leikfimi í KR kl. 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leik-
fimina. Rútan sækir fyrir leikfimina á Vesturgötu kl. 10.10 og á Afla-
granda kl. 10.15. Útskurður og myndlist kl. 13 í hreyfisalnum og
félagsvist kl. 13 í matsalnum. Jóga kl. 18. Hlökkum til að sjá ykkur.
Boðinn Bingó kl. 13. Myndlist kl. 13. Spjallhópur Boðans kl. 15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20. Opin handverks-
stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, bókabíllinn á
svæðinu kl. 10-10.30, hjúkrunarfræðingur með viðveru kl. 10-12.30,
handaband, vinnustofa í handverki með textílhönnuðum, ókeypis
þátttaka og öllum opin frá kl. 10-12.30. Handavinna kl. 13-15, bókband
kl. 13-17, söngstund við píanóið kl. 13.30-14.15, kaffiveitingar kl. 14.30-
15.30. Handavinnuhópur hittist í handverksstofu kl. 15-19. Verið öll
velkomin til okkar á Vitatorg, síminn er 411 9450.
Furugerði 1 Vinnustofa opin frá kl. 12-16. Sitjandi leikfimi og önd-
unaræfingar kl. 11. Klukkan 13 er farið í göngu. Botsía í innri sal kl. 14.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl. 14.30-16.30. Leik-
fimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía , kl. 9.30 postulínsmálun,
kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postuslínshópur kl. 9. Jóga k.l 9.30. Ganga kl 10. Handa-
vinna / brids kl. 13. Jóga kl. 18. Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Jóga kl. 10.10–11.10.
Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá
Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur
kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30,
jóga kl. 16 hjá Ragnheiði.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-12, línudansnámskeið kl. 10,
ganga kl. 10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl.
12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Korpúlfar Hugleiðsla kl. 9 í Borgum. Ganga kl. 10 frá Borgum og
Grafarvogskirkju, félagsvist kl. 13 í Borgum. Prjónað til góðs kl. 13 í
Borgum. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpu-
systkina kl. 16.30 í Borgum. Allir velkomnir.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur
kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2. hæð
kl. 15.30. Uppl. í s. 411 2760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15
og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl.
14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs-
ingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins Suðurströnd kl. 9
og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og
kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum, Skólabraut kl. 11. Handavinna
á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba kl. 10.30, undir stjórn
Tanyu. Bókmenntahópur vor 2018. Síðasta samveran í Stangarhyln-
um á þessum vetri, fimmtudagur 26. apríl kl. 14–16. Vilborg Davíðs-
dóttir rithöfundur kemur í heimsókn, heldur fyrirlestur og sýnir mynd-
ir. Félag eldri borgara í Reykjavík og Karlakórinn Kátir karlar halda
tónleika í Grensáskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 17. Stjórnandi er Gylfi
Gunnarsson.
Smáauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Til Leigu atvinnuhúsnæði
100 fm atvinnuhúsnæði á Granda
(Fiskislóð 31) til leigu. Sérinngangur á
jarðhæð með 5,5 metra lofthæð og
mikla möguleika fyrir verslun, skrif-
stofur, lager eða aðra starfsemi. Lítið
eldhús og klósett innan rýmis.
Björn, sími 897-084
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Til sölu Mazda MPV
Árg. 2005
Ekinn 73.323 mílur, bremsur
þarfnast smá viðgerðar. Tilboð.
Uppl. í síma 861-9344.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Rýmingarsala á sumar og
heilsárdekkjum
Fólksbíla-, sendibíla- og
vörubíladekkkjum.
Opið laugardag. 10-15.
Kaldasel ehf.,
s. 5444333, kaldasel@islandia.is
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast
bæði í Mogganum og á mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Minningar
✝ Stefnir Helga-son fæddist í
Reykjavík 9. nóv-
ember 1930. Hann
lést 10. apríl 2018.
Foreldrar hans
voru Helgi Guð-
mundsson kirkju-
garðsvörður, f.
1889, d. 1961, og
Engilborg Helga
Sigurðardóttir hús-
freyja, f. 1896, d.
1957. Systkini Stefnis eru: Þóra
Sigríður, f. 1918, Sigurður Jó-
hann, f. 1923, Guðfinna, f. 1925,
Hörður, f. 1927, Helgi Hrafn, f.
1928, og Atli f. 1930. Guðfinna
er ein eftirlifandi af þeim systk-
inum.
Stefnir kvæntist 9. október
1954 Grímu Sveinbjörnsdóttur,
f. 4. janúar 1931. Gríma lést 28.
nóvember 2005. Foreldrar henn-
ar voru Elínborg K. Stefáns-
dóttir, f. 1904, d. 1996, og Svein-
björn Benediktsson, f. 1895, d.
1948.
Börn Stefnis og Grímu eru 1)
Birna, f. 1955, maki Aðalsteinn
Steinþórsson. 2) Brynja Sif, f.
1957, maki Agnar Strandberg.
Börn þeirra eru a) Stefnir Ingi,
í sambúð með Gígju Hrönn
Árnadóttur og eiga þau soninn
Aron b) Silja Katrín, í sambúð
með Pálmari Péturssyni og eiga
þau börnin Sólveigu Ölbu og
Viktor c) Elva 3) Sigurður
Hrafn, f. 1963, maki Hekla Ív-
arsdóttir. Synir þeirra eru Helgi
Garðar og Stefán Grímur en áð-
ur átti Sigurður
dótturina Steinunni
Helgu og er sam-
býlismaður hennar
Viktor Kristinn
Atlason, sonur
þeirra er Ragnar
Helgi.
Stefnir var fædd-
ur í vesturbæ
Reykjavíkur og ólst
upp á Hofsvalla-
götu.
Hann lauk námi frá Sam-
vinnuskólanum 1951 og þar
kynnist hann eiginkonu sinni.
Þau reistu sér heimili við Hlíð-
arveg í Kópavogi.
Stefnir starfaði á yngri árum
hjá Tryggingastofnun ríkisins,
Gefjun Iðunn og á Keflavíkur-
flugvelli.
Þau hjónin stofnuðu umboðs-
og heildverslunina Falur hf.
1958 og störfuðu þau þar saman
þar til þau hættu vegna aldurs.
Þau fluttu inn og voru með um-
boð fyrir ýmsar byggingavörur.
Stefnir sat í bæjarstjórn Kóp-
vogs 1974-1978 fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og var formaður fé-
lagsmálaráðs. Þá var hann í
sóknarnefnd Digranessafnaðar
og stjórn Félags eldri borgara í
Kópavogi. Hann var í Lions-
klúbbi Kópavogs árum saman
og var m.a. formaður, umdæm-
isritari og svæðisstjóri.
Stefnir verður jarðsunginn
frá Digraneskirkju í dag, 23.
apríl 2018, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Stefnir tengdafaðir minn
kvaddi mig með þeim orðum að
ég mætti engu breyta í ferðalagi
erlendis um páskana þó hann
færi á spítala. Hann var jákvæð-
ur og sanngjarn maður sem vildi
ekki láta hafa fyrir sér og vildi
börnunum sínum það besta. Að
breyta ferðaplönum hans vegna
var ekki inni í myndinni hjá hon-
um. Sjálfur hafði hann ferðast
innanlands og um allan heim með
Grímu, besta vini sínum og fé-
laga. Þau voru samrýndustu hjón
sem ég hef kynnst og það var
honum þungt áfall þegar hún lést
úr krabbameini árið 2005.
Stefnir var hamingjusamur að
hafa átt góða foreldra og systkini.
Lífsbaráttan gat verið hörð á
æskuárunum en kröfurnar voru
ekki miklar. Stefnir var alla tíð
nægjusamur, glaðlyndur með
gott skopskyn, góður og um-
hyggjusamur við sína nánustu.
Hann starfaði ungur hjá Gefj-
un Iðunni en honum fannst Sam-
vinnuhreyfingin stór og svifasein
og það hentaði honum ekki. Upp
úr því var heildverslunin Falur
stofnuð, en þau hjónin áttu og
störfuðu við hana það sem eftir
var starfsævinnar. Erlend sam-
skipti og ferðalög voru hluti
starfsins og þar var Stefnir á
heimavelli, tungumálamaður með
frábæra samskiptahæfileika.
Stefnir var frumkvöðull og
óhræddur að prófa innflutning á
nýjum vörum og kynna þær á Ís-
landi. Einkum flutti hann inn
byggingavörur.
Stefnir og Gríma byggðu sér
ung hús að Hlíðarvegi 8 í Kópa-
vogi og bjuggu þar í yfir 50 ár og
þar var miðpunktur fjölskyldu-
boða og gleðin var ríkjandi. Hann
var sannur talsmaður og baráttu-
maður fyrir hagsmunum Kópa-
vogs. Hann starfaði um árabil að
bæjarmálunum og eins og í öðr-
um verkum var hann fylginn sér,
atorkusamur og duglegur í bæj-
arpólitíkinni. Hann entist samt
ekki lengi í framlínunni í pólitísk-
um störfum, hann sagði mér að
hlutirnir tækju of langan tíma á
þeim vettvangi.
Stefni féll ekki verk úr hendi
og honum líkaði vel að fá að vera í
starfi iðnaðarmannsins þegar
eitthvað þurfti að endurnýja eða
laga. Flísalögn var uppáhald hjá
Stefni og Grímu og þá voru þau
sem einn snillingur við verkið.
Nákvæmni og skipulag var hans
aðalsmerki. Í bílskúrnum var allt
í röð og reglu og skrúfur og allir
smáhlutir flokkaðar í hólf eftir
stærð og verkfærin á vísum stað.
Sama nákvæmni var í möppunum
á skrifstofunni og líka í myndaal-
búnum sem nálgast annað hundr-
aðið af fjölskyldunni og ferðalög-
um þeirra, en Stefnir var mikill
áhugamaður um ljósmyndun.
Stefnir og Gríma voru heims-
borgarar. Ítalía var uppáhalds-
landið enda aðalviðskiptaland
þeirra og allt ítalskt var „uppá-
halds“, hvort sem það var vínið,
maturinn eða bílarnir.
Stefnir var einstaklega minn-
ugur og góður sögumaður. Frá-
sagnir hans af margs konar
spaugilegum atvikum og sam-
ferðafólki í lífinu voru bráðfyndn-
ar og áheyrilegar. Hann var fróð-
ur um allt mögulegt og kunnugur
á ólíklegustu stöðum. Það var
best að vera með honum í liði í
spurningakeppni jólaspilanna, þá
var sigurinn vís. Hann kunni allt-
af svörin, hvort sem spurt var um
landafræði, sagnfræði, trúar-
brögð, menningu, kvikmyndir
eða stjórnmál.
Ég kveð tengdaföður minn
með þakklæti fyrir að hafa fengið
að kynnast honum og fjölskyldu
hans. Hvíldu í friði, kæri Stefnir.
Aðalsteinn.
Stefnir Helgason
Fleiri minningargreinar
um Stefni Helgason bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar