Morgunblaðið - 23.04.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er óvenjumikil viðkvæmni í loft-
inu í dag og því hætt við deilum og sár-
indum. Mundu að virða skoðanir annarra,
líka þótt þú sért ekki sammála þeim.
20. apríl - 20. maí
Naut Tíminn er dýrmætur og þú hefur eng-
an tíma til þess að sökkva þér niður í eigin
hugsanir. Þér berast nýjar upplýsingar úr
óvæntri átt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að biðja um hjálp eða veita hana
kallar fram samstöðu sem er galdri líkust.
Mundu að hóf er best á hverjum hlut og
treystu innsæi þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert upp á þitt besta og getur
nánast samið um hvað sem er því þú færð
fólk svo auðveldlega á þitt band. Spilaðu
málin eftir eyranu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Menn líta til þín um lausn mála, sem
reynast öðrum ofviða. Fólk er tilbúið að
hlusta á það sem þú hefur að segja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn hentar því vel til viðræðna
um það sem skiptir þig máli. Léttu af þér
áhyggjunum með því að leita til fagfólks
sem getur gefið þér góð ráð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það vantar ekki mikið upp á að þér tak-
ist að ljúka því verkefni sem þér hefur verið
falið. Þetta er góður dagur til að setja fram
langtímaáætlun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eitthvað stórt er handan við
hornið og þú ert farinn að finna fyrir nær-
veru þess. Það hefur ekkert upp á sig að
flýja erfiðleikana þeir bara vaxa við það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einmitt þegar þú varst að koma
þér vel fyrir, leistu upp og sást eitthvað nýtt
og spennandi við sjóndeildarhring. Óvæntir
atburðir á fjármálasviðinu koma þér á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Takturinn í lífi þínu verður hraðari
á næstunni og á næstu vikum getur þú átt
von á meira annríki en venjulega. Mundu að
hláturinn lengir lífið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu það ekki hvarfla að þér að
kasta til höndunum við verk þín því þú færð
þau bara í hausinn aftur. Þú verður að
bretta upp ermarnar og ganga í þau verk
sem bíða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður fyrst að gera upp þinn hug
áður en þú getur farið að sannfæra aðra um
ágæti skoðana þinna. Farðu því ekki að snúa
út úr einföldum spurningum þótt þú sért illa
upplagður.
Skyldu einhverjir vera í sömusporum og Víkverji sem hefur
glatað yfirsýn yfir helstu viðburði
líðandi stundar? Streymi upplýsinga
er nú orðið slíkt að aðeins er hægt að
nema brot af öllum þeim upplýs-
ingum, fréttum og áhugaverðu efni
sem flýtur um á öldum ljósvaka, á
netinu og í dagblöðum. Sennilega
var hægt að fylgjast með flestu og fá
að minnsta kosti heildarmynd þess
sem gerðist á innlendum vettvangi
þar til fyrir um tíu árum. Það var
haustið 2008 sem Íslendingar
stimpluðu sig í þúsundatali inn á
Facebook, sömu dagana og þjóð-
félagið var í rústum eftir bankahrun-
ið með öllum þeim tilfinningahita og
yfirlýsingagleði sem því fylgdi. Flóð-
gáttir brustu með félagsmiðlunum
og fjölmiðlunin breyttist.
x x x
Auðvitað er lyginni líkast að getahvar sem er í veröldinni lesið
dagblöðin á símanum sínum eða með
einföldu forriti haft aðgang að öllum
íslenskum útvarpsstöðvum. En svo
er þetta með augu og eyru; frétt-
irnar koma inn um annað og flæða út
um hitt. Fátt situr eftir í vitund og
huga eða verður til þess að maður
fari að pæla betur í málum, leita sér
ítarlegri upplýsinga, rökræða við
næsta mann og svo framvegis.
Mannfólkið ranglar um í einskonar
upplýsingaeyðimörk og ákvörð-
unarstaðurinn er óþekktur.
x x x
Fréttir líðandi stundar eru eins ogvatnið sem rennur endalaust
undir brúna. Sumt ef ekki flest eru
dægurmál sem skipta litlu í hinu
stóra samhengi. En hvaða tíðindi
eða atburðir marka skil? Formúlan
er í huga Víkverja sú í mjög einfald-
aðri mynd að þú manst enn frásögn-
ina og myndina af síðum Morg-
unblaðsins eða heyrir í huga þér
þegar Broddi Broddason les fréttina
í Ríkisútvarpinu. Ef fennir yfir þetta
tvennt hefur málið verið léttvægt og
mátt skola út. Við munum hins vegar
miklu frekar atvik og stundir í lífi
fjölskyldunnar og samveru með ást-
vinum. Í því felast þá auðvitað þau
skilaboð hvað er þýðingarmest í líf-
inu þegar öllu er á botninn hvolft.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
(Jóh: 10.9)
Sigurlín Hermannsdóttir óskaðileirverjum gleðilegs sumars í
frekar hráslagalegu veðri:
Lítil verður sólarsýn
á sumardaginn fyrsta.
Kveðju sendir Sigurlín
sólar- nokkuð þyrsta.
Ingólfur Ómar sendi þessa
„Sumarkveðju á leir“:
Brosa hlíðar grund og gil
grænka víða rindar.
Sólin býður birtu og yl
blása þíðir vindar.
„Sjaldan hef ég flotinu neitað,“
segir Helgi R. Einarsson og bætir
við:
Blaðið það var brotið
er bóndinn seldi kotið
og komst í frí
til Kanarí,
en þar kláraðist víst flotið.
En hér sér hann „ljósan punkt“:
Eitt sinn við Ásu var reynt,
sem ekki vildi það beint.
Sagði: „Ég vil ei þig
þótt þú viljir mig,
en þetta’ er samt fallega meint.“
Páll Imsland tala um „margræð
strönd í fleirtölu“ og heilsar leirliði
á meðan sólin er hátt á lofti. – „Það
er annars merkilegt hve einfalt
mál getur orðið flókið, ekki síst
þegar tafsað er,“ bætir hann við.
Við Suðurlandsströndina ströndum
og ströndum á ströndum og gröndum.
Lang er því best
og bjargar oss mest,
báta’ alla að hafa á löndum.
Ármann Þorgrímsson undir yfir-
skriftinni „Einhver afgangur“ seg-
ir: „Kvartar undan of háum álög-
um á sjávarútveginn en virðist
samt hafa einhverja trú á þessu.
Kaupir í Granda fyrir 21,7 millj-
arða“:
Eitthvað fiskar enn úr sjó
ekki af baki dottinn.
Mér líður eins og lambi í kró
á leið í steikarpottinn.
„Ad Augustum“ er yfirskrift
þessarar vísu Stephans G. Steph-
anssonar:
Í norðri sumir segja mér
að sólin hnigi eigi;
en það er ei nóg því nú hjá þér
nóttin varð að degi.
Þessa vísu á síra Guðmundur
Torfason á Torfastöðum að hafa
ort átta ára um kvenfólkið á heim-
ilinu:
Það skal vera æ mín iðja
ykkur stugga við;
því andskotann er betra að biðja
en – bölvað kvenfólkið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af sólarþorsta, ást og tafsi
„NEI, ÉG MUN EKKI FARA TIL BAKA OG
BIÐJA UM MEIRA SVIGRÚM.“
„ÉG ER SVO STOLT AF ÞÉR! Á
MORGUN MUNTU HAFA VERIÐ Á ÞESSUM
MEGRUNARKÚR Í HEILA VIKU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að trufla hana ekki
þegar hún er að vinna
að heiman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GENGURÐU UM MEÐ BINDI,
GRETTIR?
JÁ
ÉG FANN ÞAÐ Í MJÖG
FLOTTUM RUSLAGÁMI
NEÐAR Í GÖTUNNI
NÆÆÆS!
VERTU FYRIR AFTAN MIG, HEPPNI EDDI!
ÉG SKAL VERJA LÍF ÞITT!
MYNDIRÐU GERA ÞAÐ
FYRIR MIG?
ÉG NEYÐIST TIL
ÞESS!
ÞÚ SKULDAR MÉR
PENING!
////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////