Morgunblaðið - 23.04.2018, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 113. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Hataði kynlífsatriðin
2. Fíknin yfirtók allt
3. Mættu með 140 króna lasagna …
4. Þurftu að afhenda fimmtíu …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Brasilíski söngvarinn og gítarleik-
arinn Ife Tolentino heldur tónleika
með Óskari Guðjónssyni saxófónleik-
ara í Mengi í kvöld kl. 21. Leiðir þeirra
lágu saman í London þegar Óskar var
þar búsettur. Saman munu þeir leika
tónlist í stíl bossanova og samba en
þeir hafa gefið út eina hljómplötu í
sameiningu, Você passou aqui.
Tolentino og Óskar
leika saman í Mengi
Mads Mouritz, Teitur Magnússon,
Kraftgalli & IDK IDA með Ingibjörgu
Elsu Turchi, Arnljótur, Árni Guð-
jónsson og Hreiðar Már koma saman
á tónleikum á Húrra í Tryggvagötu
annað kvöld kl. 20.
Mouritz er danskur
lagasmiður og tónlist-
arframleiðandi og setti
hann saman dagskrá
kvöldsins með blöndu
íslenskra og
danskra lista-
manna.
Danskir og íslenskir
listamenn á Húrra
Nemendaópera
Söngskólans í
Reykjavík flytur
óperettuna Leður-
blökuna eftir Jo-
hann Strauss II í
Edinborgarhúsinu í
kvöld kl. 19.30 í
samvinnu við Tónlistarskóla Ísafjarð-
ar. Heimamenn munu taka þátt í sýn-
ingunni, þ.á m. félagar úr Sunnu-
kórnum, Leikfélagi MÍ, nemendur úr
Tónlistarskóla Bolungarvíkur og nem-
endur söngdeildar Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar.
Leðurblakan í
Edinborgarhúsinu
Á þriðjudag og miðvikudag Norðlæg átt 5-10 m/s, en hægari um
landið sunnanvert. Skúrir um landið sunnanvert og hiti 4 til 9 stig,
en stöku él fyrir norðan og hiti 0 til 4 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur smám saman úr vindi og úrkomu í
dag. Áfram bjart sunnan heiða framan af degi, en skúrir sunn-
anlands seinnipartinn.
VEÐUR
Leikmenn Tindastóls ráku
af sér slyðruorðið í annarri
viðureign sinni við KR um
Íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik karla í gær-
kvöldi. Eftir skell á heima-
velli á föstudagskvöldið
sneru Tindastólsmenn við
blaðinu á heimavelli KR í
gær og unnu öruggan sigur,
98:70, í leik þar sem vopnin
snerust svo sannarlega í
höndum Íslandsmeistara
síðustu fjögurra ára. »5
Tindastólsmenn
bitu frá sér
Vilja leika hratt og
skemmtilegt íshokkí
Eygló Ósk Gústafsdóttir átti besta af-
rekið á Íslandsmeistaramótinu í
sundi í 50 metra laug sem fram fór í
Laugardalslaug um helgina. Ásgeirs-
bikarinn, sem gefinn er í minningu
Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi
forseta, fór til Eyglóar en hann hlýtur
sá keppandi sem vinnur besta afrekið
samkvæmt stigatöflu alþjóðasund-
sambandsins. »2
Eygló Ósk hlaut
Ásgeirsbikarinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Andri Wilberg Orrason læknir er
þessa dagana staddur í Suður-
Afríku til að ljúka við verklega
hlutann af fjarnámi sínu í köf-
unarlækningum. Hann hefur síð-
ustu tvö ár verið í skurðlækn-
ingum á Landspítalanum og
stefnir í haust á að fara utan í sér-
nám í þvagfæraskurðlækningum.
„Þessi hugmynd kom fyrir svona
tveimur árum og ég ætlaði alltaf
að skella mér í þetta. Núna kom
þannig tímabil í náminu hjá mér
að ég hafði tíma til að fara og ég
ákvað að skrá mig á þetta nám-
skeið,“ segir Andri aðspurður
hvernig það hafi komið til að hann
ákvað að leggja stund á köfunar-
lækningar.
Hann segir greinina tengjast
öllum þeim sjúkdómum eða slysum
sem geta orðið neðansjávar.
„Þetta er aðallega í tengslum við
atvinnuköfun. Fólk sem starfar á
olíuborpöllum, í demantanámu-
vinnslu eða í rannsóknarleið-
öngrum úti á miðju hafi og er að
kafa mjög djúpt. Þar kemur inn
þessi köfunarveikispæling en þeg-
ar djúpt er kafað og andað að sér
lofti undir miklum þrýstingi leysist
niturgas í meira magni í blóðinu.
Þar af leiðandi þarf maður að fara
hægt upp til að fá ekki köfunar-
veiki.“
Í sex daga fjarlægð frá lækni
Atvinnukafarar á olíuborpöllum
eru allt að 28 daga í senn í þrýsti-
hylkjum neðansjávar. Til að forð-
ast köfunarveiki getur tekið allt að
sex daga fyrir þá að komast upp á
yfirborðið og því er afar langt í
læknishjálp ef eitthvað kemur upp
á. „Oft á tíðum eru læknar á bor-
pöllunum og stundum er það þann-
ig að einhver fær t.d. botnlanga-
kast og þá þarf skurðlæknir að
fara inn í þrýstiklefann og fram-
kvæma aðgerðina þar inni,“ segir
Andri sem hefur hug á því í fram-
tíðinni að taka að sér slík tíma-
bundin verkefni, að loknu sérnámi
sínu í þvagfæraskurðlækningum.
Atvinnukafarar þurfa einnig að
fara í læknisskoðun árlega og sér
köfunarlæknir um slíka skoðun.
„Vinnuveitandi þeirra gerir þá
kröfu að þeir séu líkamlega hæfir
til að kafa og vinna nauðsynleg
verkefni í kafi og það verður að
vera köfunarlæknir sem gefur út
það vottorð. Þeir þurfa að vera
hraustir til að geta verið svona
lengi í kafi og þá þarf öll færni,
lungu og hjarta að vera í lagi,“
segir Andri.
Í köfunarlækningum í S-Afríku
Sameinaði tvö
áhugamál; lækn-
isfræði og köfun
Á leið í kaf Hluti af verklega náminu hjá Andra er að geta kafað sjálfur.
Hefur hópurinn stundað köfun við strendur Höfðaborgar í Suður-Afríku.
Á námskeiðinu voru nemendur
meðal annars settir í þrýsti-
klefa þar sem líkt var eftir
þrýstingi eins og á 50 m dýpi.
Þar fengu þeir að upplifa
áhrifin sem slíkur þrýstingur
getur haft á líkamann og var
myndin að ofan tekin við það
tækifæri. „Þarna safnast nit-
urgasið fyrir í blóðinu og við
fengum svokallaða niturgas-
eitrun þar sem maður verður í
rauninni hálfruglaður. Það er
eins og maður sé fullur og
geti ekki hætt að hlæja. Rödd-
in verður eins og maður hafi
andað að sér helíum úr blöðru
og svo verða líka miklar hita-
breytingar í svona þrýstingi.
Það er stórmerkilegt að finna
fyrir þessu,“ segir Andri en
nauðsynlegt er að upplifa slík-
ar aðstæður ef gera á læknis-
fræðilegar aðgerðir í miklum
þrýstingi í framtíðinni.
Upplifðu
niturgas-
eitrun
UNDIR MIKLUM ÞRÝSTINGI
Í þrýstiklefanum Andri og náms-
félagar inni í þrýstiklefa í S-Afríku.
„Auðvitað viljum við vinna alla leiki
og spila hratt og gott hokkí. Það
verður hins vegar erfitt því andstæð-
ingarnir eru með góð lið. Við munum
reyna okkar besta og sjá hverju það
skilar okkur,“ segir Vladimír Kolak,
landsliðsþjálfari karla í íshokkíi, en
íslenska landsliðið leikur sinn fyrsta
leik í 2. deild heimsmeistaramótsins í
Tilburg í Hollandi í dag. »1