Morgunblaðið - 28.04.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.04.2018, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 8. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  99. tölublað  106. árgangur  KÍNVERSKUR ÍSLENSKUKENN- ARI Í PEKING SLAUFAN Á HILLUNA HAFSTEINN ÞJÓNN Í HÁLFA ÖLD 16LÆRÐI Á ÍSLANDI 12 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kjósendur í Reykjavík munu einkum láta velferðar- og jafnréttismál ann- ars vegar og samgöngumál hins veg- ar ráða mestu um það hvaða flokk þeir munu kjósa í borgarstjórnar- kosningunum, sem fram fara 26. maí næstkomandi, ef marka má niður- stöður könnunar Félagsvísinda- stofnunar, sem gerð var fyrir Morg- unblaðið dagana 23.-25. apríl. Þátttakendur voru spurðir hverja af eftirtöldum málaflokkum þeir teldu að myndu ráða mestu um hvaða flokk þeir kysu, og sögðu 24,5% þeirra sem afstöðu tóku vel- ferðar- og jafnréttismál. Um 23,6% nefndu samgöngumál á meðan 21% sagði að húsnæðismálin myndu ráða mestu um það hvert atkvæði sitt færi. 13,6% nefndu fjármál borgar- innar og 10,9% sögðu að skólamálin myndu ráða sinni afstöðu. Athygli vekur að stuðningsmenn núverandi meirihlutaflokka nefndu sjaldnast fjármál borgarinnar, á meðan um þriðjungur stuðnings- manna Sjálfstæðisflokksins nefndi þau sem það atriði sem myndi ráða mestu um sitt atkvæði. Þannig sögðu 46,4% kjósenda vinstri grænna að velferðar- og jafnréttismál myndu ráða mestu um atkvæði sitt, en ein- ungis 0,5% þeirra nefndu fjármál borgarinnar. 31,8% stuðningsmanna Pírata nefndu húsnæðismálin en ein- ungis 0,7% þeirra nefndu fjármálin. Þá nefndu 28,8% stuðningsmanna Samfylkingar velferðarmál en ein- ungis um 4,7% fjármál borgarinnar. Ólík sýn á fjármál borgar  Velferðar- og jafnréttismál og samgöngumál sögð ráða mestu um það hvert atkvæðið fer  Fjármál borgarinnar ráða mestu um atkvæði sjálfstæðismanna MStaðfesting á fyrri þróun »4 Arómat, Ora-fiskibollur í bleikri sósu, hangikjöt og íslenskt vatn í tuga lítra tali er meðal þess sem rat- aði í ferðatöskur Íslendinga þegar þeir héldu í sínar fyrstu sólar- landaferðir. Þess eru dæmi að enn hafi Íslendingar með sér lambalæri til Krítar. Í Sunnudagsblaði Morg- unblaðsins er farið yfir fyrstu sum- arfrí Íslendinga og hvernig þau hafa þróast. Sem dæmi um breytingar auglýsti Eimskip stórkostlega nýj- ung fyrir fyrstu Íslendingana sem gátu tekið sumarfrí og farið til út- landa á 4. áratugnum, svokallaða „hraðferð“, sem var ætluð þeim sem höfðu lítinn tíma. Hraðferð sú tók þó 17 daga, þar af 9 daga siglingu. Það var ekki sjálfsagt að Íslend- ingar gætu ferðast um landið á eigin bifreiðum fyrr en á 7. áratugnum og fólk sameinaðist um þær bifreiðar sem aðgengilegar voru. Sæti var auglýst laust í „ágætri 5 manna bif- reið í 10 daga ferð til Norðurlands“. Íslendingar tóku sumarfrí sín mjög hátíðlega þegar þeir fóru að komast til útlanda, heimasaumuðu handklæði í ferðina og ferðaföt fyrir flugið. Arómat til Spánar  Margir taka matvæli með í ferðina Landsmót Samtaka íslenskra skólalúðrasveita fyrir A- og B- sveitir stendur yfir í Breiðholti um helgina. Áætlað er að um 700 gestir verði á landsmótinu og lýkur því með tónleikum í íþróttahúsinu Austurbergi kl. 13 á sunnudaginn. Landsmótið hófst í gær með móttöku í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Hólabrekkuskóla og var formleg mótssetning haldin um kvöld- ið í íþróttahúsinu Austurbergi. Æfingar lúðrasveitanna fara fram víðsvegar um Breiðholtið þ.á m. í Fellaskóla, Tónskóla Sigursveins, Hólabrekkuskóla, Gerðubergi og Leiknishúsinu. Skólalúðrasveitir blésu til landsmóts í Breiðholti Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisendurskoðun gagnrýnir í nýrri skýrslu til Alþingis, það sem stofn- unin nefnir gerviverktöku lækna á landsbyggðinni, þar sem þeir geri verktökusamninga til langs tíma við heilbrigðisstofnanir, en starfi í raun eins og hverjir aðrir launþegar. Guðjón Hauksson, forstjóri Heil- brigðisstofnunar Austurlands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að stofnunin hefði áður gert langtíma- verktökusamninga við lækna, en ekki lengur. „Ég fagna þessari skýrslu um heilsugæsluna á lands- byggðinni og tek undir allar þær ábendingar sem þar koma fram. Hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands ger- um við ekki lengur langtímaverk- tökusamninga við lækna,“ sagði Guðjón. Guðjón telur að mikið skorti á að fullnægjandi leiðbeiningar séu fyrir hendi frá hinu opinbera um hvernig heilbrigðisstofnanir úti á landi eigi að standa að gerð verktökusamninga við lækna og aðra. »21 Gagnrýnir gervi- verktöku lækna Morgunblaðið/Eggert Heilsa Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við stöðuna.  Viðræður hafa farið fram um sameiningu fjög- urra sveitarfé- laganna í A- Húnavatnssýslu; Blönduóss, Skagastrandar, Skagabyggðar og Húnavatns- hrepps. Sex íbúafundir hafa verið haldnir til að kynna þessi áform og þar hafa komið fram mjög skiptar skoðanir meðal íbúa. Andstaða við sameiningu tengist einkum skólamálum, að því er fram kemur í umfjöllun blaðsins í dag um Norðurland vestra. »22-23 Húnvetningar deila um sameiningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.