Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkur hefur hafnað umsókn um gisti-
leyfi í 38 íbúðum í nýjum íbúðaturni í
Bríetartúni 9-11. Málið bíður endan-
legrar afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Umsóknin hefur vakið athygli.
Það er enda líklegt að aldrei hafi jafn
margar íbúðir verið fráteknar í ný-
byggingu með skammtímaleigu til
ferðamanna í huga. Á vissan hátt
hefði starfsemin verið framhald af
Fosshótelsturninum sem er norður
af íbúðaturninum á Höfðatorgi.
Buðu hótelum samstarf
Samkvæmt sölulista Höfðatorgs
var samanlagt verð þessara 38 íbúða
um tveir milljarðar króna.
Heimildir blaðsins herma að hóp-
ur fjárfesta sé að baki umsókninni og
að hluti þeirra hafi boðið eigendum
hótela að sjá um rekstur hótelíbúða.
Mun áhuginn hafa verið mismikill.
Þá munu fjárfestar hafa horft til
þess að borgaryfirvöld vilji dreifa
skammtímaleigu víðar um borgina.
Við Höfðatorg væru næg bílastæði.
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, telur að-
spurður ólíklegt að byggingarfulltrúi
muni snúa ákvörðuninni við.
Gististaður í flokki 2
Félagið Höfðaíbúðir lagði fram
umsóknina. Það er tengt fast-
eignaþróunarfélaginu Eykt.
Fólst umsóknin í að „breyta skil-
greiningu á íbúðum á 1.-8. hæð, 38
íbúðum, [svo þær flokkist undir]
gististað í flokki II“. Undir þessa
skilgreiningu heyra gististaðir án
veitingasölu. Hjálmar rifjar upp þró-
un skipulags á Höfðatorgi:
„Á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs var lögð fram umsögn skipu-
lagsfulltrúa sem er fagmaður hjá
okkur. Þar er sagan rakin.“
Tæplega 200 íbúðir
„Í upphaflegu deiliskipulagi er
heimilt að byggja 250 íbúðir á svæð-
inu. Í aðalskipulaginu, sem kannski
tekur mið af þessum ákvæðum í
deiliskipulagi, er líka gert ráð fyrir
ákveðnum íbúðafjölda. Mig minnir
að það séu tæplega 200 íbúðir. Í allri
skipulagsvinnunni hefur verið lögð
áhersla á að þetta verði blandað
hverfi. Að þarna geti verið atvinnu-
húsnæði, skrifstofur og íbúðir. Nú er
þegar búið að byggja mikinn hluta af
reitnum og það er eingöngu atvinnu-
húsnæði; skrifstofur og stærsta
hótel landsins. Þannig að í umsögn
sviðsins kom fram að miðað við stöðu
mála væri ekki hægt að taka jákvætt
í þetta erindi. Það var þessi umsögn
sem við sem pólitískt ráð samþykkt-
um,“ segir Hjálmar Sveinsson.
Þegar framkvæmdum við Bríetar-
tún 9-11 lýkur verður einn turn
óbyggður á Höfðatorgi. Sú bygging
kallar m.a. á niðurrif bygginga sem
WOW Air hefur haft afnot af. Þar
undir verður bílakjallari.
Synjað um gistileyfi í 38 íbúðum
Umhverfisráð Reykjavíkurborgar tók neikvætt í umsókn fjárfesta um gistileyfi í nýjum íbúðaturni
Leigja átti 38 íbúðir af 94 í nýjum turni á Höfðatorgi til ferðamanna Fjárfestar leituðu til hótela
Teikning/PKdM Arkitektar
Bríetartún 9-11 Fjárfestar tóku frá hæðir 1-8 í vinstri hluta turnsins.
Skipulagsstofnun gerði at-
hugasemdir við rammaskipulag
Borgartúns 24. Á umræddum
reit stendur til að byggja allt að
65 íbúðir og atvinnuhúsnæði.
Taldi stofnunin annmarka á
skipulaginu.
Hjálmar Sveinsson, formaður
umhverfis- og skipulagsráðs,
segir tíðinda að vænta.
„Okkar fagfólk, lögfræðingar
sviðsins og aðrir, eru að skoða
þetta mál. Það er að velta því
fyrir sér hvernig hægt er að
bregðast við og hvaða leiðir eru
færar. Við gerum ráð fyrir að
þeirra niðurstaða liggi fyrir í
næstu viku,“ segir Hjálmar.
Íbúar í nálægum götum hafa
mótmælt þessum áformum.
Mun skýrast
í næstu viku
BORGARTÚN 24
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er bæði ánægður og stoltur.
Þessir samningur tryggir í mínum
huga mjög stórt skref í þá átt að
Herjólfur verði viðurkenndur sem
þjóðvegur og þjónusta og gjöld taki
mið af því. Það hefur verið keppikefli
okkar heimamanna í áratugi,“ segir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum. Bæjarstjórn sam-
þykkti í gær samning við Vegagerð-
ina um að bærinn taki við rekstri
Herjólfs í haust, þegar nýtt skip sem
verið er að smíða hefur siglingar.
Rekstur nýja Herjólfs verður í
sjálfstæðu félagi í eigu Vestmanna-
eyjabæjar og verður því óháður öðr-
um rekstri sveitarfélagsins. Samn-
ingurinn gildir í tvö ár. Í honum eru
ákvæði sem tryggja munu betri
þjónustu með fleiri ferðum. Elliði
segir að ferðum muni fjölga að lág-
marki um nærri 600 á ári því skipið
muni sigla frá klukkan hálfsjö á
morgnana til miðnættis, alla daga
ársins, þar með taldar stórhátíðir.
Heimamenn fá meiri afslátt en
verið hefur. Þá er ætlunin að endur-
skoða bókunarkerfið og auka upplýs-
ingagjöf til notenda.
Tíminn að renna út
Stýrihópur sem verið hefur Vest-
mannaeyjabæ til ráðgjafar við samn-
ingsgerðina lagði eindregið til að
bæjarstjórn samþykkti samninginn í
þessari viku. Ríkið myndi líta á allar
tafir og fyrirvara sem höfnun á
samningsdrögunum og það myndi
leiða til þess að reksturinn yrði boð-
inn út. Elliði segir að ekki hafi falist
neinar hótanir í þessari ráðgjöf. Mik-
il tímapressa væri á málinu. Ef
samningar við sveitarfélagið tækjust
ekki yrði Vegagerðin að bjóða rekst-
urinn út. Það þyrfti sinn aðdraganda
auk þess sem nauðsynlegt væri að
senda starfsfólk út til þjálfunar.
Tíminn hafi verið að renna út.
Hefðu viljað íbúafund
Samningurinn var samþykktur
með atkvæðum allra bæjarfulltrúa á
fundinum í gær. Fulltrúar E-listans
sem er í minnihluta létu bóka að
æskilegra hefði verið að samningur-
inn væri kynntur bæjarbúum og bor-
inn undir atkvæði þeirra, áður en
hann væri borinn upp í bæjarstjórn.
Vegna tímapressunnar sem var á
málinu drógu þeir til baka tillögu
þessa efnis.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins tóku undir þau orð minnihlutans
að betra hefði verið að hafa rýmri
tíma til úrvinnslu málsins. Þeir
minntu þó á að ákvörðun um yfirtöku
á rekstri Herjólfs hefði verið tekin á
íbúafundi sem hátt í 500 manns sátu
og samþykkt þar einróma.
Morgunblaðið/Óskar P. Friðriksson
Kynning Oddvitar flokkanna í bæjarstjórn og ráðgjafarnefnd bæjarins kynntu samningana um Herjólf á íbúafundi í
Höllinni í gær. Elliði Vignisson bæjarstjóri er í pontu. Til vinstri á myndinni eru Stefán Jónasson, Grímur Gíslason
og Lúðvík Bergvinsson en hægra megin þeir Yngvi Harðarson og Páll Guðmundsson.
Viðurkenna Herjólf
sem þjóðveg til Eyja
Vestmannaeyjabær tekur að sér rekstur nýja Herjólfs
Örnefnanefnd mælir með nafninu
Útnesjabyggð á sameinað sveitarfé-
lag Garðs og Sandgerðis. Meðal ann-
ars er vísað til þess að íbúarnir hafi
verið kallaðir Útnesjamenn. Nafna-
nefnd og undirbúningsstjórn sam-
einingar sveitarfélaganna hefur
ákveðið að greiða atkvæði um fimm
nöfn.
Auk Útnesjabyggðar eru það
nöfnin Heiðarbyggð, Nesjabyggð,
Suðurbyggð og Ystabyggð. Þótt Ör-
nefnanefnd mæli sérstaklega með
Útnesjabyggð leggst hún ekki gegn
hinum nöfnunum en þykir þó Suð-
urbyggð og Nesjabyggð ekki sér-
kennandi fyrir byggðarlagið.
Fyrirfram var ákveðið að nöfn
sem hafa tilvísun í eldri heiti sveitar-
félaganna koma ekki til greina.
Atkvæðagreiðsla um nöfnin fimm
verður rafræn og hefst í byrjun maí.
Aftur verður kosið á milli þeirra
tveggja nafna sem flest atkvæði fá
og er gert ráð fyrir að henni ljúki 18.
maí. Atkvæðagreiðslan er ráðgef-
andi því það verður hlutverk sveit-
arstjórnar hins nýja sveitarfélags að
ákveða nafn á sveitarfélagið.
Mælt með
Útnesjabyggð
Kosið um nafn á sveitarfélagið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útnes Sandgerði og Garður verða
eitt sveitarfélag eftir kosningar.