Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 4

Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Hverfaskiptingin er mjög athyglis- verð, en þetta er ekki ný þróun,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, um niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar, sem gerð var dagana 23.-25. apríl fyrir Morgunblaðið og greint frá í gær. Nokkuð skýr munur er á fylgi flokkanna eftir hverfum, á þann veg að meirihlutaflokkarnir þrír, Sam- fylking, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Píratar sækja fremur stuðning sinn til Miðbæjar og Vest- urbæjar, á meðan Sjálfstæð- isflokkur, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins höfða frekar til kjósenda í úthverfunum. „Vesturbæjaríhaldið“ útdautt? Þannig hugðust 38,4% þeirra kjósenda sem bjuggu í Miðbæ og Vesturbæ kjósa Samfylkinguna, en einungis 19,6% Sjálfstæðisflokkinn. Fylgi þessara tveggja flokka snýst hins vegar við eftir því sem austar er farið í borginni. Fylgi Miðflokksins vex að sama skapi eftir því sem farið er lengra til austurs, þar sem ein- ungis 3% kjósenda í Mið- og Vest- urbæ hyggjast kjósa flokkinn, en hann nýtur stuðnings um 11,4% kjósenda í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi. Ólafur segir þessa þróun hafa ver- ið að koma fram með skýrari hætti síðustu árin. Niðurstöðurnar nú staðfesti til dæmis þá þróun sem síð- asta könnun Félagsvísindastofn- unar, sem unnin var í lok marsmán- aðar hafi gefið til kynna. „Það sem okkur gamla fólkinu finnst hins veg- ar athyglisverðast er að gamla „Vesturbæjaríhaldið“ virðist útdautt og gengur miklu verr en KR!“ segir Ólafur kíminn. Hann segir eina hugsanlega skýr- ingu á því hvers vegna úthverfin mælist svo á skjön við Mið- og Vest- urbæ Reykjavíkur sé að þar sé fólk pirraðra yfir vandræðum í sam- göngumálum og þeim umferðar- töfum sem nú séu daglegt brauð í Reykjavík, jafnvel þó að þær þyki smávægilegar á mælikvarða ann- arra ríkja. „Hin skýringin er að það sem hef- ur verið einkennandi fyrir Reykja- vík og nágrenni, alveg frá 1994 en þó miklu meira á þessari öld, er að í kjarna Reykjavíkur vinna vinstri- flokkarnir á. Þetta er mynstur sem við sjáum í mörgum borgum víðs vegar um Evrópu,“ segir Ólafur og bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi farið úr þeirri stöðu að stefna alltaf að því að fá meirihluta í borg- inni og niður í um 25-30% fylgi. „Þetta er mikil breyting, en á sama tíma hefur hann haldið sínu í Krag- anum, í Garðabæ, á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ, haldið tiltölulega sterkri stöðu í Hafnarfirði og Kópa- vogi, þannig að þessi vinstribylgja síðustu tvo áratugi í kjarna Reykja- víkur hefur ekki átt sér stað í bæj- unum í kring.“ Ólafur tekur fram að ekki sé hægt að fullyrða um neitt án frekari rannsókna, en engu að síður sé sá möguleiki fyrir hendi að íbú- arnir í ytri hverfum Reykjavíkur séu að þessu leyti keimlíkari nágranna- sveitarfélögunum en miðbænum og Vesturbænum. Aldursdreifingin áhugaverð Þegar rýnt er í aldursdreifingu fylgis flokkanna sést að Samfylk- ingin nýtur sterkrar stöðu meðal allra aldurshópa, en fær þó sýnu mest meðal fólks á aldrinum 18-29 ára, eða um 35%. Bæði Píratar og VG njóta hins vegar mun meiri stuðnings á aldursbilunum 18-29 ára og 30-44 ára á meðan Sjálfstæð- isflokkur og Miðflokkur höfða áber- andi meir til eldri kjósenda. Þegar rýnt er í fylgi Sjálfstæð- isflokks og Viðreisnar eftir aldri kemur í ljós að á aldursbilinu 30-44 ára nýtur Sjálfstæðisflokkurinn ein- ungis stuðnings um 17,8% á meðan Viðreisn fær þar stuðning 8,9% kjós- enda. Er það ekki síður athyglisvert þegar fylgi flokkanna meðal kjós- enda á aldrinum 18-29 er skoðað, en þar er Sjálfstæðisflokkurinn með 21% og Viðreisn 6,4% fylgi. Ólafur segir þetta athyglisvert. „Hugs- anlega þarf að skoða aldursskipt- ingu á viðhorfum fólks til Evrópu- sambandsins, hvort þau séu jákvæðari [á aldursbilinu 30-44], því það er annað af tvennu sem skilur á milli Viðreisnar og Sjálfstæð- isflokksins í þessum kosningum,“ segir Ólafur, en það hafi sýnt sig að stefna flokkanna í landsmálum skipti oft heilmiklu máli í sveit- arstjórnarkosningum, jafnvel þó að ekki sé beint kosið um landsmálin. „Svo hefur Viðreisn haft allt aðra sýn á framtíð borgarinnar en Sjálf- stæðisflokkurinn og Miðflokkurinn, og er í nálgun sinni á borgarmálin miklu nær núverandi meirihluta,“ segir Ólafur. Hann segir hins vegar enga leið að vita hvort Viðreisn myndi velja að fara í samstarf með núverandi meirihlutaflokkum ef til flokksins yrði leitað, en að það verði að telja það líklegra en hitt. Staðfesting á fyrri þróun  Meirihlutaflokkarnir sækja fylgi sitt frekar til innri hverfa Reykjavíkur en minnihlutinn til úthverfanna  Spurning hvort úthverfin séu líkari nágrannasveitarfélögunum en Miðbænum Stuðningsmenn flokkanna í borginni Hvern vill fólk sjá sem borgarstjóra Viðreisn 47% búa í Austurbæ* og 22% í Árbæ og Breiðholti*** Málaflokkar: Samgöngu- mál (32%), Skólamál (13%)**** Píratar 34% búa í Miðbæ og Vest- urbæ og 30% í Austurbæ* Málaflokkar: Húsnæð- ismál (32%), fjármál borgarinnar (0,7%)**** Samfylkingin 36% búa í Austurbæ* og 28% í Miðbæ og Vesturbæ Málaflokkar: Velferð- ar- og jafnréttismál (29%), fjármál borgarinnar (4,7%)**** Miðflokkurinn 30% búa í Grafarvogi** og 29% í Árbæ og Breiðholti*** Málaflokkar: Fjármál borg- arinnar (28%), Skólamál (3%)**** Flokkur fólksins 47% búa í Árbæ og Breiðholti*** og 38% í Austurbæ* Málaflokkar: Velferðar- og jafnréttismál (39%), skólamál (9%)**** Sjálfstæðis- flokkur 30% búa í Austurbæ* og 28% búa í Grafarvogi** Málaflokkar: Fjármál borgarinnar (33%), skólamál (7,6%)**** Vinstrihreyfingin – grænt framboð 38% búa í Austurbæ* og 26% í Miðbæ og Vesturbæ Málaflokkar: Velferðar- og jafnréttismál (46%), fjármál borgarinnar (0,5%)**** Heimild: Skoðanakönnun Félags- vísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið dagana 21. til 27. mars sl. *Hlíðar, Laugardalur, Háaleiti og Bú- staðahverfi. **Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes. ***Árbær, Norðlingaholt og Breiðholt. ****Spurt var um málaflokka sem ráða mestu um hvaða flokk viðkom- andi kýs. Þessir tveir málaflokkar voru oftast og sjaldnast nefndir. 62% 58% 57% 98% 35% 95% 52% 79% 19% Dagur B. Eggertsson Eyþór Arnalds Líf Magneudóttir Vigdís Hauksdóttir Stétt með stétt! V E R K A LÝ Ð S R Á Ð S J Á L F S TÆ Ð I S F L O K K S I N S 1. maí kaffi Verkalýðsráðs 1. maí vöfflukaffi Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins verður haldið í Valhöll við Háaleitisbraut 1, þriðjudaginn 1. maí, kl 15.00-17.00 að lokinni kröfugöngu og útifundi. Kristinn Karl Brynjarsson, varaformaður Verkalýðsráðs býður gesti velkomna og Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins flytur stutt ávarp í tilefni dagsins. Allir velkomnir! „Það var einfaldlega nauðsynlegt að stíga inn með leiðir til lausnar og það tókst. Með samningsvilja sjálfstætt starfandi ljósmæðra og fulltrúa Sjúkratrygginga og með þessu inn- spili frá ráðuneytinu tókst að bræða þetta saman sem skipti miklu máli,“ segir Svandís Svavarsdóttir heil- brigðisráðherra við mbl.is í gær- kvöldi. Þá höfðu tekist samningar á milli sjálfstætt starfandi ljósmæðra í heimaþjónustu og Sjúkratrygginga Íslands um fyrirkomulag þjónust- unnar en ráðherra hjó á hnútinn með auknu fjármagni sem tryggir óbreytta þjónustu og hærri greiðslur til ljósmæðranna. „Ljósmæður gleðjast bara og hlakka til að geta sinnt sínum skjól- stæðingum. Þetta er mikill léttir,“ sagði Arney Þórarinsdóttir, ljós- móðir og framkvæmdastjóri Bjark- arinnar, þegar niðurstaða lá fyrir. „Ég vona auðvitað líka að þetta hjálpi líka til við að losa hnútinn í heildarmyndinni,“ sagði Svandís og vísaði þar til kjaradeilu Ljósmæðra- félags Íslands við ríkið. Ráðherra hjó á hnútinn  Samið við sjálfstætt starfandi ljósmæður Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Fjölmennt var í Ísafjarðarbíói þegar læknarnir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson héldu fyr- irlestur um ósnortin víðerni á Ís- landi. Þeir sýndu þar m.a. ljós- myndir og drónaskot af fossum og víðernum upp af Ófeigsfirði á Ströndum, sem yrðu undir að sögn Tómasar ef áform um Hvalárvirkjun verða að veruleika. „Við hefðum kannski viljað sjá aðeins fleiri yngri Ísfirðinga, ekki það að við værum ekki þakklátir fyrir þá sem mættu. Það kom aðeins á óvart líka að þeir hafa verið stóryrtir í okkar garð, bæjarstjórnarfulltrúar og þingmenn en enginn af þeim lét sjá sig,“ segir Tómas spurður út í fyrirlesturinn. Hann segir að umræður hafi verið líflegar í lok fundarins og þó að margir fundarmenn hefðu verið sammála þeim létu þeir sem voru ósammála þeim í sér heyra. „Þó að þorri fólks hafi verið okkur sam- mála voru margir mjög ósammála og létu okkur alveg heyra það. Það er bara gaman að því. Þarna voru al- vöru Vestfirðingar sem kalla ekki allt ömmu sína.“ mhj@mbl.is Ljósmynd/Ásgeir Helgi Þrastarson Ísland Tómas og Ólafur sýndu myndir frá ferðalögum sínum um landið. Fjölsóttur fundur um náttúruvernd SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.