Morgunblaðið - 28.04.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsstofnun hefur í bréfi til
skipulagsfulltrúa gert athugasemdir
við að Reykjavíkurborg hafi birt
auglýsingu í Stjórnartíðindum um
samþykkt deiliskipulags fyrir lóð á
horni Skúlagötu og Frakkastígs,
svokölluðum Skúlagötureit. Þarna á
að reisa átta hæða fjölbýlishús með
atvinnustarfsemi á jarðhæð.
Borgarstjórn samþykkti nýtt
deiliskipulag í mars sl. gegn miklum
mótmælum íbúa í nágrenninu. Þeir
telja að byggingin muni skerða út-
sýni frá nálægum íbúðum og varpa
skugga á svalir og útisvæði næstu
íbúða.
Í bréfinu hvetur Skipulagsstofnun
Reykjavíkurborg til að endurskoða
ákvörðunina með hliðsjón af þeim
markmiðum sem kynnt voru í lýs-
ingu fyrir deiliskipulagsvinnuna árið
2014, framkomnum athugasemdum
við áformaða uppbyggingu og stefnu
aðalskipulags Reykjavíkur um sjón-
ása, heildarsvip og hæðir húsa. Þá
telur stofnunin ástæðu til að leita
umsagnar Minjastofnunar Íslands
um skipulagsáform í nálægð við frið-
lýstan Lindargötuskólann, áður
Franska spítalann. Ráðherra friðaði
þetta merka hús árið 2008.
Í lýsingu á fyrrnefndri skipulags-
vinnu árið 2014 kemur m.a. fram að
meginmarkmiðið sé að: ný byggð
falli vel að núverandi byggð, útsýn-
isskerðing frá núverandi byggð
verði lágmörkuð, tryggt verði útsýni
frá nýjum íbúðum, lögð verði áhersla
á skjólmyndun, hugað verði sér-
staklega að sjónás frá Frakkastíg
niður að Sólfarinu og strandsvæði og
góð umferðartengsl tryggð.
Skipulagsstofnun telur umhverfis-
mat deiliskipulagsbreytingarinnar
og svör við framkomnum athuga-
semdum ekki sýna fram á með trú-
verðugum hætti að umrædd ný-
bygging stuðli að jafnvægi í
byggðamynstri svæðisins og sé til
bóta fyrir heildarsvip byggðarinnar.
Meðal annars verði byggingin öðru-
vísi í formi og lit en aðliggjandi
byggð.
Þá er fundið að því að ekki hafi
verið lagt mat á útsýnisskerðingu
frá nálægum íbúðum. Athugasemd-
um um þetta efni sé aðeins svarað
með því að íbúar í borg geti alltaf átt
von á breytingum sem geti haft í för
með sér ýmsar skerðingar og að
réttur íbúa til óbreytts útsýnis sé
ekki bundinn í lög. Skuggavarps-
myndir fylgdu tillögunni en einungis
skuggavarp á jörð en ekki á veggi/
svalir, sem geti varðað hagsmuni
íbúa nærliggjandi húsa. Fleiri at-
hugasemdir gerir Skipulagsstofnun,
sem ekki verða tíundaðar hér.
Bréfið var tekið fyrir á síðasta
fundi skipulagsfulltrúa og því var
síðan vísað til meðferðar verkefn-
isstjóra, skrifstofu sviðsstjóra og
deildarstjóra aðalskipulags. Skipu-
lagsstofnun minnir á í lok bréfsins
að samkvæmt skipulagslögum skuli
sveitarstjórn taka athugasemdir
stofnunarinnar til umræðu.
Meirihlutinn samþykkti
Atkvæði um nýtt deiliskipulag
fyrir Skúlagötureitinn féllu þannig í
borgarstjórn að hún var samþykkt
með tíu atkvæðum borgarfulltrúa
Samfylkingarinnar, Bjartrar fram-
tíðar, Vinstri grænna, Pírata og
Framsóknar og flugvallarvina gegn
fimm atkvæðum borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og Svein-
bjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur,
óháðs borgarfulltrúa.
Þess má að lokum geta að borgin
er þegar búin að ráðstafa lóðinni.
Hún verður ein þriggja lóða sem
taka þátt í verkefninu „Reinventing
Cities“ á vegum C40. Þar er kallað
eftir „framúrskarandi uppbygging-
arverkefnum, bæði frá sjónarmiði
borgarþróunar og loftslags- og um-
hverfismála“.
Vilja að skipulag verði endurskoðað
Skipulagsstofnun gerir margar athugasemdir við nýtt deiliskipulag á lóð á horni Skúlagötu og
Frakkastígs Þarna á að reisa átta hæða fjölbýlishús Nágrannarnir mótmæltu kröftuglega
Morgunblaðið/Golli
Óheft útsýni til sjávar Svona var útsýnið frá Hallgrímskirkju niður eftir
Frakkastígnum þegar þessi mynd var tekin árið 2002. Síðan hefur stórhýsi
risið við Skúlagötuna og annað stórhýsi á að rísa hinum megin við götuna.
„Augljóst er að átta hæða hús á
þessum stað mun byrgja eða
takmarka sýn til hafs og Esj-
unnar. Það á við upp eftir
Frakkastíg, við gatnamót við
Hverfisgötu, Laugaveg, Grett-
isgötu og jafnvel ofar í holtinu,“
segir m.a. í bréfinu.
Fyrir nokkrum árum, þegar
bygging háhýsis stóð fyrir dyr-
um á sömu gatnamótum, vest-
anmegin, var vakin athygli á
þessari skerðingu á útsýni.
Sögðu gagnrýnendur að sú
bygging myndi skyggja á útsýn-
ið frá Skólavörðuholtinu og nið-
ur Frakkastíg að sjónum og um
leið eyðileggja eina mikil-
fenglegustu sjónlínu borgar-
innar. Það voru hjónin Jon Kjell
Seljeseth og Elín Ebba Ás-
mundsdóttir sem vöktu fyrst at-
hygli borgaryfirvalda á málinu í
ársbyrjun 2008.
Borgaryfirvöld sáu enga
möguleika á því að færa íbúða-
turninn til vesturs til að halda
útsýninu. Verktakinn væri í full-
um rétti og skaðabótaskylda
möguleg.
Sýn til hafs
takmörkuð
MIKILFENGLEG SJÓNLÍNA
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5á
ra
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
p
fy
llt
um
ák
væ
ð
um
áb
yr
g
ð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d