Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. „Starfið ber allt merki mikillar natni, umhyggju fyrir landinu og metnaði í uppgræðslustarfinu,“ sagði Gústav M. Ásbjörnsson, sviðsstjóri land- verndarsviðs Landgræðslunnar, þegar hann kynnti viðurkenninguna. Hugsjónastarf ævinnar Ólafur Arnalds, doktor í jarðvegs- fræðum og prófessor við Landbún- aðarháskóla Íslands, hefur fengist við rannsóknir á íslenskum jarðvegi um áratuga skeið, þar á meðal rann- sóknir á eðli jarðvegsrofs og sand- foks sem er óvíða meira en hér og hefur mótandi áhrif á vistkerfi lands- ins, eins og Árni Bragason land- græðslustjóri tók til orða þegar hann kynnti viðurkenninguna. Rifjuð voru upp verk Ólafs og einnig umhverf- isverðlaun Norðurlandaráðs sem hann fékk árið 1998 fyrir vinnu að kortlagningu jarðvegsrofs á Íslandi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er mikil viðurkenning, fyrir mikið starf, pælingar og þróun. Við höfum rekið okkur á margt í þessu ferli, bæði á svið tækni og umhverf- is,“ segir Jón G. Valgeirsson, sveit- arstjóri Hrunamannahrepps, eftir að hann tók við landgræðsluverðlaunum fyrir brautryðjendastarf við að safna seyru og nota til landgræðslu. Landgræðslan veitti þrenn land- græðsluverðlaun og afhenti Guð- mundur Ingi Guðbrandsson um- hverfisráðherra þau á ársfundi Landgræðslu ríkisins í gær. Auk Hrunamannahrepps voru Sigrún Snorradóttir og Guðmundur Eiríks- son, sauðfjárbændur á Starmýri í Álftafirði, verðlaunuð fyrir upp- græðslu. Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, var verðlaunaður fyrir rannsóknir á ís- lenskum jarðvegi og baráttu fyrir verndun hans. Metnaður í uppgræðslustarfi Bændur á Starmýrarbæjunum í Álftafirði tóku sig saman á árinu 1995 og hófu uppgræðslu mela með kerf- isbundnum hætti undir merkjum verkefnisins Bændur græða landið. Unnið hafi verið að verkefninu óslitið síðan þó hin síðari ár hafi verkefnin einskorðast við elju og áhuga Sigrún- ar og Guðmundur á Starmýri 1 vegna breyttra aðstæðna á hinum bæjun- um. Mest hefur verið unnið að upp- græðslu á víðáttumiklum melum en einnig hefur verið lögð áhersla á að græða upp rofdíla og rofabörð. og gerð fræðslu- og kennsluefnis um það. „Ólafur hefur verið afar virkur í umræðum um umhverfismál og ekki síst verndum íslenskrar moldar. Hann hefur hvergi dregið af sér í þeirri baráttu. Slíkir baráttumenn eru ekki alltaf allra og hljóta oft á tíð- um meiri skammir en þakkir,“ sagði Árni. Ólafur sagði við þetta tækifæri að verðlaunin væru sér afar kær. Land- græðsla og endurheimt landgæða hefði verið hugsjónastarf sitt mestan hluta ævinnar. Jafnframt lagði hann áherslu á mikilvægt hlutverk Land- græðslunnar í framtíðinni. Nauðsyn- legt væri að endurheimta birkiskóg- ana, votlendi og stöðva gróðureyðingu. Í því sambandi sagði hann að nauðsynlegt væri að stöðva nýtingu rofsvæða og auðna til beitar. Landgræðslan og Hrunamanna- hreppur hófu samstarf á árinu 2012 um þróunarverkefni um það hvernig nýta mætti seyru til landgræðslu. Verkefnið var í upphafi til þriggja ára. Það fólst í því að sveitarfélagið safnaði seyru úr rotþróm og dreifði hennar á illa farið land á afrétti Hrunamanna. Seyran var blönduð með vatni og síðan felld niður í jarð- veginn með þar til gerðum vélbúnaði. Verkefni með framhaldslíf Magnús H. Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Landgræðslunni, lét þess getið við athöfnina að við gróðurmælingar þremur árum eftir að verkefnið hófst hafi sést að gróðurþekjan hafði auk- ist úr 15 í 65%. Það verði að teljast mjög góður árangur eftir einskiptis landgræðsluaðgerð. „Það besta við þetta þróunarverkefni er að það dó ekki að þremur árum liðnum heldur öðlaðist framhaldslíf. Sveitarfélagið hóf þá samstarf við fjögur önnur sveitarfélög, Bláskógabyggð, Gríms- nes- og Grafningshrepp, Flóahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp, um nýtingu seyru til uppgræðslu og hafa þau byggt upp sameiginlega að- stöðu,“ sagði Magnús og lét þess get- ið að sjötta sveitarfélagið, Ásahrepp- ur, væri nú að bætast í hópinn. Aðferðum hefur verið breytt þann- ig að seyran er ekki lengur felld ofan í jörðina heldur er kalki blandað í hana og henni dreift á yfirborð landsins. „Með þessu verkefni hefur verið rudd braut til að nýta lífrænan úr- gang sem fellur til í öllum sveitar- félögum til uppgræðslu. Þannig hef- ur efni sem áður var meðhöndlað sem úrgangur sem þyrfti að farga, verið breytt í verðmæta afurð. Þetta er mikilvægt fordæmi fyrir önnur sveit- arfélög og slíkt frumkvöðlastarf er afar mikils virði,“ sagði Magnús Jó- hannsson. Safna seyru og nota til uppgræðslu  Hugsjónafólk og sveitarfélag fengu landgræðsluverðlaun  Baráttumenn fá meiri skammir en þakkir Morgunblaðið/Valli Landgræðsluverðlaun Ólafur Arnalds með sín verðlaun við hlið Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverf- isráðherra. Þá eru fulltrúar Hrunamannahrepps þau Bökur Brynjarsson, Hannibal Kjartansson, Halldóra Hjörleifsdóttir og Jón G. Valgeirsson. Lengst til hægri er Árni Bragason landgræðslustjóri. Bannið blautklúta! » Þegar Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Hrunamanna- hrepps, veitti verðlaununum viðtöku hvatti hann umhverf- isráðherra til að banna blaut- klúta. » Sagði hann frá því hvaða erfiðleikum blautklútar, smokkar, eyrnapinnar og slíkir hlutir sem lenda í rotþróm en leysast ekki upp valdi við notk- un seyrunnar. Meðal annars valda þeir bilun í tækjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.