Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 24

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Vöxtur Airbnb og annarrar sam- bærilegrar heimagistingar var um 25% á síðasta ári, samkvæmt gögn- um Hagstofunnar. Vöxtur hafði mælst mun meiri samkvæmt gögn- um vefskröpunarfyrirtækisins Airdna sem birtur er á Mælaborði ferðaþjónustunnar. Þar var reiknað með um tvöföldun á milli ára. Aftur á móti vanmat Airdna vöxtinn um árin 2015 og 2016, samkvæmt athugun Morgunblaðsins. „Við höfum verið að vinna að því að mæla heimagistingu betur og telj- um okkur gera það nokkuð vel nú. Hagstofur allra landa á Norðurlönd- um eru í sama verkefni en þar jafnt og hér hefur vöxtur Airbnb verið mjög mikill,“ segir Böðvar Þórisson, skrifstofustjóri fyrirtækjatölfræði Hagstofunnar. Airbnb greiðir virðisaukaskatt „Við byggjum þessar niðurstöður á landamærarannsókn sem fram- kvæmd er í Leifsstöð við brottför, virðisaukaskattsgögnum, gistinátta- tölfræði sem framleidd er og vefs- kröpun. Gestgjafar greiða Airbnb fyrir bókunarþjónustu 3% af verði gistingar og samkvæmt lögum ber Airbnb að innheimta virðisaukaskatt af þeirri sölu. Þessar upplýsingar nýtum við til að meta umfang Airbnb á Íslandi, en hagstofur á hinum nor- rænu löndunum eru að hefja fram- leiðslu á tölfræði um heimagistingu og Airbnb með svipuðum hætti og við gerum hér,“ segir Böðvar Hlutfall Airbnb og annarra slíkra af heildinni hefur farið vaxandi und- anfarin ár. Það hefur aukist úr 5% 2014 í 16% árið 2017, samkvæmt greiningu Hagstofunnar. Ferða- menn keyptu ríflega 1,9 milljónir gistinátta í gegnum vefsíður á borð við Airbnb árið 2017. 5,2% gistu í húsbílum utan tjaldsvæða Hagstofan hefur nú birt í fyrsta skipti hlutfall þeirra erlendu ferða- manna sem gista í húsbílum og erlendra ferðamanna sem greiða ekki fyrir gistingu, heldur t.d. hafa gert húsaskipti eða gista hjá vina- fólki. Hlutfall erlendra ferðamanna sem gista í húsbíl utan tjaldstæða var 5,2% í fyrra og 3,3% gistu á heimili annarra án þess að greiða fyrir, að sögn Hjörvars Péturssonar, sérfræðings á Hagstofunni. Gistinætur í bílum utan tjald- svæða eru áætlaðar um 520 þúsund á síðasta ári og ríflega 330 þúsund gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sér- staklega fyrir gistingu. Hjörvar bendir á að stundum gisti fólk í húsbílum á tjaldsvæðum, þær nætur myndu ekki falla undir þessa skilgreiningu, og stundum gistir sama fólk í sömu ferð annars staðar, t.d. á bílastæði. „Gögnin eru unnin upp úr landa- mærarannsókn Hagstofunnar á Keflavíkurflugvelli. Sú rannsókn hófst um mitt síðasta ár. Við byggj- um tölurnar einnig á gögnum um fjölda gistinátta frá hótelum og gisti- húsum,“ segir hann. Vöxtur Airbnb minni í fyrra en talið hefur verið Morgunblaðið/Eggert Gisting Um 3% ferðamanna höfðu haft húsaskipti eða gist hjá vinafólki.  Virðisaukaskattsskil Airbnb benda til 25% vaxtar  Gistinætur í bílum 520 þúsund Virðisaukaskattsskyld velta í gististarfsemi 100 75 50 25 0 milljarðar kr. Velta leigusala sem nota Airbnb* Velta hótela og gistiheimila 2014 2015 2016 2017 *Velta er að hluta meðtalin í veltu hótela og gistiheimila en óljóst er að hve miklu leyti Heimild: Hagstofa Íslands 2,5 51,9 62,5 11,8 85,2 14,7 94,3 5,5 36% veltu- aukning 20% veltu- aukning 121% 114% 25% 11% veltu- aukning ● Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 2,3% síðastliðna 12 mánuði sam- kvæmt nýjustu mælingu Hagstofunnar. Verðbólgan er því aftur komin niður fyr- ir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, en hún mældist 2,8% í síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,04% milli mars og apríl sem er minna en greiningaraðilar höfðu spáð. Hag- fræðideild Landsbankans segir að eink- um tvennt hafi komið á óvart að þessu sinni, annars vegar lækkun á reiknaðri húsaleigu og hins vegar hækkun á bensíni og dísilolíu. Íslandsbanki segir útlit fyrir að verðbólga verði áfram við markmið Seðlabankans fram eftir ári. Verðbólgan aftur niður fyrir verðbólgumarkmið 28. apríl 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 101.16 101.64 101.4 Sterlingspund 139.42 140.1 139.76 Kanadadalur 78.52 78.98 78.75 Dönsk króna 16.408 16.504 16.456 Norsk króna 12.64 12.714 12.677 Sænsk króna 11.612 11.68 11.646 Svissn. franki 102.13 102.71 102.42 Japanskt jen 0.9247 0.9301 0.9274 SDR 145.37 146.23 145.8 Evra 122.26 122.94 122.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.0172 Hrávöruverð Gull 1321.9 ($/únsa) Ál 2203.5 ($/tonn) LME Hráolía 74.23 ($/fatið) Brent Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, vill í samtali við Morgunblaðið ekki tjá sig um það hvort meðal- tekjur á hvern farþega hafi dregist saman milli ára, en á fréttavefnum Túristi.is er áætlað að tekjur af hverjum farþega hafi dreg- ist saman um 20% hjá félaginu í fyrra. Skúli bendir á að ársreikn- ingur félagsins hafi ekki verið birtur. Túristi.is byggir áætlun sína á far- þegatölum WOW air sem eru birtar með reglubundnum hætti og um- mælum Skúla í frétt á mbl.is um að tekjur flugfélagsins hafi numið 50 milljörðum króna í fyrra. Árið 2016 hafi meðaltekjur dregist saman um 4,3% en aukist um 6,9% árið 2015. Segir farþega skila minna Skúli Mogensen  Forstjóri WOW tjáir sig ekki um málið ● ORF líftækni hagn- aðist um 38 milljónir króna á síðasta ári. Þetta er fjórða árið í röð sem fyrirtækið skilar jákvæðri afkomu. Heildartekjur námu 1.239 milljónum og fóru í fyrsta sinn yfir milljarð króna. Tekjuvöxtur á síðasta ári var 32%. „Við höfum fjárfest mikið í markaðsstarfi, þróun og innviðum á undanförnum misserum og teljum okk- ur vel í stakk búin til að skapa áfram- haldandi vöxt hjá fyrirtækinu,“ segir Frosti Ólafsson forstjóri í tilkynningu. Tekjur ORF líftækni fóru yfir milljarð í fyrra Frosti Ólafsson STUTT flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Fjölgun erlendra ferðamanna á fyrsta ársfjórðungi var með minnsta móti, sé miðað við tímabilið frá því fyrir uppsveiflu í ferðaþjónustu, að því er segir í Hagsjá Landsbankans. Aukn- ingin nam 6,3%. Ef litið er á fyrstu þrjá mánuði ársins kemur í ljós að fjölgun ferðamanna fer minnkandi. Í janúar nam fjölg- unin 8,5% á milli ára, var 7,9% í febrúar og 3,1% í mars, sem er að sögn Landsbankans minnsti vöxtur frá því í mars 2011, fyrsta ári uppsveiflunnar. Mögulega er fjöldi erlendra ferðamanna ofmetinn, að minnsta kosti þeir sem taldir eru koma frá Póllandi. Vísbend- ingar eru um að stór hluti þeirra Pólverja sem taldir eru inn í landið hafi hér fasta búsetu eða komi hingað sem tímabundnir starfsmenn og séu því ekki ferðamenn. Þegar litið er fram hjá Pólverjum þegar ferðamenn eru taldir inn í landið fjölgaði ferðamönnum einungis um 0,9%. Í Hagsjá Landsbankans er sagt að mögulega gefi sá mælikvarði raunsærri mynd af fjölgun ferðamanna vegna þeirrar skekkju sem er í tölum um Pólverja. Pólverjar skekkja myndina STARFA MARGIR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.