Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 30

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Ég les aldrei Morg-unblaðið,“ hafa sumirsagt. Svo kemur í ljós aðþeir hafa rýnt í þetta blað, skrifað í það minning- argreinar o.s.frv. Íslensk þversögn: Við lúslesum og afneitum. En hvað sem því líður eru minningargrein- arnar fjársjóður. Maður kynnist ekki aðeins þeim sem kvaddur er, heldur einnig þeim sem kveðjuna skrifar. Ég skal játa að ég fer alla morgna yfir allar minningargreinar í „blaði allra landsmanna“. Nýlega las ég fallega grein um mann sem hafði kynnst konu úr Skagafirði; stjúpdóttir þessa manns skrifaði greinina. Þar stendur m.a.: „Hann var eins og klipptur inn í fjölskylduna, öllum líkaði vel við hann nema kannski afa til að byrja með. Því gamli bóndinn í Skagafirðinum skildi ekki enskusletturnar sem komu af Keflavíkurflugvelli, Robbi lagði þær svo af og þeir töluðu saman á íslensku eftir það og urðu miklir mátar.“ – Ekki er að spyrja að skagfirsku bændunum. Þeir og þeirra líkar munu bjarga íslenskunni. Einn og einn málfræðingur fer á yfirsnúning og lætur dæluna ganga ef kennari gefur sér tíma til að ræða um orðarununa „ég hlakka til“ and- spænis „mig hlakkar til“ og „mér hlakkar til“. Málfræðingurinn gleymir að hér gefst tilvalið tækifæri til að spjalla um leyndardóma tungumáls- ins, t.d. þá tilhneigingu umræddrar sagnar til að „svíkja lit“ og gerast ópersónuleg. [Ópersónu- legar sagnir standa alltaf í 3. persónu eintölu og laga sig því ekki að þeirri persónu sem þær fylgja, sbr. „mér hlakkar/okkur hlakkar“; en persónulegar sagnir laga sig að persónunni sem þær fylgja, sbr. „ég hlakka/við hlökkum“.] En nú hefst kennsla í hljóðfræði með bragfræðilegu ívafi. Kennari segir: „Bóndi í Rangárþingi heyrir þessa vísu eftir Vestur-Íslendinginn KN (Káinn), sem ólst upp í Eyjafirði: Kæra foldin, kennd við snjó, hvað eg feginn yrði mætti holdið hvíla í ró heima í Eyjafirði. [Takið eftir innríminu!] Hvað haldið, krakkar mínir, þið að þessum sunnlenska bónda muni finnast um stuðlasetninguna?“ Umræðan fer á flug og niðurstaðan er þessi: Sunnlenska bóndanum líkar ekki ljóðstafasetningin í fyrri vísuhelmingi; það truflar brageyra hans að hv- skuli stuðla við k-. Aftur á móti er hann ánægður með ljóð- stafasetninguna í seinni partinum því að þar stuðlar hv- við h- eins og hefðin segir til um. Það má svo taka fram að Káinn varð ekki að ósk sinni: Hann var graf- inn vestra. En um framburð hans er þetta að segja: Eyfirðingurinn Ká- inn hefur, andstætt sunnlenska bóndanum, borið hv- fram sem kv- og því freistast til að láta hv- stuðla við k- í fyrri vísuhelmingi en haldið sig við hefðina í seinni partinum. Óvænt spurning kennara: Hver er gerandinn í þessari setningu (þrír möguleikar): Myndin var tekin af Þórði ljósmyndara. [Ekki kíkja á svarið strax!] [Svar við spurningu um geranda: a) Þórður; b) einhver sem hrifsaði mynd af Þórði; c) einhver sem smellti mynd af Þórði.] Skagfirski bóndinn Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Áþriðjudaginn kemur, 1. maí, mun verkalýðs-hreyfingin á Íslandi og um heim allan halda há-tíðisdag verkalýðsins hátíðlegan. Þessi dagurhefur á sér allt annað yfirbragð nú en fyrir hálfri öld, þegar segja má að baráttan í kalda stríðinu hafi sett sitt mark á þennan dag áratugum saman. Þar fengu andstæðingar aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfs við Bandaríkin kjörinn vettvang til þess að tala til þjóðarinnar. En þó var það svo, að á þeim tíma voru sjálfstæðismenn svo umsvifamiklir í starfi innan verkalýðshreyfingarinnar að þeir lögðu mikla áherzlu á að vinstri menn gætu ekki einir helgað sér þennan dag. Þessa áherzlu mátti m.a. sjá á því hvað Morgunblaðið lagði mikla vinnu í að gefa út myndarleg 1. maí blöð ár hvert svo og að segja ítarlega í fréttum næstu daga á eftir frá hátíðahöld- unum um land allt. Nú eru bráðum liðnir þrír áratugir frá lokum kalda stríðsins svo að allt er þetta liðin tíð þegar kemur að 1. maí. Samt er það svo, að þessi dagur get- ur að þessu sinni orðið tíðindameiri en hann hefur lengi verið. Ástæðan er sú, að í fyrsta sinn í langan tíma eru ný viðhorf að ryðja sér til rúms í verka- lýðshreyfingunni og áleitin spurning, hvort tími hinna háskólamenntuðu for- ystumanna ASÍ sé liðinn, en það voru töluverð tímamót í sögu þessarar hreyfingar, þegar þeir tóku við af verkalýðsforingjum sem höfðu unnið sig upp til forystu í verkalýðsfélögum með hörðum höndum á hafn- arbakkanum. Getur verið að verkalýðshreyfingin hafi í höndum há- skólamenntaðra leiðtoga orðið hluti af „hinum ráðandi öfl- um“ á Íslandi? Orðið samdauna „kerfinu“? Eða eins og einn vinur minn hafði orð á um síðustu helgi, að verkalýðs- hreyfingin væri orðin afl í fjármálakerfi þjóðarinnar í gegnum lífeyrissjóðina og tæki óhóflega mikið tillit til þeirra hagsmuna. En hvort sem eitthvað er hæft í því eða ekki er það stað- reynd að nú er orðinn til hópur verkalýðsforingja sem koma úr allt annarri átt og láta til sín taka í vaxandi mæli. Þar er átt við Vilhjálm Birgisson á Akranesi, Aðalstein Baldursson á Húsavík, Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og nú Sólveigu Önnu Jónsdóttur, hinn nýja formann Eflingar. Í sjónvarpsröð um líf og örlög sænskrar fjölskyldu við lok heimsstyrjaldarinnar síðari, sem RÚV hefur nýlokið sýningum á, brá fyrir stuttu myndskeiði sem sýndi Sól- veigu Önnu þeirra tíma í Svíþjóð skora karlaveldið á hólm í sænsku verkalýðshreyfingunni og fara með sigur af hólmi. Svona breytingar verða stundum skyndilega og hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Það má sjá úr fjarlægð að „ráðandi öflum“ í verkalýðs- hreyfingunni hér er ekki rótt, þeir vita ekki hvernig þeir eiga að bregðast við og eru þess vegna tvístígandi. Þessi óróleiki snýr ekki bara að kjörnum foringjum í verkalýðs- hreyfingunni. Starfsmönnum verkalýðsfélaga og samtaka þeirra stendur heldur ekki á sama. Þeir vita ekki hvað bíð- ur þeirra ef byltingin breiðist út. Það verður spennandi að sjá, hvort hinir hefðbundnu verkalýðsleiðtogar sjá ástæðu til þess að ræða þessa stöðu í ávörpum sínum 1. maí, eða hvort þeir taka þann kost, sem nú verður sífellt vinsælli meðal stjórnmálamanna, að reyna að þegja af sér svona breytingar og undiröldur. Þó verður að segja það hinum rótföstu verkalýðs- leiðtogum til varnar að þeir hafa ekki einir átt þátt í að búa til þann jarðveg byltingar, sem er að verða til í verkalýðs- félögunum. Þar hafa stjórnendur lands og þjóðar í öllum flokkum utan Pírata lagt sitt af mörkum. Sá vaxandi órói sem hefur verið að búa um sig um skeið á vinnumarkaðnum vegna kjaramála launþega á rætur í ákvörðunum Kjar- aráðs sumarið og haustið 2016 um launa- hækkanir til handa æðstu embættis- mönnum, þingmönnum og ráðherrum. Almenningi í landinu ofbauð sú „sjálf- taka“. En hann á líka rætur í launaþróun meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins svo og rík- isfyrirtækja, sem Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjár- málaráðherra, gerði ítarlega grein fyrir á fundi Samtaka sparifjáreigenda sl. þriðjudag. Þetta tvennt veldur því að öll launamál á Íslandi munu að óbreyttu komast í uppnám á næstu misserum, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ástæðan fyrir því að þessi launaþróun meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja hefur áhrif innan verkalýðshreyfing- arinnar er einfaldlega sú, að öllum er ljóst að verkalýðs- félögin hefðu getað komið í veg fyrir að sú þróun færi af stað aftur eftir hrun vegna þess að flest þessara fyrirtækja eru nú að meirihluta til í eigu lífeyrissjóða. Hvernig stendur á því að fulltrúar í stjórnum þessara fyrirtækja, sem sækja umboð sitt með óbeinum hætti til verkalýðsfélaganna, hafa tekið þátt í þessum leik? Getur það verið að verkalýðsleiðtogunum þyki svo mik- ið til þess koma að vera orðnir „afl“ í fjármálakerfi þjóð- arinnar vegna áhrifa þeirra innan lífeyrissjóðanna að þeir hafi sofnað á verðinum? Þótt líklegt sé að flestir hinna hefðbundnu verkalýðs- leiðtoga muni leiða hjá sér að ræða svona „viðkvæm“ mál 1. maí má þó búast við að einhverjir geri það og ekki ósennilegt að framhald verði á. Auðvitað eiga verkalýðsfélögin að grípa tækifærið, setja öll þessi mál á dagskrá félagsfunda í vor, sumar og haust, láta þúsund blóm blómstra (þó ekki að hætti Maós for- manns!) og opna röddum launþeganna í landinu farveg inn í samfélagsumræðurnar. Það er kallað lýðræði. Munu raddir launþega heyrast 1. maí? Er hin hefðbundna verkalýðsforysta orðin samdauna „kerfinu“? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Á fundi Stofnunar stjórnsýslu-fræða og stjórnmála fimmtu- daginn 26. apríl síðastliðinn flutti ég erindi um nýútkomið rit mitt, Totalitarianism in Europe: Three Case Studies, Alræði í Evrópu: Þrjár rannsóknir. Ein rannsóknin var á stjórnmálaafskiptum stal- ínistans Halldórs K. Laxness, beittasta penna alræðisstefnunnar á Íslandi. Ég sagði ýmsar sögur af Laxness, sem eru ekki á allra vit- orði, til dæmis um tilraunir hans til að fá bækur sínar útgefnar á Ítalíu fasista og í Þýskalandi nasista, og brá hann sér þá í ýmissa kvikinda líki. Vitnaði ég í Pétur Pétursson útvarpsþul, sem sagði mér eitt sinn, að heiðurspeningur um Lax- ness hlyti að hafa tvær hliðar, þar sem önnur sýndi snilling, hin skálk. Eftir erindið kvaddi Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi menntamála- ráðherra, sér hljóðs og kvað Lax- ness hafa verið margbrotinn mann. Í Gerplu lýsti hann til dæmis fóst- bræðrum, Þormóði og Þorgeiri. Annar væri kvensamur, skáld- hneigður veraldarmaður, hinn bar- áttujaxl og eintrjáningur, sem sást ekki fyrir. Tómas Ingi varpaði fram þeirri skemmtilegu tilgátu, að í raun og veru væri báðir menn- irnir saman komnir í Laxness. Hann væri að lýsa eigin tvíeðli. Ég benti þá á, að svipað mætti segja um Heimsljós, þegar Ljós- víkingurinn og Örn Úlfar eiga frægt samtal. Ljósvíkingurinn er skilyrðislaus dýrkandi fegurð- arinnar, en Erni Úlfari svellur móður vegna ranglætis heimsins, sem birtist ljóslifandi á Svið- insvíkureigninni. Mér finnst aug- ljóst, að Laxness er með þessu samtali að lýsa eigin sálarstriði. Annars vegar togaði heimurinn í hann með skarkala sínum og brýnum verkefnum, hins vegar þráði hann fegurðina, hreina, djúpa, eilífa, handan við heiminn. Tómas Ingi kvað reynsluna sýna, að skáldin væru ekki alltaf ratvísustu leiðsögumennirnir á veraldarslóðum, og tók ég undir það. Laxness var stalínisti og Hamsun nasisti, en skáldverk þeirra standa það af sér. Lista- verkið er óháð eðli og innræti listamannsins. Raunar tók ég ann- að dæmi: Leni Riefenstahl var viðurkenndur snillingur í kvik- myndagerð. En vegna daðurs hennar við nasisma fyrir stríð fékk hún lítið að gera í þeirri grein eftir stríð. Það var mikill missir. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Skrafað um Laxness /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.