Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 33

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Reykjavík og flest sveitarfélög hafa á undanförnum árum hvatt foreldra til að beina börnum sínum í íþróttir með því að greiða hluta kostnaðar barnanna til viðkom- andi íþróttafélags en það dugar skammt fyr- ir barnmargar fjöl- skyldur, einkum ef börnin hafa áhuga á fleiri en einni íþróttagrein. Mið- flokkurinn vill að Reykjavik og öll önnur sveitarfélög tvöfaldi Frí- stundakort með hverju barni svo börn geti iðkað gjaldfrjálst eina íþróttagrein eða æft fleiri greinar. Þá þarf að koma á sérstökum styrk- veitingum til foreldra í erfiðleikum svo börn þeirra geti stundað íþróttir og tekið þátt í skóla- og íþróttaferð- um. Þá verða börn innflytjenda hvött sérstaklega til að taka þátt í íþróttum í samstarfi skóla og við- komandi íþróttafélaga. Markvisst verður farið í uppbyggingarvinnu og forvarnarstarf með íþróttafélögum. Íþróttafélög um allt land hafa með aðstoð sveitarfélaga, fyrirtækja og sjálfboðaliða kappkostað að byggja keppnisvelli og íþróttahús en samt þarf stórátak í þessum málum svo þessi félög geti boðið iðkendum sín- um upp á þátttöku í fleiri íþrótta- greinum. Starfsemi ÍR í Breiðholts- hverfinu er dæmi um virkilega góða og markvissa starfsemi. Miðflokk- urinn mun styðja að Reykjavík- urborg standi við loforð sín um hraða uppbyggingu betri aðstöðu á ÍR svæðinu svo og bæta aðstöðu allra annarra íþróttafélaga í borg- inni og fjölga spark-, handbolta- og körfuboltavöllum um alla borg. Þjóðarleikvangar Miðflokkurinn styður hugmyndir ÍSÍ og sérsambanda um að byggja framtíðar yfirbyggðan fjölnota þjóð- arleikvang í Laugardal einkum fyrir knattspyrnu og eftir það byggingu veg- legrar fjölnota íþrótta- hallar fyrir handbolta, körfubolta, fimleika, frjálsar, o.fl. íþrótta- greinar. Einnig þarf að rísa veglegur frjáls- íþróttavöllur, t.d. í samstarfi við ÍR, FRÍ og öll frjálsíþróttafélög höfuðborgarsvæðisins. Leita þarf leiða til að fjármagna þessi nýju íþróttamannvirki í samstarfi Reykjavík- urborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi ríkissjóðs, stórfyrirtækja og al- þjóðlegra sérsambanda. Þá er lagt til að ÍSÍ ræði við Íslenska Getspá um að koma á fót nýjum alþjóð- legum Lottóleik til að fjármagna hluta þessara mannvirkja svo og rekstur þeirra. Ljóst er að verulegar tekjur skapast með þessum mann- virkjum vegna „íþróttatengdrar ferðaþjónustu“ vegna komu er- lendra áhorfenda til landsins og í þessu sambandi má einnig benda á aukna og ódýra landkynningu vegna alþjóðlegra sjónvarpssendinga frá kappleikjunum eins og eftir HM í handbolta á Íslandi 1995 þá jókst ferðamannastraumur frá Frakk- landi, Spáni og Þýskalandi vel yfir 25% næsta ár. Heilsumál Hreyfingarleysi barna og ofþyngd er eitt stærsta heilsufarsvandamál á Íslandi og meðal flestra vestrænna þjóða. Rannsóknir sýna að virk þátt- taka í skipulögðu íþrótta- og æsku- lýðsstarfi skilar miklum árangri í forvarnarstarfi til að bæta andlega og líkamlega heilsu barna og ung- linga svo og námsárangur þeirra. Þátttaka barna og unglinga í íþrótt- um er því mikilvæg til að bæta lýð- heilsu landsmanna. Eins og gefur að skilja er rekstur og skipulag fag- legrar íþróttastarfsemi íþrótta- félögum um allt land kostnaðarsamt. Of margir foreldrar, t.d. einstæðir með mörg börn, geta átt erfitt með að bjóða börnum sínum að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi vegna kostnaðar sem því fylgir, en miklu skiptir að börn efnaminni foreldra geti einnig tileinkað sér þann heppi- lega lífsstíl að stunda íþróttir. Tvö- földun Frístundakorts skiptir miklu máli þó að fjárfesting Reykjavík- urborgar aukist um 700 milljónir ár- lega því það margborgar sig í bættri lýðheilsu. Flestir stjórnmálamenn hafa átt- að sig á mikilvægi íþrótta- og æsku- lýðsstarfs sem forvarna í þágu lýð- heilsu. Miðflokkurinn ætlar að leggja aukinn kraft og fjármuni í forvarnir í samstarfi við íþrótta- hreyfinguna og önnur frjáls fé- lagasamtök og vill eiga samvinnu við sveitarfélög um allt land, skóla og foreldra til að auðvelda foreldrum þátttöku barna sinna og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi. Ferða- kostnaður innanlands dregur allt of mikið úr íþróttaiðkun barna og ung- linga, sérstaklega á landsbyggðinni. Við því þurfa stjórnvöld að bregðast með því að auka verulega framlag sitt til Ferðasjóðs íþróttafélaganna. Miðflokkurinn fagnar því að aðrir stjórnmálaflokkar styðji það mik- ilvæga forvarna- og lýðheilsustarf sem íþróttir eru til að bæta heilsu barna okkar og unglinga, þeim og foreldrum þeirra til mikillar ánægju og lífsgleði. Hvað finnst þér, lesandi góður? Tvöföldun Frístundakorts auðveldar þátttöku í íþróttum Eftir Jón Hjaltalín Magnússon » Tvöföldun Frístundakorts skiptir miklu máli þó að fjárfesting Reykjavík- urborgar aukist um 700 milljónir árlega því það margborgar sig í bættri lýðheilsu. Jón Hjaltalín Magnússon Höfundur er verkfræðingur og frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík. jhm@simnet.is Auðvitað eru til ýms- ar skilgreiningar á þjóð, svo sem landið, þar sem hún býr, kannske trúin sem hún ástundar, o.s.frv., en langsterkasta skil- greiningin á því, hvaða fólk myndar með sér þjóð, er tungumálið sem fólkið talar. Við Ís- lendingar erum því Ís- lendingar fyrst og fremst vegna þess að við tölum íslenzku. Ég var í burtu í 27 ár. Auðvitað er það nokkuð langur tími, en mér krossbrá við heimkomuna, þegar ég heyrði, hvernig tungan hafði breyzt, ekki bara orðalag og málfar, heldur líka framburður og áherzl- ur í talmáli. Sem betur fer hafa prentmiðlarnir staðið sig mest vel í því að vernda og viðhalda þeirri íslenzku sem ég þekkti og fór frá, og eru þar greinilega vel- menntaðir og færir rit- stjórar, blaðamenn og prófarkalesarar að verki, en fjölmiðlar hins talaða orðs, sjón- varps og útvarps, hafa greinilega sofið nokkuð á verðinum. Þó að starfsmenn þessara fjöl- miðla séu margir vandir að orðavali og tali sínu, leyfast gestum og við- mælendum alls konar slettur, mest á ensku, og virðast sumir jafnvel halda að þetta sé fínt og flott; yfir móð- urmálið hafið. Skemmtileg keppni íslenzkra söngkóra fór fram á Stöð 2 á síðast- liðnum vetri. Var illt að hlusta á þær enskuslettur og þá hörmulegu „ís- lenzku“ sem dómnefndin viðhafði á köflum. Annaðhvort kann þetta fólk ekki íslenzku, sem þó býr yfir litrík- um og margvíslegum lýsingar- orðum, eða það telur að ensku- sletturnar séu flottari og á „hærri le- vel“, svo að notað sé orðalag úr keppninni. Viðtal var við söngkonu í útvarp- inu. Talaði hún þar um „aðra per- formera“, þegar hún var að tala um starfsfélaga sína, aðra söngvara eða tónlistarfólk. Mikil fátækt eða fífla- tízka það. Talað var við fyrrverandi ráð- herra í sjónvarpi og sagði hann (hún) þá þetta: „Ég kann ekki við þegar fólk talar heilbrigðiskerfið niður.“ Hafði þessi ágæta kona aldrei heyrt um „að gera lítið úr“, „lítillækka“, „rakka niður“, „hallmæla“ o.s.frv. Sama kona beitti orðalaginu að „tækla“ í blaðagrein. Komst hún, þó ótrúlegt sé, upp með það. Kannske átti þetta að vera fínna en „leysa“, „ráða fram úr“, „finna lausn á“ o.s.frv. Gamalkunn og vinsæl sjónvarps- kona átti fyrir nokkru sjónvarps- viðtal við innanhússarkitekt eða inn- anhússhönnuð, konu. Sú ágæta kona notaði „trend“ um allt, þar sem „tízka“ eða „hönn- unarstefna“ hefði átt við. Sjónvarpskonan vildi fara eitthvað ofan í hönnunarmál fyrri áratuga, og sagði þá „in the Fifties and Six- ties“. Það var greini- lega ekki nógu mikið púður í „sjötta ára- tugnum“ eða „sjöunda áratugnum“. Í íþróttum og fót- bolta eru enskuslettur einna mestar, að undanskildum kannske popptónlist og annarri tónlistarstarfsemi: „Hann tók niður manninn“, er sagt, þegar meint er „hann felldi mann- inn“, „hann brá manninum“, „hann hrinti manninum niður“ o.s.frv. Hér gildir líka „að tækla“, sem auðvitað heitir á íslenzku „að leika á“, „að beita leikfléttu“, „að spila á eða framhjá“. Varðandi íþróttatal er þó ein fín og ánægju- leg undantekning; Formúla 1: Hér hafa fréttamenn eða ís- lenzkufræðingar Stöðvar 2 búið til ný og góð íslenzk orð fyrir það helzta, eins og „ráspól“, „þjónustuhlé“ o.s.frv. Gott framtak það. Einn alvarlegur viðbótarvandi er að unga fólkið virðist lítið eða ekkert lesa lengur. Gott mál dagblaða og tímarita kemst því ekki til skila. Hér þurfa foreldrar, eldri ættingjar og vinir, auk skólanna auðvitað, að grípa inn í. Við verðum að ná unga fólkinu aft- ur inn í íslenzkuna með öllum ráð- um. Það sama gildir um beygingar orða; það er ekki hægt að hlusta á „mig hlakkar“, „þá hlakkar“, „mér langar“, „henni langar“ o.s.frv. án þess að þetta sé leiðrétt. Hugmyndir um að meðtaka og leyfa þágufallssýki og nefna slíkt „þróun málsins“ er veikleiki, rugl- andi og skaðlegt fyrir tunguna og út í hött. Í mínum huga ættu forráðamenn sjónvarps og útvarps að setja það skilyrði fyrir viðtölum og umræðum, að menn forðist enskuslettur og mál- villur og haldi sér við hreina ís- lenzku. Margt sem gerist í sjónvarpi telst fínt og til fyrirmyndar, og gæti átak þessara fjölmiðla til að end- urvekja hreint og gott íslenzkt mál því haft góð áhrif. Á Alþingi verður vitaskuld að banna útlendar slettur, og ætti for- seti Alþingis að ganga í það, hafi það þá ekki þegar verið gert. Forráðamenn allra ráðuneyta, op- inberra stofnana og fyrirtækja ættu líka að brýna fyrir starfsmönnum sínum að þeir beittu aðeins góðri og eftir föngum réttri íslenzku í ræðu og riti. Það sama gildir og um öll fyr- irtæki, lítil og stór, sem tilfinningu hafa fyrir tungu okkar og þjóðerni. Eftir Ole Anton Bieltvedt »… gestum og viðmælend- um leyfast alls konar slettur, mest á ensku, og virðast sumir jafnvel halda að þetta sé fínt og flott; yfir móð- urmálið hafið Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Tungan gerir þjóð að þjóð Það virðist vera ein allsherjarlausn allra mála að tala um upp- byggingu innviða og svo sem ágætt í sjálfu sér. Okkur finnst hins vegar vanta upp á að átta sig á umfangi þessara innviða og hverjir þeir nákvæm- lega eru. Okkar skoð- un er sú að innviðir hvers samfélags sé fólkið sjálft og þá fyrst og síðast spurningin um það hvernig fólk hefur það almennt, og forskriftin sé sú að fólk hafi bærilega í sig og á eins og sagt var í gamla daga og þá má bæta við þaki yfir höfuðið svo það sé örugg- lega með. Auðvitað kemur upp- bygging samfélagsins víða við og innviðirnir margir sem líta þarf til og flestir koma fólkinu í landinu til góða á einn og annan veg svo sem þegar litið er til heilbrigðismála, félagslegrar uppbyggingar svo og að horft sé til samgöngumála á þann hátt að allir íbúar landsins hafi þokkalegt aðgengi til að fara klakklaust að heiman og heim. Öllu þessu gerum við okkur grein fyrir að þurfi að huga að. En af- koma allra, ekki sumra, snýst öðru fremur um að fólkið hafi það vel þokkalegt að minnsta kosti. Mis- skipting lífsins gæða æpir alls stað- ar á okkur, ömurleikinn blasir alltof víða við, sumt kann að vera sjálf- skaparvíti og þar er neyzla áfengis og annarra eiturefna svo áberandi skelfileg að dag hvern má segja að dregnar séu upp hryllingsmyndir af afleiðingunum. Og gleymum því ekki að þarna er á ferð fólk eins og við, þú og ég, sem er ekki lengur frjálst heldur glímir við óvin sem alinn er af spilltu auðvaldi og látinn að mestu óátalinn, jafnvel boðað, að enn meiri og greiðari aðgangur skuli vera að þessum bölvöldum. En svo eru líka alltof margir af þessum sönnu innviðum samfélagsins fólk undir fátæktarmörkum, fólk sem býr við ósæmilegar aðstæður, ekki mönnum bjóðandi í raun. Einhverju sinni þegar verið var að berjast fyr- ir því að lífsframfæri þessa fólks væri í samræmi við eðlileg kjör sagði ákveðinn ráðamaður eitthvað á þá leið að þau væru svo mörg að erfitt væri úr að bæta. Og vissulega eru þau mörg en því meiri ástæða til að taka til hendinni. Við frænd- urnir, sem höfum stutt Vinstri græna frá upphafi þess flokks, skorum á forsætisráðherra okkar að taka til hendi að byggja upp þessa innviði samfélagsins. Við viljum mega trúa því að þar verði ekki viðkvæðið að þau séu alltof mörg sem þurfa hjálp. Ef ekki hún og hennar liðsmenn, hverjir þá? spyrjum við. Og rétt í leiðinni skorum við á sama foringja okkar að sjá til þess að ljós- mæðradeilan leysist ljósmæðrum í fyllsta hag. Innviðir samfélagsins – fólkið sjálft Eftir Helga Seljan og Björn G. Eiríksson Helgi Seljan Helgi er fyrrverandi þingmaður og Björn er sérkennari. Björn G. Eiríksson » Við frændurnir, sem höfum stutt Vinstri græna frá upp- hafi þess flokks, skorum á forsætisráðherra okkar að taka til hendi að byggja upp þessa innviði samfélagsins. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.