Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 35
MINNINGAR 35Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
✝ Sigurður Árna-son fæddist á
Ísafirði 5. maí 1926.
Hann lést á Dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 16. apríl
2018. Foreldrar hans
voru Árni Jón Árna-
son bankaritari, f.
17.5. 1894, d. 13.7.
1939, og Guðbjörg
Tómasdóttir hús-
móðir, f. 6.12. 1898, d. 23.4. 1960.
Systkini hans voru Theodór
Árnason verkfræðingur, f. 11.1.
1924, d. 27.3. 2013, Svanhildur
Árnadóttir hús-
móðir, f. 25.2. 1929,
d. 15.7. 2016, og Árni
Jón Árnason verka-
maður, sammæðra,
f. 2.7. 1945. Sigurður
verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu
í dag, 27. apríl 2018,
klukkan 15.
Þessar greinar
eru endurbirtar í
dag þar sem röng mynd birtist
með greinunum í gær.
Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á mistökunum.
Siggi bróðir lét ekki lífið vefj-
ast fyrir sér frekar en dauðann.
Lausnin var að fresta engu til
morguns sem hægt er að gera í
dag. Tímaskynið var óbrigðult
og hvergi lausir endar. Þannig
lifði hann lífinu og þannig dó
hann. Hann gaf sér rétt tíma til
að kveðja, svo var hann farinn.
Engir vafningar, ekkert vesen.
Siggi var lítillátur maður með
sterkar skoðanir en hann hélt
þeim fyrir sig, eins og hefð er
fyrir í ættinni. Þegar ég kom til
sögunnar hafði hann munstrað
sig á skútu, sem hélt honum við
efnið til starfsloka við góðan
orðstír. Siggi í Fossberg var af-
greiðslumaður af lífi og sál. En
lífinu fylgja áskoranir og þeim
fékk hann snemma að kynnast.
Hann þurfti ungur að flytjast
frá fæðingarbæ sínum Ísafirði
til Reykjavíkur vegna atvinnu
föður síns, sem innan fárra ára
lést af slysförum. Það var mikið
áfall eins og gefur að skilja.
Hann tjáði sig lítið um það,
sagði bara að faðir sinn hefði
verið mjög góður maður. Stað-
festa og æðruleysi einkenndi
Sigga alla tíð og þeir eiginleikar
komu að góðum notum. Hann
sem alltaf hafði verið hraustur
og laus við kvilla þurfti upp úr
miðjum aldri að glíma við mörg
heilsufarsleg áföll en þau hristi
hann jafnan af sér og átti góða
kafla inn á milli. Glíman við Elli
kerlingu var snörp og leikslokin
fyrirséð. Upprunaleg hreysti
hans og jafnaðargeð dugðu þó
lengi vel. Systkini okkar voru
mikið atgervisfólk og fóru sínar
eigin leiðir. Svanhildur fór norð-
ur í land og fann þar afbragðs-
mann, Kristján Benediktsson á
Þverá í Öxarfirði, og eignaðist
með honum átta börn en fyrir
átti hún son. Theodór var ein-
hleypur eins og við hinir strák-
arnir en einn okkar systkinanna
gekk hann menntaveginn og
gerðist verkfræðingur og vann
sér mikið traust og álit í þeim
fræðum.
Ættfræði stundaði hann líka
af mikilli einurð. Einurð Svan-
hildar var ekki síðri. Þegar
skyldum hins stóra og erilssama
heimilis var af henni létt og
heilsa tekin að hnigna sýndi hún
enn hvað í henni bjó og einhenti
sér í listina, sem hafði reyndar
lengi blundað með henni. Árang-
urinn sést meðal annars á því að
heimilli okkar Sigga er beinlínis
betrekkt með fögrum og fjöl-
breyttum málverkum.
Siggi vann ekki stór afrek
eins og áðurnefnd systkini hans
en einurð átti hann í ríkum
mæli. Mér veitti hann alltaf tak-
markalausa þolmæði og stuðn-
ing.
Einurð hans var líka fólgin í
því að standa af sér allar rast-
irnar og stórsjóina sem lífs-
róðurinn bauð upp á og komast
loksins í gegnum brimgarðinn
sjálfan. Þar sem sandfjara fyr-
irheitna landsins tekur við mjúk
undir il. Blessuð sé minning
hans.
Árni Jón Árnason.
Í dag kveð ég kæran frænda
sem reyndist mér ákaflega vel
og gaman var að heimsækja,
sem ég gerði um áratugaskeið.
Þegar ég var á vertíð í Grinda-
vík á áttunda áratugnum var á
vísan að róa að heimsækja þá
bræður Sigga og Árna. Þeir
voru alltaf á sínum stað og tóku
mér opnum örmum. Ég óska að
góður guð gefi Sigga góða heim-
komu.
Tómas M. Guðgeirsson.
Við Sigurður Árnason vorum
vinnufélagar hjá GJ Fossberg
vélaverzlun í rúman áratug
þangað til hann lét af störfum
vegna aldurs, sem ég hygg að
hafi verið árið 1995. Og í raun-
inni höfðum við verið vinnu-
félagar lengur, því ég vann þar
öll sumur frá 1973 á meðan ég
var í námi. Starfsævi Sigurðar
hjá Fossberg var þó miklu
lengri, því hann hóf þar störf á
fimmta áratug 20. aldar. Af-
greiðslustörf í vélaverzlun Foss-
berg urðu því ævistarf hans og
stóðu í um 50 ár. Hann mundi
eftir móðurafa mínum og stofn-
anda fyrirtækisins, Gunnlaugi J.
Fossberg, sem féll frá árið 1949.
Sigurður var aðeins á fimm-
tugsaldri þegar hann varð fyrir
heilsuáfalli og átti dálítið erfitt
með mál eftir það. En Sigurður
stóð sig eins og hetja. Það er
ekki alltaf auðvelt að afgreiða í
verslun, því getur fylgt mikið
álag og miklar kröfur eru gerðar
til afgreiðslufólks. Vinnudagur-
inn langur, fyrst í kjallaranum á
Vesturgötu 3 og síðan í stórhýs-
inu sem Fossberg reisti á Skúla-
götu 63 (nú Bríetartún 13).
En Sigurður gaf aldrei eftir
og náði meira að segja að kom-
ast í ljósmyndabók hjá þekktum
ljósmyndara þar sem hann sést
standa í sloppnum fyrir innan
búðarborðið. Ljóst má vera að
frumkvæðið að þeirri mynda-
töku hefur komið frá ljósmynd-
aranum, sem sá þar gott mynd-
efni.
Samgangur okkar Sigurðar
var ekki mikill síðustu árin. Þó
hitti ég hann og Árna bróður
hans fyrir einu og hálfu ári og
hef ég grun um að Árni hafi
reynst honum vel.
Ég vil fyrir mína hönd og
gamalla vinnufélaga þakka Sig-
urði öll árin hjá Fossberg. Guð
blessi minningu Sigurðar Árna-
sonar.
Einar Örn Thorlacius,
fyrrv. forstjóri GJ Fossberg
vélaverzlunar.
Sigurður Árnason
AKUREYRARKIRKJA | Aðalsafn-
aðarfundur Akureyrarsóknar í fundar-
sal Safnaðarheimilisins kl. 11. Venju-
leg aðalfundarstörf. Sunnudagaskóli í
Akureyrarkirkju kl. 11. Umsjón Sindri
Geir Óskarsson og Hjalti Jónsson.
Hljóðfæramessa í Akureyrarkirkju kl.
20. Prestur er Guðmundur Guðmunds-
son. Gert-Ott Kuldpärg leikur á saxó-
fón. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Sam-
koma í Núpalind 1, Kópavogi, kl. 14.
Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju
syngur og Kjartan Sigurjónsson er org-
anisti. Sunnudagaskólinn á sama tíma
í safnaðarheimili í umsjá Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14 þar
sem félagar úr Átthagafélagi Sléttu-
hrepps taka þátt. Ræðumaður verður
Ingvi Stígsson, ættaður frá Horni í
Hornvík. Sigurður Jónsson sókn-
arprestur þjónar fyrir altari. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti Bjartur Logi
Guðnason. Kaffisala Átthagafélagsins
í Ási, safnaðarheimili Áskirkju, að
guðsþjónustu lokinni. Breyttur messu-
tími.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón
hafa Þórarinn Ólafsson og sr. Hans
Guðberg. Messa í Bessastaðakirkju kl.
17. Lærisveinar Hans leika undir söng-
inn undir stjórn Ástvaldar organista, sr.
Hans Guðberg prédikar og þjónar fyrir
altari.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Lok vetrar-
starfsins hjá sunnudagaskólanum, í
6-9 ára starfinu og TTT. Eftir guðsþjón-
ustuna grillum við pylsur og leikum
okkur inni eða úti eftir veðri. Séra
Magnús Björn Björnsson og Steinunn
Þorbergsdóttir sjá um stundina ásamt
Erni Magnússyni organista. Tómasar-
messa kl. 20.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Hreiðar Zoëga og Jónas Þórir sjá
um stundina. Falleg stund fyrir alla fjöl-
skylduna. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Séra Arnaldur Bárðarson þjónar og
predikar. Félagar úr kammerkór Bú-
staðakirkju syngja undir stjórn Jónasar
Þóris kantors. Molasopi eftir messu í
safnaðarsal.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestar Bára Friðriksdóttir og Gunnar
Sigurjónsson. Veitingar í safnaðarsal
að messu lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á
pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á
pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga
kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar og
þjónar. Síðasti sunnudagaskólinn fyrir
sumarfrí á kirkjuloftinu hjá Óla og
Sigga. Dómkórinn og organisti er Kári
Þormar. Bílastæði við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl.
11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar
og predikar. Arnhildur Valgarðsdóttir
organisti. Norðurljósin syngja. Með-
hjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi
eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
armessa kl. 14. Séra Gunnar Matt-
híasson þjónar fyrir altari. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni organista.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónar ásamt Sunnu Kristrúnu
djákna. Tónlistarstjóri Margrét Árna-
dóttir ásamt æskulýðskórum kirkj-
unnar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir préd-
ikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju
leiðir söng og organisti er Hákon Leifs-
son. Sunnudagaskóli á neðri hæð
kirkjunnar kl. 11. Umsjón hafa Þóra
Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður
Frostadóttir. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í
SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Grét-
ar Halldór Gunnarsson prédikar og
þjónar. Vox Populi leiðir söng og organ-
isti er Hilmar Örn Agnarsson. Þetta er
síðasta Selmessan fyrir sumarfrí og af
því tilefni heldur Vox Populi litla tón-
leika fyrir messuna frá kl. 12.30.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli, Daníel Ágúst, Ásta og
Sóley taka á móti börnunum í mess-
unni sem hefst kl. 11 og svo fara þau í
sitt starf. Í messunni þjónar sr. María
Ágústsdóttir ásamt messuþjónum.
Samskot til Gideonfélagsins. Organisti
er Ásta Haraldsdóttir og félagar úr
kirkjukór Grensáskirkju syngja. Kaffi-
sopi á undan og eftir messu. Bæna-
stund kl. 10.15.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30.
Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organ-
isti Hrönn Helgadóttir og kvennakór
Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari
Guðný Aradóttir og kirkjuvörður Lovísa
Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og sunnudagaskóli kl. 11. Afmæl-
isárgangar 50, 60 og 70 ára ferming-
arbarna taka þátt í messunn og
snæða saman á eftir. Prestar kirkj-
unnar, Jón Helgi og Þórhildur, þjóna og
félagar úr Barbörukórnum syngja undir
stjórn Guðmundar Sigurðssonar. Erla
og Hjördís leiða sunnudagaskólann.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar að-
stoða. Barna- og unglingakór Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn Ásu Val-
gerðar Sigurðardóttur. Kammerkórinn
Bel Canto frá Finnlandi syngur undir
stjórn Dan Lönnqvist. Organisti er
Hörður Áskelsson. Umsjón með barna-
starfi Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa
Hrönn Árnadóttir. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
HAUKADALSKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 11. Prestur Egill Hall-
grímsson. Organisti Jón Bjarnason.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Ingibjörg Fríða Helga-
dóttir syngur og talar til barnanna. Org-
anisti Steinar Logi Helgason. Prestur
er Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Lokahá-
tíð barnastarfsins og sunnudagaskól-
ans kl. 11. Börn úr kórskóla kirkjunnar
synjga undir stjórn Guðnýjar Ein-
arsdóttur organista og Jóhönnu Hall-
dórsdóttur. Um stundina sjá Markús,
Heiðbjört og sr. Sunna Dóra Möller. Að
lokinni samveru er pylsupartí í safn-
aðarheimilinu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Translation into Engl-
ish. Samkoma á spænsku kl. 13. Reu-
niónes en español. Samkoma á ensku
kl. 14. English speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna-
kirkja kl. 13 í aldursskiptum hópum og
almenn samkoma með lofgjörð og
prédikun. Ólafur H. Knútsson prédikar
og sér um brauðsbrotningu. Eftir
stundina verður samfélag og kaffi.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Stopp-
leikhópurinn með leiksýninguna Ósýni-
legi vinurinn kl. 11. Messa kl. 20 með
Vox Felix. Arnór organisti og sr. Erla
leiða stundina.
KÓPAVOGSKIRKJA | Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Sigurður Arnarson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj-
unnar. Pamela de Sensi leikur einleik á
þverflautu.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Kaffisala eftir
messu á vegum Graduale Futuri sem
leiðir messusöng undir stjórn Rósu Jó-
hannesdóttur, organisti er Þorvaldur
Örn Davíðsson, Guðbjörg Jóhannes-
dóttir sóknarprestur þjónar auk Hafdís-
ar Davíðsdóttur, Söru Grímsdóttur og
messuþjóna.
LAUGARNESKIRKJA | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Sr. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari. Mag.Theol.
Hjalti Jón Sverrisson flytur hugvekju.
Ungt tónlistarfólk. Kaffi og samvera á
eftir. Börn úr æskulýðsstarfinu selja
veitingar til styrktar hjálparstarfi kirkj-
unnar.
Miðvikudagur 2. maí. Helgistund kl. 14
félagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20.
Fimmtudagur 3. maí. Vorferð eldri
borgara til Vestmannaeyja. Brottför frá
Laugarneskirkju kl. 7. Helgistund kl.
16 Hásalnum Hátúni 10 með Hjalta
Jóni og Davíð Þór.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Bíó-
sunnudagaskóli kl. 11. Boðið upp á
popp og kók og rifjaðir upp nokkrir
þættir með Hafdísi og Klemma frá því í
vetur. Guðsþjónusta kl. 20. Ung-
lingagospelkór syngur undir stjórn Ás-
laugar Helgu Hálfdánardóttur og við pí-
anóleik Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur
undir stjórn Þórðar Sigurðssonar org-
anista.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Kór Neskirkju syngur. Organisti
Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli
S. Ólafsson. Umsjón sunnudagaskóla
Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Kaffi-
sopi og samfélag eftir messu á Torg-
inu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Guðsþjónusta kl. 11. Á eftir
verður aðalfundur Njarðvíkurkirkju
haldinn. Dagskrá: venjuleg aðalfundar-
störf.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Banda-
rískir prestar koma í heimsókn. Barna-
starf. Túlkað á íslensku.
SELJAKIRKJA | Síðasta barnaguðs-
þjónusta vetrarins kl. 11. Góð stund
fyrir alla fjölskylduna. Pylsuveisla að
lokinni athöfn. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predik-
ar. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng.
Organisti Tómas Guðni Eggertsson.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predik-
ar og Tómas Guðni leikur á orgelið.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Erindi um frið
í heiminum og friðarhugtakið. Sr. Bjarni
Þór Bjarnason talar. Fjölskylduhátíð kl.
11. Lok sunnudagaskólans. Leiðtogar
sjá um stundina ásamt sóknarpresti
og organista. Mikill söngur. Pylsuveisla
og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Kristján Valur Ingólfsson Skál-
holtsbiskup annast prestsþjónustuna.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn Krist-
ínar Jóhannesdóttur. Prestur Jakob
Ágúst Hjálmarsson. Sunnudagaskóli
kl. 11. Hressing í safnaðarsalnum eftir
guðsþjónustur.
Orð dagsins: Send-
ing heilags anda.
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorlákshafnarkirkja.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Opið: 10-17
alla virka daga
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Ástkær systir, mágkona og frænka,
ÓLÖF M. EINARSDÓTTIR HAGGERTY
Lalla,
lést í New York í Bandaríkjunum fyrr í
mánuðinum.
Fyrir hönd ættingja,
Einar Stefán Einarsson
JÓHANNA KARLSDÓTTIR,
Víðihlíð 15,
Sauðárkróki,
lést miðvikudaginn 25. apríl á Sjúkrahúsinu
á Sauðárkróki.
Karl Bjarnason
Grétar, Annika, Hanna Maja
Reynhildur
og aðrir aðstandendur
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
UNNUR BENEDIKTSDÓTTIR,
áður Grænumörk 5, Selfossi,
lést á Dvalarheimilinu Lundi, Hellu, 26. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður K. Eggertsson Jórunn Sigurðardóttir
Benedikt G. Eggertsson
Unnsteinn B. Eggertsson Vilhelmína Roysdóttir
Ásgeir Eggertsson Brynhildur Valdórsdóttir
Ari Blöndal Eggertsson Ragnar Halldór Blöndal
barnabörn og langömmubörn