Morgunblaðið - 28.04.2018, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
✝ Sólveig Antons-dóttir fæddist 9.
maí 1936 á Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal.
Hún lést 17. apríl 2018
á Dalbæ, heimili aldr-
aðra á Dalvík.
Foreldrar hennar,
þau Anton Baldvins-
son, f. 1897, d. 1986,
frá Grund og Stein-
dyrum í Svarfaðardal,
og Lilja Tryggvadótt-
ir, f. 1910, d. 1992, frá Ytra-
Hvarfi, bjuggu í sambýli við
móðurafa Sólveigar og -ömmu.
Foreldrar Sólveigar fluttu til Dal-
víkur árið 1949 og hún bjó á Dal-
vík eða var með heimilisfesti þar
alla tíð þótt hún væri tímabundið
við vinnu og/eða nám annars stað-
ar. Sólveig lauk unglingaprófi á
Dalvík og síðar var hún við nám í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Hún kenndi við kokkaskólann í
Reykjavík, var kokk-
ur á síldarbátum,
ráðskona í verbúðum
og rak Víkurröst á
Dalvík í nokkur ár.
En lengst af var hún
við verslunarstörf á
Dalvík þar sem hún
rak verslunina Sogn í
yfir tuttugu ár.
Systkini Sólveigar
eru: Guðlaug, f. 1937.
Maki hennar er
Reimar Þorleifsson. Börn þeirra
eru Dóróþea, Anna Lilja, Þorleif-
ur Albert og Gunnar Örn. Þau
búa á Dalvík. Guðrún Soffía, f.
1944, d. 1970. Jóhann, f. 1946.
Maki hans er Svanfríður Jónas-
dóttir. Synir þeirra eru Pétur
Húni, Kristján Eldjárn og Jónas
Tryggvi. Þau búa á Dalvík.
Útför Sólveigar fer fram frá
Dalvíkurkirkju í dag, 28. apríl
2018, klukkan 13.30.
Við fráfall Sollu móðursystur
minnar reikar hugurinn aftur til
bernskuáranna. Þegar ég og syst-
ir mín vorum að alast upp var hún
frænkan sem kom og fór úr lífi
okkar. Hún var frænkan sem
hrærðist í heimi sem okkur var
ókunnur, stelpunum sem þekkt-
um fátt annað en sjávarþorpið og
sveitina. Aðrar fullorðnar konur
sem við þekktum voru flestar
mömmur sem höfðu það hlutverk
að sjá um börn og bú. Solla fetaði
ekki þessa troðnu slóð og ögraði
staðalímyndum þess tíma, stund-
aði sjó og gekk af atorku í hvert
það verk sem vinna þurfti þó svo
að almennt væru mörg þeirra skil-
greind sem karlmannsverk. Hún
var stórbrotinn persónuleiki, afar
sjálfstæð og hafði sterkar skoðan-
ir á mönnum og málefnum sem
hún lá ekkert á. Menn vissu hvar
þeir höfðu Sollu Tona.
Á milli þess sem frænka mín
var kokkur til sjós, matráðskona í
síldinni á Raufarhöfn, eldaði ofan í
laxveiðimenn vestur í Miðfirði eða
starfaði í Svíþjóð sem au pair kom
hún heim og dvaldi tímabundið í
foreldrahúsum. Alltaf var til-
hlökkun fyrir heimkomu Sollu því
hún hafði gjarnan meðferðis eitt-
hvað eftirsóknarvert handa okk-
ur, svo sem tískuvarning þess
tíma sem ekki var á allra færi að
eignast. Mér er sérstaklega minn-
isstætt þegar hún kom frá Svíþjóð
skömmu fyrir jól árið sem ég var
sex ára með jólagjafir til okkar
systranna í farteskinu. Hún sýndi
mér stærðar dúkkuvagn sem ætl-
aður var þriggja ára systur minni
og taldi ég víst að eitthvað sam-
bærilegt biði mín. Minn pakki
reyndist hins vegar afar smár.
Mér var nóg boðið yfir þessari
mismunun og taldi augljóst hvor
okkar systra væri í meira uppá-
haldi hjá henni. Ég átti hins vegar
eftir að draga mikinn lærdóm af
þessu því að sjaldan hef ég
skammast mín eins mikið fyrir
hugsanir mínar og framkomu og
þegar upp úr pakkanum kom for-
láta armbandsúr sem fæstir höfðu
í þá daga ráð á að eignast fyrr en
við fermingu. Henni tókst alltaf að
hitta í mark með gjöfum sínum og
ófáar gleðistundir átti ég til dæmis
á skautunum frá henni sem voru
óspart notaðir á Flæðunum, helst í
tunglsljósinu á kvöldin. Í minning-
unni sé ég mig þeysast áfram á
skautunum, snúa mér á punktin-
um og sviga síðan tignarlega aft-
urábak eins og ég ætti heiminn.
Margir eiga Sollu gott að gjalda
því hún var sannur velgjörðar-
maður þeirra sem hún tók ást-
fóstri við. Það á ekki síst við um
ungt fólk sem tímabundið átti þess
kost að dvelja í skjóli hennar og
hún lagði sig fram um að greiða
götuna fyrir. Yngri systur sinni
var hún einstök í veikindum henn-
ar en bölvuð liðagigtin átti síðar
eftir að herja á hana sjálfa líka og
ræna þessa kraftmiklu konu heils-
unni langt fyrir aldur fram. Að
leiðarlokum þakka ég Sollu
frænku fyrir alla umhyggjuna
sem hún sýndi mér og fjölskyldu
minni í gegnum árin.
Dóróþea Reimarsdóttir.
Sólveig Antonsdóttir mágkona
mín var elst fjögurra systkina.
Hún fæddist að Ytra-Hvarfi í
Svarfaðardal, en fjölskyldan flutti
til Dalvíkur þegar Solla var ung að
árum og þar bjó hún, lengst af
ásamt foreldrum, á æskuheimili
sínu að Goðabraut 18. Þar var
jafnframt miðstöð fjölskyldunnar
þar sem Solla stjórnaði af mikilli
rausn og umhyggju fyrir bæði for-
eldrum sínum og öllum frænd-
garði.
Á yngri árum var hún þó nokk-
uð í burtu við nám og vinnu. Hún
fór í Húsmæðraskóla Reykjavíkur
og var við verslunar- og skrif-
stofustörf þar um tíma ásamt því
að kenna í kokkaskólanum. Hún
var listakokkur, eftirsótt sem slík
og var bæði kokkur á síldarskip-
um og ráðskona í landi. Síðar naut
hún sín þegar hún tók við rekstri
Víkurrastar á Dalvík og var þar
með veitingasölu ásamt því að
halda úti vinsælum ballstað.
Solla naut þess að hafa mikið
umleikis. Árið 1974 keypti hún í
samvinnu við systkini sín bóka-
búðina á Dalvík og síðan stærra
húsnæði þar sem sett var á lagg-
irnar verslunin Sogn og umsvifin
aukin. Sogn var aldrei hefðbundin
bókabúð því Solla var fljótlega far-
in að versla m.a. með hljómplötur,
fatnað, skartgripi og gjafavöru,
auk þess að vera með umboð fyrir
happdrætti og flugfélagið. Það var
því stöðugur straumur af fólki í
Sogn, sumir til að kanna úrvalið og
versla en aðrir voru bara að heim-
sækja Sollu sem stjórnaði veldi
sínu frá skrifstofu innaf búðinni.
Þangað sóttu margir ráð og stuðn-
ing með kaffibollanum og var
Solla ósínk á allt slíkt. Sogn var
því stundum eins og félagsmið-
stöð.
Solla hafði mikinn metnað fyrir
samfélagið sitt og fyrir fólkið sitt,
bæði skyldfólk og vini. Hún var
líka reiðubúin að leggja sitt af
mörkum. Hún studdi yngstu
systkini sín dyggilega svo þau
gætu stundað nám í menntaskóla
og háskóla. Hún bjó m.a. með
Guðrúnu Soffíu yngri systur sinni
í Reykjavík til að gera henni kleift
að stunda nám þegar veikindi
hennar höfðu tekið frá henni lík-
amlega getu.
Synir mínir áttu alltaf hauk í
horni þar sem frænka þeirra var.
Hún vildi gjarnan stjórna með þá
og hafa fyrir þeim vit, en hún var
líka gjafmild og skilningsrík og
aldrei var vafi á því með hverjum
hún stóð ef þeir áttu í útistöðum.
Sjálf á ég Sollu mikið að þakka.
Hún var alltaf tilbúin að styðja
mig og gera það sem gera þurfti til
að ég gæti tekið þátt í stjórnmál-
um, hvort sem það var í bæjarmál-
um eða á landsvísu. Drengirnir
áttu víst athvarf hjá þeim í Goða-
brautinni um lengri eða skemmri
tíma og Solla stóð vaktina ef bróð-
ir hennar var líka í burtu.
Síðustu árin bjó Solla á Dalbæ,
heimili aldraðra á Dalvík, og þar
lést hún 17. apríl, þá tæplega 82
ára gömul. Hún hafði þá um árabil
búið við mikið heilsuleysi; liðagigt-
in sem hún þurfti að takast á við
öll fullorðinsárin, og sterku lyfin,
höfðu tekið sinn toll þannig að
þrekið hvarf henni smám saman á
nokkurra ára bili. Já, það munaði
um Sólveigu Antonsdóttur fyrir
hennar nánustu og alla þá sem
hún tók að sér. Hún setti svip á
samfélagið og við minnumst henn-
ar með þökk.
Svanfríður Jónasdóttir.
Minning um Sollu mína.
Hún er farin, flogin yfir móð-
una miklu, léttir fyrir hana, sorg í
hjarta fyrir okkur. Að kynnast
Sollu á mínum umróts-unglingsár-
um var mér sannarlega til góðs, ég
fékk alltaf athygli og óþreytandi
svör og samtöl. Sollubúð varð mitt
annað heimili og gladdi ungling að
fá að stimpla alla happdrættismið-
ana í hverjum mánuði, já það var
sko ekki rafrænt í þá daga. Liggj-
andi úti í horni að lesa Andrés í
bunkum og það á dönsku var hin
mesta skemmtun og alltaf var til
brauð, ostur og gúrka í horninu
fyrir svangan unglinginn, snemma
fékk ég líka að afgreiða í búðinni
og það var sko upphefð.
Að vera samþykkt inn í fjöl-
skylduna strax, fá afa og ömmu og
fullt af ættingjum, jólagæs og
laufabrauðsgerð, hvað er betra?
Fermingarveisluna mína hristi
hún fram með annarri hendi og
gigtin var sett á bið á meðan.
Brosið og hláturinn hennar var
svo léttur, sé hana fyrir mér í
stólnum sínum á bakvið með sígó í
annarri og símann í hinni hlæj-
andi, það voru góðir tímar.
Ég átti mitt herbergi heima hjá
Sollu, ömmu og afa og var þar í há-
degismat á virkum dögum og oft
kom fyrir að ég gisti líka, spurning
hvort pabbi var að sækja ís í
næstu bæjarfélög fyrir bátana eða
ekki, það var yndislegur tími í
Goðabrautinni. Eitt lærði ég samt
strax og það var að Solla tók lúr
eftir hádegi og því breytti enginn.
Sólarlandaferð til Ibiza, við
þrjú, og ferð til Amsterdam í
sögulega ferð fyrir milljón árum
að mér finnst, þar var mikið hlegið
og skoðað, verslað og notið þess að
vera til, þannig verða minningarn-
ar til.
Í dag er ég sorgmædd en glöð
um leið, Sollu minni líður vel og er
frjáls ferða sinna, ég mun muna
hana um ókomna tíð, hlæjandi á
bak við búðarborðið og spjallandi
við alla kúnnana sína.
Lífið hefði orðið snautt án þín,
takk fyrir mig og góða ferð heim,
við sjáumst síðar.
Þín
Áslaug.
Elsku Solla.
Nú þegar komið að er hinstu
kveðjustund, og þú að leggja upp í
langferðina þína við vegaslóða
þessa sumars, langar mig að
þakka þér öll okkar góðu kynni í
gegnum tíðina. Í huganum óska ég
þér alls hins besta handan himin-
heima og veit með vissu að þar
mun vel tekið á móti þér. Þú lagðir
lífið þannig upp. Ég mun alltaf
hugsa til þín með hlýju og minnast
gæsku þinnar í minn garð og góð-
semi í hvívetna. Vinátta þín var
mér mikil virði.
Hann Jón minn sendir þér hlýj-
ar kveðjur.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Arnar Símonarson.
Sólveig
Antonsdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
ÞÓRHALLUR GÍSLASON,
fv. skipstjóri og hafnarvörður,
frá Setbergi, Sandgerði,
lést á Hrafnistu Hlévangi, miðvikudaginn
25. apríl.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn
11. maí klukkan 13.
Þóra Þórhallsdóttir Sigurbjörn Björnsson
Benóný Þórhallsson Svava Jónsdóttir
Sigurður Sveinsson
Jónas Karl Þórhallsson Dröfn Vilmundardóttir
Gísli Þór Þórhallsson Helga Bylgja Gísladóttir
og fjölskyldur
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HALLA INGIBJÖRG SVAVARSDÓTTIR,
Áshlíð 6,
Akureyri,
lést á heimili sínu mánudaginn 23. apríl.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 4. maí klukkan 13.30.
Hallgrímur Kristinn Gíslason
Gísli Hallgrímsson Anna Sigríður Pétursdóttir
Bjarni Hallgrímsson Arna Þorsteinsdóttir
Garðar Hallgrímsson
Haukur Hallgrímsson Aðalheiður Guðmundsdóttir
Erla Björg Hallgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
HELGI HRAFNKELSSON,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi 17. apríl í
faðmi fjölskyldunnar.
Útför fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn
3. maí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir og þeim sem vilja
minnast hans er bent á styrktarsjóð líknardeildar LSH í
Kópavogi.
Anna Kristín Gunnlaugsdóttir
Jóhannes Unnar Drífa Hrönn
Hrafnkell Elísa Ösp
Helga Lovísa Þröstur Már
og barnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTA GUÐRÚN GUÐBRANDSDÓTTIR,
Naustabryggju 55, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
Hafnarfirði 21. apríl. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju föstudaginn 4. maí klukkan
11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktarsjóð Fjólu
Rafnar Garðarsdóttur, langömmubarns Ástu. Sjóðurinn styður
rannsóknir á Wiedemann-Steiner heilkenni sem Fjóla Röfn er
greind með.
Reikningsnúmer 0130-05-063095, kt. 020514-3100
Garðar Ágústsson
Guðbrandur G. Garðarsson Selma Rut Þorkelsdóttir
Ragna L. Garðarsdóttir Einar Þór Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
SIGURÐUR BALDVINSSON,
Norðurbakka 25B,
lést þriðjudaginn 24 apríl.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirrkju
miðvikudaginn 2. maí klukkan 11.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Björgunarsveit Hafnarfjarðar.
Lizzi Baldvinsson
Kristína Sigurðardóttir
Sjöfn Sigurðardóttir Thomas Madsen
Alexandra Kristína Madsen Helena Björk Madsen